Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 45
DAGBÓK
Styrmir Sigurðsson
lögg. sjúkranuddari,
sérgrein sogæðameðferð.
Mun starfa frá 6.-24. ágúst
á Sjúkranuddstofu Wolfgangs
Furugerði 3, 108 Reykjavík.
Tímapantanir í s. 553 5332
Styrmir Sigurðsson
Verð kr. 49.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 15. ágúst, viku-
ferð. Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.358.
Verð kr. 51.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 15. ágúst, 2 vikur.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 54.460.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Nú bjóðum við síðustu sætin í ágúst til
Mallorca á ótrúlegu tilboði þann 15. ágúst í eina eða tvær vikur. Beint
flug með Heimsferðum á þennan einstaka áfangastað. Þú bókar núna,
og tryggir þér síðustu sætin, og þremur dögum fyrir brottför hringjum
við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Síðustu sætin í ágúst
Stökktu til
Mallorca
15. ágúst
frá 49.865
Skriftargreining
Hef hafið störf að nýju. Greini persónuleika,
skapgerð og hæfileika úr skriftinni.
Allar nánari upplýsingar
í síma 861 4493, Anna.
Árnað heilla
SÍÐASTLIÐINN áratug hafa
þrjár þjóðir haft nokkra yfir-
burði í kvennaflokki – Hollend-
ingar, Þjóðverjar og Englend-
ingar. Það kom því engum á
óvart að þessar þjóðir skyldu
skipa sér í efstu sætin á EM í
Salsomaggiore. Hollensku
konurnar fengu 424 stig og
gullverðlaunin, þær þýsku 414
stig og silfrið, en Englending-
ar 408 stig og bronsverðlaunin.
23 þjóðir tóku þátt í kvenna-
flokknum.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ ÁD5
♥ 1092
♦ D973
♣953
Vestur Austur
♠ KG432 ♠ 9876
♥ DG86 ♥ 74
♦ ÁK5 ♦ G10864
♣6 ♣42
Suður
♠ 10
♥ ÁK53
♦ 2
♣ÁKDG1087
Hollendingar og Þjóðverjar
mættust í næstsíðustu umferð
og unnu þær fyrrnefndu leik-
inn 18-12. En Þjóðverjar tóku
þó vel inn á spilinu að ofan. Á
öðru borðinu spiluðu þýsku
konurnar þrjú grönd í NS og
fengu 10 slagi, eða 430. Hinum
megin reyndu Pasman og Sim-
ons slemmu gegn Auken og
Van Arnim:
Vestur Norður Austur Suður
Auken Simons Von Arnim Pasman
-- -- -- 1 lauf
1 spaði 1 grand Pass 2 hjörtu
Pass 2 grönd Pass 4 lauf
Pass 4 spaðar Dobl Pass
Pass Redobl Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
Kerfi NS er Standard.
Pasman kemur skiptingunni
til skila með því að krefja fyrst
með tveimur hjörtum og
stökkva síðan í fjögur lauf.
Simons sýnir fyrirstöðu í
spaða, sem Von Arnim doblar
til að VARA við útspili í spaða,
en þetta er aðferð sem margir
keppnisspilarar nota nú til
dags. Redobl Simons lofar
fyrstu fyrirstöðu í litnum.
Slemman er afleit, enda eiga
AV öruggan slag á tígul og
annan líklegan á hjarta í fyll-
ingu tímans. Vörnin verður þó
að gæta sín. Ef vestur tekur
einn slag á tígul og spilar svo
trompi eða hjartadrottningu
myndast þvingun á vestur á
endastöðunni. Sagnhafi tekur
öll trompin og eitt háhjarta,
svínar svo spaðadrottningu og
tekur spaðaásinn. Þá eru eftir
tvö spil á hendi: tíguldrottning
og eitt hjarta í borði og Áx í
hjarta heima. Og vestur getur
ekki haldið í tígulás og valdað
hjartað.
