Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 48
DAGBÓK 48 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag er Mánafoss vænt- anlegur og út fara Arn- arfell og Goðafoss. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag er væntanlegt Apollo Tiger. Fréttir Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðju- og fimmtudaga kl. 14-17. Félag frímerkjasafn- ara. Opið hús laug- ardaga kl. 13.30-17. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551 4349, opin alla miðvikud. kl. 14-17, flóa- markaður, fataúthlutun og fatamóttaka, sími 552 5277, opið annan og fjórða hvern miðvikudag kl. 14-17. Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Svarað í síma Krabba- meinsráðgjafarinnar 800 4040 kl. 15-17. Mannamót Aflagrandi 40. Bún- aðarbankinn verður á Aflagranda 40 þriðju- daginn 2. apríl kl. 10.15. Verslunarferð í Hag- kaup í Skeifunni mið- vikudaginn 3. apríl kl. 10 frá Grandavegi með við- komu á Aflagranda. Kaffiveitingar í boði Hagkaups. Skráning í afgreiðslu og í síma 562- 2571. Nýtt jóga- námskeið hefstt fimmtu- dag 4. apríl. Kennt verð- ur tvisvar í viku á þriðjud. og fimmtud. Kennsla hefst kl. 9. Skráning í afgreiðslu í síma 562-2571. Opið hús fimmtudaginn 4. apríl. Húsið opnað kl. 19.30. Félagsvist kl. 20. Léttar kaffiveitingar. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13-16.30, spil og fönd- ur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga á föstudögum kl. 11. Kór- æfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mos- fellsbæ á Hlaðhömrum fimmtudaga kl. 17-19. Púttkennsla í íþrótta- húsinu á sunnudögum kl. 11. Uppl. hjá Svan- hildi í s. 586 8014 kl. 13-16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrt- ingu, hárgreiðslu og fótanudd í s. 566 8060 kl. 8-16. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. 2. apríl vinnu- stofa, kl. 13.30 spilað í Kirkjuhvoli. Kl. 13 mál- un, kl. 13.30 tréskurður. 3. apríl: Kl. 11.15 og 12.15 leikfimi. Kl. 13.05 róleg stólaleikfimi. Kl. 13 vinnustofa, kl. 13.30 handavinnuhornið. Kl. 16 trésmíði. 4. apríl: Kl. 9.45 boccia, kl. 9 vinnu- stofa, kl. 13 málun og keramik og postulín. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Leik- húsferð miðvikudaginn 10. apríl kl. 14 til að sjá „Í lífsins ólgusjó“ og „Fugl í búri“ er Leik- félagið Snúður og Snælda sýna í Ásgarði, Glæsibæ. Skráning og allar upplýsingar í Hraunseli í síma 555- 0142. Félag eldri borgara, Kópavogi. Opið hús í Gullsmára 13 laugardag- inn 6. apríl kl. 14. Dag- skrá: Upplestur, hljóð- færaleikur o.fl. Kaffi og meðlæti. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin alla virka daga frá kl. 10-13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Félagsstarf fellur niður um páskana. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði í Glæsibæ, félagsheimili Félags eldri borgara söng- og gamanleikinn „Í lífsins ólgusjó“, minn- ingar frá árum síldaræv- intýranna og „Fugl í búri“, dramatískan gam- anleik. Næstu sýningar: Miðvikudaginn 3. apríl kl. 14, kvöldsýning verð- ur fimmtudaginn 4. apríl kl. 20. Sýningum fer fækkandi. Miðapantanir í síma 588-2111 og 568- 9082. Heilsa og hamingja laugardaginn 13. apríl nk. kl. 13.30 í Ásgarði Glæsibæ. Hóprann- sóknir á vegum Hjarta- verndar. Vilmundur Guðnason, for- stöðulæknir Hjarta- verndar. Fræðslunefnd FEB hvetur fólk til að mæta og kynna sér málefnin. Á eftir hverju erindi gefst tækifæri til spurn- inga og umræðna. Sparidagar á Örkinni 14.