Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SVEINBJÖRN Sigurðssonbyggingameistari býr yfirlangri og ríkulegri reynslu.Sveinbjörn, sem er fæddurárið 1919, lauk sveinsprófi
vorið 1940 og fyrirtæki hans, Svein-
björn Sigurðsson ehf., elsta starfandi
byggingarfyrirtæki á Íslandi, á 60
ára afmæli í ár. Hann rak fyrirtækið
allt til ársins 1990 er þrír sona hans
tóku við af honum og gerðu fyrirtæk-
ið að einkahlutafélagi. Á löngum ferli
hefur Sveinbjörn útskrifað fleiri
húsasmiði en nokkur annar, um
fimmtíu talsins. Nú starfa um 50
manns hjá fyrirtækinu við ýmis verk-
efni á Reykjavíkursvæðinu og víðar.
Morgunblaðið hitti Sveinbjörn að
máli í tilefni sextugsafmælis fyrir-
tækisins og bað hann að líta yfir far-
inn veg. Fyrst rifjaði hann upp æsku-
árin við Laugaveginn.
Að sjá húsin rísa við Laugaveg
„Ég ólst upp á Laugavegi 30, ská á
móti Kirkjuhúsinu. Það stórhýsi
byggði Kornelíus Sigmundsson
byggingameistari fyrir Martein Ein-
arsson kaupmann. Það tel ég vera
eitt best byggða hús á landinu og var
gaman að sjá það rísa af grunni.
Nokkur glæsileg hús risu á þessum
tíma við Laugaveginn, hús sem stað-
ist hafa tímans tönn vegna vandaðra
vinnubragða.“ Áhuginn á byggingum
og húsasmíði vaknaði snemma hjá
Sveinbirni. Aðrir í fjölskyldunni voru
þó í öðrum starfsgreinum. „Pabbi var
lóðsmaður á dönsku varðskipunum
og ferðaðist með þeim um landið. Jón
bróðir minn var sjómaður en Oddur
bróðir fór í Verzlunarskólann. Móðir
mín vildi ekki að ég færi til sjós og því
fékk hún að ráða. Að vísu fór ég einu
sinni á sjó, að sækja seglskipið Capit-
ana ásamt Jóni bróður mínum til
New York. Það var ævintýraleg
ferð,“ segir Sveinbjörn og hlær. Þess
má geta að Capitana var hið glæsi-
legasta kaupskip, upphaflega í eigu
tekaupmannsins sir Thomas Liptons
en var keypt af Magnúsi Andréssyni
til Íslands til flutninga í stríðinu.
Hvar nam Sveinbjörn iðn sína?
„Ég lærði hjá Ólafi Theodórs, bygg-
ingameistara frá Borðeyri. Sumarið
1936 stóð fyrir dyrum að steypa
kjallara aðalbyggingar Háskóla Ís-
lands og ég fékk vinnu hjá Ólafi við
þetta verk. Næstu fjögur árin var ég
hjá honum og lærði húsasmíði í Iðn-
skólanum.“
Sveinbjörn réðst til starfa hjá Al-
menna byggingafélaginu hf. eftir
sveinsprófið árið 1940. „Fyrsta húsið
sem ég byggði er númer 8 við
Nönnugötu. Fyrsta húsið fyrir eigin
reikning byggði ég hins vegar ásamt
bróður mínum, Oddi, árið 1942, húsið
númer 7 við Bollagötu. Það er
tveggja hæða hús með kjallara. Þar
með hófst sjálfstæð starfsemi sem
enn varir undir stjórn sona minna.“
Sveinbjörn vann þó enn fyrir Al-
menna byggingafélagið um nokkurra
ára skeið. Hann reisti einnig fjölda
bragga fyrir breska herinn.
