Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 25
Myndirnar bera nöfn eins og Kol-
beinsey er hún fékk nafn, Risi féll
í gíg og vaknaði ekki aftur, Nirv-
ana Búdda, Eldey er hún fékk
nafn og Eldey er hún er fokin,
Gils sá sem Gilsfjörður heitir eft-
ir, Kafbátur í Norðursjó og Siglu-
fjörður er hann fékk nafn, en sú
mynd birtist listamanninum í
kaffibolla.
Sýningin stendur fram í ágúst
og er opin daglega frá kl. 7–18.
Á GRANDAKAFFI, Grandagarði
101, stendur nú yfir málverkasýn-
ing Valdimars Bjarnfreðssonar
sem gengur undir listamannsnafn-
inu Vapen. Valdimar hefur haldið
málverkasýningar, m.a. í Lista-
safni ASÍ, í Hafnarborg, á Sóloni
Íslandusi og í Hlaðvarpanum.
Á sýningunni í Grandakaffi eru
14 verk er hafa skírskotun í ýms-
ar sagnir og sögur og fylgir
hverri mynd ítarleg umfjöllun.
Eitt verka Vapen: Kolbeinsey er hún fékk nafn.
Málverk á
Grandakaffi
EFNT verður til fjölþjóðlegrar
handverkssýningar í Laugardals-
höll dagana 20.–24. nóvember
næstkomandi. Um er að ræða
stærstu handverkssýningu sem
haldin hefur verið hér á landi en
sýndir verða munir frá handverks-
fólki í 11 þjóðlöndum. Sýningin er
haldin undir merkjum vestnor-
rænnar samvinnu.
Handverkssýningin er stærsti
liður vestnorræns árs 2002 sem Ak-
ureyrarbær veitir forystu og vinnur
að ásamt aðilum í Færeyjum og á
Grænlandi. Munir á sýninguna
koma frá öllum þremur löndunum
en góð tengsl hafa myndast milli
handverksfólks í þessum þremur
löndum í kringum sýningarhald á
handverki hér á landi á undanförn-
um árum. Með sýningunni í haust
er ætlunin að útvíkka hin vestnor-
rænu tengsl á handverkssviðinu og
auk sýnenda frá löndunum þremur
bætast við sýnendur frá Finnlandi,
Svíþjóð, Noregi, Litháen, Eistlandi,
Lettlandi, Hjaltlandseyjum og
sjálfstjórnarsvæðinu Nunavut í
Kanada.
Takist vel til er ætlunin að gera
handverkssýningu af þessari stærð
að reglubundnum viðburði hér á
landi og yrði hún þá haldin annað
hvert ár. Þar í milli yrðu þau tengsl
sem skapast með sýningunni notuð
til að koma á umfangsminni sýn-
ingum í hinum þátttökulöndunum
en litið yrði á sýninguna á Íslandi
sem hápunkt í þessu samstarfi.
Reynir Adolfsson veitir hand-
verkssýningunni forstöðu en Aðal-
steinn Ingólfsson listfræðingur er
þátttökuþjóðunum til ráðgjafar um
val muna á sýninguna. Sýningin
verður sölusýning.
Vestnorræn handverkssýn-
ing í Laugardalshöll
MINJASAFN Austurlands tekur nú
fimmta árið í röð þátt í Evrópusam-
bandsverkefni sem í ár ber heitið
Camsiad (Costumes and Masks
Stimulating Innovative Art and De-
sign). Minjasafnið sendir sjö einstak-
linga utan vegna verkefnisins sem
stýrt er frá Bretlandseyjum í gegn-
um fyrirtækið Grampus Heritage
and Training Ltd., sem hefur bæki-
stöðvar í Englandi og Skotlandi. Í
Camsiad koma saman ungir hönnuð-
ir, handverks- og listafólk og leitast
verður við að skapa frumlega evr-
ópska sjálfsmynd, í gegnum grímu-
og búningahönnun. Hugmyndafræði
verkefnisins er að tengja saman ólík-
ar þjóðir innan Evrópu, skoða hvað
þær eiga sameiginlegt og skapa nýja
hluti út frá hefð hverrar þjóðar á
sviði grímu- og búningagerðarlistar,
en aðilar að verkefninu tengjast allir
lista- og menningarstarfsemi.
