Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ 28. júlí 1992: „Í umræðum um málefni sjávarútvegsins undanfarna daga og vikur hafa raddir komið fram um, að óhjákvæmilegt væri að lækka gengi íslenzku krón- unnar til þess að greiða úr rekstrarvandamálum sjáv- arútvegsins. Matthías Bjarnason, alþingismaður og fyrrum sjávarútvegs- ráðherra, hefur lýst því af- dráttarlaust yfir, að hann telji gengisbreytingu tíma- bæra og heldur því raunar fram, að gengið sé þegar fallið. Ljóst er, að innan sjávarútvegsins eru margir sömu skoðunar. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra, tveir helztu forystumenn núver- andi ríkisstjórnar, hafa hins vegar báðir lýst því yfir, að gengislækkun komi ekki til greina.“ 28. júlí 1982: „Verzlunar- ráð Íslands hefur sent frá sér ályktun er varðar stöðu íslenzkra efnahagsmála. Þar er vakin athygli á afla- samdrætti, óstöðugleika á erlendum sölumörkuðum, versnandi gjaldeyrisstöðu, þverrandi innlendum sparn- aði og hallarekstri í und- irstöðuatvinnugreinum, en allt séu þetta viðblasandi al- varlegar blikur á lofti í efnahagslífi þjóðarinnar. Þessir erfiðleikar, sem þjóð- in stendur nú frammi fyrir, séu hálfu erfiðari viður- eignar vegna þess, að þeir komi í kjölfar langvarandi þrenginga í íslenzkum at- vinnurekstri, ört vaxandi er- lendrar skuldasöfnunar og offjárfestingar í sjávar- útvegi síðustu misseri.“ 28. júlí 1972: „Það virðist nú einsýnt, að blöð stjórn- arandstöðunnar hyggjast byggja allan sinn málflutn- ing í skattamálum upp á ósannindum. Einkum á þetta við um þann þátt, er veit að elli- og örorkulífeyr- isþegum, en einnig er því blygðunarlaust haldið fram, að hlutfallsleg skattbyrði væri „óbreytt eða lækkaði frá fyrra ári.“ Sannleikurinn er þó sá, að nú verða menn að borga nær 50% hærri gjöld til jafnaðar af skatt- stofni, sem aðeins hefur hækkað um 26,5%.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Þ að er óneitanlega athyglis- vert að fylgjast með því, hversu snöggir Bandaríkja- menn eru að bregðast við vandamálum, sem upp koma. Ekki eru margir mánuðir liðnir frá því að upp komst um bókhaldssvik og blekkingar hjá stórum fyrirtækjum vestan hafs, sem hafa gefið allt aðra og betri mynd af afkomu sinni og rekstrarárangri en raunin var. Með þeim hætti tókst þeim að halda verði hluta- bréfa háu og blekkja almenna fjárfesta. Stjórn- endur notuðu síðan tækifærið og seldu eigin hlutabréf í fyrirtækjunum áður en að hinu óhjá- kvæmilega verðhruni kom. Bandaríkjaþing hefur nú þegar sett ný lög, sem eiga að koma í veg fyrir eða draga úr líkum á, að stjórnendur fyrirtækja getið hagrætt sannleikanum með þessum hætti. Ljóst er að mikil samstaða hefur verið á milli fulltrúa beggja flokka í þinginu um þessar lagabreyt- ingar, þótt togstreita hafi verið um vissa efn- isþætti málsins. Er talið að hér sé um að ræða mestu breytingar á lögum og reglum um endur- skoðun fyrirtækja frá því kreppan mikla hófst árið 1929. Ekki verður annað sagt en að stjórn- kerfi, sem bregst svo hratt og örugglega við, sé mjög virkt og sé starfi sínu vaxið. Í Morgunblaðinu í dag, laugardag, er sagt ít- arlega frá efni hinnar nýju löggjafar. Meðal ákvæða hinna nýju laga er að sett verður á stofn óháð nefnd, sem á að hafa eftirlit með endur- skoðendum og fær vald til að refsa þeim. Þá er endurskoðunarfyrirtækjum bannað að veita fyr- irtækjum, sem þau endurskoða, ráðgjafarþjón- ustu á flestum sviðum, sem tengjast ekki beint reikningsskilum viðkomandi