Þetta gerðist í ýmsum leik-
um, en Sabina Auken gaf ekk-
ert færi á sér. Hún kom út með
tígulkóng, fékk talningu, og
skipti þá yfir í spaðagosa.
Þannig skar hún strax á sam-
ganginn við blindan, sem er
nauðsynlegur til að kastþröng-
in myndist.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
90 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 29. júlí, er níræð Mar-
grét Scheving, Hringbraut
45, Reykjavík. Margrét er
að heiman á afmælisdaginn.
70 ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 29. júlí, er
sjötugur Sigurður Axels-
son, fyrrverandi forstjóri,
Hvannalundi 8, Garðabæ.
Eiginkona hans er Hrafn-
hildur Kristinsdóttir. Í til-
efni dagsins munu afkom-
endur þeirra nema þau á
brott og halda þeim „grillhá-
tíð“ að hætti Setursins.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú lítur heiminn björtum
augum. Þú ert hug-
myndaríkur og nærð yf-
irleitt stjórn á aðstæðum.
Það verða miklar breytingar
í lífi þínu eftir tvö ár.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er auðvelt að finna til von-
leysis í dag. Þér finnst þú ekki
hafa stjórn á lífi þínu en það er
ekki rétt. Þetta eru tíma-
bundnar efasemdir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Samskipti við fjölskylduna
geta verið erfið í dag. Þú ættir
að spyrja sjálfan þig að því
hvort stjórnsemi þín komi
e.t.v. í veg fyrir að þú sjáir
hlutina í réttu ljósi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Forðastu allt álag því þú ert
óvenju veikur fyrir í dag. Það
er eitthvað kraftleysi að plaga
þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Dagurinn hentar ekki til að
taka ákvarðanir varðandi fjár-
málin. Hugsun þín er yfirleitt
skýr en nú setja efasemdir
svip sinn á dómgreind þína.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það hefur ekkert upp á sig að
vera með frekju í samskiptum
við fólk í dag. Það er hætt við
að þú eigir eftir að líta til baka
og undrast dómgreindarleysi
þitt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ekki taka þátt í neinu ráða-
bruggi í dag. Það á ekki eftir
að ganga upp og auk þess eru
miklar líkur á að upp um þig
komist.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er sárt þegar vinir okkar
geta ekki samglaðst okkur.
Reyndu að sýna þolinmæði því
misskilningur getur ýtt undir
reiði og tortryggni í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vertu á verði gagnvart fólki
jafnvel þótt það sé traustvekj-
andi. Þú gætir orðið fyrir
barðinu á blekkingum og jafn-
vel svikum í dag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér hentar best að vinna einn í
dag enda eru litlar líkur á að
þú hljótir þá viðurkenningu
sem þú átt skilið fyrir vinnu-
semi þína. Einhver annar gæti
reynt að hagnast á vinnu þinni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir þurft að horfast í
augu við afleiðingar gamalla
misgjörða. Það er best að horf-
ast í augu við hlutina þannig að
þú þurfir ekki að forðast að líta
um öxl.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er hætt við að foreldrar
eða nánir vinir valdi þér von-
brigðum í dag. Þú átt von á
stuðningi og skilningi en færð
skammir og ásakanir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert eitthvað þreyttur og
leiður á vinnunni. Þetta er
ekkert til að hafa áhyggjur af.
Það mun ganga yfir á nokkr-
um dögum. Vertu hughraust-
ur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
LOGNSÆR
Kvika, mjúka bylgjubrjóst,
bældu þína sorg og gleði.
Hvíldu þig svo létt og ljóst
við lognsins frið og breyttu ei geði.
Loftsins straumar líða hægt,
lyfta þér svo blítt og vægt,
stíga hljótt hjá risabarnsins beði.
Á þér sé ég unnarbrá
eins og svip af hrannarsköflum.
Spegilvangans glampi og gljá
grúfir yfir huldum öflum. –
Ólgubrjóst, þín andartog
eru þung sem stormsins sog.
Djúpsins vættir leika að teningstöflum.