Meðan á stríðinu stóð var mikill
skortur á byggingatækjum. Bretarn-
ir höfðu keypt nær öll tæki sem til
voru. „Vorið og sumarið 1942 byggð-
um við kexverksmiðjuna Frón, Ræs-
ir við Skúlagötu, vélsmiðjuna Hamar
og Hafnarhvol, aðeins með eina
hrærivél,“ segir Sveinbjörn og hlær
yfir dugnaðinum. Ekki tók betra við
að stríðinu loknu.
Tæki og efni af skornum skammti
„Í lok stríðsins var lítið um bygg-
ingaefni í Reykjavík, við urðum að
nýta það sem hendi var næst,“ segir
Sveinbjörn og hristir höfuðið. „Leif-
ar herliðsins voru um allt, braggarnir
margir auðir og nú rifum við þá. Gólf-
plötur bragganna, braggabotnarnir,
nýttust vel sem uppsláttarmót fyrir
okkur. Við urðum að byggja húsin út
frá þeim, einn botn var tveir og hálf-
ur metri á lengd og við það miðuðust
gluggar og veggir hússins.“ Að sama
skapi var erfitt að fá sement og timb-
ur. „Við þurftum leyfi fyrir öllu. Allt
var skammtað og því meira sem þú
áttir, því erfiðara var að fá efni.“
Húsnæðiseklan var mikil á þessum
tíma og Sveinbjörn seldi húsin áður
en þau byggðust. „Við vorum þefaðir
uppi við steypuvinnuna og spurðir
hvort þetta verðandi hús væri til
sölu. Nokkrum dögum síðar gat mað-
ur átt von á kaupanda, þrátt fyrir að
húsið væri enn óbyggt.“
Minnisstæðir samferðamenn
Margir arkitektar hafa unnið með
Sveinbirni í gegnum tíðina. „Ég
minnist sérstaklega Þóris Baldvins-
sonar, hann var mikill hugmynda-
smiður og mjög ákveðinn hvað varð-
aði verklag og útfærslu. Þegar ég
vann við húsin hans mátti oft búast
við sérstökum óskum um steypu-
vinnu og lausnir.“ Aðrir teiknarar
koma upp í hugann þegar Sveinbjörn
rifjar upp skilyrðin um 1940-1950.
„Hafliði Jóhannsson húsasmíða-
meistari teiknaði fjölda húsa, sér-
staklega í Norðurmýrinni. Hann
fékk varla svefnfrið á þessum árum,
fólk elti hann uppi og bað hann um að
rissa upp teikningu fyrir sig eða gefa
sér góð ráð. Atgangurinn var slíkur
við að fá teikningar í hendur og byrja
að byggja.“ Einar V. Sveinsson,
húsameistari Reykjavíkurbæjar,
berst einnig í tal. „Aldrei klikkaði hjá
honum samlagningin, sama hvað
flóknar teikningarnar voru hjá hon-
um,“ segir Sveinbjörn og kímir. „Ég
byggði nokkrar blokkir eftir Einar.
Íbúðirnar voru í spegil, líkt og enn
tíðkast, og við notuðumst við sömu
teikninguna aftur og aftur, snerum
henni bara eftir hentugleikum.“
Samstarfið við DAS
Fyrstu byggingar Hrafnistu,
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna
(DAS) í Laugarási, voru opnaðar árið
1957. Sveinbjörn sendi inn tilboð að
byggja nýjar deildir við dvalarheim-
ilið og hlaut verkið, fyrst árin 1959-60
og svo aftur á 7. áratugnum. Meg-
inhluti Hrafnistuhússins reis undir
hans stjórn. „Þetta var mikið fyrir-
tæki, enda um stórhýsi að ræða. Ég
sá fljótlega að upphaflegar teikning-
ar voru óhagkvæmar vegna þess að
enginn kjallari átti að vera undir hús-
unum. Ég benti forsvarsmönnum
DAS á að sprengja út kjallarann og
fékk það í gegn. Að sjálfsögðu
gagnast kjallarinn feykivel og gott að
málin leystust farsællega.“ Hús DAS
Byggingar um alla
„Mér hefur samið við
alla menn,“ segir Svein-
björn Sigurðsson bygg-
ingameistari þegar
hann lítur yfir farinn
veg. Bjarni Benedikt
Björnsson ræddi við
Sveinbjörn, sem er
stofnandi elsta starf-
andi byggingafyrirtækis
landsins.