fyrirtækja. Hægt er að skilja þetta á þann veg, að endurskoð- unarfyrirtækjum sé heimilt að hafa slíka ráð- gjafarstarfsemi innan sinna vébanda og veita þá þjónustu öðrum fyrirtækjum en þeim, sem þau sjá um endurskoðun hjá. Þetta ákvæði er at- hyglisvert fyrir okkur Íslendinga í ljósi þess, að hér hafa risið öflug fyrirtæki í endurskoðun, sem jafnframt hafa veitt fyrirtækjum ráðgjöf á öðrum sviðum rekstrarins. Í hinum nýju bandarísku lögum er ákvæði, sem gerir forstjórum og aðalfjármálastjórum fyrirtækja skylt að ábyrgjast að reikningsskil fyrirtækjanna séu rétt. Ef þeir samþykkja reikningsskil, sem gefa ranga mynd af fjárhag og stöðu viðkomandi fyrirtækis, er hægt að dæma þá hina sömu í allt að 20 ára fangelsi. Þetta eru auðvitað mjög harkaleg ákvæði en lík- leg til að stuðla að meiri heiðarleika í reiknings- skilum fyrirtækja. Í hinum nýju lögum verður fyrirtækjum bannað að veita stjórnendum lán og bandaríska fjármálaeftirlitinu verður falið að setja nýjar reglur um störf greiningarsérfræðinga til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Í þessu sambandi má minna á, að virt bandarísk fjár- málafyrirtæki hafa verið staðin að ótrúlegri ósvífni í ráðgjöf til viðskiptavina á sama tíma og gögn um innanhússsamskipti sýna, að sérfræð- ingar þeirra höfðu enga trú á viðkomandi fyr- irtækjum. Þá er athyglisvert að lögin skylda lögfræð- inga, sem starfa fyrir viðkomandi fyrirtæki, til þess að gera yfirvöldum viðvart fái þeir vísbend- ingar um bókhaldssvik eða önnur slík brot. Af frétt Morgunblaðsins í dag, laugardag, má ráða að ýmsir hagsmunaaðilar hafa barizt gegn sumum ákvæðum þessara nýju laga. Þannig er ljóst, að repúblikanar, sem eru sennilega við- kvæmari fyrir þrýstingi frá stórfyrirtækjum en demókratar, hafa reynt að milda sum ákvæði laganna en þó farið sér hægt í þeim efnum vegna almenningsálitsins. Einn af talsmönnum bandaríska Verzlunarráðsins lýsti efasemdum um að svo ströng lög væru nauðsynleg. Lög- fræðingar hafa lýst andstöðu við þau ákvæði, sem að þeim snúa sérstaklega. Þá hlýtur að vekja athygli, að svo virðist sem þingið hafi ekki tekið á því atriði, sem snýr að gjaldfærslu kostnaðar vegna kaupréttar stjórn- enda og starfsmanna á hlutabréfum. Þegar á heildina er litið er líklegt að þessi stranga löggjöf, sem Bush Bandaríkjaforseti segist hlakka til að staðfesta, muni stuðla að því að hlutabréfamarkaðurinn endurheimti að ein- hverju leyti það traust almennings, sem mark- aðurinn hefur óneitanlega tapað á undanförnum vikum og mánuðum. Það mun ekki gerast í einu vetfangi en smátt og smátt. Þessi snöggu viðbrögð Bandaríkjaþings eru skiljanleg í ljósi þeirra gífurlegu hagsmuna, sem um er að ræða. Það gleymist stundum, að þetta mál snýst ekki bara um þá, sem eru beint og án milligöngu annarra hluthafar í fyrirtækjum. Líf- eyrissjóðir og aðrir sparnaðarsjóðir, sem ávaxta fé almennings, kaupa hlutabréf í fyrirtækjum á bandaríska hlutabréfamarkaðnum. Verðfall á hlutabréfamarkaðnum hefur því gífurleg áhrif á afkomu bæði Bandaríkjamanna og annarra, sem fjárfest hafa þar í landi. Það á líka við um okkur Íslendinga. Íslenzkir lífeyrissjóðir hafa í auknum mæli fjárfest í er- lendum verðbréfum, þ.