Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 1
212. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 11. SEPTEMBER 2002 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti sagði í gær að Bandaríkjamenn „upplifðu nú á ný skelfilega áminn- ingu“ um það að þeir væru ekki öruggir fyrir hryðjuverkum, en í dag er ár liðið frá því að hryðjuverka- menn gerðu árás á Bandaríkin og urðu rúmlega þrjú þúsund manns að bana. „Í dag og á morgun munum við upplifa á ný skelfilega áminningu um það sem getur gerst á 21. öldinni – það er að segja, að ekkert land er öruggt fyrir árásum.“ Bush sagði ennfremur í gær að dagurinn í dag yrði erfiður en at- burðanna í fyrra verður minnst með margvíslegum hætti í Bandaríkjun- um. Verður m.a. minningarathöfn í Battery Park þar sem Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra verður fulltrúi Íslands. Bush mun í kvöld ávarpa bandarísku þjóðina frá Ellis- eyju í New York með Frelsisstytt- una í bakgrunni, og „minna þjóðina á siðferðislega köllun okkar og æðra markmið sem leiðarljós frelsis manna um allan heim“. Ríkisstjórnir um heim allan hertu í gær öryggisráðstafanir vegna dagsins í dag. Voru minningarat- hafnir víða afboðaðar og bandarísk stjórnvöld vöruðu bandaríska ríkis- borgara erlendis við því að hætta væri á nýjum hryðjuverkum. Her- þotur hafa verið á sveimi yfir stærstu borgum Bandaríkjanna síð- an á föstudaginn og hefur viðbún- aðarstuðull vegna hættu á hryðju- verkum verið hækkaður úr „aukinn“ í „mikill“. John Ashcroft dómsmálaráðherra greindi frá þessu á fréttamannafundi í gær og sagði þá m.a. að athyglin beindist fyrst og fremst að hættu á árásum á Bandaríkjamenn erlendis. Mest hætta væri á að flutningatæki og aflstöðvar yrðu fyrir árásum af hálfu Al-Qaeda-samtaka Osama bin Ladens, er stóðu að hryðjuverkun- um í fyrra. Donald Rumsfeld varnarmálaráð- herra ákvað í gærkvöldi að komið skyldi fyrir virkum eldflaugum í loft- varnarpöllum sem settir hafa verið upp víða í Washington. Dvalarstað Cheneys haldið leyndum Síðan á mánudagskvöldið hefur ekki verið látið uppi hvar Dick Chen- ey varaforseti dvelst og sagði tals- maður Hvíta hússins að það væri varúðarráðstöfun, líkt og í kjölfar hryðjuverkaárásanna í fyrra, en þá var dvalarstað varaforsetans haldið leyndum í nokkra daga. Sendiráðum og öðrum bandarísk- um skrifstofum var lokað í Indónesíu og Malasíu í gær en í Pakistan, Taí- landi og víðar var öryggisgæsla hert við bandarískar skrifstofur. Sendi- herra Bandaríkjanna í Indónesíu sagði að hótun er tengdist Al-Qaeda- hefði orðið til þess að ákveðið var að loka sendiráðinu í Jakarta og á fleiri stöðum. Indónesísk yfirvöld sögðu þó að þeim væri ekki kunnugt um neinar beinar hótanir. Gæsla hert um allan heim er ár er liðið frá hryðjuverkunum í Bandaríkjunum Reuters Lögregla og hermenn voru á verði á Brooklyn-brúnni í New York í gær, en öryggisgæsla hefur verið hert alls staðar í Bandaríkjunum. „Skelfileg áminning um ógnir 21. aldarinnar“ Washington. AFP.  