Morgunblaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 1
223. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 24. SEPTEMBER 2002
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands og leiðtogi Jafnaðar-
mannaflokksins (SPD), kvaðst í gær
fagna því mjög að fá tækifæri til að
stýra landinu áfram en ríkisstjórn
SPD og græningja hélt naumlega
velli í þingkosningum sem haldnar
voru á sunnudag. Ljóst er þó að
mörg erfið verkefni bíða Schröders,
m.a. að laga samskipti Þýskalands
og Bandaríkjanna eftir stormasama
kosningabaráttu í Þýskalandi.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti óskar þjóðarleiðtogum, sem
sigra í þing- eða forsetakosningum,
jafnan til hamingju með árangurinn,
einkum þegar í hlut eiga vinaþjóðir.
Það hefur hann hins vegar ekki gert
nú, að sögn heimildarmanna í
Bandaríkjunum. Skýrast viðbrögð
Bandaríkjaforseta án efa af niðrandi
ummælum sem höfð voru eftir
þýska dómsmálaráðherranum,
Hertu Däubler-Gmelin, um Bush í
síðustu viku.
Þá vakti hörð andstaða Schröders
í kosningabaráttunni við hugsanlega
hernaðarárás á Írak litla hrifningu
vestanhafs.
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, dró ekki
dul á það í gær að kosningabaráttan
í Þýskalandi hefði „eitrað“ samband
Bandaríkjanna og Þýskalands.
Rumsfeld var þá staddur í Póllandi á
fundi varnarmálaráðherra aðildar-
ríkja Atlantshafsbandalagsins
(NATO) og gaf hann til kynna að
hann hefði engan hug á því að eiga
sérstakan fund með þýskum starfs-
bróður sínum.
Schröder bar sig vel í gærmorgun
og kvaðst vera þess fullviss að sam-
skipti ríkjanna myndu batna. Hann
ítrekaði þó að þýsk stjórnvöld
myndu sjálf ráða utanríkisstefnu
sinni. Á hinn bóginn tilkynnti
Schröder að Däubler-Gmelin hyrfi
nú úr ríkisstjórn.
SPD fékk 38,5% atkvæða í kosn-
ingunum, rétt eins og helsti keppi-
nauturinn, kosningabandalag kristi-
legu flokkanna CSU/CDU. SPD fær
þó 251 þingmann kjörinn en CSU/
CDU aðeins 248. Græningjar eru
stóri sigurvegarinn í kosningunum
en flokkurinn bætti við sig 1,9% í
fylgi og hefur nú 55 þingsæti. Sam-
anlagt hafa stjórnarflokkarnir níu
sæta þingmeirihluta, njóta stuðn-
ings 306 fulltrúa á þýska þinginu. Er
rætt um að græningjar muni í ljósi
úrslitanna gera kröfu um fjóra ráð-
herra í ríkisstjórninni, í stað þriggja
áður. Edmund Stoiber, kanslaraefni
kristilegu flokkanna, spáði því þó í
gær að stjórnin yrði ekki langlíf.
Ríkisstjórn Gerhards Schröders hélt naumlega velli í þýsku kosningunum
Hefur engin heillaóska-
skeyti fengið frá Bush
AP
Gerhard Schröder ræðir við fréttamenn í Berlín í gær.
Berlín, Trenton, Varsjá. AFP.
Samsteypustjórn/22
Eftir/28
SPÁNSKUR lögreglumaður stend-
ur vörð yfir hópi ólöglegra innflytj-
enda frá Norður-Afríku en þeir
voru stöðvaðir í hafnarborginni
Tarifa á Suður-Spáni snemma í
gær. Yfirvöld á Spáni hafa nýverið
aukið mjög eftirlit á Gíbraltarsund-
inu, sem skilur að Spán og Marokkó,
enda hefur það færst mjög í aukana
að fólk frá nyrstu svæðum Afríku
reyni að laumast inn í landið með
það fyrir augum að setjast þar að.
Reuters
Innflytjend-
ur stöðvaðir
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær að stöðva
þyrfti Saddam Hussein, forseta
Íraks, enda léki
enginn vafi á því
að hann væri nú í
óðaönn að koma
sér upp gereyð-
ingarvopnum.
Ummælin voru
höfð eftir Blair
fyrir fund sem
hann átti með
ríkisstjórn sinni
en þar hugðist hann leggja fram
gögn sem eru sögð sýna svart á
hvítu hversu mikil ógn stafi af
Saddam. Þá sögðu breskir embætt-
ismenn að „innan fárra daga“ yrðu
lögð fyrir öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna drög að ályktun þar sem
þess verður m.a. krafist að Saddam
fargi vopnum sínum.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti lét hafa eftir sér í gær að hann
vildi að fast yrði að orði kveðið í
hverri þeirri ályktun, sem sam-
þykkt væri á vettvangi öryggisráðs-
ins. Ályktun öryggisráðsins þyrfti
að gefa Saddam skýr skilaboð um
að sú tíð væri liðin að hann kæmist
upp með undanslátt og lygar.
