Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 50
FÓLK Í FRÉTTUM 50 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HLJÓMSVEITARINNARFlaming Lips er iðulegahelst minnst fyrir lagiðShe Don’t Use Jelly, sem sló í gegn fyrir átta árum. Vinsældir þess lags voru þó eins konar slys, því leiðtogi hljómsveitarinnar er þekktur fyrir flest annað en löngun í vinsældir. Tónlist sveitarinnar virð- ist þó verða æ aðgengilegri eftir því sem hann teygir sig lengra í tilraun- unum, eða það mátti í það minnsta heyra á plötu sem Flaming Lips sendi frá sér fyrir tveimur árum og ekki síst á nýju plötunni, Yoshimi Battles the Pink Robots, sem kom út um daginn. Hljóðfærastuldur úr kirkju Flaming Lips varð til fyrir bráð- um nítján árum þegar Wayne Coyne tók ófrjálsri hendi hljóðfæri í kirkju í heimaborg sinni og fékk Mark bróður sinn og Michael Ivins vin sinn í lið með sér. Wayne Coyne lék á gítar, Mark Coyne söng og Michael Ivins lék á bassa. Slag- verkið var meira mál, en eftir langa mæðu gekk Richard English í sveit- ina og lék á fyrstu skífu hennar sem þeir félagar gáfu sjálfir út. Nafn sveitarinnar hefur aldrei verið full- skýrt og reyndar virðist skýringin breytast eftir því sem Wayne Coyne dettur í hug það og það skiptið. Mark Coyne gekk úr skaftinu skömmu eftir að platan, sem var samnefnd sveitinni, kom út og er þar með úr sögunni. Wayne Coyne tók að sér sönginn og reyndar laga- smíðar líka, en enginn kom í stað Marks að svo stöddu. Hear It Is kom út 1986 og Oh My Gawd!! ári síðar. Á tónleikaferð kynntist Coyne Jonathan Donahue, sem var nýbúinn að stofna hljóm- sveitina Mercury Rev. Svo vel varð þeim til vina að Donahue setti Merc- ury Rev í salt um tíma og hóf að vinna með Coyne og félögum án þess þó að vera beinlínis í sveitinni. Samningur við Warner Donahue kemur nokkuð við sögu á næstu plötu, Telepathic Surgery, en eftir hana hætti English. Nýr slagverksmaður var Nathan Ro- berts, en ekki leið á löngu þar til Donahue gekk í sveitina undir nafn- inu Dingus og tók að sér gítarleik. Þannig skipuð tók sveitin upp In a Priest Driven Ambulance sem kom út 1990 og varð meðal annars til þess að Warner gerði útgáfusamn- ing við sveitina. Fyrsta platan á vegum Warners, Hit to Death in the Future Head, var ákveðinn tónlistarlegur vendi- punktur á ferli Flaming Lips. Tón- listin var að mestu eins tilrauna- kennd og geggjuð og sveitin hafði getið sér orð fyrir, en æ meira bar á brengluðu poppi, sýruskotnu og undurfurðulegu. Önnur tímamót urðu líka í kjölfar skífunnar því þeir Donahue og Roberts hættu, sá fyrr- nefndi til að sinna Mercury Rev. Menn komu í manna stað, Ronald Jones tók að sér gítarleik og Steven Drozd slagverkið og með þennan mannskap tók Flaming Lips upp sitt fyrsta meistaraverk, Transmiss- ions From the Satellite Heart, sem kom út 1993. Hún fór hægt af stað í sölu en óforvarandis varð lagið She Don’t Use Jelly, sem er vægast sagt með sérkennilegum texta, dæmi- gerðum reyndar þegar Wayne Coyne er annars vegar, geysi- vinsælt. Árið hræðilega Næsta hljóðversskífa, Clouds Taste Metallic, kom út tveimur ár- um síðar en ekki tókst þeim félögum að fylgja vinsældum She Don’t Use Jelly eftir þótt platan