Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 1
2002  MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A FJÓRTÁN MEISTARAR MÆTA TIL LEIKS / B4 ÍSLANDSMEISTARAR KR í körfuknattleik kvenna hafa fengið góðan liðstyrk fyrir komandi tímabil því Hanna Kjartansdóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við Vest- urbæjarliðið á nýjan leik. Hanna lék síðasta vetur með Skjold/Stevnsgade í Danmörku, þar sem hún varð bikarmeistari, en hún lék þar á undan með KR-ingum og var í sig- ursælu liði þeirra sem vann alla þá titla sem í boði voru tímabilið 2000–01. Koma Hönnu til KR eru góðar fréttir fyrir Vesturbæj- arliðið, þar sem tveir af máttarstólpum þess undanfarin ár, Guðbjörg Norðfjörð og Krist- ín Jónsdóttir, verða ekki með í vetur – Guð- björg hefur lagt skóna á hilluna og Kristín hyggur á nám í Bandaríkjunum. Hanna til liðs við KR EIÐUR Smári Guðjohnsen, knatt- spyrnumaður hjá Chelsea, hefur ekki getað tekið þátt í undirbúnings- leikjum liðsins fyrir komandi leiktíð vegna meiðsla, en hann hefur að undanförnu reynt að vinna bug á bólgu við hnéskel. Eiður var frá allan júlímánuð vegna meiðslanna en er óðum að ná sér. Hann er farinn að skokka en er ekki byrjaður að æfa með liðinu. Það má því telja ólíklegt að hann verði klár í slaginn í fyrstu leikjum Chelsea á nýrri leiktíð í ensku knatt- spyrnunni. Liðið leikur við Charlton Athletic á útivelli í fyrstu umferð 17. ágúst og mætir svo Manchester United á heimavelli sínum, Stamford Bridge, sex dögum síðar, á föstu- dagskvöldi, sem er mjög óvenjulegur leiktími í ensku úrvalsdeildinni. Nafn Eiðs Smára hefur mikið verið í enskum blöðum upp á síðkastið en ítrekað hafa komið fréttir um að hann sé á förum frá félaginu. Claudio Ranieri, knattspyrnu- stjóri Chelsea, vill ekki missa Eið úr sínu liði og er mjög bjartsýnn á að geta haldið honum í herbúðum Chelsea. Ranieri sagði eftir 5:1sigur Chelsea á Aldershot í fyrrakvöld að Eiður Smári vildi vera um kyrrt. „Ég veit að Eiður vill vera áfram hjá Chelsea. Ég er ánægður með hann, hann er ánægður, svo ég held að hann verði áfram hjá Chelsea,“ sagði Ranieri í samtali við Skysport- fréttastofuna. Ranieri bjartsýnn á að halda Eiði Smára ENSKA 1. deildarliðið Ipswich Town, lið Hermanns Hreiðars- sonar, hefur sýnt Hjálmari Þórarinssyni, leikmanni Þrótt- ar og U-17 ára landsliðsins í knattspyrnu, áhuga að því er fram kemur á netmiðlinum riv- als.net. Útsendari félagsins mun hafa fylgst með Hjálmari í leik með U-17 ára landsliðinu á opna Norðurlandamótinu sem lauk í Svíþjóð um síðustu helgi, þar sem Íslendingar urðu efstir af norrænu liðunum. Hjálmar er 16 ára og er klárlega í hópi efnilegustu knattspyrnumanna landsins. Ipswich sýnir Hjálm- ari áhuga Bæði Haukar og Grótta/KR eigaheimaleikinn fyrst og eiga fyrri leikirnir að fara fram 5. eða 6. október og síðari leikirnir viku síð- ar. Haukar hafa á undanförnum ár- um staðið sig hreint frábærlega vel á Evrópumótunum og skemmst er að minnast þess þegar liðið komst í undanúrslit EHF-keppninnar fyrir tveimur árum þar sem liðið var naumlega slegið út af króatíska lið- inu Metkovic Jambo. Viggó Sigurðs- son, þjálfari Haukanna, var mjög sáttur við andstæðinga sinna manna þegar Morgunblaðið leitaði álits hjá honum um dráttinn í gær. Ætlum okkur langt „Ég get ekki verið annað en mjög sáttur. Við fréttum það að vísu rétt áður en dregið var að drátturinn var svæðaskiptur svo við vissum að við mundum ekki fá óheppilega mót- herja upp á mikinn kostnað að