Hluti hópsins fer til Slóveníu í
byrjun október, þar sem unnið verð-
ur að grímuhönnun í viku. Á meðan
mun hinn hluti hópsins vinna að
hönnun nýstárlegs þjóðbúnings, út
frá íslenskri þjóðsagnapersónu.
Samskipti fara fram í gegnum tölvu-
forritið Groove, en í gegnum það
geta þátttakendur „spjallað saman“
og sent teikningar, hugmyndir og
slóðir af heimasíðum á milli. Loka-
fundur verkefnisins verður síðan
haldinn í Slóvakíu í lok október, þar
sem grímugerðarfólkið og búninga-
hönnuðirnir munu koma saman og
halda sýningu á afrakstrinum.
Verkefnið nefnist Menning 2000
og er innanmenningaráætlunar Evr-
ópusambandsins. Aðildarlönd ásamt
Íslandi eru Búlgaría, Slóvenía,
Þýskaland, Slóvakía, Tékkland, Ír-
land, Kýpur, England og Skotland.
Heildarfjárhæð styrksins er 12,6
milljónir íslenskra króna, en hlutur
Minjasafns Austurlands nemur 800
þús. króna, sem verður varið í efnis-
og ferðakostnað þátttakendanna.
Sjö Íslendingar
fara utan í
hönnunarvinnu
Kaffi list, Laugavegi 20a.
Sól Bragason (Sigurður Óskar Lárus
Bragason) opnar myndlistarsýningu
á Kaffi list. Á sýningunni eru 11 ein-
þrykksverk (mono-prentmyndir), all-
ar gerðar í Bandaríkjunum á þessu
ári og er þema sýningarinnar
„Beauty comes from within“. Sól er
fæddur árið 1977 og stundar nú
myndlistarnám við Western Ken-
tucky University í Bandaríkjunum.
Hann hefur haldið nokkrar einkasýn-
ingar bæði hér á landi og vestanhafs
og tekið þátt í samsýningum.
Sýningin stendur til 11. ágúst.
Veitingastaðurinn Lindin, Laug-
arvatni. Reynir Jónasson leikur á
harmonikku síðdegis í dag. Í Lindinni
stendur nú yfir málverkasýning Lóu
Guðjónsdóttur á vatnslita- og past-
elmyndum. Verkin eru unnin á sl. ári.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
ÍSLENSKT mál og
almenn málfræði,
23. árgangur
tímaritsins er
kominn út. Í því
er m.a. fjallað um
orðaröð í auka-
setningum, tungu-
tækni, nýju þol-
myndina
svokölluðu, hljóðfræðileg einkenni
íslenskra lokhljóða, kvenkyn og karl-
kyn, nafnið Blæ, málfræði Björns
Guðfinnssonar, rím og stuðla, hjálp-
arsagnasambönd, dönsk tökuorð í
heimilishaldi o.fl. Auk þess eru í
heftinu ritdómar og ritfregnir.
Ritstjóri er Höskuldur Þráinsson.
Útgefandi er Íslenska málfræði-
félagið en Málvísindastofnun Há-
skóla Íslands sér um dreifingu. Heft-
ið er 320 bls. að stærð. Verð:
3.490 kr.
Tímarit
www.bilanaust.is Sími 535 9000
sem gera
sumarið
skemmtilegra
APA
þvottakústar
og sköft. -25%
-25%-25% afsláttur
12.873 kr.
Speglar m/framlengingu
fyrir fellihýsi, hjólhýsi o.fl.
Verð áður: 3.290 kr.
2.490 kr.
45.354 kr.
Verðdæmi:
Verð áður:
34.016 kr.
Verð nú:
350 lítrar.
Lengd 150 sm.
Breidd 90 sm.
Hæð 32 sm.
Hægri opnun.
Tilboðin gilda til og með 3. ágúst
eða á meðan birgðir endast. BOSCH þurrkublöð
Töfrasproti (rafhlöðufræsari)
Tilboðsverð:
Góðar græjur
Borgartúni, Reykjavík.
Bíldshöfða, Reykjavík.
Smiðjuvegi, Kópavogi.
Bæjarhrauni, Hafnarfirði.
Hrísmýri, Selfossi.
Dalbraut, Akureyri.
Grófinni, Keflavík.
Lyngási, Egilsstöðum.
Álaugarvegi, Hornafirði.
Farangursbox
Áklæðahreinsir 321 kr.
Vélahreinsir 382 kr.
Háglanshreinsibón 542 kr.