Morgunblaðið - 29.08.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.08.2002, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A BANDARÍKIN SIGURSTRANGLEG Á HM Í KÖRFUKNATTLEIK / C4 JÚGÓSLAVNESKI handknattleiksmaðurinn Nenand Perunicic, stjórskyttan sem leikur með Magdeburg, liði Alfreðs Gíslasonar og Ólafs Stefánssonar, er kominn með þýskan ríkisborg- ararétt. Hann er þar með orðinn gjaldgengur í þýska landsliðið en Þjóðverjar leika sem kunn- ugt með Íslendingum á HM í Portúgal á næsta ári. Perunicic er 31 árs gamall og gekk í raðir Magdeburg fyrir síðustu leiktíð frá Kiel. Hann á 130 landsleiki að baki með júgóslavneska landsliðinu og spurningin sem menn velta fyrir sér nú er hvort landsleikjum hans muni fjölga og þá undir stjórn Heiners Brands, landsliðs- þjálfara Þjóðverja. Víst er að Brand mun horfa til hans þegar valið verður í landsliðið fyrir næsta leik, gegn Svíum í lok september, enda hefur Perunicic verið einn allra sterkasti leik- maður þýsku deildarkeppninnar undanfarin ár. Perunicic fær þýskt ríkisfang ÁRMANN Smári Björnsson, sem leikið hefur með 1. deildarliði Vals í knattspyrnu, leikur með norska úr- valsdeildarliðinu Brann það sem eftir er tímabilsins í Noregi. Teitur Þórðarson, þjálfari Brann, fór þess á leit við Val að fá Ármann leigðan og urðuP Valsmenn við þeirri beiðni og heldur hann utan á morg- un. Brann mætir Bryne á sunnu- daginn en sjö uPmferðum er ólokið í deildinni sem lýkur í lok október. Hann er annar leikmaður Vals sem fer á leigusamning til félags í Noregi en á dögunum gekk Guðni Rúnar Helgason til liðs við Start, þar sem Guðjón Þórðarson er við stjórnvölinn. Ármann Smári, sem er sóknar- maður að upplagi, hefur leikið sem miðvörður í liði Vals í sumar, en Teitur hyggst nota Hornfirðinginn stóra og stæðilega í framlínunni enda hefur lærisveinum hans geng- ið illa að skora mörk – 26 mörk í 19 deildaleikjum. Brann er í bullandi fallbaráttu. Liðið er í þriðja neðsta sæti með 21 stig en í tveimur neðstu sætunum eru Moss með 17 stig og Start með aðeins 11 stig. Kristján Sigurðsson varnarmað- ur KA-liðsins var á dögunum til reynslu hjá Brann en ekkert verður af því að hann gangi í raðir félags- ins. Á heimasíðu KA kemur fram að tilboð Brann í Kristján hafi reynst óviðunandi og því hafi verið hafn- að. Ármann leigður til Brann KÖRFUKNATTLEIKSLIÐ Hauka hefur samið við Bandaríkjamann- inn Stevie Johnson um að hann leiki með liðinu á næstu leiktíð. Johnson lék með liði Þórs frá Akureyri í fyrra og skoraði ríflega 30 stig að meðaltali og átti tæp 14 fráköst og er hann því mikill fengur fyrir Hafnarfjarðarliðið. Mikil breyting hefur orðið á leikmannahóp Hauka en þeir Jón Arnar Ingvarsson (Breiðablik), Guðmundur Bragason (Grindavík), Bjarki Gústafsson (Valur), Lýður Vignisson (Snæfell) og Bragi Magnússon eru horfnir á braut. Margir leikmenn úr her- búðum Stjörnunnar hafa skipt yfir í Hauka en að sögn Reynis Kristjáns- sonar er markmið liðsins að komast í úrslitakeppni átta efstu liða. Johnson til Hauka Enskir fjölmiðlar gefast ekkiupp á að orða Eið Smára Guð- johnsen, framherja Chelsea, við önnur lið á Bretlandseyjum. Breska blaðið Daily Star og net- miðillinn teamtalk birtu fréttir í gær um að Manchester United væri að undirbúa 7 milljóna punda tilboð í íslenska landsliðsmiðherj- ann. Sagt er að viðræður um hugs- anleg kaup United á Eiði Smára fari fram í Mónakó í dag en þangað eru mættir fulltrúar þeirra liða sem verða í hattinum á morgun þegar dregið verður á Evrópumót- unum í knattspyrnu. Fyrr í sumar var Eiður Smári orðaður við lið Manchester-liðið en þar sem leikmannamarkaðnum á Englandi verður lokað í fjóra mán- uði frá og með næsta laugardegi og sú staðreynd að Alex Ferguson, stjóri United, er aðeins með þrjá framherja í aðalliði félagsins – Ruud van Nistelrooy, Ole Gunnar Solskjær og Diego Forlan, hafa fregnir um hugsanleg kaup á Eiði skotið upp kollinum á nýjan leik. Þá hafa í gær og undanfarna daga birst fréttir í enskum fjöl- miðlum að Glenn Hoddle, knatt- spyrnustjóri Tottenham, ætli að festa kaup á sterkum framherja og hefur nafni Eiðs verið velt upp í því sambandi. Ekkert hefur hins vegar verið staðfest í þessum efnum. Eiður aftur orð- aður við United NORSKU meistararnir í Rosen- borg eru komnir í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu áttunda árið í röð. Þeir náðu þessum magnaða árangri með því að sigra Brøndby öðru sinni í upp- gjöri Norðurlandastórveldanna, 3:2, í Kaupmannahöfn í gærkvöld, og þar með 4:2 samanlagt. Árni Gautur Arason landsliðs- markvörður fær því enn eitt tækifærið til að spreyta sig í meistaradeildinni en hann er að ljúka sínu fimmta tímabili í röð- um norsku meistaranna. Rosenborg var með leikinn í höndunum eftir að hafa náð 3:0 forystu. Góður endasprettur dönsku meistaranna kom of seint en Árni Gautur kom í veg fyrir að þeir jöfnuðu leikinn með frá- bærri markvörslu undir lokin. Auk Rosenborg komust New- castle, AC Milan, Maccabi Haifa, Club Brugge, Basel, Auxerre, AEK, Barcelona, Lokomotiv Moskva og Dynamo Kiev í gær- kvöld í riðlakeppni meistaradeild- arinnar. Dregið verður í riðla í dag. Reuters Odd Inge Olsen, félagi Árna Gauts Arasonar hjá Rosenborg, og Ruben Bagger hjá Bröndby eigast við í leik liðanna í gærkvöldi. ■ Úrslit … /C2 Átta í röð hjá Rosenborg 2002  FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST BLAÐ C

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.