Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 29 Heimsferðir kynna nú glæsilega ferð til þessarar heillandi borgar við Dóná. Hér getur þú kynnst stórkostlegum menningarverðmætum, rölt um kastalahverfið í Buda, eða heimsótt spennandi veitingastaði, verslanir eða spa í Pest, og kynnst töfrum borgarinnar með fararstjórum Heimsferða. Beint flug þann 5. maí. Kynntu þér einnig úrval sérferða Heimsferða fyrir árið 2002, þar sem þú getur valið um spennandi nýjar ferðir með reyndum fararstjórum Heimsferða. Þeir kynna þér nýja sýn á land og þjóð og tækifæri til að upplifa menningu og fegurð heillandi áfangastaða með nýjum hætti á nýju ári. Hvort sem þú vilt stutta helgarferð til að njóta náttúrufegurðar Gardavatns, sitja á útitónleikum í Arenunni í Verona, fara í menningarreisu um hjarta Evrópu eða ganga um Austurrísku alpana, þá bjóðum við hér spennandi valkosti á nýju ári. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Budapest 1. maí og 5. maí Miðevrópuævintýri 12. maí Verona 30. maí - 13. júní - 12. sept. Lago di Garda 23. maí - 6. júní - 19. sept. Prag 3. júní - 30. júlí - 20. ágúst Parma 1. ágúst Sumar í Týról 20. júní Gönguferð í ít. Ölpunum 11. júlí Róm - Sardinía 22. ágúst Fáðu bæklinginn sendan Aðeins 29 sæti laus * Verð m.v. 2 í herbergi, Tulip Hotel, með sköttum. Beint flug til Budapest Vikuferð til Budapest 5. maí frá kr. 58.150* Vilt þú kafa dýpra í eðli þitt sem leikari og styrkja tæknikunnáttuna? Telur þú að list leikarans sé hjarta leikhússins og gefi því líf? Þorir þú að taka áskoruninni um krefjandi eins árs nám í Finnlandi ásamt öðrum nemendum frá Norðurlöndunum, haust 2002 og vor 2003 - undir handleiðslu framúrskarandi kennara og leikstjóra? Ef þú ert með BA-próf úr leiklistarskóla eða sambærilegt, þá getur þú sótt um Norræna meistaragráðuárið (Nordiska magisteråret) við sænskudeild Leiklistarháskólans í Helsinki. Umsóknarfrestur er til 3. apríl 2002. Inntökupróf í Stokkhólmi 26.-27. maí og í Ósló 28. maí. Nánari upplýsingar: www.teak.fi/norma eða í síma +358 9 4313 6272. Framsækið og krefjandi leiklistarnám í Helsinki HINIR árlegu páskatónleikar Mús- ík í Mývatnssveit verða nú haldnir í fimmta sinn í Reykjahlíðarkirkju föstudaginn langa kl. 21. Að þessu sinni koma fram fiðluleikararnir Laufey Sigurðardóttir og Sig- urlaug Eðvaldsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla, Örnólfur Kristjánsson, selló, Páll Eyjólfsson, gítar, Daníel Þorsteinsson píanó, orgel og Ólafur Kjartan Sigurð- arson söngur. Flutt verða m.a. verk eftir Viv- aldi, Bach og Händel. Á laugardeg- inum fyrir páska verða kammer- tónleikar í Skjólbrekku kl. 14. Þar verða flutt verk eftir Dvorak og Boccherini ásamt þekktum söng- lögum og aríum. Aðgöngumiðasala er við inn- ganginn. Morgunblaðið/Kristinn Örnólfur Kristjánsson, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Laufey Sigurðardóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir, Páll Eyj- ólfsson og Ólafur Kjartan Sigurðarson. Auk þeirra leikur Daníel Þorsteinsson á tónleikunum. Músík í Mývatnssveit í fimmta sinn FORSAGA sýningar Stúdentaleik- hússins að þessu sinni er harla óvenju- leg. Haldin var leikritasamkeppni, en að lokum tókst dómnefnd ekki að kom- ast að niðurstöðu um einn sigurveg- ara, heldur stóðu tvö handrit eftir. Höfundar þeirra voru fengnir til að vinna með leikhópnum og útkoman er Upprisa holdsins, sýning byggð á tveimur handritum sem gefa af sér hið þriðja. Eins og nærri má geta er Upprisan æði brotakennd sýning. Rauði þráð- urinn, eina sýnilega fléttan, er þjóð- sagnakennd saga af tveimur prests- dætrum og tilraunum annarrar þeirra til að fleka vinnumanninn, en forverar hans hafa farist á voveifleg- an hátt hver af öðrum. Innanum og saman við getur síðan að líta revíu- kennd atriði úr stjórnmála- og hug- myndasögu Vesturlanda á síðustu öld. Þar ægir öllu saman; Þórbergur Þórðarson fer á fjörurnar við Guð, Fidel Castro verður forseti Íslands að undirlagi Sjálfstæðisflokksins, helför gyðinga verður að grótesku gríni. Þriðji vinkillinn er síðan sögumaður eða kannski öllu heldur málpípa sem heldur þrumandi ræður um ástand heimsins, stríð gegn hryðjuverkum, alþjóðavæðingu, spillingu og annað böl sem er ofarlega í huga margra nú um stundir. Það er vandasamt að setja saman sýningu af þessu tagi. Hægt er að fara þá leið að láta atriðin kallast á, láta eitt atriði leiða af öðru, tengjast eða mynda andstæður og spennu. Einnig má ganga alla leið í hina áttina og