Morgunblaðið - 27.09.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 27.09.2002, Blaðsíða 42
MINNINGAR 42 FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Áskell Jónssonfæddist á Mýri í Bárðardal 5. apríl 1911. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Seli á Akureyri 20. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru: Jón Karlsson bóndi á Mýri í Bárð- ardal, f. 25. júní 1877, d. 13. apríl 1932, og Aðalbjörg Jónsdóttir, f. 7. ágúst 1882, d. 13. október 1943. Systkini hans voru: Karl Jónsson, bóndi á Mýri í Bárðardal, Hulda Jónsdóttir, húsfreyja á Hlíðskóg- um í Bárðardal, Pálína Jónsdóttir, húsfreyja á Bólstað í Bárðardal, Þórólfur Jónsson, bóndi í Stóru- tungu í Bárðardal, Jón Jónsson bóndi í Fremstafelli í Kinn, Páll H. Jónsson, lengst af kennari á Laug- um í Reykjadal, Baldur Jónsson, bóndi á Grýtubakka í Höfðahverfi og Kristjana Jónsdóttir húsmóðir á Akureyri. Kristjana er ein eft- irlifandi systkinanna frá Mýri. Hinn 11. júní 1944 kvæntist Ás- kell eftirlifandi konu sinni Sigur- björgu Hlöðversdóttur frá Djúpa- vogi, f. 8. apríl 1922. Foreldrar hennar voru þau Hlöðver Lúðvíks- son, f. 22. nóvember 1894, d. 10. september 1971, og Rósa Eiríks- dóttir, f. 15. október 1891, d. 10. febrúar 1976, og áttu þau heima á Sunnuhvoli á Djúpavogi. Börn Ás- kels og Sigurbjargar eru: 1) Jón Hlöðver Áskelsson, f. 4. júní 1945, tónlistarmaður á Akureyri, kvænt- ur Sæbjörgu Jónsdóttur ritara, f. 1. maí 1949. Börn þeirra eru: Sig- urbjörg Hlöðversdóttir sjúkraliði, f. 14. júlí 1969, gift Má Guðmunds- syni garðyrkjumanni og húsasmið, f. 11. febrúar 1968. Börn: Sæbjörg Lára, f. 16. apríl 1991, Sædís Lind, f. 20. janúar 1996, og Viktor Már, f. 31. júlí 1998. Hrund Hlöðversdótt- ir kennari, f. 9. janúar 1972. Mað- ur: Sigmar Ingólfsson framreiðslu- maður, f. 22. september 1971 og er dóttir þeirra Erna Sól, f. 3. október 1998. Heimir Freyr Hlöðversson kvikmyndagerðarnemi, f. 10. októ- ber 1976. Kona: Íris Auður Jóns- dóttir, f. 28. janúar 1981. 2) Freyr Áskelsson, f. 20. september 1946, rafvirki á Akureyri, kona Frið- björg Hallgrímsdóttir sundlaugar- vörður, f. 25. febrúar 1956. Dóttir: Ása Björg Freysdóttir nemi, f. 22. f. 7. maí 2001. Áskell Harðarson, f. 24. maí 1990. 6) Gunnhildur Ás- kelsdóttir, f. 5 september 1955, leikskólaleiðbeinandi, búsett í Ósló, gift Knut Jarbo, stjórnmála- fræðingi í Ósló, f. 10. apríl 1952. Börn þeirra eru: Einar Ingi Jarbo nemi, f. 9. júní 1985. Ingunn Jarbo, f. 28. ágúst 1992. Frá fyrra hjóna- bandi átti Gunnhildur Gísla Frey Gunnhildarson Grimstad við- skiptafræðinema, f. 15. janúar 1978. 7) Lúðvík Áskelsson, f. 21 febrúar 1961, blikksmiður á Akur- eyri, fráskilinn. Synir hans eru: Arnar Ari Lúðvíksson f. 14. júlí 1981. Lúðvík Leó Lúðvíksson nemi í framreiðslu í Reykjavík, f. 10. febrúar 1983. Áskell stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugum S-Þing. 1931 1932, og tónlistarnám við Tónlist- arskólann í Reykjavík 1940–1942. Hann starfaði sem söngkennari við Héraðsskólann á Reykjum við Hrútafjörð 1934–1939, Héraðs- skólann Laugum 1939–1940, Sam- vinnuskólann í Reykjavík 1940– 1942 og Gagnfræðaskólann á Ak- ureyri 1943–1975. Hann var stjórnandi Karlakórs Akureyrar 1943–1966, aðstoðar- stjórnandi