á m. hlutabréfum. Fé- lagsmenn í lífeyrissjóðum hafa kynnzt því und- anfarin misseri að ávöxtun fjármuna þeirra er ekki alltaf jákvæð. Þess vegna er það nú svo, að þessi framvinda mála í Bandaríkjunum hefur bein áhrif á afkomu fjölda Íslendinga. Í þessu sambandi er ástæða til að benda á að sérfræðingar vestan hafs telja, að verð hluta- bréfa kunni að lækka vegna þessarar nýju lög- gjafar. Það hefur þó ekki orðið til þess að draga úr þeirri staðföstu ákvörðun þingmanna og ráðamanna vestan hafs að setja slíka löggjöf. Endurskoðun á íslenzkum reglum? Um allan heim standa nú yfir umræður um það, hvort önnur lönd eigi að fylgja í kjölfar Bandaríkjamanna í þessum efnum. Í því sambandi verður að gæta þess, að reiknings- skilavenjur eru mismunandi í Bandaríkjunum og t.d. í Evrópu. Dæmi eru um að evrópsk fyr- irtæki, sem hafa verið skráð á hlutabréfamörk- uðum í Bandaríkjunum, hafi breytt reiknings- skilum sínum af þeim sökum og hefur vakið athygli hvað afkomutölur þeirra breytast mjög við það, sem sýnir kannski fyrst og fremst, að þótt reikningsskil séu vafalaust mjög nákvæm fræði byggjast þau þó á margvíslegu huglægu mati. Hér á Íslandi hafa ekki komið upp mál af því tagi, sem til umræðu hafa verið í Bandaríkj- unum. Þó má sjá vísbendingar um, að sum þeirra álitamála, sem þar hafa verið rædd, séu að koma til sögunnar hér. Eitt af því, sem upp hefur komið í Bandaríkj- unum, er hvenær eðlilegt sé að eignfæra ákveð- in útgjöld í stað þess að gjaldfæra þau. Þessi spurning er vafalaust daglegt brauð í störfum endurskoðenda hér. Færsla kostnaðar vegna kaupréttar stjórn- enda og starfsmanna hefur ekki verið mikið til umræðu hér en þó er ástæða til að benda á, að í tilkynningu frá Baugi í gær, föstudag, um af- komu félagsins á fyrstu þremur mánuðum þessa rekstrarárs er skýrt frá því, að framvegis verði slíkur kostnaður gjaldfærður hjá fyrirtækinu. Þetta framtak forrráðamanna Baugs er líklegt til að vekja athygli hér og þá ekki síður hvernig það verður framkvæmt en mismunandi skoðanir hafa verið uppi í Bandaríkjunum um það. Endurskoðun hefur ekki verið ríkur þáttur í almennum umræðum hér á Íslandi en búast má við að athyglin beinist í vaxandi mæli að störf- um endurskoðenda og reikningsskilavenjum fyrirtækja í framhaldi af umræðunum í Banda- ríkjunum og annars staðar. En fleira kemur til. Hið íslenzka viðskiptaumhverfi hefur gjör- breytzt á einum áratug. Nú er frjálst fjár- magnsflæði á milli landa. Þeir sem stunda við- skipti gera bersýnilega töluvert af því að stofna fyrirtæki og svonefnd eignarhaldsfélög í öðrum löndum og þá ekki sízt í Lúxemborg. Á hlut- hafaskrám fyrirtækja, sem skráð eru á Kaup- höll Íslands, má aftur og aftur sjá nöfn fyr- irtækja, sem bera þess merki, að þau eru skráð í Lúxemborg. Það er ómögulegt að fá upplýs- ingar um eigendur þessara fyrirtækja vilji þeir ekki gefa það upp sjálfir. Þessir breyttu viðskiptahættir, frjálst fjár- magnsflæði og aukin umsvif íslenzkra fyrir- tækja í öðrum löndum valda því, að það getur verið mjög flókið fyrir fólk að átta sig á reikn- ingsskilum fyrirtækja, sem eru með starfsemi í mörgum löndum. Það getur líka verið erfitt að átta sig á hverjir eigi fyrirtæki, sem einstakling- ar og lífeyrissjóðir vilja gjarnan vita um áður en fjárfest er í viðkomandi fyrirtækjum. Þessar breyttu aðstæður valda því, að það getur verið rík ástæða til – og ekki bara vegna umræðnanna vestan hafs – að Alþingi og ríkis- stjórn efni til mjög rækilegrar skoðunar á þeim lögum og reglum, sem gilda um viðskiptalífið á Íslandi. Ekki til þess að gera þeim erfitt fyrir, sem stunda viðskipti, heldur þvert á móti til þess að efla traust og tiltrú almennings í garð viðskiptalífsins og stuðla að því að fólk verði reiðubúnara