Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 44
DAGBÓK 44 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Útsölu ábótavant ÉG fór á útsölu í stórversl- un um daginn þar sem aug- lýstur var 40% afsláttur af öllum vörum. Ég hugðist kaupa tvær vörur en var síðan rukkuð um fullt verð þegar ég kom að af- greiðslukassanum. Ég benti afgreiðslustúlkunni á mismuninn og hún leiðrétti mistökin og gaf þá útskýr- ingu að ekki væri búið að setja nýja verðið inn í kassakerfið. Þetta er ekki nógu gott, og verða versl- unareigendur og neytend- ur að gæta sín á þessu. Neytandi. Hvar er milljónin? Í VOR og sumar voru seld- ar silfurlitar gosflöskur þar sem lofað var vinningum í töppunum allt að einni milljón króna. Nú eru flöskurnar farnar úr sölu en ekkert er að frétta af vinningshafanum. Hvert fór milljónin? Var nokkuð verið að plata fólk? Ingveldur. Dýrahald Simbi er týndur HANN Simbi villtist að heiman frá Löngumýri 24. júní s.l. Hann er rauður og vel loðinn högni með mikið skott og stór, brún augu. Hann var með köflótta ól og gult merkispjald. Sést hefur til hans í Hafnarfirði undanfarið. Þeir sem vita af ferðum hans vinsamlega hafi samband í síma 565 6519 eða 847 6671. Fundarlaun. Hefurðu séð Birtu? BIRTA er 8 mánaða brönd- ótt læða sem týndist frá Seljabraut í Breiðholti fyrir viku. Hún er með græna ól með merkihólk. Hún er af- skaplega blíð og góð, gegn- ir nafni og er sárt saknað. Þeir sem vita af ferðum hennar vinsamlega hringi í síma 897 9922 eða 557 2405. Högni óskar heimilis MJÖG gæfur og indæll svartur og hvítur högni óskar eftir heimili. Hann er hálfs árs gamall og hvers manns hugljúfi. Áhuga- samir hafi samband í síma 564 3452 Tapað/fundið Mynd fannst LJÓSMYND þessi af þess- ari brosmildu konu fannst á götu í Reykjavík 10. júlí sl. Eigandi getur vitjað henn- ar í móttöku Morgunblaðs- ins. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... Breska hljómsveitin Pink Floydhefur lengi verið í miklu uppá- haldi hjá Víkverja. Meistaraverkin Dark Side of the Moon, Wish You Were Here og The Wall hljóma oft úr hátölurum Víkverja, svo einhverjar plötur sveitarinnar séu nefndar. Víkverji lagði því vandlega við hlustir þegar þáttaröðin Saga Pink Floyd hljómaði á Rás 2 fyrir skömmu. Þættirnir voru alls átta og er ástæða til þess að hrósa umsjón- armanninum, Ólafi Teiti Guðnasyni, fyrir mjög skemmtilega og fróðlega þætti þar sem hann fjallaði bæði um hljómsveitina og einstaklingana sem hana skipuðu, ekki síst eftir að þeir fóru að starfa hver í sínu horni. Víkverji er strax farinn að hlakka til þegar þættirnir verða endurfluttir! x x x Vinur Víkverja sem fæddist ogólst upp á Siglufirði varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að veikj- ast þegar hann var staddur í sínum gamla heimabæ fyrir skömmu, og þurfti að dvelja á sjúkrahúsi bæjar- ins. Reynslan var vissulega óskemmtileg, en dvölin á spítalanum samt sem áður einkar ánægjuleg, að sögn vinarins. „Það er svo skrýtið,“ sagði hann við Víkverja, „að áður en maður þarf á sjúkrahúsi að halda veltir maður ekki svo mikið fyrir sér hvað þar fer fram og hvernig. Horfir á stofnunina úr fjarska án þess að hugleiða nánar starfsemina, en þegar komið er á sjúkrahúsið á Siglufirði og maður rekst þar á fólk við störf; fólk sem maður þekkir aðeins úr allt öðrum hlutverkum í hversdagslífinu utan veggja spítalans, er ómögulegt annað en skynja af hve mikilli hlýju og natni það sinnir verkefnum sínum. Hið sama er eflaust upp á teningnum á hverri slíkri stofnun hérlendis, en ég velti því fyrir mér hvort andrúmsloft- ið sé ekki enn rólegra og betra úti á landi en á stóru sjúkrahúsunum í Reykjavík. Ég fékk að minnsta kosti frábæra þjónustu á sjúkrahúsinu á Siglufirði.“ x x x Víkverja leiðist fátt meira en bíðaeftir því í kvikmyndahúsi að sýning myndar hefjist, á meðan boðið er upp á langar kynningar á myndum sem eru væntanlegar. Að sýna úr einni, tveimur myndum væri í lagi en þegar þær eru orðnar fjölmargar þykir Víkverja nóg um. Hann fór í kvikmyndahús á dögunum í því skyni að sjá Men in Black II, sýningin var auglýst klukkan 22, en hófst ekki fyrr en tuttugu mínútum síðar. Svona nokkuð þykir Víkverja dónaskapur við áhorfendur. x x x Víkverji fylgdist með leik „stórlið-anna“ Þróttar úr Vogum og Al- menna fótboltafélagsins Henson í ut- andeildarkeppninni í knattspyrnu á dögunum. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þá sök að eitt atvik í leiknum verður Vík- verja minnisstætt að eilífu. Markvörður Þróttar tók þá mark- spyrnu, boltinn fór fram völlinn eins og lög gera ráð fyrir en síðan greip Kári Loftsson í taumana; vindur var sagður um 20 metrar á sekúndu og þar sem Þróttur lék á móti vindinum tókst boltinn á loft og sveif síðan í fal- legum boga aftur fyrir sama mark! Víkverji veltir því fyrir sér hvort svona nokkuð hafi gerst áður. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 borguðu, 4 snauð, 7 deilu, 8 kunnátta, 9 tek, 11 askar, 13 hugboð, 14 fjallsbrúnin, 15 flasa í hári, 17 atlaga, 20 blóm, 22 lítilfjörlegur, 23 hefur í hyggju, 24 rétta við, 25 bind saman. LÓÐRÉTT: 1 óþétt, 2 taka land, 3 sæla, 4 tölustafur, 5 söngvari, 6 gleðin, 10 klaufdýr, 12 skolla, 13 gyðja, 15 nær í, 16 for- smán, 18 daufinginn, 19 kyrtla, 20 elska, 21 naumt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hnausþykk, 8 fótur, 9 aular, 10 agg, 11 særir, 13 arður, 15 holls,18 harma, 21 ker, 22 fíkja, 23 eyðir, 24 hrollköld. Lóðrétt: 2 nýtur, 3 urrar, 4 þvaga, 5 kálið, 6 ofns, 7 frár, 12 ill, 14 róa, 15 hæfa,16 lokar, 17 skafl, 18 hrekk, 19 rið- il, 20 arra. K r o s s g á t a ÞESSI mynd er líklega af nemendum á hússtjórnar- námskeiði í Reykjavík, sennilega haustið 1928 eða vorið 1929. Aftan á myndina er skrifað: Aftari röð frá vinstri: Jóna Halldórsdóttir, Kristensa Marta, Þorbjörg Gutt- ormsdóttir, Sigríður (Lillastan), Kristján Sigmundsson, Halldóra, óþekkt, óþekkt. Fremri röð: Elín, Theódóra Sveinsdóttir, Guðrún kona Alberts Klahn. Frekari upplýsingar um fólkið á myndinni væru vel þegnar í síma 551 2367. Ásthildur G. Steinsen. Þekkirðu fólkið? Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ontika kemur á morgun. Brúarfoss kemur til Straumsvíkur á morgun. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 9 og kl. 13 vinnu- stofa, kl. 14 spilavist. Árskógar 4. Á morgun kl. 9 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30 fé- lagsvist, kl. 16 myndlist. Bingó verður næst spil- að 9. ágúst kl. 13.30. Púttvöllurinn er opin kl. 10-16 alla daga. Allar upplýsingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9-16 handa- vinna, kl. 9-17 fótaað- gerð, kl. 10-11.30 sam- verustund. Hjúkrunarfræðingur á staðnum kl. 11-13. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 mánudag kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er lokuð til 7. ágúst. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 verslunin opin, kl. 11.20 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarfið, Dalbraut 18-20. Á morgun kl. 13 frjáls spilamennska (brids). Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Á þriðju- dag verður púttað á Hrafnistuvelli kl 14-16. Félagsheimilið Hraunsel verður lokað vegna sum- arleyfis starfsfólks til 11. ágúst. Orlofsferð að Hrafnagili við Eyjafjörð 19.-23. ágúst. Orlofsferð að Höfðabrekku 10.-13. sept. Skráning og upp- lýsingar kl. 19 til 21. í síma 555 1703, 555 2484 og 555 3220 Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10-13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Hringferð um Norðausturland 17.- 24. ágúst. Uppselt. Farið verður í Land- mannalaugar 6. ágúst nk. Ekið inn Dómadal niður hjá Sigöldu. Leið- sögumaður Tómas Ein- arsson. Fyrirhugaðar eru ferðir til Portúgals 10. september í 3 vikur og til Tyrklands 1. októ- ber í 10 daga fyrir fé- lagsmenn FEB, tak- markaður fjöldi. Skráning hafin í ferð- irnar á skrifstofunni. ATH: Ekki verður dans- leikur á sunnudags- kvöldið vegna sum- arleyfa. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum frá kl. 10-12. Skrifstofa félagsins er flutt í Faxafen 12, sama símanúmer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB í s. 588 2111 Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Á morgunkl. 