Borgarleikhúsið í byggingu, mynd frá árinu 1983.
Morgunblaðið/Þorkell
Sveinbjörn Sigurðsson byggingameistari.
ALLS eiga Sveinbjörn Sigurðsson
og kona hans, Helga Kristinsdóttir,
fimm börn. Anna María er gull-
smiður, Kristinn er byggingafræð-
ingur, og Árni, Sigurður og Svein-
björn eru allir byggingameistarar og
eigendur fjölskyldufyrirtækisins
ásamt föður sínum. Þeir bræður
voru teknir tali varðandi þau verk-
efni sem nú eru á döfinni hjá fyrir-
tækinu, líkt og sjá má á heimasíðu
fyrirtækisins, www.verktaki.is.
„Það er margt í gangi núna,“ segir
Sigurður. „Það er Víkurskóli við
Hamravík í Borgarholti og leikskóli í
Grafarholti,“ bætir Sveinbjörn við,
„og fyrir nokkrum dögum tókum við
að okkur endurbætur á Þórisvatns-
miðlun fyrir Landsvirkjun og
ákváðum samstarf um byggingu
fjögurra blokka í Grafarholti. Við er-
um meira að segja búnir að auglýsa
eftir mönnum.“ Verkefnið við Þóris-
vatn er þriðja hálendisverkefnið sem
þeir bræður taka að sér, fyrri voru
yfirfall á Blöndu og botnrás á Há-
göngum.
Nokkrum tilboðum er enn ósvar-
að. „Við erum alltaf með nokkur
verkefni í farvatninu, en það er ekki
þar með sagt að þau séu tryggð. Til-
boðunum er ýmist tekið eða ekki,“
segir Sveinbjörn.
Fyrirtækið hefur byggt fjölda
aksturs- og göngubrúa undanfarin
ár. „Við byrjuðum á brúnni við
Rauðavatn og höfum síðan byggt
þrjár brýr yfir Miklubraut og núna
erum við búnir að ljúka okkar hluta
af nýju brúnni milli Grafarvogs og
Grafarholts, á Víkurvegi,“ segir
Árni.
Útboðin eru lífæð verktakanna
Líkt og faðir þeirra eru bræðurnir
iðnir við að senda inn tilboð í verk
sem boðin eru út. „Útboð eru lang-
algengasti vettvangurinn á þessum
markaði. Við reynum eftir megni að
hafa þau nógu lág svo að við fáum
verkið,“ segir Sigurður. „Samt sem
áður er markaðurinn mun óvægnari
nú en í tíð föður okkar,“ bætir Árni
við, „og mikið um undirboð og
óraunhæfa kostnaðarliði; allt er gert
til þess að ná verkefninu.“
Fjölskyldufyrirtæki eins og
Sveinbjörn Sigurðsson ehf. hefur
reynt eftir megni að keppa við stóra
verktaka á markaðnum. Liðsheildin
er mjög góð og fjöldi starfsmanna
hefur unnið hjá fyrirtækinu um
lengri tíma. „Það er ekki algengt í
þessum bransa að hafa menn svona
lengi hjá sér. Menn sem unnu hjá
föður okkar hafa haldið áfram hjá
okkur og við erum með starfsmenn
með yfir 25 ára starfsreynslu,“ segir
Árni og þeir bræður gleðjast yfir því
Bræðurnir Árni, Sveinbjörn og Sigurður Sveinbjörnssynir stjórna nú fyrirtæki föður síns, Sveinbirni Sigurðssyni ehf.
Byggjum á far-
sælli reynslu
Morgunblaðið/Þorkell
Sveinbjörn Sigurðsson ásamt sonum sínum, (f.v.) Árna, Sveinbirni og Sigurði.