Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 4
DAGLEGT LÍF 4 B FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ S Á SEM tekur með sér app- elsínu í fjallgöngu á Jóns- messunótt og gæðir sér á henni á miðjum Fimm- vörðuhálsi er sennilega síst að hugsa um þá staðreynd að náttúru- legur uppskerutími appelsína í suður- hluta álfunnar er um hávetur. Í janúar fyllast evrópskir útimarkaðir af nýt- índum sítrusávöxtum, melónur, nekt- arínur og ferskjur eru ferskastar um hásumar en plómurnar eru haust- ávextir. Þannig mætti áfram telja. Hér, þar sem allir ávextir eru inn- fluttir, eru lítil tengsl við þessa nátt- úrulegu hringrás. Þeir sem leggja sig eftir því skynja þó oft gæðamun á ákveðnum ávöxtum milli árstíða, enda hefur ávaxtanæmi Íslendinga þróast nokkuð í seinni tíð, þar sem æ fleiri dvelja langdvölum við nám og störf er- lendis. En sem við erum farin að læra inn á helstu ávexti, bætast við nýjar tegundir sem lítil deili eru þekkt á. Ferskur ananas á grillið „Oft heyrir maður viðskiptavinina segja: „Þegar ég var í Svíþjóð þá not- uðum við þetta svona...“ og margir spyrja um ávexti sem þeir hafa vanist í öðrum löndum,“ segir Kristín Jóns- dóttir, yfirmaður grænmetis- og ávaxtadeildar í verslun Hagkaupa í Kringlunni. „Hingað koma líka margir viðskiptavinir af austurlenskum upp- runa, sem þekkja þessa nýju ávexti af heimaslóð og kunna á þeim lagið. Einnig sjáum við oft lifna yfir erlend- um ferðamönnum sem rekast á gamla „kunningja“ í ávaxtaborðinu.“ Verslunin er að sögn Kristínar sú sem býður hvað fjölbreyttast úrval svonefndra exótískra ávaxta hérlendis og mun það vera arfleifð frá verslun- inni Nýkaupum sem rekin var á sama stað. „Við reynum að hafa á boðstólum tegundir til skiptis, það fer líka eftir því hvað er fáanlegt að utan. En ef eitthvað vantar sem fólk er farið að venjast, er hringt eftir því. Ég var til dæmis í tvígang spurð um papaja í gær,“ segir Kristín, en bendir einnig á að tegundirnar geymist misjafnlega vel. „Fólk er almennt mjög forvitið um þessa nýju ávexti og finnst þeir fyndn- ir, margir hrópa upp yfir sig þegar þeir sjá rambutan: „Þetta er alveg eins og kaktus!“ Sumir ganga jafnvel svo langt að brjóta eitt stykki til að kíkja inní, án þess samt að kaupa.“ Af vinsælustu tegundunum nefnir Kristín ferskar fíkjur, sem séu veru- lega eftirsóttar. Þá fari nokkuð af pap- aja-aldini og trjátómati (tamarillo). „Pómelos fer hins vegar rólega, en er alltaf til. Stjörnuávöxturinn er mikið notaður sem skraut og svo er kúm- hvaturinn víst nokkuð settur í kok- teila.“ Vatnsmelónurnar slá hins vegar öll met, af þeim eru stundum pöntuð 100 kíló á dag. Kantal- ópumelón- urnar eru líka eftir- sóttar en um báðar teg- undir gildir að sneiðar seljast betur en heil stykki. „Svo er það ferski ananasinn, hann rýkur út á heitum dögum ásamt maísstönglum. Ég held að fólk setji þetta mikið á grillið,“ segir Kristín. Verðlisti hinna nýju tegunda fær marga til þess að staldra við – jafnvel hugsa sig tvisvar um. Ferskar fíkjur EIRALDIN – ELDALDIN – GALLALDIN – GRANATEPLI – ÍGULBER – KAKÍALDIN – LOÐBER – PÍSLARALDIN – PÓME VELKOMIN Eplið í Eden breytti öllu fyrir mann- skepnuna sem upp frá því hefur tengt ávexti við nautnir, fegurð og freistingar. Náttúran gefur af sér þúsundir aldintegunda og sífellt fleiri þeirra rekur á fjörur frónskra neytenda. Sigurbjörg Þrastardóttir fór til fundar við satsúmur, ígulber og aðra fram- andi ávexti, forboðna og velkomna. Mangó hentar einkar vel með sterkum mat því það