Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ EFTIR nýyfirstaðna ráðstefnu, Sög- ur og samfélög, sem haldin var í Borgarnesi dagana 5. til 9. septem- ber er það ljóst, að Íslendingasög- urnar eru enn í dag lifandi bók- menntir, sem hafa sífellt meira fram að færa, eftir því sem þekking á upp- runasögu þeirra eykst og fræðin þróa nýjar leiðir til að takast á við margræðan heim þeirra. Þar finna fræðimenn í senn áhugaverðar vís- bendingar um Íslendingasögurnar sem ríkuleg bókmenntaverk, um það flókna samfélag sem ríkti á Íslandi á þjóðveldisöld og um sagnavitund í fortíð og nútíð. Efnt var til ráðstefnunnar Sögur og samfélög í því skyni að efna til þverfaglegrar fræðiumræðu um sagnagerð fyrri tíma, tengsl sagn- anna við samfélögin sem skópu þær og síðari tíma áhrif þeirra. Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra setti ráðstefnuna og þar leiddu sam- an hesta sína um fimmtíu fræðimenn víðsvegar að úr heiminum og úr ýmsum fræðigreinum. Fluttu þeir fyrirlestra er flestir tengdust nor- rænum sagnaarfi, og þá einkum Ís- lendingasögunum. Sérstaða ráð- stefnunnar fólst að mörgu leyti í því hversu margir ungir fræðimenn fluttu þar fyrirlestra í bland við reyndari fræðimenn, íslenska og er- lenda. Ólína Þorvarðardóttir annaðist verkefnisstjórn ráðstefnunnar sem haldin var að frumkvæði Borgar- byggðar í samstarfi við nokkrar er- lendar og innlendar menningar- stofnanir. Þegar hún er spurð hvað hæst hafi borið í þessari þverfaglegu nálgun við íslenskan sagnaarf segir hún að líta megi á ráðstefnuna sem fræðilega opnun þar sem ungt fólk hafi meðal annarra stigið fram með nýjar áherslur og nýja fleti á eldri rannsóknum. „Á ráðstefnunni mátti greina áhuga á að skoða Íslendingasögurn- ar, ekki eingöngu sem bókmennta- verk eða sagnfræðiheimildir, heldur einnig í ljósi munnlegrar geymdar í mótun sagnanna og varðveislu. Þá kom jafnframt fram ný nálgun við skáldlega þáttinn í sögunum og þau sagnalögmál sem þar birtast. Hing- að til hafa fræðimenn verið mjög uppteknir af því að rannsaka hand- ritin, aldursgreina þau og skoða Ís- lendingasögurnar í sögulegu sam- hengi. Í þeim fyrirlestrum sem fluttir voru á þessari ráðstefnu má segja að litið hafi verið á fornsög- urnar sem virkt rannsóknarefni sem gefur tilefni til mun breiðari nálg- unaraðferða en verið hefur. Til dæm- is var rýnt í þá samfélagsgerð sem birtist í sögunum í ljósi mannrétt- inda- og kvenréttinahugmynda, og ólíkra jaðarhópa sem þar birtast. Mörg þessara viðfangsefna eru nokkuð sem eldri fræðimenn hefðu seint látið sér detta í hug að eiga við. Þannig fannst mér sem búið væri að taka helgina af þessum sagnaarfi og gera hann að lifandi rannsóknarefni. Menn eru farnir að leyfa sér ákveðna leikgleði í þessum rannsóknum, og voru eldri og yngri fræðimenn sem staddir voru á ráðstefnunni mjög áhugasamir um að velta fyrir sér þeim nálgunaraðferðum sem komið var fram með,“ segir Ólína. Kallað eftir nýjum viðhorfum Blaðamaður Morgunblaðsins fylgdist með fyrirlestradagskrá föstudagsins og kom þar glöggt fram sú margbrotna nálgun sem Ólína minnist á hér að ofan. Meðal þess sem beint var sjónum að var hvernig Íslendingasögurnar varpa ljósi á fé- lagslegar aðstæður og hugarfar í þeim samfélögum er skópu þær. Tóku þar m.a. til máls þrír ungir fræðimenn, er ræddu um afmarkaða þætti í Íslendingasögunum sem varpa ljósi á þá samfélagsmynd sem sögurnar fela í sér. Damian Fleming, doktorsnemi við háskólann í Tor- onto, fjallaði t.d. um lygina sem minni