Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 41 ✝ Pálína Pálsdóttirfæddist í Hrauni á Bakkagerði á Borg- arfirði eystra 12. apr- íl 1917. Hún lést á Fjórðungssjúkrahús- inu í Neskaupstað 21. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jóhanna Jónsdóttir, f. á Stóra- Steinsvaði í Hjalta- staðaþinghá 27. ágúst 1891, d. 16. sept. 1917, og Páll Magn- ússon, f. á Glettinga- nesi 2. febr. 1890, d.11. júní 1967. Pálína ólst upp á Borgarfirði eystra hjá Friðbjörgu Jónsdóttur móðursystur sinni og Guðmundi Magnússyni föðurbróð- ur sínum. Árið 1923 fluttist Pálína til Neskaupstaðar til föður síns. Pálína giftist 24. júní 1951 Stef- áni Ásmundi Halldórssyni frá Vindheimi í Norðfirði, f. 21. nóv. 1918, d. 29. okt. 1993, og bjuggu þau í Nes- kaupstað alla tíð. Dætur þeirra eru: 1) Jóhanna leikskóla- kennari, f. 16. feb. 1951, maki Guðjón Björgvin Magnús- son, börn þeirra eru Stefán Karl, f. 13. des. 1974, Sigríður Margrét, f. 5. apríl 1978, og Iðunn Pála, f. 16. jan. 1983. 2) Dóra Gerður hjúkr- unarfræðingur, f. 17. júní 1960, maki Bjarni Valtýsson, börn þeirra eru Sigríður Ósk, f. 4. okt. 1983, Krist- ín Jóna, f. 27. maí 1985, Stefán, f. 18. júlí 1991, og Valtýr, f. 21. ágúst 1993. Útför Pálínu fer fram frá Norð- fjarðarkirkju laugardaginn 30. mars og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku Palla. Nú hefur þú lokið þínu jarðneska lífi. Ég vil þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum saman frá því ég kynntist þér fyrst er ég varð tengdasonur ykkar Stebba. Ég gleymi aldrei okkar fyrstu kynnum er þú tókst á móti mér með útbreiddan faðminn og sagðir: „komdu og kysstu hana tengdamóð- ur þína“, og frá þeirri stundu urðum við bestu vinir og bar aldrei skugga á vináttu okkar. Það var alltaf gaman að koma til þín á Þiljuvellina, setjast niður, fá sér kaffibolla og spjalla sam- an. Ég fann fljótt að þú barst miklar tilfinningar til alls sem lifði og hrærð- ist í þeirri stórkostlegu náttúru sem er hér í Norðfirði svo maður tali ekki um í Borgarfirði eystri sem þú taldir alltaf þína heimabyggð þó þú yrðir að yfirgefa hann ung að árum. Ég minn- ist þess hve þú hlakkaðir alltaf til vorsins og gast ekki beðið eftir að snjórinn hyrfi úr garðinum þínum svo að þú gætir farið að hlúa að blóm- unum sem þar voru, og undirbúa fyr- ir gróðursetningu nýrra. Dýrin skip- uðu ætíð stóran sess í líf þínu og var sama hvaða dýr það var, öll áttu þau griðastað hjá þér. Síðustu æviár þín er sjúkdómurinn Alzheimer tók völdin í lífi þínu reynd- ust þér og okkur vinum þínum og ættingjum erfið, svo hraust og fjörug sem þú varst er hann tók að herja á þig, og hægt og bítandi tók þig frá okkur uns kallið kom frá þeim sem líknar okkur öllum að lokum. Blessuð sé minning góðrar konu og góðrar vinkonu. Guðjón. Elskuleg tengdamóðir mín Pálína, eða Palla eins og hún var ávallt köll- uð, hefur kvatt eftir langvarandi veikindi. Síðustu árin hefur hún notið góðrar umönnunar á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Ég veit að Palla hefði ekki kært sig um ein- hverja langloku eða lofgerð, en mig langar samt að minnast hennar með nokkrum orðum. Palla og Stefán Halldórsson, Stebbi Hall, tengdafaðir minn, bjuggu lengst af á Þiljuvöllum 32 í Neskaupstað. Þau tóku mér frá upp- hafi opnum örmum. Fyrst kom ég þangað með Dóru fyrir um tuttugu árum. Stefán hafði þá átt við veikindi að stríða um nokkurt skeið, sem sett höfðu mark sitt á hann. Hann var ein- stakur ljúflingur. Samverustundirn- ar urðu ekki langar vegna búsetu okkar í Reykjavík og síðar erlendis. Alltaf var gott að koma og dvelja hjá þeim á Þiljuvöllum. Þar var röð og regla á hlutunum. Palla var