Morgunblaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 1
215. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 14. SEPTEMBER 2002
UTANRÍKISRÁÐHERRAR rík-
janna fimm sem eiga fast sæti í ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna sögðu
í gær að tregða Íraka til að hlíta álykt-
unum öryggisráðsins væri „alvarlegt
mál og að Írak yrði að breyta afstöðu
sinni“. Fyrr um daginn hafði George
W. Bush Bandaríkjaforseti sagst „af-
ar efins“ um að Saddam Hussein, for-
seti Íraks, myndi kjósa að afstýra
hernaðarárás Bandaríkjanna á Írak
með því að verða við kröfum sem
Bush gerði á fimmtudag, þegar hann
ávarpaði allsherjarþing SÞ.
Ummæli Bush komu á sama tíma
og Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, byrjaði fundahöld
með fulltrúum Rússlands, Frakk-
lands, Bretlands og Kína, sem eins og
Bandaríkin eiga fast sæti í öryggis-
ráði SÞ. Er meiningin að öryggisráðið
semji nýja ályktun, þar sem kveðið
yrði á um að Írakar eyðileggi gereyð-
ingarvopn sín.
Fram kom í máli Jacks Straws, ut-
anríkisráðherra Bretlands, að aflokn-
um fundinum að skilningur væri á því
að setja þyrfti skýr tímamörk í nýrri
ályktun öryggisráðsins en Bush hafði
fyrr um daginn sagt að slík tímamörk
yrðu að gera ráð fyrir því að Írakar
yrðu við kröfum um afvopnun „innan
fárra daga eða vikna, ekki mánaða
eða ára“.
Bush fékk síðan óvæntan stuðning í
gærkvöld en þá sagði rússneski utan-
ríkisráðherrann, Ígor Ívanov, að rík-
isstjórn Íraks bæri sjálf ábyrgð á af-
leiðingunum ef hún neitaði að sýna
öryggisráðinu samstarfsvilja.
Verð á hráolíu hækkaði nokkuð á
mörkuðum í gær eftir að stjórnvöld í
Írak höfðu farið hörðum orðum um
ræðuna, sem Bush flutti í vistarver-
um SÞ á fimmtudag.
Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð-
herra Íraks, hafnaði alfarið þeim skil-
yrðum sem Bush setti Írökum og
sagði hann að vandinn yrði ekki leyst-
ur með því að vopnaeftirlitsmönnum
SÞ yrði leyft að koma aftur til Íraks.
Írakar hefðu slæma reynslu af starfi
vopnaeftirlitsins. Sagði Aziz að ræða
Bush, þar sem varað var við því að
hernaðarárás væri óhjákvæmileg ef
SÞ tækist ekki að fá Íraka til að af-
vopnast, hefði verið full af „lygum og
rógburði“.
Þá sagði Aziz að Írakar myndu
kenna Bandaríkjamönnum lexíu ef
þeir gerðu árás á landið.
Ari Fleischer, talsmaður Hvíta
hússins, sagði þessi viðbrögð Íraka
hins vegar augsýnilega merkja að
þeir hefðu „eitthvað að fela“.
Ræða Bush í fyrradag hlaut nokk-
uð jákvæð viðbrögð hjá stjórnvöldum
Evrópuríkja og sumra arabaríkja.
Var því vel tekið að Bandaríkjastjórn
hefði loks ákveðið að vinna að úrlausn
Íraksdeilunnar á vettvangi SÞ. Rúss-
nesk, kínversk og japönsk stjórnvöld
þrýstu þó áfram á Bandaríkjamenn
að hugsa sig minnst tvisvar um áður
en þeir efndu til stríðs í Mið-Austur-
löndum.
Bush „afar efins“ um
að Írakar sjái að sér
Reuters
Íraskur maður kemur til bænagjörðar ásamt syni sínum í einni af moskum Bagdad í gær. George W. Bush
Bandaríkjaforseti hefur sagt að hann muni taka til sinna ráða ef Írakar verða ekki við kröfum um afvopnun.
Hvetja/25
New York, Bagdad, Moskvu. AFP, AP.
Ígor Ívanov segir Írak verða að taka afleiðingunum sýni það ekki samstarfsvilja
EF marka má nýjar skoðanakann-
anir í Þýskalandi hefur Gerhard
Schröder, kanslari og leiðtogi Jafn-
aðarmannaflokksins (SPD), náð
þriggja prósentustiga forskoti á
helsta keppinaut sinn, Edmund
Stoiber, kanslaraefni kristilegu
flokkanna, CDU og CSU. Virðist
sem ákvörðun Schröders um að lýsa
yfir algerri andstöðu sinni við hugs-
anlega árás Bandaríkjanna á Írak
hafi gengið vel í þýskan almenning.
Þingkosningar verða haldnar í
Þýskalandi um næstu helgi. Schröd-
er hefur átt undir högg að sækja
fram að þessu en í tveimur skoð-
anakönnunum, sem birtar voru í
gær, kom fram að hann hefði nú
skotist fram úr Stoiber. Schröder
þótti m.a. standa sig betur í sjón-
varpskappræðum um síðustu helgi.
