Morgunblaðið - 09.07.2002, Blaðsíða 1
158. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 9. JÚLÍ 2002
UPPTÖKUR úr stjórnklefum flug-
vélanna tveggja sem rákust á yfir
Suður-Þýskalandi í vikunni sem leið
sýna fram á, að fyrirmæli flugum-
ferðarstjóra í Sviss til áhafnar rúss-
nesku farþegaþotunnar um að
lækka flugið stönguðust á við til-
mæli frá árekstrarvara þotunnar
um að flugið yrði hækkað til þess
að koma í veg fyrir árekstur, að því
er þýskir rannsóknarfulltrúar
greindu frá í gær.
Sjötíu og einn fórst er rússneska
Tupolev 154-þotan, með 69 manns
innanborðs, og Boeing 757-fraktvél,
skráð í Bahrain, með tveggja
manna áhöfn, rákust saman í 35.300
feta hæð 1. júlí sl. Rannsókn á seg-
ulbandsupptökunum hefur leitt í
ljós að sjálfvirkir árekstrarvarar í
þotunum tveimur gáfu samtímis
fyrirmæli um að áhöfn rússnesku
vélarinnar hækkaði flugið og að
áhöfn Boeing-þotunnar lækkaði
flugið um 45 sekúndum áður en
þær rákust á. Báðar vélarnar voru
að lækka úr 36 þúsund fetum til að
forðast árekstur er slysið varð.
Samtök þýskra flugmanna sögðu
að áhöfn rússnesku vélarinnar hefði
átt að fara eftir tilmælunum frá
árekstrarvaranum fremur en fyr-
irmælum flugumferðarstjórans.
Reyndu að hringja
Þá greindu þýskir flugumferðar-
stjórar frá því í gær að þeir hefðu
reynt að hringja í starfsbræður sína
í Sviss til að vara þá við yfirvofandi
hættu á árekstrinum, en síminn
hefði verið á tali. Þoturnar skullu
saman á svissnesku flugumferðar-
stjórnarsvæði.
Það voru flugumferðarstjórar í
Karlsruhe í Þýskalandi sem reyndu
að hringja í flugturninn í Zürich í
Sviss eftir að sjálfvirkur árekstr-
arvari í flugturninum í Karlsruhe
gaf merki um að hætta væri á að
vélarnar rækjust saman, að því er
Axel Raab, talsmaður stjórnstöðv-
arinnar í Karlsruhe, tjáði Associat-
ed Press.
Árekstrarvari flugumferðar-
stjórnarinnar í Zürich var óvirkur
vegna viðhalds á þeim tíma er slys-
ið varð. Svissnesk yfirvöld hafa haf-
ið lögreglurannsókn á því, hvort
einhver hafi með vanrækslu gerst
sekur um manndráp af gáleysi.
Danska dagblaðið Politiken
greindi frá því í gær að danskur
flugumferðarstjóri hefði verið einn
á vakt í flugturninum í Zürich þeg-
ar slysið varð. Maðurinn hefði feng-
ið taugaáfall og dveldist nú á
sjúkrahúsi. 17 flugumferðarstjórar
frá Danmörku hafa starfað í Zürich
í fimm ár.
Flugumferðarstjórnin í Sviss fyrir slysið yfir Þýskalandi
Gaf skipun í mótsögn
við árekstrarvarann
Berlín. AP.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í gær að setja þyrfti ný
lög til að „refsa fyrir brot, end-
urheimta traust fjárfesta og vernda
lífeyri bandarískra launþega“
vegna hneykslismálanna í banda-
rísku fjármálalífi að undanförnu.
Forsetinn sagði á blaðamanna-
fundi að hagvöxtur væri háður
„trausti neytenda og fjárfesta á
mörkuðum okkar og heiðarleika
bandarískra fyrirtækja“.
Bush hyggst halda ræðu á Wall
Street í dag og búist er við að hann
leggi til að forstjórum, sem veiti
rangar upplýsingar um tekjur fyr-
irtækja sinna, verði refsað og þeir
verði jafnvel dæmdir í fangelsi.
„Öllum tiltækum tækjum“
beitt gegn Saddam
Bush fjallaði einnig um Írak og
kvaðst ætla að beita „öllum tiltæk-
um tækjum“ til að koma Saddam
Hussein, leiðtoga landsins, frá
völdum.
Forsetinn sagði að heimurinn
yrði öruggari eftir að Saddam hefði
verið steypt og kvaðst sjálfur taka
þátt í „öllum þáttum“ skipulagning-
ar aðgerða til að ná því markmiði.
Bush vildi ekki svara því hvort
Saddam yrði steypt áður en kjör-
tímabili bandaríska forsetans lýk-
ur, í janúar 2005.