lista- kokkur og alltaf matur og kaffi á rétt- um tímum. Oft litu inn ættingjar og vinir í eftirmiðdag eða kvöldkaffi og var þá glatt á hjalla. Fyrir um tólf árum fór að bera á minnistruflun hjá Pöllu og fór svo að hún varð innlögð á sjúkradeild. Sein- ustu ár ævi sinnar dvöldu þau Stebbi á sömu deild. Stebbi lést árið 1993. Palla var um margt sérstakur per- sónuleiki. Hafði sínar skoðanir á mönnum og málefnum og fékk þeim enginn hnikað, ef svo bar undir. Var hrein og bein í öllum viðskiptum og sagði hug sinn. Hún hafði gaman af að gera sér dagamun og er mér sérstaklega minnisstætt að þegar hún varð 70 ára fórum við dætur og tengdasynir með þau hjón út að borða. Síðan höfnuð- um við á dansleik á Hótel Borg. Oft síðar höfum við minnst þessa kvölds og sérlega hversu vel Palla og Stebbi skemmtu sér. Þegar við vorum í fríi fyrir austan ferðuðumst við gjarnan dagsferðir um Austurland. Palla hafði mjög gaman af því að heim- sækja Borgarfjörðinn. Þar var hún fædd og þekkti fjölda fólks, sem hún gjarnan heimsótti. Að leiðarlokum vil ég þakka Pöllu og Stebba fyrir alla vinsemd í minn garð. Jóhanna, Guðjón og börn þeirra eiga þakkir skilið fyrir að líta svo vel eftir þeim í gegnum árin, sér- staklega eftir að aldur og veikindi fóru að segja til sín. Ég bið góðan guð að bessa minningu þeirra. Bjarni Valtýsson. Við systurnar komum alltaf í heim- sókn til ömmu og afa í Neskaupstað með mömmu og pabba á sumrin þeg- ar við vorum yngri. Amma Palla átti stóran skáp og í þessum skáp geymdi hún allar slæður sem hún átti. Þessi stóri skápur var í uppáhaldi hjá mér, en ég veit ekki með Stínu systur. Ég gramsaði alltaf í gegnum allan skáp- inn, vissulega rústaði ég öllu skipu- lagi Pöllu ömmu, þangað til að ég fann flottustu slæðuna. Svo valdi Stína sér einhverja flotta slæðu. Síð- an kom það að því að velja sér skó. Amma átti fullt af flottum skóm. Jæja, svo löbbuðum við um allt húsið, í allt of stórum skóm og með fallega slæðu um hálsinn. Amma hló og sagði okkur hvað við værum fallegar döm- ur. Þannig man ég hana best. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Sirrý Bjarnadóttir. PÁLÍNA PÁLSDÓTTIR ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 www.utfararstofa.is ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga er andlát verður, í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Gestabók Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri .,      )   ,,   /   '  &/&        ' ,  1/ 9./9 " +%!E  #       #  )  (#  "   &    3D  '77  6              6   9 :5  . " '$! 7  . 6  )      /    ' &/&    ' ,                     ,  ,    , A<N / / A ! 8)' 7%:51 + 5% ": 8 6 32. ,+ %  +'   9 6  !+ +) $* +" ' 7 $,+ % + 6  67  6  6  67  '$6  6  6  67 . 6   )   -     /     '      ' ,   "  ,      ,    / /0/ 9$$7F ' $ . % * + ! + +   7 + 5 %:' /  7 '   1  8+ % 5%  7 + + + !  7 '  $- %:+ % *4 $ 5% '!!5  % *&$* / ) 5     '!!5  '$/5 N . C   )       /    '&/&    ' ,!     //  A<)A0/ )%"'2O ,+ "7!. #   )      & '   &   = . &,  9 $: ' %: 9.$: ' 9$  + . C    )      /        &/  '   '  ,  !     "  ,     ,       A<  A/  9/0/ ! 8 !7. 1 5 + + 1 5 % ++ $:  %:' +  % +' A 66  '6+ $ 6 7 $ % ++ 4&  ' 7! % ++ %:  ' /   % +'  !5 >8+ +"   % ++ $ @'6 % +1 . % +' %-  5 + 6  67 '$6  6  67 . 6  )    )    /    '&/&    ' ,            ,  </ )/ IA P!3   45. #   )   6  &-    3 77   #      "   $  %"  /%$ +' *5  /%+ !8 ' 4  $/%+ 9   7 ' ) $*/%' $ 5% $ 4+ ) $*$ ' *5  &  + '$6  67 . C   ) - '  &   /        ,        ,  , // >&A ! 8 45. #  )     & ' &       6     - 7! ,  $ 5% -%+ ' .H$ >8-%' 56' $ %:+ $" -%+ 49 + ' %: -%' 9 !" $ $ +     6  67 '$ $7::67 .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.