í Íslendingasögunum og leit- aðist við að túlka lygar milli persóna Íslendingasagnanna, einkum karla og kvenna, í ljósi siðferðislegra við- horfa. Anna Hansen, doktorsnemi við háskólann í Sydney, fjallaði um börn og barnæsku í Íslendingasög- unum ogbenti á að þar birtust við- horf til barnæsku sem eru gjörólík hugmyndaheimi miðalda annars staðar í Evrópu. Jamie Cochrane, doktorsnemi við Lundúnaháskóla, fjallaði um stöðu flökku- og föru- manna í Íslendingasögunum, og lýsti því hvernig þessar persónur varpa ljósi m.a. á félagsleg samskipti í sög- unum. Þá fjallaði fyrirlestur Jónu Guðbjargar Torfadóttur íslensku- fræðings um karlmennskuviðhorf í Íslendingasögunum í ljósi þeirrar birtingarmyndar sem Gunnhildur drottningarmóðir fær í mörgum sagnanna. Kölluðust fyrirlestrar doktorsnemanna skemmtilega á við kynningu Torfa Tulinus á nálgunar- aðferðum sínum og annarra ís- lenskra fræðimanna við Íslendinga- sögurnar í greinasafninu Sæmdarmenn. Kallaði Torfi þar eftir nýjum viðhorfum, þar sem samtíma- fræði væru notuð til þess að skapa lifandi samtal milli hugarfars og samfélagsgerða fortíðar og nútíðar. Meðal umræðuefna dagsins var meðal annars sagnfræðilegt gildi ís- lenska sagnaarfsins, og veltu m.a. Helgi Skúli Kjartansson dósent, Kristel Zilmer doktorsnemi og Axel Kristinsson og dr. Sian Elizabeth Duke upp ólíkum hliðum á þeim flóknu spurningum er varða sagn- fræðilega úrvinnslu fornsagnanna. Á ráðstefnunni fjölluðu íslensku fræðimennirnir Guðrún Nordal og Gísli Sigurðsson um nýjar rannsókn- ir sínar á norrænum miðaldabók- menntum. Guðrún fjallaði um drótt- kvæði í Íslendingasögunum en Gísli Sigurðsson ræddi um þátt munn- legrar geymdar við mótun sagnanna. Auk ofangreindra fluttu m.a. erindi á ráðstefnunni þau Galina Glazyrina, Alison Finlay, Alan Gaylord, Jón Karl Helgason og Úlfar Bragason. Til að varpa ljósi á breidd umfjöll- unarefna ráðstefnunnar á þeim fimm dögum sem hún stóð má að lokum nefna þá umræðuflokka sem fjallað var um í fyrirlestrum, sem eru sam- félög og félagslegar aðstæður, saga hugarfars og menningartengsla, fornsögur sem sagnfræði, viðtökur fornsagna í fræðum, þáttur munn- legrar frásagnarhefðar, sagnagerð síðari tíma, fornsögur og sýndar- veruleiki, fornsögur og handrit, við- tökur fornsagna í skáldskap og frá- sagnarlögmál fornsagnanna. Í kjölfar ráðstefnunnar verður gefið út veglegt ráðstefnurit þar sem fyr- irlestrar ráðstefnunnar verða birtir. Samspil sagna og samfélaga Ljósmynd/Guðrún Vala Elísdóttir Um fimmtíu fræðimenn af ólíkum fræðasviðum komu saman á ráðstefn- unni Sögur og samfélög sem haldin var í Hótel Borgarnesi um helgina. Hér má sjá Helga Skúla Kjartansson halda fyrirlestur í umræðuhluta um sögu hugarfars og menningartengsla. Sagnaarfur Íslendinga var tekinn til þver- faglegrar fræðilegrar skoðunar í Borg- arnesi um helgina. Heiða Jóhannsdóttir segir frá ráðstefnunni Sögur og samfélög. LÁRA Bryndís Eggertsdóttir org- anisti hlaut í gær styrk úr minning- arsjóði Jean Pierre Jacquillats, sem var aðalstjórnandi Sinfón- íuhljómsveitar Íslands 1978–86. Lára Bryndís útskrifaðist úr Tón- skóla þjóðkirkjunnar í fyrravor með hæstu einkunn sem orgelnem- anda við skólann hefur verið gefin. Hún stundar nú framhaldsnám við Tónlistarskólann í Piteå í Svíþjóð, meðal annars hjá hinum þekkta organista Hans-Ola Eriksson. „Með þessum styrk get ég ein- beitt mér alveg að því að æfa mig,“ segir Lára Bryndís. „Ég ætla að forðast það að gera nokkuð til gagns, eins og að spila í brúð- kaupum og messum; læra að segja nei, og einbeita mér að því sem að sjálfri mér snýr. Ég verð að hálfu leyti hér heima í vetur.