Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 16
FRÉTTIR 16 C SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Tyrkland Ver› frá á mann m.v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára ferðist saman á mann ef 2 fullorðnir ferðast saman 72.350kr. staðgr. staðgr. 61.460kr. Innifalið: Flug, gisting á Pandora, ferðir til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar. 30. september 11 dagar 11. október 10 dagar 28. ágúst og 11. sept. Benidorm Sólartilbo› Ver› frá á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára á mann ef 2 fullorðnir ferðast saman 58.630kr.staðgr. Innifalið: Flug, gisting í 2 vikur, ferðir til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar. 49.240kr. 16. og 23. september Mallorca Sólarplús Ver› frá á mann m.v. 2 í studio. staðgr.44.830kr. 10. 17. og 24. september Portúgal Sólarplús Ver› frá á mann m.v. 2 í studio staðgr. Innifalið: Flug, gisting í eina viku, ferðir til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar. Innifalið: Flug, gisting í eina viku, ferðir til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar. 50.255kr. staðgr. Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Nota›u punktana á›ur en fleir ver›a a› engu. Sól og hiti í haust Áttu fríkort Nota›u punktana flína hjá okkur !!!! ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S P LU 1 85 89 08 /2 00 2 SMÁRALIND og LEGO á Íslandi standa fyrir fjölskylduhátíð í Smára- lind dagana 29. ágúst til 8. sept- ember. „Meðal þess sem boðið er uppá má nefna: LEGO Racers Drome sem er 200 fermetra yfirbyggt svæði með 3 LEGO-kappakstursbrautum, LEGO Studios, þar sem börn geta búið til tölvugerðar kvikmyndir í 100 fer- metra LEGO-myndveri, LEGO Ex- plore-leiksvæði fyrir yngstu börnin (2-6 ára), Bubbi Byggir svæði: þar sem gestir og gangandi geta búið til persónuna Bubba Byggi (Bob the Builder) úr LEGO kubbum, LEGO Scala-svæði sem sérstaklega er ætl- að stúlkum 5 ára og eldri og síðast en ekki síst 4 LEGO-fótboltaspil,“ segir m.a. í fréttatilkynningu. LEGO-fjöl- skylduhátíð í Smáralind DÓMS- og kirkjumálaráðuneytið hefur með bréfi dags. 22. águst sl. fallist á skipan Jónínu Kristínar Berg til að gegna starfi allsherj- argoða til bráðabirgða, þar til nýr allsherjargoði hefur verið kosinn. Ásatrúarfélagið hefur verið í miklum uppgangi undanfarin ár og hefur það margfaldast að félaga- tölu og innri styrk. Málefni þess vekja gjarnan áhuga almennings langt út fyrir raðir félagsmanna. Því er það ekki að undra að fjöl- miðlar hafa gengið hart eftir skýr- ingum á brottvikningu fyrrverandi allsherjargoða, sem samþykkt var með öllum greiddum atkvæðum í Lögréttu og staðfest var nýlega með miklum atkvæðamun á auka- allsherjarþingi. Jörmundur Ingi hefur lengi fyllt raðir ásatrúarmanna og hefur gert suma hluti vel. Hann fór fram á það að ávirðingar hans yrðu ekki ræddar eða um þær fjallað. Á það var fallist til að hlífa honum og fjölskyldu hans. Ásatrúarfélagið hefur skilning á upplýsingaskyldu fjölmiðla en mun í þessu máli virða gefin fyrirheit og samþykktir félagsins. Opinberri umræðu um þetta mál er hér með lokið af hálfu félagsins með þessari yfirlýsingu. F.h. Lögréttu, Jónas Þ. Sigurðsson lögsögumaður. Yfirlýsing frá Lögréttu VERKALÝÐSFÉLAG Húsavíkur gerir alvarlegar athugasemdir við þróun skattleysismarka frá því að staðgreiðsla skatta var tekin upp árið 1988, að því er fram kemur í ályktun sem samþykkt var á fundi í félaginu hinn 20. ágúst sl. „Ljóst er að skattleysismörk hafa stöðugt verið að færast neðar og nú er svo komið að hver einstaklingur má hafa um 67.000 krónur á mánuði áður en lagður er á hann skattur í stað þess að ef persónuafsláttur hefði fylgt verðþróuninni frá 1988 væru skatt- leysismörkin um 94.000 krónur á mánuði, eða um 39% hærri. Ljóst er að þessi aukna skattbyrði hefur kom- ið mjög illa við láglaunafólk sem átt hefur hvað mestan þátt í að skapa þann stöðugleika sem ríkt hefur í þjóðfélaginu á síðasta rúmum ára- tug,“ segir orðrétt. Þá krefst Verkalýðsfélag Húsavík- ur þess að félagsmálaráðherra hækki nú þegar atvinnuleysisbætur sem séu fyrir neðan öll velsæmismörk. „Fullar atvinnuleysisbætur á mánuði eru 73.765 kr. og eru hækkanir á þeim háðar ákvörðun stjórnvalda. Hefðu atvinnuleysisbætur tekið mið af kaup- töxtum verkafólks eins og þær gerðu áður, væru fullar atvinnuleysisbætur í dag 90.000 kr. sem er umsamin kauptrygging í kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins á mánuði,“ segir í ályktuninni. Loks lýsir félagið yfir fullum stuðningi við baráttu Lands- sambands félags eldri borgara fyrir bættum kjörum ellilífeyrisþega. Gerir athuga- semdir við þróun skattleysismarka BÚNAÐARSAMBAND Suður-Þingeyinga heiðraði ný- lega Stefán Skaftason, ráðunaut í Straumnesi, með gjöf sem er veglegur smíðisgripur frá Álfasteini, en Stefán hefur skipt um starfsvettvang og starfar nú hjá Landgræðslu ríkisins og er héraðsfulltrúi hennar á Húsavík. Stefán réðist fyrst til starfa hjá Búnaðarsamband- inu árið 1962, þá sem mælingamaður um sumarið. Ár- ið 1967 fékk hann fastráðningu og vann aðallega á jarðræktarsviði þar til hann tók alfarið við naut- griparæktinni. Á seinni árum bættust svo við búreikn- ingar og rekstarleiðbeiningar og við stofnun Ráðu- nautaþjónustu Þingeyinga starfaði Stefán einnig fyrir Norður-Þingeyjarsýslu. Þess skal og geta að Búnaðarfélagið Ófeigur í Reykjahverfi færði Stefáni bókargjöf og Búnaðarfélag Tjörnesinga færði honum áletraða klukku frá Álfa- steini sem þakklætisvott fyrir gott samstarf í áratugi. Viðurkenning fyrir 40 ára starf Laxamýri. Morgunblaðið. Stefán Skaftason ráðunautur ásamt eiginkonu sinni Sigríði Hermóðsdóttur. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.