– – –
Einar Benediktsson.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 29. júlí, er sextugur Pét-
ur Sigurðsson, skipstjóri,
Marklandi 8, Reykjavík.
Eiginkona hans Sigríður
Jónsdóttir lést 1993. Pétur
er staddur á afmælisdaginn
hjá sonum sínum og fjöl-
skyldum í Frakklandi.
1. d4 e6 2. Rf3 f5 3. g3 Rf6 4.
Bg2 d5 5. c4 c6 6. O-O Bd6 7.
b3 De7 8. Bb2 O-O 9. Dc1
Rbd7 10. Ba3 Re4 11. Bxd6
Dxd6 12. Rbd2 b6 13. Db2
Bb7 14. Hac1 Hac8 15. Hfd1
Hfd8 16. e3 De7 17. Re1 Ba8
18. Rd3 Dd6 19. b4 De7 20.
a3 Bb7 21. c5 Ba6 22. Rf3
Bxd3 23. Hxd3 bxc5 24. dxc5
e5 25. Hdd1 Ref6 26. Rd2
Hb8 27. Rb3 De6 28. He1
He8 29. f4 Re4 30. Hcd1 h6
31. Dc2 De7 32. Ra5 Hbc8
33. Bf1 Rdf6 34.
Bh3 g6 35. Db2 Hc7
36. He2 exf4 37.
exf4 Kh7 38. Hde1
Kg7 39. Bg2 Hcc8
40. He3 Kh7 41.
Dd4 h5 42. Bf3 Df7
43. Kg2 He6 44.
H3e2 Hce8 45. Db2
Hc8 46. Rb3 Hee8
47. Rd4 Dg7 48. Dc2
Rg4 49. Rb3 h4 50.
h3 Rgf6 51. g4 Dc7
52. Dc1 Df7 53. g5
Rd7 54. Db2 Rf8 55.
Rd4 Dc7 56. Dc1
Re6 57. Rxe6 Hxe6
58. Hd1 Hce8 59. Hd4
Staðan kom upp á öðru
bikarmóti FIDE sem lauk
fyrir skömmu í Moskvu.
Teimour Radjabov (2610)
hafði svart gegn Vassily Iv-
ansjúk (2711). 59...Rxg5!
vinnur peð og skákina. 60.
He5 Rxf3 61. Kxf3 Hxe5 62.
fxe5 Dxe5 63. Hxh4+ Kg8
64. Dg1 De2+ 65. Kf4 Dd2+
66. Kf3 De2+ 67. Kf4 Dd2+
og hvítur gafst upp.
Fimmta mótið í Bikar-
syrpu Halló! fer fram í kvöld
sunnudaginn 28. júlí og hefst
mótið kl. 20. Mótið verður
haldið á ICC á Netinu.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 1. júní sl. í Hvammstanga-
kirkju af sr. Sigurði Grétari Sigurðssyni þau Guðrún Helga
Marteinsdóttir og Hörður Gylfason. Þau eru búsett í
Reykjavík.
FRÉTTIR
BRYGGJUDAGUR, sem handknatt-
leiksdeild kvenna ÍBV hefur séð
um, var haldinn á plani Eimskips
við Binnakant um síðustu helgi.
Góð aðsókn var að bryggjudeginum
þrátt fyrir votviðrið sem verið hef-
ur í Eyjum undanfarna daga. Flutt
var tónlist og boðið upp á nýbak-
aðar vöfflur og heitt kakó í veit-
ingatjaldi á svæðinu. Þá kynntu
nokkur fyrirtæki vörur og þjón-
ustu. Eyjavík kynnti vinnufatnað,
Íslensk matvæli og Vinnslustöðin
kynntu framleiðsluvörur sínar. Auk
þess var á boðstólum ýmislegt sjáv-
arfang sem fjölmargir viðskipta-
vinir notuðu sér óspart, þar má
nefna síld, humar, lax, silung og
siginn fisk sem rauk út.
Bryggjudagur í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.