“ Í fyrravet- ur bjó Lára Bryndís hér heima en flaug út nokkrum sinnum um vet- urinn til að mæta í skólann. „Ég var úti í viku í hvert sinn, og þetta svín- virkaði. Í vor tók ég svo próf inn í konsertorganistadeildina við skól- ann, en það er þriggja ára nám.“ Í vetur gerir Lára Bryndís ráð fyrir að fara fimm sinnum út og vera 3–4 vikur úti hverju sinni. „Það er ætlast til þess að maður sé búinn með fjögurra ára kirkjuorg- anistadeild áður en maður fer í konsertorganistann, en mér tókst að hoppa fram hjá því. Ég hef því nægan tíma til að einbeita mér að hljóðfærinu og þarf ekki sinna lit- úrgísku fræðunum, kórstjórn og slíku. Ég verð sennilega lélegur kirkjuorganisti,“ segir Lára Bryn- dís og hendir gaman að sjálfri sér. En konsertorganisti vill hún verða og styrkurinn úr Jacquillat- sjóðnum færir hana nær því tak- marki. Þetta er í ellefta sinn sem út- hlutað er úr sjóðnum, sem ætlað er að styrkja tónlistarfólk til að afla sér aukinnar menntunar og reynslu á sviði tónlistar, jafnframt því að halda á lofti minningu Jean Pierre Jacquillat og framlagi hans til ís- lenskrar tónlistar þegar hann var aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands. Alls bárust tuttugu og sjö umsóknir um styrkinn, sem nemur sex hundruð þúsundum króna. Morgunblaðið/Þorkell Lára Bryndís Eggertsdóttir orgelleikari tekur við styrk úr minningarsjóði Jean Pierre Jacquillat úr hendi Arn- ar Jóhannssonar, stjórnarformanns sjóðsins. Alls bárust tuttugu og sjö umsóknir um styrkinn. „Get einbeitt mér að því að æfa mig“ Fékk styrk úr minningarsjóði um Jean Pierre Jacquillat FÉLAG háskólakvenna stendur fyr- ir námskeiði um Grettissögu í sam- starfi við Hafnarfjarðarleikhúsið í september og fram í október. Fyrirlesarar á námskeiðinu eru Jón Böðvarsson, Hávar Sigurjóns- son og Hilmar Jónsson leikstjóri ásamt Finni Arnari Arnarsyni leik- myndahönnuði. Námskeiðið er snið- ið í kringum uppfærslu Hafnarfjarð- arleikhússins á leikgerð þeirra Hilmars og Finns Arnars á Grett- issögu sem frumsýnd verður þann 5. október í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Námskeiðið er byggt upp á fimm kvöldum þannig að þáttakendur fá að fylgjast með æfingu og síðar með sýningu. Þar á milli eru þrír fyrir- lestrar þar sem þeir Hilmar og Finn- ur Arnar ræða um leikgerðina og uppfærsluna, Hávar Sigurjónsson ræðir um fyrri leikgerðir sögunnar og Jón Böðvarsson ræðir um söguna. Námskeiðið fer fram í Hafnarfjarð- arleikhúsinu og hefst þann 25. sept- ember og stendur fram í október. Skráning á námskeiðið stendur nú yfir og lýkur næstkomandi sunnu- dag, þann 15. september. Allar nán- ari upplýsingar veitir formaður Fé- lags háskólakvenna, Geirlaug Þorvaldsdóttir. Námskeið um Grettissögu Jón Böðvarsson Hávar Sigurjónsson Hilmar Jónsson KAMMERKÓRINN Vox academica er að hefja sjöunda starfsár sitt en kórinn var stofnaður árið 1996 af stjórnandanum Hákoni Leifssyni. Auk hinna árvissu aðventutón- leika verður á dagskrá kórsins flutn- ingur á Gloriu eftir Vivaldi í sam- starfi við Háskólakórinn. Þá mun Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson semja tónverk fyrir kórinn og hljómsveit- ina Rússíbanana, sem flutt verður seinni hluta apríl. Kórinn getur bætt við sig nokkr- um söngvurum í tenór og bassa. Kórinn Vox academica að hefja nýtt starfsár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.