til að leggja sparifé sitt í atvinnu- rekstur. Þegar rætt hefur verið um nauðsyn þess að setja ný lög og nýjar reglur varðandi viðskipta- lífið á síðasta áratug, því tímabili í sögu lýðveld- isins, sem mestar breytingar hafa orðið á starfs- ALÞJÓÐLEGT HNEYKSLI Bráðabirgðaskýrsla, semsvonefnd ÞróunarstofnunBandaríkjanna hefur lát- ið gera, hefur leitt í ljós, að mun fleiri palestínsk börn þjást af vannæringu en áður. Er talið, að nú þjáist um þriðjungur palest- ínskra barna undir sex ára aldri af vannæringu gagnstætt því sem var tveimur árum áður en núverandi átök hófust milli Pal- estínumanna og Ísraela en þá var talið að um 7% barna á þessu ald- ursskeiði væru vannærð. Hér er á ferðinni alþjóðlegt hneyksli. Bandaríkin sérstak- lega, en einnig Sameinuðu þjóð- irnar, Evrópusambandið og helztu stórveldi heims hafa mikil afskipti af deilunum á milli Ísr- aela og Palestínumanna. Þessum aðilum hefur ekki tekizt að stilla til friðar. En það er erfitt að skilja, að þessir sömu aðilar geti ekki séð til þess að börnin á þessu svæði fái nóg að borða. Þótt sprengjum sé varpað fram og til baka á milli deiluaðila stendur ekki yfir allsherjarstríð. Starfsmenn fjölmargra hjálpar- samtaka eru þar á ferð, m.a. Ís- lendingar. Ráðherrar og fyrir- menn frá öðrum þjóðum koma í straumum til Miðausturlanda til þess að ræða við ráðamenn þar. Það er erfitt að finna skýringu á því að ekki sé hægt að koma mat til barna á svæði, þar sem ekki ríkir allsherjarstríð og þar sem svo mikill fjöldi erlendra hjálparstarfsmanna er á ferð. Það er heldur ekki við öðru að búast en að hatrið magnist um allan helming á meðal Palestínu- manna, þegar svo er komið að börn þeirra þjást af vannæringu. Við hverju búast menn? Að þetta fólk horfi þegjandi og hljóðalaust á að börn þess svelti? Að sjá til þess að börnin í Palestínu fái nóg að borða getur átt meiri þátt í að skapa frið á þessum slóðum en margt annað. Við Íslendingar höfum engin pólitísk áhrif á það, sem gerist í Miðausturlöndum. Það er barna- skapur að halda slíkt. Við getum hins vegar átt ríkan þátt í því með afskiptum okkar og athöfn- um á alþjóðavettvangi að börnin í Palestínu fái mat að borða. Og það eigum við að gera. Við eigum að beita okkur á sviðum sem þessum. Við eigum að leggja þeim lið, sem vinna að því dag- lega verkefni, sem ekki er alltaf í sviðsljósi fjölmiðlanna, að tryggja að fólk fái mat. Það er mikilvægara en kynnisferðir fólks úr öllum heimshlutum til þess að sjá hvað er að gerast í Palestínu. Það er nóg af mat á Vestur- löndum. Sumir mundu kannski segja, að það væri of mikið af mat í þessum ríkasta hluta heims. Börnin í Palestínu eru ekki einu börnin í heiminum, sem eru vannærð. Hungur yfirleitt í heimi, sem framleiðir meira en nóg af mat fyrir alla jarðarbúa, er auðvitað hneyksli. Það er hægt að koma með fjölmargar skýringar á því ástandi. Meðal þeirra skýringa, sem gefnar eru á þessu ástandi í Palestínu, eru þær, að Ísraelsmenn meini Pal- estínumönnum að sækja vinnu út fyrir ákveðin svæði. Það er líka sagt að Ísraelsstjórn greiði Pal- estínumönnum ekki þá skatta og tolla, sem þeim ber. Sjálfsagt kemur fjölmargt fleira til. Það breytir ekki því, að þegar fólk sveltir skiptir mestu máli að koma mat til þess. Þess vegna á hið alþjóðlega samfélag ekki að horfa þegjandi á svona hneyksli heldur grípa til róttækra ráðstafana til þess að bæta úr matarskorti barna í Pal- estínu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.