gera hvert atriði að örverki með upp- hafi, miðju og endi, merkingarbærum bút í sjálfum sér. Að vissu leyti fellur Upprisa holdsins milli þessara tveggja stóla. Engan greinanlegan þráð er að finna ef undan er skilin þjóðsagan, sem er snertipunktalaus við önnur atriði, og fæst atriðin ná að verða sterk í sjálfum sér. Það er síðan aðdáunarvert hvað hópurinn skilar þessu brotakennda verki af miklum sannfæringarkrafti. Sýningin nær að vera fáguð og gróf í senn og engir dauðir punktar í leik- rænni útfærslu efnisins. Sigurður Ey- berg skilar því ágætu verki, þótt hann hefði reyndar að ósekju mátt hnippa í nokkra þá óskýrmæltustu. Leiklega er hún sterk, eins og við var að búast og nokkur atriði verða eftirminnileg: samskipti tannlæknis og Goth-stelpu, valdarán Che Guevara í glugganum og eftirmálar þess, hin vergjarna Bergþóra á höttunum eftir sauða- manninum dularfulla. Yfirgengilega ósmekklegt nasis- tagrínið þótti undirrituðum dálítið sniðugt, en gat einhvern veginn ekki alveg bægt burtu hugsuninni: „má þetta?“ Predikun málpípunnar var síðan pirrandi, eins og predikun í leik- húsi alltaf er, ekki síst þegar vel er messað og skörulega eins og hér er raunin. Stúdentaleikhúsið er öflugt leikhús þessi misserin og hefur á að skipa hæfileikaríkri áhöfn sem tekur starf- semina bersýnilega alvarlega. Með Upprisu holdsins gera þau djarfa til- raun sem, eins og títt er með tilraunir, heppnast ekki fullkomlega. Sú reynsla fer í sarpinn hjá Stúdenta- leikhúsinu og það er hreint engin tímasóun að mæta í Stúdentakjallar- ann og deila henni með þeim. Tveggja penna tal LEIKLIST Stúdentaleikhúsið Höfundar: Aðalsteinn Smárason og Hild- ur Þórðardóttir. Leikstjóri Sigurður Ey- berg Jóhannesson. Stúdentakjallaranum 23. mars. 2002. UPPRISA HOLDSINS Þorgeir Tryggvason KAMMERKÓRINN Vox gaudiae heldur tónleika í Hjallakirkju í Kópavogi á morgun kl. 17 og eru þetta aðrir tónleikar kórsins, en hann var stofnaður haustið 2001. Tónleikarnir bera yfirskriftina Sjö orð Krists á krossinum og eru helg- aðir hugleiðingunni um pínu og dauða Jesú Krists. Kórinn flytur mótettuna Ave verum corpus eftir enska endurreisnartónskáldið Will- iam Byrd og Ad Dominum cum trib- ularer eða Davíðssálm 120 eftir sænska organistann og tónskáldið Otto Olsson sem uppi var á 20. öld. Tvö stærri verk eru einnig á dag- skránni. Það fyrra er Miserere mei Deus eftir ítalska endurreisnartón- skáldið Gregorie Allegri. Textinn er sóttur í 51. Davíðssálm. Verkið er samið fyrir níu radda kór án undir- leiks. Kórnum er skipt í tvo kóra sem syngjast á en á milli versanna er allt- af eitt vers sem sungið er á hefð- bundinn gregorískan hátt, í lokin syngja báðir kórarnir saman. Síðasta verkið á efnisskránni er einskonar lítil oratoría eftir þýska barokktónskáldið Heinrich Shütz, Sjö orð Krists á krossinum, og sem fjallar um síðustu stundir í lífi Jesú Krists, þ.e. frá því að hann er negldur á krossinn og þar til hann deyr. Verkið er þannig byggt upp að fyrst er fimm- radda kórkafli sem byggður er á upphafi sálms sem eignaður er Jo- hannesi Böschenstain. Flytjendur auk Vox gaudiae eru einsöngvararnir Hrafnhildur Björnsdóttir, sópran, Stefanie Otto, alt, Guðlaugur Viktorsson, tenór, og Gunnar Jónsson, bassi, sem syngja hlutverk guðspjallamannsins og ræningjanna og Benedikt Ingólfs- son, bassi, sem syngur hlutverk Jesú Krists. Orgelleikari er Sigrún M. Þórsteinsdóttir organisti í Breið- holtskirkju og söngstjóri er Jón Ólafur Sigurðsson, organisti Hjalla- kirkju. Aðgöngumiðar við innganginn. Pína Krists í tónum Benedikt Ingólfsson HLJÓMSVEIT og Stúlknakór Tón- listarskóla Ísafjarðar halda tónleika í Ísafjarðarkirkju á föstudaginn langa kl. 18. Yfirskrift tónleikanna er Kyrrðarhljómur og eru þeir helgaðir trúarlegum verkum. M.a. verða fluttir þættir úr Stabat mater eftir Pergolesi, Adagio eftir Albinoni og Adagio fyrir strengi Samuel Barber, Aría á G-streng eftir Bach og þáttur úr Matteusarpassíu Bachs. Stjórn- andi hljómsveitarinnar er Janusz Frach en Mariola Kowalczyk stjórn- ar Stúlknakórnum. Kyrrðar- hljómur í Ísa- fjarðarkirkju Í GALLERI Tablå í Bergen stendur nú yfir sýning á verkum sex félaga úr Meistara Jakob galleríi. Á sýning- unni eru verk eftir Elísabetu Har- aldsdóttur, Guðnýju Hafsteinsdótt- ur, Kristínu Sigfríði Garðarsdóttur, Sigríði Ágústsdóttur Auði Vésteins- dóttur og Þorbjörgu Þórðardóttur. Sýningin stendur fram yfir páska. Sýna í Noregi ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.