Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
F
YRIR rúmri viku var
undirrituð viljayfirlýs-
ing milli stjórnvalda,
bandaríska álfyrirtæk-
isins Alcoa og Lands-
virkjunar um áfram-
haldandi viðræður
vegna byggingar 295 þúsund tonna
álvers í Reyðarfirði. Um leið undir-
rituðu Landsvirkjun og Alcoa sam-
komulag um skiptingu kostnaðar
við undirbúningsframkvæmdir við
Kárahnjúkavirkjun, sem ráðist
verður í í sumar og haust. Alcoa
tekur þar á sig 450 milljónir króna
og Landsvirkjun 150 milljónir og
fær álfyrirtækið fjárhæðina endur-
greidda ef samningar takast um ál-
verið.
Til að ræða umhverfis- og efna-
hagsþátt Kárahnjúkavirkjunar átti
Morgunblaðið viðtal við Friðrik
Sophusson, forstjóra Landsvirkjun-
ar. Hann var fyrst spurður hvort
Íslendingar þyrftu á því að halda að
reisa virkjun á borð við Kára-
hnjúkavirkjun og hvort hann teldi
landsmenn gera þær kröfur um lífs-
gæði sem kölluðu á slíka fram-
kvæmd.
„Ef Íslendingar ætla sér að búa
við svipuð lífsskilyrði og aðrar þjóð-
ir sem við keppum við þá þurfum
við að nýta auðlindir okkar. Við
komumst ekki hjá því að nýta fiski-
mið og orkuauðlindir okkar, og auð-
vitað hugvit fólksins sem hér býr.
Þess vegna er það eðlilegt að við
nýtum þessi fallvötn. Fyrir norðan
Vatnajökul eru ár sem búa yfir
mikilli orku og ég tel eðlilegt að
nýta þær. Það er hagkvæmt og
einnig er gott að geta virkjað á öðr-
um svæðum en við Þjórsá og á
Tungnaársvæðinu. Það jafnar
áhættuna og gefur tækifæri til þess
að fjölga störfum annars staðar en
á suðvesturhorninu.
Þetta eru hin almennu pólitísku
rök fyrir því að virkja. Ef við lítum
eingöngu á Landsvirkjun þá segir
skýrt og skilmerkilega í lögum um
starfsemi fyrirtækisins að því sé
ætlað að útvega orku fyrir við-
skiptavini sína, hvort sem þeir eru
gamlir eða nýir. Þess vegna er það
lagaskylda okkar að svara beiðni
eins og þeirri sem fram er komin.
Það sem ræður því hvort við mun-
um selja orkuna eða ekki, er verðið
á henni. Það verður að gefa okkur
nægilegan arð.“
Arðsemin eðlileg
– Telurðu að arðsemi af virkj-
uninni sé nægjanleg?
„Ef samningarnir við Alcoa verða
á svipuðum nótum og þeir sem nán-
ast var búið að ganga frá við Reyð-
arál, þá liggur fyrir að arðsemi
eiginfjár af virkjuninni er á milli 12
og 14%. Sumitomo-bankinn fór yfir
alla útreikninga Landsvirkjunar og
telur að arðsemin sé mjög eðlileg
fyrir fyrirtæki í þessari grein. Þetta
þarf að undirstrika því að öðru hef-
ur verið haldið fram í blöðum, þrátt
fyrir skýra niðurstöðu bankans.“
– Var verðmæti landsins sem fer
undir virkjunina tekið með í þá út-
reikninga?
„Landsvirkjun greiðir að sjálf-
sögðu fyrir vatnsréttindi, önnur
eignarréttindi og bætur til landeig-
enda, eins og tíðkast hefur hér á
landi. Verðmætamat á landinu, sem
fer undir vatn, með tilliti til þess
hvort nota eigi það til annars, hefur
hins vegar ekki átt sér stað. Við
þurfum einnig að hafa í huga að
orkuvinnslufyrirtækin hér á landi
hafa kostað grunnrannsóknir á
náttúru landsins, langt umfram það
sem tíðkast annars staðar. Þær
rannsóknir hafa aukið þekkingu
okkar og sparað ríkinu ómælt fé.“
– Finnst þér að slíkt verðmæta-
mat eigi að fara fram?
„Slíkri spurningu, ásamt spurn-
ingunni um auðlindagjald, verða
stjórnmálamenn að svara.“
– Er það rétt að ending uppi-
stöðulóns á borð við það sem verður
við Kárahnjúkavirkjun sé takmark-
aður og lónið fyllist á allt að 100 ár-
um?
„Nei, það er ekki rétt því talið er
að lónið fyllist á 400 árum, miðað
við óbreytta stærð jökla og aur-
magn. Það er því alveg ljóst að
Hálslón fyllist ekki á þeim tíma
sem við erum að afskrifa virkj-
unina, en þar erum við að tala um
kannski 60 ár og við vitum að
starfstíminn verði hæglega 100 ár.