SPD hefur nú 40% fylgi meðal
kjósenda en kosningabandalag CSU
og CDU 37%, skv. könnun ZDF-
sjónvarpsstöðvarinnar. Skoðana-
könnun dagblaðsins Die Welt sýndi
svipaða niðurstöðu. Frjálsir demó-
kratar, sem Stoiber vill fá í stjórn
með sér, fá 7,5% en Græningjar,
sem sitja í stjórn með SPD, fá 7%.
Þeir Schröder og Stoiber mættust
í síðasta skipti fyrir kosningarnar í
gær en þá fór fram umræða á þýska
þinginu um fjárlög ársins 2003.
Sagði Stoiber að Schröder hefði mis-
tekist hrapallega að vinna á atvinnu-
leysisvandamálinu en um 4 milljónir
Þjóðverja eru nú án atvinnu, um það
bil jafnmargir og þegar Schröder
komst til valda fyrir fjórum árum.
Sakar Schröder um að ala á
stríðsótta meðal Þjóðverja
Sakaði Stoiber kanslarann um að
reyna að fela slaka frammistöðu sína
í atvinnu- og efnahagsmálum með
því að ala á stríðsótta fólks og sagði
ennfremur að með því að lýsa sig
mótfallinn árás á Írak hefði Schröd-
er einangrað Þýskaland á alþjóða-
vettvangi.
Schröder sagði Stoiber hins vegar
ekki hæfan í embætti kanslara. „Þú
vilt verða kanslari en þú ræður eng-
an veginn við verkefnið,“ sagði
hann.
Schröder nú með
3% forystu á Stoiber
Berlín. AFP.
Reuters
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, og Joschka Fischer
utanríkisráðherra (t.v.) fylgjast
með Edmund Stoiber í gær.
VLADÍMÍR Meciar, fyrrverandi
forsætisráðherra Slóvakíu, er ekki
vel við að vera spurður um það
hvernig hann greiddi fyrir við-
gerðir, sem hann þurfti nýverið að
láta gera á glæsilegu sumarhúsi
sem hann á í vesturhluta landsins.
Það fékk fréttamaður einkarek-
innar sjónvarpsstöðvar að reyna í
vikunni er Meciar brást illur við og
sló fréttamanninn bylmingshögg í
öxlina.
Viðgerðirnar á sumarhúsi Meci-
ars, sem kostuðu um 600 milljónir
ísl. kr., komust í hámæli fyrr á
árinu en Meciar var þá yfirheyrður
af skattayfirvöldum í landinu
vegna málsins.
Mun Luboslav Choluj, fréttamað-
ur hjá JOJ-sjónvarpsstöðinni, hafa
spurt Meciar tvívegis um málið í
vikunni en fékk engin svör heldur
lét Meciar hann hafa það óþvegið.
Segir Choluj að Meciar hafi sagt
við sig í kjölfarið: „Ef þú spyrð mig
að þessu einu sinni enn, þá kýli ég
þig þannig að þú gleymir því
ekki.“
Zaneta Pittnerova, sem er tals-
maður stjórnmálaflokks Meciars,
HZDS, sagði Meciar einungis hafa
slegið frá sér í sjálfsvörn – eftir að
Choluj hafði sparkað í forsætisráð-
herrann fyrrverandi. Sagði Pittn-
erova fréttaflutning af atvikinu til
marks um fjandskap fjölmiðla í
garð Meciars sem vonast til að setj-
ast aftur í forsætisráðherrastól að
loknum þingkosningum, sem fara
fram í Slóvakíu um næstu helgi.
Meciar hefur sagt að hann hafi
fengið lán hjá þýskum vini sínum,
viðskiptajöfrinum Peter Ziegler,
fyrir viðgerðunum á sumarhúsinu.
Illa við
ágenga
frétta-
menn
Bratislava. AFP.
BANDARÍKJAMENN hafa hand-
samað Ramzi Binalshibh, sem sterk-
lega er grunaður um að hafa leikið
veigamikið hlutverk við undirbúning
hryðjuverkanna í Bandaríkjunum
11. september 2001.
Heimildarmenn innan bandarísku
leyniþjónustunn-
ar sögðu að Bin-
alshibh hefði ver-
ið handsamaður í
Pakistan og að
hann væri nú í
haldi í Þýska-
landi.
Í viðtali við
sjónvarpsstöðina
al-Jazeera í vik-
unni hreykti Binalshibh sér af því að
hafa tekið virkan þátt í skipulagn-
ingu árásanna, sem kostuðu 3.000
manns lífið. Hefur hann sagst vera
aðgerðastjóri al-Qaeda-hryðju-
verkasamtakanna. Talið er að hann
hafi ætlað að vera í hópi flugræningj-
anna en hann mun hafa lent í vand-
ræðum með vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna þegar til kom. Bin-
alshibh er talinn hafa verið meðleigj-
andi Mohameds Atta, meints höfuð-
paurs flugræningjanna.
Höfuðpaur
handtekinn
Washington. AFP.
Binalshibh