Bandaríkin og Bretland hafa und-
anfarna daga þrýst mjög á um að
öryggisráðið samþykkti nýja álykt-
un þar sem tekið væri skýrt fram að
Írakar gætu vænst þess að á þá yrði
ráðist ef þeir ekki heimiluðu er-
indrekum SÞ óheftan aðgang að
vopnabúrum sínum.
Naji Sabri, utanríkisráðherra
Íraks, fullyrti hins vegar í gær að
mörg ríki, þ.á m. ríki sem neitunar-
vald hefðu í öryggisráðinu, væru
mótfallin því að samþykkt yrði ný
og sérstök ályktun um Íraksdeil-
una.
Aðeins Bretland, Bandaríkin,
Rússland, Kína og Frakkland hafa
neitunarvald í öryggisráði SÞ.
Verð á hráolíu hækkar
Um helgina lýstu Írakar því yfir
að þeir sættu sig ekki við nein frek-
ari skilyrði um vopnaeftirlit eða af-
vopnun, en áður höfðu þeir sagst
ætla að heimila vopnaeftirlitsmönn-
um SÞ að snúa aftur til landsins.
Varð yfirlýsing þeirra frá því um
helgina til þess í gær að verð á hrá-
olíu hækkaði talsvert á mörkuðum í
London og New York. Kostar fatið
nú 29,11 dollara en svo dýrt hefur
fatið af hráolíu ekki verið í heilt ár,
eða frá því skömmu eftir árásirnar
á Bandaríkin í fyrra.
Gögnin sem kynnt voru bresku
stjórninni í gær verða gerð aðgengi-
leg fyrir almenning í dag en þá fer
fram sérstök umræða í breska
þinginu um hugsanlegar hernaðar-
aðgerðir gegn Írak.
Íraksdeilan rædd á breska þinginu
Drög að ályktun
senn lögð fyrir
öryggisráð SÞ
London, Trenton í New Jersey, Kaíró. AFP.
Tony Blair
YASSER Arafat, forseti heimastjórn-
ar Palestínumanna, hafnaði í gær
skilyrðum Ísraela fyrir því að hætta
umsátri um höfuðstöðvar Arafats í
Ramallah. Höfðu Ísraelar farið fram
á að Arafat gæfi upp nöfn þeirra, sem
hafast við í höfuðstöðvunum með hon-
um. Áður höfðu þeir krafist framsals
20 manna, sem eru í höfuðstöðvunum
og sem Ísraelar segja hafa tengsl við
öfgahreyfingar Palestínumanna.
Ísraelski herinn hóf umsátur um
höfuðstöðvar Arafats á fimmtudag
eftir tvær sjálfsmorðsárásir palest-
ínskra öfgamanna. Standa aðeins
einkaskrifstofur Arafats eftir en aðr-
ar byggingar höfuðstöðvanna eru
nánast í rúst eftir aðgerðir Ísraela.
Mjög er þrýst á Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, að halda aftur
af hersveitum sínum og lét Ari
Fleischer, talsmaður Bandaríkjafor-
seta, hafa eftir sér að umsátrið í Ram-
allah væri ekki til þess fallið að koma
á friði í Mið-Austurlöndum. Forsætis-
ráðherrar Evrópusambandsríkjanna
sendu sömu skilaboð í gær en þeir
funduðu þá í Kaupmannahöfn.
Arafat hafn-
ar skilmál-
um Ísraela
Ramallah. AFP.
MIKIÐ verðfall varð á mörkuð-
um víða um heim í gær vegna vax-
andi áhyggna af efnahagslífinu og
ótta við stríðsátök í Írak. Á Wall
Street lækkaði Dow Jones-hluta-
bréfavísitalan um 113,94 punkta
eða 1,43%, og er nú 7872 punktar.
Þá lækkaði Nasdaq-vísitala
tæknifyrirtækja um 36,12 punkta,
eða 2,96%, og er nú 1184,97
punktar en lægri hefur hún ekki
verið síðan í september 1996.
Verðfallið var jafnvel enn
meira í helstu kauphöllum í Evr-
ópu en þar hafði áhrif naumur
sigur ríkisstjórnar Gerhards
Schröders í þýsku þingkosning-
unum. Þannig lækkaði Euro
Stoxx 50-vísitalan um heil 3,8%,
og hefur ekki verið lægri síðan í
maí 1997. FTSE-vísitalan breska
lækkaði um 3,1%, franska CAC
40-vísitalan um 3,3% og þýska
DAX 30-vísitalan lækkaði um
4,9% og hefur hún ekki verið
lægri í meira en fimm ár.
Verðfall á mörkuðum
New York, London. AFP.