Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 17
HJÓLSÖG 5604R
0 = 165 mm, 950 W
TILBOÐSVERÐ
15.000.00
Á ÞOKKALEGUM síðsumarsdegi
var fjölmenni úti í Flatey á Skjálf-
anda. Þar lögðu að bryggju tveir
hvalaskoðunarbátar Norðursigl-
ingar, seglskipið Haukur, þar sem
um borð voru aðallega Mývetn-
ingar í skemmti- og fræðsluferð,
og vélskipið Knörrinn, en þar um
borð var biskup Íslands með fríðu
föruneyti.
Fyrir var í eynni allmargt af
„heimamönnum“ sem beið komu
biskupsins, sem kominn var þenn-
an laugardag til að vísitera Flat-
eyjarkirkju þótt eiginlegur söfn-
uður hafi ekki verið í eynni síðan
1968. Afkomendur þeirra sem síð-
ast bjuggu í eynni sýna kirkju
sinni ræktarsemi og er hún í
ágætu ásigkomulagi þótt komin
sé á annað árhundrað og hafi
ferðast meira en vanalegt er með
kirkjur.
Morgunblaðið/BFH
Karl Sigurbjörnsson biskup og
Kristín Guðjónsdóttir, eigin-
kona hans, ganga í land í Flatey.
Leiðir biskups
liggja víða
Mývatnssveit
SÝNINGIN Kýr 2002 var haldin síð-
asta dag ágústmánaðar í Ölfushöll-
inni í Ingólfshvoli. Landbúnaðarráð-
herra Guðni Ágústsson setti
hátíðina. Hann nefndi að slík sýning
hefði verið haldin árið 2000 og þá
hefðu um eitt þúsund manns sótt
hana og sýndist honum fjöldinn vera
ámóta á þessari sýningu. Landbún-
aðarráðherra sagði m.a. að kýrin
ætti sér stað í hjarta hvers manns.
Á sýningunni opnaði Guðni tölvu-
kerfið Huppu, sem er heiti á nýju
tölvukerfi á Netinu frá Bændasam-
tökum Íslands sem vistar skýrslu-
haldsgagnagrunn í nautgriparækt.
Gagnagrunnurinn inniheldur upp-
lýsingar um 200 þúsund gripi og eru
elstu gripirnir frá upphafi 20. aldar.
Í gagnagrunninum eru upplýsingar
um ætterni, kynbótamat, og af-
kvæmi ásamt grunnupplýsingum um
gripina, eins og segir á forsíðu
Huppu. Tölvukerfið hlýtur nafnið
Huppa til heiðurs ættmóður íslenska
kúastofnsins, Huppu 12 frá Kluftum
í Hrunamannahreppi, en fullyrt er
að rekja megi ættir allra nautgripa á
Íslandi af íslensku kyni til Huppu.
Fyrst um sinn verður tölvukerfið
nýtt af ráðunautum, en fljótlega geta
bændur fengið aðgang og skoðað
sína gripi.
Annað tölvuforrit var til sýnis á
sýningunni og er það forritið Fróð-
leiksfúsi í sveitinni. Þetta er marg-
miðlunardiskur um íslenskan land-
búnað, þar sem hægt er að kynnast
þeim dýrum sem finnast í sveitum
landsins.
Um 200 þúsund gripir á
gagnagrunninum Huppu
Hveragerði
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Kálfar sýndu hversu vel þeir kunnu að hlýða eigendum sínum.