deyfir bragð- ið af sterkum kryddtegundum. Mangó er býsna C-vítamínríkt. Trjámelóna geymir ljóst aldinkjöt, safaríkt, og notast eins og melóna. Píslaraldin má borða beint úr skelinni með skeið. Aldinkjötið er gott að frysta í klakabökkum og nota út á ís eða ostakökur. Ferskjur eru sætar og safaríkar og hýðið er ætt þótt loðið sé. Trjátómatur er súr hýðið óætt. Fer vel og kjöti, má einnig Papaja-aldin er auðugt af A- vítamínum og kalsíum, safaríkt og sætt á bragðið. Ígulber eru nokkuð sæt og henta vel með krydduðum mat. sólaldin, blæjuber og kakí INNRÁS framandi ávaxta kallarvitanlega á þýðingavinnu ogorðasmíð, eigi gestirnir að falla jafnvel að tungumálinu og bragð- laukunum. Þekkt eru dæmi um fleiri en eitt heiti á sama ávexti, svo sem banani/bjúgaldin og appelsína/ glóaldin. Færri vita að apríkósa heit- ir líka eiraldin, tröllaldin er það sem flestir nefna greip og þannig mætti áfram telja. Nokkrir hinna nýkomnu ávaxta ganga enn undir erlendum heitum, þótt prýðilegar þýðingar hafi verið settar fram, en tíminn einn mun skera úr um hvaða heiti haldi velli. Eftirfarandi listi er unninn upp úr Orðabanka Íslenskrar málstöðvar, en þar er að finna flokkinn Matarorð úr jurtaríkinu sem er í senn fróðleg- ur og skemmtilegur aflestrar.  apríkósa, eiraldin (e. apricot, lat. Prunus armeniaca): steinaldin samnefnds trés af rósaætt sem er upprunnið í Kína. Fremur smá, rauð- gul á lit.  blæjuber (e. cape gooseberry, goldenberry, lat. Physalis peru- viana): aldin hitabeltisjurtar af nátt- skuggaætt sem er upprunnin í Perú. Með gulleitt hýði, sætsúrt, á stærð við kirsiber.  brómber (e. blackberry, lat. Rubus fructicosus agg.): aldin af samnefndum hálfrunna af rósaætt sem er algengur í skógum Evrópu. Svart og samvaxið keilumynduðum blómbotni; til í fjölmörgum af- brigðum; berin ýmist etin hrá eða notuð í bökur og berjamauk.  ferskja (e. peach, lat. Prunus persica): steinaldin samnefnds ald- intrés af rósaætt sem er talið upp- runnið í Kína. Loðin, rauðgul á lit, sæt og safarík; ræktuð í fjölmörgum afbrigðum.  gallaldin, kakíaldin, kakíplóma (e. Chinese persimmon, date plum, kaki, lat. Diospyros kaki): gul- eða rauðleitt aldin trés af tinnuviðarætt, ræktað m.a. í Kína, Japan og við Mið- jarðarhaf. Minnir á tómat í útliti; mjúkt og sætt með fínlegt bragð; snætt ýmist ferskt eða soðið.  granatepli, kjarnepli (e. pome- granate, lat. Punica granatum): ald- in samnefnds trés af granateplaætt sem er upprunnið í Vestur-Asíu og ræktað víða í hitabelti og heittempr- uðu beltunum. Oftast rauð- eða brúnleitt, fremur súrt með mörgum rauðum fræjum í hlaupkenndum safa, einn elsti ávöxtur sem þekktur er.  grasker (e. squash, pumpkin, lat. Cucurbita spp.): aldin ýmissa tegunda graskersættkvíslar sem eru notuð sem grænmeti, þeim er iðu- lega skipt í tvo hópa, sumargrasker og vetrargrasker.  greipaldin, tröllaldin, greip (e. grapefruit, lat. Citrus x paradisi): aldin samnefnds trés af glóaldinætt sem er mikið ræktað í Vestur- Indíum, óvíst um uppruna, kann að vera innflutt frá Kína, e.t.v. sem stökkbrigði eða það hafi orðið til við kynblöndun pómelónu og appelsínu. Oftast sítrónugult með ljósgult ald- inkjöt en til eru afbrigði með bleikt eða rautt aldinkjöt.  gvava, eldaldin (e. guava, lat. Psidium guajava): aldin sígræns trés af brúðarlaufsætt sem vex í hitabelti M- og S-Ameríku. Ræktað í hitabelti vegna aldinanna sem eru perulöguð, gulgræn og einkum etin sultuð.  ígulber, rambutan (e. rambutan, lat. Nephelium lappaceum): aldin trés af sápuberjaætt sem vex í suð- austanverðri Asíu. Skærrautt og hært, ögn súrt á bragðið.  