Elstu virkjanir okkar, eins og til
dæmis Sogið, eru betri í dag en
þær voru í upphafi. Þeim hefur ver-
ið haldið vel við. Búrfellsvirkjunin
skilar mun meiri orku í dag heldur
en þegar hún var byggð og ekki
annað að sjá en að hún dugi í að
minnsta kosti 100 ár.“
Framkvæmdin ekki vistvæn
að öllu leyti
– Ertu fullviss um að Kára-
hnjúkavirkjun sé endurnýjanleg
orkuauðlind?
„Mér finnst óhætt að halda því
fram að um sé að ræða endurnýj-
anlega orku þegar ending lóna er
mjög mikil. Vatnsaflið er því end-
urnýjanlegt og umhverfisvænt en
vissulega er það rétt að fram-
kvæmdin er ekki vistvæn að öllu
leyti. Við þurfum að taka land undir
vatn og breyta landnýtingunni og
ásýnd landsins með uppistöðulón-
um. Hér á landi er náttúran að
breytast og breytist kannski örar
en víða annars staðar. Við skulum
hafa í huga að mjög víða eru lón á
öræfum okkar og í tímans rás koma
þau til með að fyllast, rétt eins og
Hálslón. Það liggur í eðli náttúr-
unnar að jöklarnir bera fram aur
sem fyllir lónin. Ég bendi í þessu
sambandi á að þar sem Hálslón á að
koma var lón á sínum tíma, sem
fylltist af framburði árinnar fyrir
einhverjum þúsundum ára. Þess
sér stað í náttúrunni á svæðinu.“
– Uppfyllir virkjunin öll skilyrði
um endurnýjanlega orku sam-
kvæmt loftslagssamningi Samein-
uðu þjóðanna?
„Virkjunin hefur farið í gegnum
nálarauga mats á umhverfisáhrif-
um. Aldrei hefur verið unnin jafn
ítarleg matsskýrsla og vegna þess-
arar virkjunar. Fyrir liggur ítarleg-
ur úrskurður umhverfisráðuneytis-
ins, þar sem innlendir og erlendir
sérfræðingar komu að málinu. Öll
álitamál voru skoðuð. Auðvitað
verða gerðar breytingar á nátt-
úrunni með virkjuninni en maður-
inn er alla daga að laga náttúruna
fyrir sig, til að komast betur af.
Ef við ætlum að búa í þessu landi
komumst við ekkert hjá því að laga
náttúruna að okkar þörfum. Við
þurfum að gera það af mikilli virð-
ingu og taka tillit til nýjustu um-
hverfissjónarmiða. Landsvirkjun
leggur mikinn metnað í að umgang-
ast náttúruna með þeim hætti.“
Náttúruvernd hinna svörtu sanda
– Telurðu þá að hrófla megi við
náttúru landsins og nýta hana?
„Sumir halda því fram að ekki
megi undir nokkrum kringumstæð-
um hrófla við náttúrunni, aðeins
eigi að horfa á hana eins og hún
komi fyrir. Við verðum að hafa í
huga að náttúran er sífellt að breyt-
ast. Eldgos og jarðskjálftar eiga
sér stað án þess að mannskepnan
komi þar nærri. Sem betur fer hef-
ur maðurinn spornað við þróuninni
sums staðar og gert það svo til fyr-
irmyndar er. Ég bendi til dæmis á
að í eldgosinu í Vestmannaeyjum
var vatni sprautað á hraunið til að
hefta framrás þess. Fyrir vikið
fengu Vestmannaeyingar góða
höfn. Ef ekkert hefði verið að gert
hefði höfnin sennilega lokast og
gert eyjuna óbyggilega.
Ég þekki sjónarmiðin sem fram
koma í spurningunni og kalla þau
stundum „náttúruvernd hinna
svörtu sanda“. Ég kannast við
menn sem telja það andstætt allri
náttúruvernd að græða upp landið.
Þannig telja þeir að verið sé að
skemma Þjórsárdalinn með því að
græða hann upp eins og Lands-
virkjun hefur staðið í í samvinnu
við Landgræðsluna og heimamenn.
Ég staðhæfi að Þjórsárdalurinn er
miklu fallegri og náttúrulegri eftir
að hafa verið græddur upp, heldur
en á meðan svartur sandurinn fauk
um og eyðilagði.“
Við þurfum að ný
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir
minnihlutahóp meðal umhverfisverndarsinna
standa fyrir ófrægingarherferð gegn Kárahnjúka-
virkjun þar sem íslenskir hagsmunir séu ekki hafð-
ir í fyrirrúmi. Björn Jóhann Björnsson ræddi við
Friðrik um umhverfisþátt virkjunarinnar og fjár-
hagshlið framkvæmdarinnar sem byrjað verður á
nú í sumar og haust.
’ Þetta er ekki gert til aðfriða Austfirðinga heldur
byggt á köldu mati á stöðu
málsins. ‘
’ Þessi hópur virðist vera ámóti öllum virkjunum hér
á landi og ætlast til þess að
við nýtum hvorki auðlindir
okkar til lands né sjávar.
Þessi hópur mun áreið-
anlega, hér eftir sem hingað
til, reyna að halda úti
áróðri gegn virkjunarhug-
myndum. ‘