9- 17 hárgreiðsla, kl. 14 fé- lagsvist. Gerðuberg, félagsstarf. Lokað vegna sumar- leyfa, opnað aftur þriðjudaginn 13. ágúst. Á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs eru sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.30 mánudaga, miðviku- daga og föstudaga. Um- sjón Brynjólfur Björns- son íþróttakennari. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun er handa- vinnustofan opin. Hár- greiðslustofan er lokuð til 6. ágúst. Gullsmári, spiluð fé- lagsvist á mánudögum kl. 20.30. Hraunbær 105. Á morg- un kl. 10 bænastund, kl. 13 hárgreiðsla. Miðviku- daginn 7. ágúst verður farið í Þórsmörk. Lagt af stað frá Hraunbæ kl. 10:30. Súpa og brauð á Hlíðarenda á Hvolsvelli. Í Þórsmörk verður farið í stuttar eða langar gönguferðir. Hafa þarf með með gönguskó og nesti. Leiðsögumaður: Hólm- fríður Gísladóttir. Skráning á skrifstofu eða í síma: 587 2888. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 13 frjáls spilamennska, kl. 13.30 gönguferð. Fótaaðgerð- ir. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Vinnu- stofur lokaðar fram í ágúst. Ganga kl. 10. Vesturgata 7. Á morg- un kl. 9-16 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 handavinna, handa- vinnustofan opin án leiðbeinanda fram í miðjan ágúst. , Vitatorg. Á morgun kl. 9.30 morgunstund, kl. 10 leikfimi, kl. 13 brids frjálst. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 10 fótaað- gerðir. Hana-nú Kópavogi Farið verður í göngu- ferð um „Kvennaslóðir í Kvosinni“ fimmtudag- inn 1. ágúst undir leið- sögn Auðar Styrk- ársdóttur, forstöðumannns Kvennasögusafns Ís- lands. Rúta frá Gullsmára kl.13 og 13.10 frá Gjá- bakka. Pantanir og upplýsingar í Gjábakka s: 554 3400. Allir velkomnir! Minningarkort Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu endurhæf- ingadeildar Landspít- alans Kópavogi (fyrrver- andi Kópavogshæli), sími 560-2700, og skrif- stofu Styrktarfélags vangefinna, s. 551-5941 gegn heimsendingu gíróseðils. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroska- hjálp. Minningarsjóður Jóhanns Guðmunds- sonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Minningarsjóður Krabbameinslækninga- deildar Landspítalans. Tekið er við minning- argjöfum á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í síma 560-1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Ut- an dagvinnutíma er tek- ið á móti minning- argjöfum á deild 11-E í síma 560-1225. Hrafnkelssjóður (stofn- aður 1931). Minning- arkort afgreidd í símum 551-4156 og 864-0427. Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fá- anleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561-4307/fax 561-4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557- 3333 og Sigurlaugu Hall- dórsdóttur, s. 552-2526. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skógum fást á eftirtöldum stöð- um: Í Byggðasafninu hjá Þórði Tómassyni, s. 487- 8842, í Mýrdal hjá Ey- þóri Ólafssyni, Skeiðflöt, s. 487-1299, í Reykjavík hjá Frímerkjahúsinu, Laufásvegi 2, s. 551-1814 og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557-4977. Minningarkort, Félags eldri borgara Selfossi, eru afgreidd á skrifstof- unni Grænumörk 5, mið- vikudaga kl. 13-15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, sími 482-1134, og versl- unni Íris í Miðgarði. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysavarna- felagid@landsbjorg.is Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum kvennadeild- ar RRKÍ á sjúkrahúsum og á skrifstofu Reykja- víkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568-8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562-1581 og hjá Kristínu Gísladóttur, s. 551-7193 og Elínu Snorradóttur, s. 561-5622. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrifstofu- tíma. Gíró- og kredit- kortaþjónusta. Í dag er sunnudagur 28. ágúst, 209. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Einum er fyrir andann gefið að mæla af speki, öðrum að mæla af þekkingu í krafti sama anda. (1. Kor. 12.8.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.