kívíávöxtur, loðber, kíví (e. kiwi fruit, lat. Actinidia deliciosa): aldin kívífléttunnar, kínverskrar klif- urplöntu af geislafléttuætt, sem lifir í heittempruðu loftslagi. Ljósbrúnn, dúnhærður að utan en aldinkjötið ljósgrænt með dökkum fræjum um kjarnann.  konfektepli, McIntosh-epli (e. McIntosh, lat. Malus domestica ’McIntosh’): kanadískt eplaafbrigði. Lítið, rautt á lit; góð ábætisepli.  kúmkvat, egglaga gullappels- ína, kúmhvatur (e. kumquat, lat. Fortunella margarita): aldin af gló- aldinætt, upprunnið í Kína. Fremur smátt, egglaga, gullið; með þurrt og bragðmikið aldinkjöt og bragðsterkt hýði sem er borðað með aldininu.  litkaber, litkaaldin (e. litchi, lat. Litchi chinensis): ávöxtur samnefnds trés af sápuberjaætt sem er upp- runnið í Suður-Kína. Minnir í útliti á stórt jarðarber, með þunna, stökka vörtótta skurn um ljóst, ljúffengt aldinkjöt, súrt með múskatkeim.  límóna, læma, súraldin (e. lime, lat. Citrus aurantiifolia): ávöxtur samnefnds trés af glóaldinætt. Oft- ast fagurgræn; lögunin minnir á smækkaða sítrónu; hnöttóttari en sítróna.  mangó, mangóávöxtur (e. mango, lat. Mangifera indica): aldin samnefnds trés af hjartaldinætt, upprunnið á Indlandi. Ílangt, hýðið rautt, gult eða fjólublátt og seigt; aldinkjötið mjög safaríkt; óþroskuð aldin ljósgræn og súr.  mandarína (e. mandarin or- ange, lat. Citrus reticulata): ávöxtur samnefnds trés af glóaldinætt sem er upprunnið í Kína og Indókína. Smá, fremur flatvaxin og hýðið yfirleitt laust frá aldinkjötinu; til eru fjöl- mörg ræktunarafbrigði, t.d. tang- erína, klementína og satsúma.  melóna, tröllepli (e. melon, lat. Cucumis melo): Heiti tveggja teg- unda plantna af graskersætt. Annars vegar er sykurmelóna (hin eiginlega melóna) og hin fjölmörgu ræktunar- afbrigði hennar og hins vegar vatns- melóna. Báðar tegundirnar eru mik- ið ræktaðar á heitum og hlý- tempruðum svæðum. Aldin hinna ýmsu ræktunarafbrigða eru breyti- leg að stærð, lögun og lit og er þeim skipt í sex hópa eftir þeim eig- inleikum en ekki eftir grasa- fræðilegum mun. Í hverjum hópi geta svo verið jafnvel eitt eða fleiri nafngreind yrki eða gerðir af þeim. Einnig koma fyrir blendingar sem fengnir eru með víxlfjóvgun milli hópanna. Hóparnir eru: kantalúp- melónur, netmelónur, vetrarmel- ónur, chito-melónur, conomon- melónur og dudaim-melónur.  melónupera, trjámelóna (e. pep- ino, lat. Solanum muricatum): aldin jurtar af náttskuggaætt sem er upp- runnin í Suður-Ameríku. Á stærð við epli; með slétt, gulleitt eða – grænt hýði með dökkum röndum; ald- ÍSLENSK HEITI ÁVAXTA Hvað er eldaldin? ÞROSKASTIG ávaxta og græn- metis hefur áhrif á útlit, áferð og bragð. Sumar tegundir halda áfram að þroskast eftir upp- skeru en aðrar eru háðar því að vera tíndar á réttum tíma. Þótt banani sé grænn og rammur þegar hann er tíndur, heldur hann áfram að þroskast í körfu kjörbúðarinnar eða á borði neyt- andans, og verður um síðir gulur og sætur. Sama gildir um ýmsa aðra ávexti, en þó ekki alla. Ávextir sem þroskast áfram eftir uppskeru apríkósur avókadó ástaraldin bananar bláber epli ferskjur gvava kíví mangó melónur nektarínur papaja perur plómur Ávextir sem ekki þroskast við geymslu ananas appelsínur brómber granatepli greipaldin hindber jarðarber kirsuber klementínur litchi límónur mandarínur sítrónur vínber TENGLAR ............................................... www.manneldi.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.