Bandaríska dagblaðið The New
York Times birti á föstudag leyni-
leg drög að áætlun þar sem gert er
ráð fyrir innrás úr norðri, vestri og
suðri með 250.000 hermönnum.
Bush virtist vera óánægður með
fréttina og sagði að „menn ættu
ekki að vera með vangaveltur um
vilja stjórnarinnar til að knýja fram
stjórnarskipti“.
Bush vill ný
lög um
refsiábyrgð
forstjóra
Washington. AFP.
MUAMMAR Gaddafi, leiðtogi Líb-
ýu, flytur ræðu á síðasta leiðtoga-
fundi Einingarsamtaka Afríku,
OAU, í suður-afrísku borginni
Durban í gær. Nýtt bandalag,
Afríkusambandið, verður stofnað
í dag og Einingarsamtök Afríku
verða þá lögð niður.
Afríkusambandið er að hluta til
skipulagt að fyrirmynd Evrópu-
sambandsins og verður mun
valdameira en Einingarsamtök
Afríku. Haldið verður uppi frið-
argæsluliði á vegum sambandsins
sem tryggja á frið og stöðugleika
í álfunni og afskipti af innanrík-
ismálum aðildarríkja verða liðin.
Áform eru einnig uppi um stofn-
un Afríkuþings og Afríkudóm-
stóls svipuðum þeim sem starfa í
Evrópu.Reuters
Afríku-
sambandið
stofnað
ÚTBREIÐSLA alnæmis mun valda
því að lífslíkur minnka í 51 landi á
næstu tveim áratugum og í 11 lönd-
um í Afríku sunnan Sahara er með-
alævin nú þegar komin niður fyrir 40
ár. Einnig styttist meðalævin nú í
löndum við Karíbahaf, hefur farið úr
74 árum í 66 á Bahamaeyjum.
Kom þetta fram á 14. alþjóðaráð-
stefnunni um alnæmi sem hófst í gær
í Barcelona á Spáni og stendur í sex
daga. Um 15.000 manns taka þátt í
ráðstefnunni að meðtöldum frétta-
mönnum.
Lífslíkur hafa undanfarin 100 ár
aukist víðast hvar í heiminum, ekki
síst í Afríku, og því er um mikil um-
skipti að ræða. Ljóst er að sjúkdóm-
urinn breiðist nú hratt út í fjölmenn-
um löndum á borð við fyrrverandi
Sovétlýðveldi, Kína og fleiri Asíu-
lönd. Kemur alnæmisfaraldurinn
einkum niður á konum í fátæku ríkj-
unum, sérfræðingar segja að oft sýki
rosknir karlar ungar stúlkur og má
búast við að innan áratugar verði
orðin mikil, lýðfræðileg breyting í
mörgum Afríkulöndum. Verði þá
ungar konur mun færri en karlar og
jafnframt er gert ráð fyrir að mann-
fjölgun stöðvist jafnvel í löndum þar
sem alnæmið herjar mest.
Hætta á upplausn
Peter Piot, yfirmaður alnæmis-
varnaáætlunar SÞ, sagði að í fyrra
hefði um milljón skólabarna í Afríku
misst kennara sinn vegna alnæmis
sem myndi smám saman grafa und-
an stöðugleika á stórum svæðum.
Bent hefur verið á að alnæmi geti
valdið svo mikilli upplausn í sumum
löndum að raunverulegt ríkisvald
hrynji eins og gerðist í Sómalíu og
Afganistan, við taki ástand þar sem
glæpaflokkar fari sínu fram og um-
rædd lönd geti orðið gróðrarstía
ofstækis- og hryðjuverkamanna.
Sex daga alþjóðleg ráðstefna um útbreiðslu alnæmis hafin í Barcelona
Lífslíkur minnka í 51 landi
Heggur einkum skörð
í raðir kvenna í Afríku
Nýtt lyf/24
Barcelona. The Washington Post, AP, AFP.
HAVA Rexha, sem er á 122. ald-
ursári og elsta kona í Albaníu,
með einu barnabarnabarnabarna
sinna á heimili sínu í Shushice, um
60 km frá Tirana. Rexha fæddist
14. ágúst 1880 og giftist 1894 þeg-
ar Albanía laut enn valdi Tyrkja.
Hún var komin yfir þrítugt þegar
Albanía lýsti yfir sjálfstæði 1912,
var þegn Zogs konungs, lifði af
tvær heimsstyrjaldir og var orðin
öldruð þegar kommúnistar komust
til valda undir forystu Envers
Hoxha einræðisherra.
Reuters
Elst kvenna í Albaníu