Ár liðið/18, 19, 20 TONY Blair, forsætisráðherra Bret- lands, varaði í gær við því að til „að- gerða“ yrði gripið ef Saddam Hussein, forseti Íraks, neitaði að hlíta álykt- unum Sameinuðu þjóðanna um vopna- eftirlit. Blair kallaði Saddam „alþjóð- legan útlaga“ og höfuðpaur „villimannslegrar ríkisstjórnar“ og sagði að afvopna þyrfti Íraka. „Að leyfa Saddam að nota þau vopn sem hann á, eða komast yfir þau vopn sem hann ágirnist, væri algerlega óábyrgt og við ættum ekki að taka það í mál,“ sagði Blair. Blair lét þessi orð falla í ræðu sem hann flutti á þingi breska Verka- mannasambandsins í gær. Hann sagð- ist telja rétt og eðlilegt að Íraksdeilan yrði leyst á vettvangi SÞ. Saddam væri enda sífellt að brjóta þau fyr- irheit, sem hann hefði gefið SÞ um að reyna ekki að koma sér upp gereyð- ingarvopnum. En þá yrðu SÞ líka að sýna að þær geti leyst verkefnið, í stað þess að hlaupast undan vandanum. „Áttum okkur á því að það verður að afvopna hann [Saddam]. Gerum lýðum ljóst að ekki verður um frekari skilyrði að ræða [af hans hálfu], engir frekari leikir, engin frekari undan- brögð, engar frekari tilraunir til að grafa undan valdi SÞ. Og segjum það skýrum orðum að verði vilji SÞ huns- aður munum við grípa til aðgerða,“ sagði Blair í ávarpi sínu. Ræða Blairs, sem hefur fram að þessu verið eini bandamaður Banda- ríkjastjórnar í þessum efnum á Vest- urlöndum, er sögð forsmekkurinn að þeim skilaboðum sem George W. Bush Bandaríkjaforseti mun senda Saddam og Sameinuðu þjóðunum í ræðu sem hann flytur á allsherjarþingi SÞ á fimmtudag. Þeir Blair og Bush funduðu í Camp David í Bandaríkjunum sl. laugardag og virðast þar hafa orðið ásáttir um að rétt sé að gefa SÞ „lokatækifæri“ til að leysa Íraksdeiluna. Blair tók hins vegar skýrt fram í gær að ef til hern- aðaraðgerða gegn Írak þyrfti að koma þá myndi ríkisstjórn hans leita sam- þykkis breska þingsins fyrir slíku fyrst. Reuters Blair flytur ræðu sína. Óábyrgt að stöðva ekki Íraka Blair segir Íraksforseta fara fyrir „villimannslegri ríkisstjórn“ Blackpool. AFP, AP. AÐ minnsta kosti 27 manns hafa far- ist í miklum flóðum í Suður-Frakk- landi en 12 manna er enn saknað. Heldur var farið að draga úr þeim í gær og veður að batna. Margir hafa orðið fyrir miklum skaða á húsnæði, akurlendi hefur eyðilagst, vegir grafist í sundur og stór svæði eru án neysluvatns og rafmagns. Á sumum svæðum var sólar- hringsúrkoman allt að 600 mm, sem er annars sex mánaða meðaltal. Í einum bæ, Anduze, var úrkoman 650 lítrar á fermetra en það er jafnmikið og rignir á einu ári í París í venjulegu árferði. Jacques Thorette, umhverfisráð- herra Frakklands, sagði í gær, að út- þensla bæja og borga og nútíma landbúnaður ættu sinn þátt í hve al- varleg flóðin hefðu verið. Regnvatnið ætti ekki lengur jafngreiða leið ofan í jörðina og áður. Flóðin í Frakklandi 27 látnir og margra saknað Nimes. AFP. GÖRAN Persson og Jafnaðar- mannaflokkur hans virðast öruggir með að halda velli í þingkosningun- um er fram fara í Svíþjóð á sunnu- daginn, þrátt fyrir að bandalag stjórnarandstöðuflokkanna hafi á allra síðustu dögum styrkt stöðu sína. Fyrir aðeins tveimur mánuðum höfðu jafnaðarmenn afgerandi for- ystu í skoðanakönnunum, en bilið hefur smám saman minnkað og ekki er því útilokað að þeir bíði talsvert skipbrot í kosningunum. Kjósendur hafa helst áhyggjur af versnandi stöðu í heilbrigðis- og menntamálum, vilja aukna samlögun innflytjenda og velta fyrir sér kost- um og göllum aukins hlutar innflytj- enda á vinnumarkaði. Samkvæmt ýmsum skoðanakönnunum er útlit fyrir að Jafnaðarmannaflokkurinn, sem hefur setið við stjórnvölinn í Svíþjóð svo að segja óslitið síðan í stríðslok, verði áfram stærsti flokk- urinn og fái 37% atkvæða. Talið að jafn- aðarmenn haldi velli Stokkhólmi. AFP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.