Kantötukórs Akureyr- ar 1951 og stjórnaði þeim kór er hann hlaut silfurverðlaun á sam- norrænu kóramóti í Stokkhólmi sama ár. Auk þess stjórnaði hann Lúðrasveit Akureyrar umn stutt skeið og kom fram sem píanóleik- ari með söngvurum við ýmis tæki- færi. Hann var organisti Lög- mannshlíðarsóknar 1945–1987. Áskell samdi fjölda söng- og kór- verka og hafa mörg laga hans not- ið vinsælda. Heftið, Við syngjum, með sönglögum f. samkór, einsöng og tvísöng, 19 lög, var gefið út af Kirkjukór Lögmannshlíðarsóknar árið 1988. Áskell var formaður Kirkju- kórasambands Eyjafjarðar frá 1950 um árabil. Söngbók skólanna, kennslubók í tónfræði og nótna- lestri fyrir unglingaskóla, sem samin var og gefin út af Áskeli og bróður hans Páli H. Jónssyni árið 1954 var ljós vitnisburður um skilning þeirra bræðra á að bæta tónlistarfræðslu unga fólksins, sem skilaði góðum árangri. Áskell var heiðraður með hinni íslensku fálkaorðu árið 1983 og gerður heiðursfélagi Karlakórs Akureyrar 1970 og Félags ís- lenskra orgelleikara árið 1992. Ár- ið 1991 hlaut hann heiðursviður- kenningu fyrir tónlistarstörf í þágu Akureyrarbæjar. Útför Áskels verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. maí 1978. Dóttir Frið- bjargar og stjúpdóttir Freys: Elva Sturlu- dóttir nemi, f. 16. júlí 1973. Maður hennar er Stefán Þórðarson háskólanemi, f. 7. júlí 1973 og er dóttir þeirra: Sóldögg, f. 11. desember 1994. 3) Rósa Áskelsdóttir, f. 22 júlí 1948, meina- tæknir, búsett í Ósló. Eiginmaður hennar er Högne Steinbakk hag- fræðingur í Ósló, f. 3. febrúar 1948. Börn þeirra eru: Gunnhildur Högna- dóttir Steinbakk stærðfræðingur, f. 19. febrúar 1975 og er maður hennar Ola Brattås kvikmynda- gerðarmaður í Ósló, f. 22. janúar 1973. Markús Högnason Steinbakk viðskiptafræðinemi, f. 27. septem- ber 1977. Kona: Monica Hausen f. 17. mars 1977. Andreas Högnason Steinbakk háskólanemi, f. 25. mars 1983. 4) Aðalbjörg Áskels- dóttir, f. 20 nóvember 1950, leik- skólakennari á Akureyri, gift Gísla Má Ólafssyni bókhaldara á Akur- eyri, f. 18. júní 1946. Synir þeirra eru: Áskell Þór Gíslason verslun- armaður, f. 27. febrúar 1971. Kona: Kristjana Ösp Birgisdóttir, f. 13. mars 1973. Dóttir þeirra er Hilma Ösp, f. 11. febrúar 2000. Geir Gíslason viðskiptafræðingur, f. 19. september 1972. Kona Inga Lilja Ólafsdóttir kennari, f. 24. febrúar 1973. Börn þeirra eru: Ýmir Már, f. 11. nóvember 1997, og Lilja Björg, f. 13. ágúst 2002. Ingvar Már Gíslason viðskipta- fræðingur á Akureyri, f. 24. nóv- ember 1976. Kona: Hilda Jana Gísladóttir fréttamaður, f. 17. ágúst 1976. Hennar dóttir og fóst- urdóttir Ingvars Más er Hrafnhild- ur Lára Hrafnsdóttir, f. 9. janúar 1997. Gísli Björgvin Gíslason, f. 24. júní 1990. 5) Hörður Áskelsson, f. 22 nóvember 1953, organisti og kórstjóri í Reykjavík, kvæntur Ingu Rós Ingólfsdóttur sellóleik- ara, f. 17. mars 1953. Börn þeirra eru: Guðrún Hrund Harðardóttir víóluleikari, f. 7. september 1974. Maður: Gunnar Andreas Kristins- son tónlistarnemi, f. 30. des. 1976. Inga Harðardóttir guðfræðinemi, f. 17. febrúar 1979. Maður: Guð- mundur Vignir Karlsson guðfræð- ingur, f. 10. nóvember 1978. Dóttir þeirra er: Björt Inga Vignisdóttir, „Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur; verið glaðir. Ljúflyndi yð- ar verði kunnugt öllum mönnum.