Morgunblaðið - 27.06.2002, Blaðsíða 1
2002 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KEFLAVÍK OG FH SKILDU JÖFN Í REYKJANESBÆ / B4
UNNUR Sigmarsdóttir hefur verið ráðin
þjálfari bikarmeistara ÍBV í handknattleik
kvenna og tekur hún við starfi Erlings
Richardssonar sem á dögunum tók við þjálf-
un karlaliðsins. Unnur, sem lék með Eyja-
konum á árum áður, hefur þjálfað yngri
flokka ÍBV í mörg ár ásamt því að taka
virkan þátt í starfi meistaraflokks kvenna.
ÍBV ætlar sér stóra hluti á næstu leiktíð
en þrír erlendir leikmenn hafa gengið í rað-
ir liðsins fyrir komandi leiktíð. Eins og
Morgunblaðið greindi frá í gær hefur ÍBV
gert samning við tvær austurrískar lands-
liðskonur og þá skipti rússneska stór-
skyttan Alla Gorkorian úr Gróttu/KR yfir í
ÍBV í síðasta mánuði.
Unnur þjálf-
ar Eyjakonur
Gjaldþrot sjónvarpsstöðvarinnarITV hefur sett allt á annan
endann hjá ensku liðunum en staða
Stoke er samt sem áður betri enn hjá
mörgum öðrum 1. deildarliðum sem
hafa nú þegar eytt þeim fjármunum
sem áttu að koma frá sjónvarps-
samningum við ITV-stöðina.
Bradford, Watford og Norwich
hafa sett marga leikmenn á sölulista
og fækkað í starfsliði sínu til þess að
ná endum saman í rekstrinum.
Gunnar Þór segir ennfremur að
Cotterill hafi vitað takmörk sín í
þessum efnum er hann var ráðinn.
„Hann þarf að vinna með þann hóp
sem við erum með nú þegar og ná því
besta úr liðinu,“ sagði Gunnar Þór og
bætir því við að líkast til verði nokkr-
ir leikmenn seldir frá félaginu áður
en keppnistímabilið hefst í lok ágúst.
„Lykilatriðið er að haga útgjöld-
um í takt við tekjur liðsins en ég
neita því ekki að við spenntum bog-
ann hátt á sl. keppnistímabili er við
eygðum von um að komast í umspil.
Þeir leikmenn sem fengnir voru til
liðsins á þeim tíma kostuðu sitt en
voru þess virði. Óvissan um niður-
stöðu ITV-málsins gerir alla undir-
búningsvinnu erfiðari. Við gerum
okkur vonir um að fá auknar tekjur
frá sjónvarpsréttinum.“
Gunnar Þór segir að margir af um
500 íslenskum hluthöfum hafi sett
spurningarmerki við ákvörðun
stjórnarinnar er Guðjón Þórðarson
var ekki endurráðinn sem knatt-
spyrnustjóri. „Það er trú okkar að
Steve Cotterill sé rétti maðurinn í
starfið og eigi eftir að reynast liðinu
vel. Það er spennandi tímabil fram-
undan og stuðningsmenn liðsins hafa
sýnt mikinn áhuga á ársmiðum og
einstökum leikjum liðsins á næstu
leiktíð,“ sagði Gunnar Þór.
Cotterill fær úr litlu
að moða hjá Stoke
GUNNAR Þór Gíslason, stjórn-
arformaður Stoke City, segir í
viðtali við blaðið The Sentinel
að Steve Cotterill, nýráðinn
knattspyrnustjóri liðsins, fái
ekki úr miklu að moða til leik-
mannakaupa í sumar.
ÓLAFUR Jón Ormsson, fyrirliði
KR og landsliðsmaður í körfu-
knattleik, er hættur körfuknatt-
leiksiðkun í bili að minnsta kosti
vegna þrálátra meiðsla. Jón stað-
festi þetta í samtali við Morgun-
blaðið og sagðist hann vera orðinn
langþreyttur á því að geta ekki
beitt sér af fullum krafti. Vöðva-
festing í innanverðu læri rifnaði í
fyrra og hefur Jón ekki náð sér af
þeim meiðslum. Hann telur að erf-
itt sé að meta batahorfurnar og
því telji hann skynsamlegast að
draga sig í hlé á þessum tíma-
punkti. „Þetta háir mér ekki í
hversdagslegum störfum, en ég
get ekki leikið körfubolta af fullum
krafti. Ég hef verið óheppinn með
meiðsli í gegnum tíðina og löng
fjarvera er erfið fyrir sjálfstraust-
ið og andlegu hliðina. Það má því
segja að ég hafi verið orðinn lang-
þreyttur á þessu og þolinmæðin er
á þrotum.“ Ólafur Jón er aðeins 26
ára gamall og hann útilokar ekki
að hann eigi eftir að snúa aftur í
framtíðinni. „Ég útiloka ekkert.
Ég ætla að reyna að ná mér af
þessum meiðslum með því að taka
mér hvíld. Ef það tekst er aldrei
að vita nema löngunin hellist yfir
mig á nýjan leik,“ sagði Ólafur,
sem kjörinn var körfuknattleiks-
maður ársins árið 2001, og ljóst er
að fjarvera hans verður KR-liðinu
mikil blóðtaka.
Ólafur Jón
dregur
sig í hlé
Reuters
Luiz Felipe Scolari, þjálfari Brasilíu, fagnar með Rivaldo.
LUIS Felipe Scolari, þjálfari bras-
ilíska landsliðsins í knattspyrnu,
sagði eftir 1:0-sigurinn á Tyrkjum
í undanúrslitum heimsmeist-
arakeppninnar í gær að nú væri
líkt á komið með sér og Rudi Völl-
er, þjálfara þýska landsliðsins.
Þeir mætast með liðum sínum í úr-
slitaleik HM í Yokohama í Japan á
sunnudaginn – úrslitaleik tveggja
þjóða sem eiga það sameiginlegt
að hafa ekki verið spáð miklum
frama í keppninni þrátt fyrir
forna frægð.
Scolari minntist þess að þeir
Völler hefðu hist í Seoul fyrir ári
síðan. „Þá vorum við báðir með
hengingarólina um hálsinn, um
það leyti mátti ekkert út af bregða
hjá okkur og staða okkar var ekki
góð. Við föðmuðumst, óskuðum
hvor öðrum velfarnaðar og sögð-
um að kannski myndum við hittast
í úrslitaleiknum að ári. Og hingað
erum við komnir. Ég er viss um að
við munum hittast fyrir leikinn og
faðmast – og megi síðan sá betri
sigra,“ sagði Scolari.
Hann var mjög ánægður með
frammistöðu sinna manna í leikn-
um við Tyrki í gær. „Ég fann strax
í upphafi leiksins að það fóru já-
kvæðar bylgjur um leikmennina,
varamannabekkinn og stuðnings-
mennina. Ég fann fyrir þessum
krafti. Ég er viss um að brasilískir
knattspyrnuáhugamenn eru alsæl-
ir og þeir munu dansa og syngja
meðan úrslitaleikurinn fer fram á
sunnudaginn,“ sagði Scolari.
Hann kvaðst þó hafa búist við
stærri sigri sinna manna. „En
Tyrkir stóðu sig með miklum
sóma og fyrir þá var það mikið af-
rek að komast í undanúrslit. Það
er ekki auðvelt að spila gegn
þeim, þeir leika öðruvísi sókn-
arleik en önnur lið og skapa sér
mikið af marktækifærum. Ég óska
þeim innilega til hamingju með
sína frammistöðu,“ sagði Luis Fel-
ipe Scolari.
„Við Völler ætluð-
um að hittast“