-19. apríl, skráning á skrifstofu FEB. Silfurlínan er opin á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 10 til 12 f.h. í síma 588-2111. Skrifstofa félagsins er flutt í Faxafen 12, sama símanúmer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB. Gerðuberg, félagsstarf. Starfsfólk óskar öllum þátttakendum og sam- starfsaðilum gleðilegrar páskahátíðar. Gjábakki. Einmán- aðarfagnaður verður í Gjábakka fimmtudaginn 4. apríl kl. 14. Fjölbreytt sköpunar- og skemmti- dagskrá sem er sam- starfsverkefni Digranes- skóla, Leikskólans Marbakka og Gjábakka. Vöffluhlaðborð, allir vel- komnir. Vesturgata 7. Starfsfólk Vesturgötu 7 óskar gest- um og velunnurum gleðilegra páska. Þriðjudaginn 2. apríl kl. 13.30-14 verður Lands- banki Íslands hf. með al- menna bankaþjónustu. Fimmtudaginn 4. apríl kl. 10.30 verður helgi- stund í umsjón séra Hjálmars Jónssonar dómkirkjuprests, kór Félagsstarfs aldraðra syngur undir stjórn Sig- urbjargar Petru Hólm- grímsdóttur. Allir vel- komnir. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Sjálfboðamiðstöð Rauða krossins, Hverfisgötu 105. Kl. 13-16 prjónað fyrir hjálparþurfi er- lendis. Efni á staðnum. Allir velkomnir. Kvenfélag Seljasóknar. Farið verður á leiksýn- ingu hjá Leikfélaginu Snúð og Snældu sem sýnt er í Glæsibæ fimmtudaginn 4. apríl. Ath. breyttur fund- ardagur. Sýningin hefst kl. 20. Farið verður frá Seljakirkju kl. 19.30. Kenfélag Garðabæjar heldur aprílfund sinn á Garðaholti þriðjudaginn 2. apríl kl. 20.30. Góð skemmtiatriði. Stjórnin. Ferðaklúbburinn Flækjufótur. Skráning hafin í sumarferð sem farin verður þann 27. júní til 3. júlí nk. Uppl. í símum 557-2468 og 898- 2468. Kvenfélagið Fjallkon- urnar heldur fund þriðjudaginn 2. apríl kl. 20 í Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju. Séra Jóna Hrönn Bolla- dóttir kemur í heim- sókn. Allar konur vel- komnar. Minningarkort Parkinsonsamtökin. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd í síma 552-4440 frá kl 13-17. Eftir kl. 17 s. 698-4426 Jón, 552-2862 Óskar eða 563-5304 Nína. Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna, Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9-13, s. 562- 5605, bréfsími 562-5715. Minningarkort Krabba- meinsfélags Hafn- arfjarðar ( KH ) er hægt að fá í Bókabúð Böðvars, Reykjavík- urvegi 64, 220 Hafn- arfirði s. 565-1630 og á skrifstofu K.H., Suðurgötu 44,II. hæð, sími á skrifstofu 544- 5959. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félagsins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstofunni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upplýsingar í tölvupósti (minn- ing@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apótekum. Gíró-og kreditkorta- greiðslur. Í dag er fimmtudagur 28. mars, 87. dagur ársins 2002. Skírdagur. Orð dagsins: Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öll- um mætti þínum. (Mark. 12, 30.) 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 gróf, 4 spákona, 7 fórn, 8 kvæði, 9 ungviði, 11 mjög, 13 ránfuglar, 14 espar, 15 klár, 17 slæmt, 20 bol, 22 ófrjáls maður, 23 sjófuglinn, 24 orða- senna, 25 skjóða. LÓÐRÉTT: 1 lota, 2 slétta, 3 gaffal, 4 makræði, 5 ber, 6 pening- ar, 10 húsgögn, 12 drif, 13 örn, 15 konungur, 16 þreyttum, 18 nárinn, 19 áma, 20 ker, 21 glatt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 handbolti, 8 vænir, 9 gufan, 10 ata, 11 rósar, 13 remma, 15 hross, 18 hræða, 21 tær, 22 riðla, 23 okinn, 24 hrekklaus. Lóðrétt: 2 annes, 3 dárar, 4 orgar, 5 tófum, 