“ Fil.4. 4–5. Einn mesti ljúflingur, sem ég hef kynnst á lífsleiðinni og sú mann- eskja, sem mér hefur þótt hvað vænst um var tengdafaðir minn, Ás- kell Jónsson söngstjóri, sem kvadd- ur er í dag. Texti Filippíbréfsins hér að ofan finnst mér eiga vel við um persónu hans. Sem ung stúlka kom ég inn í fjölskyldu þeirra Sigurbjarg- ar og reyndist hann mér frá upphafi sem besti faðir. Tónlistin var sá þráður, sem tengdi okkur hvað sterkustum bönd- um og einnig það, að sonurinn Hörð- ur, eiginmaður minn, skyldi velja sama ævistarf, að stýra söng og leika á orgel við kirkju. Það er ómetanlegt að hafa fengið að upplifa Áskel í fullu fjöri í sínu starfi og minnist ég m.a. ógleymanlegrar guðsþjónustu á ný- ársdag í Lögmannshlíðarkirkju, með hrífandi fallega mótuðum kórsöng með kirkjukórnum hans, og einnig glæsilegra tónleika í Akureyrar- kirkju í tilefni af 70 ára afmæli hans, þar sem ég lék í hljómsveit undir hans stjórn. Áskell hafði einstaka hæfileika til að hrífa fólk með í söng og smitaði hann alla með sterkri út- geislun á sinn glaða og ljúfa hátt. Heimilið ómaði af tónlist meðan kraftar hans leyfðu og minningarnar um samleik með Áskeli í stofunni í Þingvallastræti og við orgelið á Mýri og Bólstað eru dýrmætar. Áskell var gæddur mikilli kímnigáfu og leitað- ist við að sjá björtu hliðarnar í lífinu. Honum fannst skemmtilegt að krydda tilveruna með óvæntum uppákomum, t.d. þegar hann, án þess að gera boð á undan sér, stóð á tröppunum hjá okkur í Reykjavík, kominn til að upplifa með okkur tón- leika eða annað, sem skipti okkur máli og hann langaði til að fylgjast með í eigin persónu. Þessi leikur hans gerði fjarlægðina milli okkar að engu og var okkur mikils virði. Hann var dásamlegur afi, sem lagði ríka áherslu á að barnabörnin fengju til- sögn í tónlist og lærðu að lesa nótur, því hversu snautt væri lífið ekki án tónlistar! Tengdamóðir mín, Sigurbjörg, stóð að baki Áskeli í erilsömu og gef- andi ævistarfi, glöð, gestrisin og ósérhlífin studdi hún hann til hinstu stundar. Nú hefur lokahljómurinn í lífssinfóníu Áskels hljóðnað. Söngur hans mun þó áfram óma í hjörtum okkar. Eftir lifir minning um ein- stakan ljúfling og mikinn höfðingja. Guð blessi minningu hans og alla sem honum unnu. Inga Rós Ingólfsdóttir. Það var komið haust í lífi afa. Hann hafði átt gott og langt sumar og við vissum að það var farið að hausta. Á fögrum haustdegi kom svo að því að elskulegur afi okkar kvaddi. Við erum svo þakklát fyrir að hafa átt hann að og hversu stóran þátt hann á í okkur. Það verður aldr- ei frá okkur tekið. Við geymum alla tíð góðar minningarnar um afann okkar sem gerði svo margt skemmti- legt með okkur, tíndi ber, setti niður kartöflur, byggði snjóhús, bjó til buslupolla úti í garði og var alltaf til í að gefa okkur tíma, í leik, söng eða spjall. Stærsta gjöfin sem þú gafst okkur var tónlistin. Hún var svo stór hluti af þér, afi, og fjölskyldunni allri. Sem lítil börn sungum við með þér öll skemmtilegu barnalögin, sem unglingar héldum við áfram að syngja við undirleik þinn gömlu dægurlögin, Tondelejo, Litli vin, Gunna var í sinni sveit og svo mörg fleiri. Á síðari árum eigum við ótelj- andi minningar um