gera. Kýpur er vænlegur kostur og það má segja að heppni okkar Hauk- anna hvað Evrópudráttinn varðar haldi áfram,“ sagði Viggó. „Á þessari stundu vitum við ekk- ert um þetta lið en það má vel reikna með því að einhverjir Rússar eða Júgóslavar séu í þeirra herbúðum. Það er ekki spurning í mínum huga að við eigum að ryðja þessu liði úr vegi okkar og það er sami metn- aðurinn og áður hjá okkur. Við ætl- um okkur langt í keppninni,“ sagði Viggó ennfremur. Viggó segir að undirbúningurinn fyrir ástök vetrarins gangi vel en Haukarnir hófu æfingar 25. júlí og hafa æft mjög stíft að hans sögn. Ljóst er að Gróttu/KR bíður erfitt og kostnaðarsamt ferðalag og and- stæðingurinn líklega nokkuð öflug- ur enda á handknattleikur sér sterka hefð á þessum slóðum. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, var ekki mjög hress með dráttinn þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gær. „Nei, það er ekki hægt að segja að þetta hafi verið draumadráttur. Það fyrsta sem maður horfir í er að þetta verður erfitt og langt ferðalag og örugglega dýrt og í öðru lagi getur reynst mjög erfitt að afla sér upp- lýsinga um styrk þessa liðs. Ég mun að sjálfsögðu reyna að finna eitt- hvað um liðið og vonandi getur Ro- land, markvörður Vals, veitt okkur einhverja hjálp. Þetta verður erfitt en við förum í þessa keppni fullir af tilhlökkun. Það er mikill metnaður í strákunum, þeir hafa lagt hart að sér við söfnun til að vera með í Evr- ópukeppninni og að sjálfögðu er stefnan sú að komast lengra í keppninni,“ sagði Ágúst. Ágúst segir að undirbúningur fyr- ir komandi tímabil gangi vel, Einar Baldvin Árnason sé byrjaður að nýju eftir erfið meiðsl og vel líti út með Lettann Danis Tarankanovs en hann missti nánast af öllu tímabilinu í fyrra þar sem hann sleit krossbönd í hné. Grótta/KR hafði ekki heppnina með sér TVÖ íslensk félagslið voru í hattinum þegar dregið var til annarrar umferðar á Evrópumótunum í handknattleik í höfuðstöðvum evr- ópska handknattleikssambandsins í Vín í Austurríki í gær. Bikar- meistarar Hauka höfðu heppnina með sér enn einn ganginn en þeir drógust á móti Youth Union Strovolos frá Kýpur í Evrópukeppni bik- arhafa. Grótta/KR, sem tekur þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins, var óheppið með sinn drátt en liðið mætir Switlotechnik Brovary frá Úkraínu í Áskorendakeppninni. PAULA Radcliffe frá Bretlandi gerði sér lítið fyrir og bætti 16 ára gamalt Evrópumet Ingridar Krist- iansen í 10.000 metra hlaupi á Evr- ópumótinu í frjálsum íþróttum sem hófst í München í Þýskalandi í gær. Radcliffe kom í mark á 30:01,09 mínútum og bætti Evrópumetið um tæpar 13 sekúndur. Þetta var um leið fyrsti sigur Radcliffe á stórmóti en hún hafnaði í fjórða sæti í þess- ari grein á Ólympíuleikunum í Sydney fyrir tveimur árum. Í kúluvarpi karla var Úkraínu- maðurinn Júfí Bilonog krýndur Evrópumeistari en sigurkast hans mældist 21,37 metrar. Silfurverð- launin féllu Dananum Joachim Ol- sen í skaut en hann varpaði kúlunni 21,16 metra. Heimamaðurinn Ralf Bartels hlaut bronsið með kast upp á 20,58 metra. Spánverjinn Francisco Fern- andez vann fyrstu gullverðlaunin á Evrópumótinu þegar hann kom fyrstur í mark í 20 km göngu. Reuters Paula Radcliffe sést hér fagna sigri sínum í 10.000 metra hlaupi á Evrópumótinu í frjálsum íþrótt- um sem hófst í München í gær. Radcliffe kom í mark á nýju Evrópumeti, 30:01,09 mínútum. Evrópu- met hjá Radcliffe

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.