hafi verið enn betri. Coyne lét það þó ekki á sig fá, hann virðist ekki hafa verið undir neinum sérstökum þrýstingi frá Warner um að skrifa fleiri vinsælda- leg lög, sem er merkilegt í sjálfu sér, og næsta plata átti eftir að ganga lengra í tilraunamennsku en dæmi eru um með útgáfu hjá stór- fyrirtæki. Áður en upptökur á nýrri plötu gátu hafist týndist Jones, hvarf á vit sértrúarsafnaðar og hef- ur ekki til hans spurst síðar. Drozd missti hönd eftir að hafa verið bitinn af eitraðri köngurló og Ivins lenti í harkalegu bílslysi. Lítið varð úr upptökum þetta an- nus horribilis Flaming Lips, það var ekki fyrr en ári síðar, 1997, að sveit- in kom sér í hljóðver að nýju, reynd- ar sem tríó, enda fannst þeim ekki taka því að ráða nýjan mann í stað Jones. Afraksturinn var platan, eða réttara sagt plöturnar, Zaireeka. Zaireeka var fjórar plötur með sömu tónlist en þannig búið um hnútana að lögin skiluðu sér ekki al- mennilega nema diskarnir væru spilaðir samtímis. Reyndar mátti líka spila þá tvo og tvo saman, eða þrjá eða jafnvel bara hlusta á einn disk í einu. Kemur varla á óvart að sala á Zaireeka var takmörkuð. 1998 tók tríóið síðan upp plötuna The Soft Bulletin, en lög af henni lék Flaming Lips einmitt á Airwa- ves í Laugardalshöll sællar minn- ingar. Sú plata þykir þeirra helsta verk, poppplata með grípandi lögum sem pakkað var í skrautumbúðir með strengjum, kórum og hvaðeina. Lög af þeirri skífu náðu nokkurri hylli, og hún var víða talin með bestu plötum ársins. Óvenjulangan tíma tók fyrir þá félaga að ljúka við næstu skífu, en ekki sátu þeir auðum höndum; sveit- in gerði stuttmynd sem kallast Jól á Mars, og sömdu við hana tónlist aukinheldur sem þeir félagar tóku upp nokkur órafmögnuð lög fyrir heimildarmynd um sveitamenn frá Oklahoma, Okie Noodling. Allt tók þó lengri tíma en ætlað var og svo fór að sveitin var að vinna að öllum þremur verkefnunum að segja sam- tímis. Coyne hefur sagt að það hafi haft talsverð áhrif á plötuna nýju; tónlistin við stuttmyndina sé mjög tilfinningaþrungin og fyrir vikið hafi þeir félagar reynt vísvitandi að hafa Yoshimi-plötuna léttari, en einnig hafi skilað sér viss einfaldleiki sem felist í órafmagnaðri tónlistinni úr heimildarmyndinni. Mest áhrif á plötuna hafði samt skyndilegt and- lát japanskrar vinkonu Coynes og þeirra Flaming Lips-manna sem bergmálar í textunum, ýmist sem vangaveltur um hverfulleika lífsins eða djúpar pælingar um hvað það sé sem geri okkur mennsk. Stríð við bleik vélmenni Yoshimi Battles the Pink Robots, Yoshimi berst við bleiku vélmennin, hefur nafn sitt meðal annars frá söngkonunni Yoshimi P-we, sem er vinkona þeirra félaga, en hún er meðal annars í hljómsveitunum Boredoms og tilraunasveitinni for- vitnilegu OOIOO. Stríð hennar við bleiku vélmennin hljómar eins og vísindaskáldsaga og sum laganna eru þessleg, sjá til að mynda laga- parið Yoshimi Battles the Pink Ro- bots Part 1 og Part 2, en víst má skilja vísunina líka sem ábendingu um að tilfinninga- og tillitsleysi geri menn að vélmennum. Þannig kvikna tilfinningar í rökrásum vélmennis 3000-21 í öðru lagi plötunnar og allt í einu vill það ekki eyða Yoshimi, heldur frekar að hún eyði því – þannig er ástin. Coyne lét þau orð falla í viðtali fyrir skemmstu að í gamla daga hafi hljómsveitin verið að reyna að spila poppmúsík en ekki tekist betur en svo að öllum fannst hún flytja til- raunarugl. Nú fari þeir félagar aftur á móti inn í hljóðver með það eitt í huga að ganga eins langt og þeir geta í furðulegheitum og þá hljómi allt eins og argasta popp. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Argasta popp Hljómsveitin Flaming Lips vakti mikla athygli fyrir síðustu plötu sína, þar sem hún lék sinfónískt framúr- stefnupopp eftir áralanga tilraunamennsku. Á nýrri plötu sveitarinnar, Yoshimi Battles the Pink Robots, sem kom út um daginn, kveður enn við nýjan tón. Furðupoppsveitin Flaming Lips. INDVERSKI fatahönn- uðurinn Anand Jon hélt á dögunum heljarinnar tískusýningu á Hótel Borg í boði Allied Domecq, en sýningin var hluti af ár- legri Midnight Sun tísku- sýningu. Það var Kolbrún Aðalsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Icelandic models-umboðsskrifstof- unnar, sem hafði veg og vanda af sýningunni sem og veglegri sýningu í Landmannalaugum sömu helgi. Hönnun Anands ber sterkan keim af uppruna hans í Indlandi en að sögn Kolbrúnar einkennir kvenleiki flíkur hans fyrst og fremst. „Sýningin var með óhefðbundnu sniði en ég leiddi sýningarstúlk- urnar fram víðs vegar um sýning- arsalinn, meðal annars í glugga og upp á borð, þegar fáir áttu von á,“ segir Kolbrún. „Anand Jon treysti mér fyrir allri framsetningunni og hann var í skýjunum yfir útkom- unni.“ Stúlkurnar sem sýndu flíkur An- ands voru frá Names og Whoman umboðsskrifstofunum sem stað- settar eru í Mílanó og New York, sem eru nánir samstarfsaðilar Ice- landic Models. En það var ekki einungis þessi sýning sem var í boði fyrir Anand, fylgdarlið hans og fjölmiðla en þeirra beið glæsileg dagskrá þá daga sem þau dvöldu hér. Hópurinn fór í Bláa lónið, snæddi humar á Stokkseyri og íslenskt lambakjöt á Oro, heimsótti Gullfoss og Geysi og Landmannalaugar þar sem helj- arinnar tískusýning fór fram. Einn- ig var slegið upp dansleik fyrir hóp- inn í hesthúsinu við Laxnes og á Fjörukránni. „Það sem stóð uppúr í dag- skránni var svo þegar við fórum öll upp að rótum Esjunnar þar sem Skógrækt ríkisins hafði úthlutað okkur eins hektara jarðskika. Þar gróðursettu hönnuðirnir, fyrirsæt- urnar og aðrir aðstandendur plöntur fyrir vini sína og fjölskyldu. Þetta var mjög falleg stund og margir lýstu yfir áhuga á að koma aftur til Íslands til að fylgjast með sinni plöntu,“ sagði Kolbrún að lok- um og bætti við að helgin hefði ver- ið mjög vel heppnuð í alla staði og að gestir og fylgdarlið hefðu kvatt landið með gleði í hjarta. Anand Jon umkringdur fyrirsætum sínum. Þessar föngulegu stúlkur sýndu hönnun Anand Jon en þær eru báðar frá Júgóslavíu. Vigdís frá Færeyjum stillir sér upp í glugga Hótel Borgar. Morgunblaðið/Jim Smart Þær Lukka, Dóra og Auður Sif fylgdust áhugasamar með sýningunni. Lukka hafði veg og vanda að förðun fyrirsætanna og þær Auður og Dóra eiga hárgreiðslustofuna Trít sem sá um hárgreiðsluna. Kvenleikinn einkennandi Indverski fatahönnuðurinn Anand Jon sýnir á Hótel Borg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.