stundir með þér við píanóið. Síðustu árin komu lang- afabörnin í afa- og ömmuhús til að syngja sömu lögin og við sungum sem börn. Við óskum þess að þessa gjöf fær- um við börnum okkar og barnabörn- um, að söngur og tónlist verði líka stór hluti af þeirra lífi. Nú hafa haustlaufin þín verið að falla eitt og eitt, elsku afi, þar til síð- asta laufið féll hinn 20. september síðastliðinn. Þýtur í efstu eggjum ókunnra vinda raust, vekur hún beyg í brjósti, boðar mér dapurt haust. Frost varð í nótt á fjöllum fölnaði gnípan traust. Hélugrár feigðarfölvi fellur á kinn um haust. Burt er nú ilmur og angan, andkulið sólskinslaust, dagur að kvöldi kominn, kaldur vindur um haust. Hljóðnar í djúpum dölum, dregið er skip í naust. Sumarsins fegurstu fjaðrir fellir svanur um haust. (Sverrir Pálsson.) Elsku amma. Megi góður Guð styrkja þig í sorg þinni og okkur öll sem horfum á eftir afa hverfa í annan heim. Bráðum færast árin yfir mig. Einhvern tíma skil ég senn við þig. Mundu þá að rata réttan veg, reyndu’ að verða betri’ og meiri’ en ég. – – – Ég bið fyrir þér, litli vin, að blessist þér allt, litli vin. þegar ég fer þér frá, þegar annar þig á, viltu minnast mín þá, litli vin. (Erlent ljóð.) Sigurbjörg, Hrund og Heimir Freyr. Elsku afi minn, það var þér líkt að velja fallegan haustdag til að fara, einnig var þetta einn af þínum mestu hamingjudögum þar sem hann pabbi minn fæddist þennan dag. Í hjarta mínu veit ég að þér líður betur núna. Þegar ég var lítil var ég svo mikil mömmu- og pabbastelpa að ef þau fóru eitthvað var vonlaust fyrir þau að skilja mig eftir nema hjá ykkur ömmu. Þar var ég svo örugg og hvað var betra en að kúra á milli ykkar? Þið kennduð mér mínar fyrstu bænir sem voru Faðir vorið og Vertu Guð faðir. Ef við vorum fleiri krakkarnir gekkstu úr rúmi fyrir okkur, komst svo skríðandi og þóttist vera lítill hvolpur sem vildi komast í bólið sitt. En amma rak hvolpinn jafnóðum til baka. Allt gert til að skemmta litlum næturgestum. Það var alltaf eins og hátíð þegar maður kom í heimsókn, afi settist ævinlega við píanóið og maður söng hástöfum. Það varst ein- mitt þú sem fórst með mig fyrst í sunnudagaskólann og tónlistarskól- ann. Allt sem þú gerðir var gert af mik- illi vandvirkni hvort sem það var tón- listin eða kartöfluræktin. Þú vildir öllum svo vel. Svo dæmi sé tekið átt- irðu alltaf sömu tegundina af bíl og einn daginn ákvaðstu að skipta og varst að hugsa um að fá þér aðra teg- und en þegar þú komst heim komstu á nýjum bíl en það var sama tegund og hinir og ég spurði af hverju og þú sagðir að þér þætti eins og þú værir að svíkja bílasöluna ef þú fengir þér aðra tegund. Það er eitt lag sem ég er alltaf að hugsa um sem þú kenndir mér, en kem ekki fyrir mig, sem við sungum saman, eitthvað komu bláir gim- steinar þar við sögu, ekki veit ég af hverju ég hugsa um þetta lag því þau voru nokkuð mörg sem þú kenndir mér, en eitthvað í minningunni er sérstakt við þetta lag. Nú kalla ég fram minningarnar um þig, þær koma hver af annarri. Þú varst mikill hamingjumaður, afi, áttir þá bestu konu sem hægt er að hugsa sér og sjö indæl börn. Fallegt heimili sem var alltaf ilmandi af hreinlæti. En árin liðu og heilsu þinni fór hrakandi. Myrkrið settist að í augum