6 svar, 7 snúa, 12 als, 14 err, 15 horf, 16 orður, 17 stakk, 18 hroll, 19 ætinu, 20 agns. K r o s s g á t a Staða ábyrgðarmanna VEGNA nýlegrar könnun- ar á stöðu ábyrgðarmanna á Íslandi miðað við Norð- urlönd, og væntanlegri að- för að ættingjum öryrkjans sem fékk ekki undanþágu frá reglum um endur- greiðslu námslána, langar mig að leggja orð í belg. Þannig er að ég hef orðið að súpa fjöruna vegna ábyrgða fyrir barnið mitt og það voru ekki nein ferða- eða bílalán sem ég gat byrst mig yfir og kallað óþarfa. Nei, það voru bara þessi nauðsynlegu lán í nú- tíma þjóðfélagi sem enginn faðir með feðrum getur neitað; skuldabréf vegna náms í tölvuskóla, veðleyfi vegna íbúðarkaupa og uppáskrift vegna Visa- korts. En það komu upp vandræði og ég sit uppi með verulegar greiðslur og þá er ég að tala um tugþús- undir á mánuði í mörg ár. Svo vill annað barnið mitt fara í nám erlendis, ekkert sem ég hvorki vildi né gat stoppað – en ég varð að gangast í 700 þúsunda ábyrgð fyrir yfirdrætti hjá bankanum. Í einhverjum barnaskap hélt ég að þar með væri ég sloppinn; það eru allir að tala um þetta guðdómlega gildi menntun- arinnar og að aldrei sé nóg gert í að auka við námslán og aðgengi að þeim. Síðan kom kallið núna í febrúar, það var víst allt fast útaf námslánunum og útlendi skólinn vildi sitt. Svo ég varð að fara með pennann minn vestur í bæ (þar sem skráður umboðsmaður þessa barns míns býr) og í mildu ljósinu þar gat ég séð að ég var að gangast undir sex milljóna króna ábyrgð. Er ekki eitthvað sjúkt við þetta? Þetta er opinber lánasjóður sem á að stuðla að jafnrétti til náms, en hann er í raun að hnýta naflastreng á milli mín og þessa uppkomna barns míns fyrir lífstíð. Ég á aldr- ei eftir að geta sagt við sjálfan mig: Jæja, nú hef ég greitt öllum það sem þeim ber og nú á ég svo eða svo mikið eftir. Nei, ef ég verð heppinn fæ ég bara öðru hvoru tilkynningar um að síðasta afborgun hafi ekki verið greidd, en það er langlíklegast að eftirstöðv- ar þessa námsláns verði til staðar með vöxtum og vaxtavöxtum þegar lokið verður sett á kistuna mína. Venjulegur Íslendingur. Dýrahald Páfagaukur týndist PÁFAGAUKURINN Pási, sem er gulgrænn með svörtum gárum, flaug út um glugga í Sólheimum. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 8634263 eða sendið póst: gretarh@hi.is VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is FERMING er góður og gróinn siður. Það er ekki gert of mikið af því að sýna börnum og ung- lingum athygli og verð- ugt að halda upp á það að barni hafi verið kom- ið upp. Breyttar þarfir kalla á útgjöld fyrir heimilið og ekki nema gott um það að segja að ættingjar leggi lið við það að útbúa unglinginn. Það er gott að fólk komi saman af góðu tilefni og á engan hátt neitt vont um þennan sið að segja. Þó er aldrei nema satt að sjaldan skartar óhóf- ið og jafnt hvort í hlut á unglingur eða sextug manneskja. Þó er full- orðnu fólki ekki sýnd sú ókurteisi að sagt sé að það haldi upp á afmæli sitt „bara vegna gjaf- anna“. Sýnum unga fólk- inu þá kurteisi að gera ekki lítið úr því og al- vöru þeirra hvað ferm- inguna varðar. Fjölmiðlar ættu að hætta þeirri tvöfeldni sem birtist í því að hafa uppi gagnrýni á ferm- inguna og óhófið henni samfara en hafa svo drjúgar auglýsinga- tekjur af öllu saman. Þegar öllu er á botn- inn hvolft er þetta svona sem við lifum og okkur sæmir síst hræsni í þessu sambandi. Þá er á það að minna að ekki eru allir hlaupatíkur hé- gómans og hafa veislu- höld og kostnað eftir efnahag sínum og gleðj- ast yfir því að gleðja aðra, hvort sem er í mat eða gjöfum. Fermingarbörnin eru að sínu leyti sönn í því sem þau eru að gera og ekki hef ég hitt fyrir mörg fermingarbörn sem ég gæti fullyrt að „séu bara að gera þetta vegna gjafanna“ og má ég þó vel um dæma. Við skulum fagna þessu unga fólki sem er að slíta barnsskónum og óska því til hamingju með lífið. Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkjuprestur. Ferming er góður og gróinn siður Víkverji skrifar... VÍKVERJA barst í hendur fyr-irlestur sænska sagnfræðipró- fessorsins Haralds Gustafssons, sem fluttur var á norrænu sagn- fræðingaþingi í Árósum sl. haust. Þar fjallar hann um norrænt fræða- samfélag sagnfræðinga eins og það kemur honum fyrir sjónir: „Einu sinni voru Svíi, Dani, Norðmaður, Finni og Íslendingur, sem ætluðu á sagnfræðingaþing. Þar töluðu þeir í marga daga. Sví- inn sagði: „Kenningar, kenningar, kenningar.“ Daninn svaraði: „Reynsluathuganir, reynsluathug- anir, reynsluathuganir.“ Norðmað- urinn hrópaði: „Noregur, Noregur, Noregur!“ „Kenningar, kenningar,“ sagði Svíinn og kinkaði kolli, „reynsluathuganir,“ tuldraði Dan- inn. Þá loksins blandaði Finninn sér í samræðurnar: „Vetrarstríðið.“ Og svo fóru þeir heim – nei, annars, það var Íslendingur þarna líka, en hann sat allan tímann og var að reyna að tjá sig á dönsku og náði aldrei að koma neinu út úr sér. Svo fóru þeir heim. „Hvernig var á norræna sagnfræðingaþinginu?“ spurðu starfssystkinin. „Það voru fínar umræður um kenningar,“ svaraði Svíinn. „Það komu fram mjög skemmtileg sjónarmið um ut- anríkisstefnu Kristjáns IV,“ sagði Daninn. Norðmaðurinn og Finninn voru líka ánægðir með það sem þeir höfðu sagt frá. Og Íslendingurinn sagði: „Ég er bara mjög ánægður, þetta sem ég kom á framfæri vakti mikla athygli.““ x x x GUSTAFSSON tekur fram aðþetta sé mjög svo einfölduð mynd – það séu til sagnfræðingar, sem hlusti hver á annan. Það sé engu að síður staðreynd að menn komi heim af sagnfræðingaþingum og hafi orðið fyrir undarlega litlum áhrifum af öðrum. Norrænir fræða- fundir eigi að þjóna því hlutverki að „losa um hugarfarslega spenni- treyju þjóðríkisins“ en prófessorn- um finnst það ekki ganga sem skyldi. Gustafsson vitnar síðan til upp- hafsorða skáldsögunnar Jarðar eftir Gunnar Gunnarsson: „Maðurinn kemur og maðurinn fer á jörðunni, fer og kemur.“ Gustafsson tekur fram að þessi orð hafi upprunalega verið skrifuð á dönsku; Gunnar hafi eins og fleiri íslenzkir rithöfundar á svipuðum tíma náð vinsældum í Danmörku með bókum, sem voru skrifaðar á dönsku. Hann segir þetta nú vera rannsóknarefni bók- menntafræðinga: „Hvernig gátu þeir yfirgefið „sitt“ tungumál og „sitt“ land, landið sem hefur „sína“ sögu? En hugsið ykkur, ef fleiri þyrðu að koma og fara, ef við sagn- fræðingarnir yrðum okkur meðvit- aðri um þjóðlegar takmarkanir okk- ar, ef við, í táknrænni merkingu, reyndum að skrifa á dönsku af og til! Það eru ekki „lönd“ sem eiga sér sögu, heldur maðurinn. Norræn saga getur verið leið fram hjá Sví- anum, Dananum og þeim hinum, jafnvel framhjá Norðurlandabúan- um, að manninum.“ x x x SAGAN sem prófessorinn segirer skemmtileg og flestir, sem hafa tekið þátt í norrænu samstarfi yfirleitt, kannast við sitthvað í henni. Norrænt samstarf er að flestu leyti einstakt og hefur orðið mörgum fyrirmynd, en samt er enn langt í land að menn brjótist þar úr „spennitreyju þjóðríkisins“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.