þínum, þér fannst þú stöðugt vera á ferðalagi, þráðir að komast heim og hvíla þig. Stundum varstu hræddur um að þú ættir eitt- hvað ógreitt einhvers staðar, vildir engum skulda neitt. Þó að ævikvöld- ið hafi verið þér erfitt, naustu sér- stakrar umönnunar og ástar ömmu minnar og barna þinna. Þú ert hetja, amma mín. Ég kveð þig núna, afi minn, minningarnar um þig eru eins og bláu gimsteinarnir og ég raða þeim upp á festi. Guð geymi þig. Þín afastelpa, Ása Björg. Afi Áskell, við kveðjum þig með miklum söknuði í hjarta en um leið með gleði, vitandi að þú hafir loks fengið þá hvíld og ró sem þú áttir skilið. Eins og einn okkar sagði: „Einum skemmtilegum manni færra í þessum heimi.“ Í huga okkar litlu guttanna úr Espilundinum varstu höfuð ættarinnar og við gengum hróðugir um göturnar og sögðum stoltir frá afrekum afa úr Þingó. Ólíkt þér þykjum við vita laglaus- ir, getum varla sungið né leikið á hljóðfæri nema rangir hljómar fljóti með. Aldrei nokkurn tímann gafstu þó upp við að kenna okkur að spila á orgelið í Þingó með þeim árangri að allir kunnum við að spila Gamla Nóa eða syngja lítinn lagstúf. Á seinni ár- um þegar þú áttaðir þig á að áhugi okkar lá á öðrum sviðum tókstu til við að uppfræða okkur um leyndar- dóma bókfærslunnar og leyfðir okk- ur að kíkja á debet- og kredit-færsl- urnar þínar frá Reykjum. Það fannst okkur tölvualdarmönnunum sniðugt, handskrifað bókhald! Ekkert var þó notalegra en að koma til þín og ömmu í Þingó uppúr hádegi á laugardegi og finna ilminn af stútfullum potti af hrísgrjóna- graut. Þar voru fjölskylduböndin treyst enn frekar og oft rætt um heima og geima. Þótt unga kynslóðin væri oftar en ekki á hraðferð var allt- af tími til eiga eilítið spjall og jafnvel syngja saman þótt tilefnið væri ekki neitt. Við minnumst allra gistináttanna hjá þér og ömmu, ekki síst uppbúna rúmsins í hrútakofanum. Samt fannst okkur mun betra að kúra bara á milli ykkar og ekki leiddist okkur er þú sýndir okkur skökku tærnar þínar sem uxu saman líkt og trjáræt- ur og mikið þótti okkur fáránlegt þegar læknirinn fyrirskipaði að ein- hverjar þeirra yrðu að víkja. Við gripum í spil við og við, spiluðum tíu eða annað það sem okkur datt í hug, laumuðum í okkur súkkulaðimola og höfðum það skemmtilegt. Vöknuðum upp eldsnemma á sunnudagsmorgni, rákum þig og ömmu á lappir og kröfðumst sundferðar eða drógum þig roskinn manninn út í garð í fót- bolta. Amma laumaði að okkur ærslafullum mönnunum nýupptekn- um gulrótum við og við með þeim orðum að við skyldum gæta að blómabeðunum. Elsku afi, nú ertu kominn á betri stað og vakir yfir okkur sem eftir stöndum. Um leið og við kveðjum þig hinsta sinni þökkum við fyrir allt það góða sem þú hefur gefið okkur, þær leiðbeiningar á grýttum vegi lífsins sem þú hefur veitt okkur og þá ást og umhyggju sem geymir þitt mann- lega eðli. Innilegar samúðarkveðjur send- um við ömmu Sigurbjörgu, enginn maður getur orðið svo góður líkt og afi nema eiga einstaka konu. Áskell Þór, Kristjana Ösp, Geir, Inga Lilja, Ingvar Már, Hilda Jana og Gísli Björgvin. ÁSKELL JÓNSSON MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/ sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, – eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.