Morgunblaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 13 ÓLAFUR F. Magnússon, borgar- fulltrúi F-lista frjálslyndra og óháðra, krefst þess að fá upplýs- ingar um áætlað kostnaðarverð og líklegt söluverð á orku frá Kára- hnjúkavirkjun til þess að geta gætt brýnna hagsmuna borgar- búa. „Ótækt er að með því að leyna grundvallarupplýsingum sé reynt að knýja fram svo afdrifa- ríka framkvæmd sem almenningi og sérstaklega Reykvíkingum er ætlað að bera ábyrgð á.“ Þetta kemur fram í bókun Ólafs sem hann lagði fyrir fund borgarráðs í vikunni. „Í greinargerð sem Þorsteinn Sigurlaugsson hagfræðingur hefur samið fyrir Náttúruverndarsam- tök Íslands um arðsemi Kára- hnjúkavirkjunar eru leidd sterk rök að því að tugmilljarða króna tap verði af framkvæmdinni,“ seg- ir Ólafur í bókun sinni. „Það vekur sérstaka athygli að jafnvel þótt orka sem seld yrði frá virkjuninni yrði á miklu hærra verði en nú fæst vegna rafmagnssölu til stór- iðju yrði tap af framkvæmdinni. Ný útgáfa Kárahnjúkavirkjunar er enn óhagkvæmari en fyrri útgáfa virkjunarinnar.“ Ólafur segir að samkvæmt tölum frá Landsvirkjun mun fjárfesting vegna virkjunar- innar lækka úr 102 milljörðum króna í 96 milljarða eða um 5,9%. Á móti mun orka frá virkjuninni minnka um 26%, kostnaður á framleidda gígawattstund hækka úr 185,5 milljónum króna í 215 milljónir sem er 16% hækkun. Því segir Ólafur að áætlað tap af fram- kvæmdinni yrði á bilinu 17-53 milljarðar króna. „Þar sem Reykjavíkurborg yrði í tugmilljaðra króna ábyrgð fyrir þessari framkvæmd tel ég það með öllu óviðunandi að borgarfulltrúar séu ekki upplýstir um það orku- verð sem ætlað er að fáist fyrir orkusölu frá fyrirhugaðri Kára- hnjúkavirkjun.“ Bókun F-lista um arðsemi Kárahnjúkavirkjunar og ábyrgð Reykjavíkurborgar Borgarfulltrúar verði upplýstir um orkuverð RÚMLEGA tvítugur maður sem stal sex bílum, braust inn í fjögur apótek og gerðist sekur um tvö al- varleg umferðarlagabrot, hefur verið dæmdur í sex mánaða fang- elsi, skilorðsbundið til þriggja ára. Öll brot ákærða voru framin á tímabilinu frá júní til október 2002. Í dómnum segir að með tilliti til þess að maðurinn sé ungur, hafi leitast við að ná tökum á eitur- lyfjafíkn sinni, hafi játað brotin greiðlega og axlað fjárhagslega ábyrgð vegna þeirra, sé hæfileg refsing sex mánaða fangelsi. Þrátt fyrir að pilturinn hafi rofið skilorð með brotum sínum var dómurinn nú skilorðsbundinn. Var litið til þess að brotin voru framin á stuttu tímabili og hann hafði áð- ur staðist skilorð vegna dóms sem hann hlaut í Danmörku. Meðal brota mannsins var um- ferðarlagabrot að næturlagi seint í ágúst. Þá ók hann bifreið án þess að hafa öðlast ökuréttindi og sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, heldur ók á allt að 120 km hraða um götur þar sem hámarkshraði er 50 km/klst og ók auk þess fjór- um sinnum gegn rauðu ljósi. Dóm- ari segir að með umferðarlaga- brotum þessum hafi maðurinn orðið sekur um mjög vítaverðan akstur og mildi sé að ekki hlaust slys af. Samkvæmt ákæru væri hins vegar ekki krafist ökuleyf- issviptingar vegna þessa. Heldur ekki vegna ítrekaðra bílstulda og heimildarlauss aksturs þeirra. Ákvað dómari engu að síður að maðurinn skyldi á grundvelli upp- safnaðra refsipunkta sviptur öku- rétti í þrjá mánuði. Kári Hrafn Kjartansson flutti málið f.h. lögreglustjórans í Reykjavík en Örn Clausen hrl. var til varnar. Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari kvað upp dóminn. Stal sex bílum og braust inn í fjögur apótek ♦ ♦ ♦ DAVÍÐ Ottó Arnar ver doktors- ritgerð sína „The Cardiac Purkinje System and the Ventricular Tachy- arrythmias of Ischemia and Re- perfusion“, sem læknadeild hefur metið hæfa til doktorsprófs við læknadeild Háskóla Íslands laug- ardaginn 7. desember kl. 14. And- mælandi af hálfu læknadeildar verður Michiel J. Janse, prófessor við Amsterdam-háskóla, og Þórður Harðarson, prófessor við Háskóla Íslands. Forseti læknadeildar, Reynir Tómas Geirsson prófessor, stjórnar athöfninni. Öllum er heim- ill aðgangur. Doktors- vörn í læknadeild ♦ ♦ ♦ MEIRIHLUTI fjárlaganefndar leggur til í breytingartillögum við fjárlagafrumvarp næsta árs fyrir þriðju umræðu um frumvarpið, að nýju hlutafélagi, Farice hf., verði veitt allt að 800 milljóna kr. rík- isábyrgð til að leggja ljósleiðara frá Íslandi um Færeyjar til Skot- lands. Jafnframt er farið fram á heim- ild fyrir ríkissjóð til að kaupa hlutafé fyrir allt að 560 milljónir kr. í hinu nýja félagi. Farice hf. fái 800 milljóna ríkisábyrgð Björgunarafrekið á Vatnajökli Einar Bollason er sonur loftskeytamannsins á Geysi: „Ég taldi mig kunna þessa sögu ágætlega, en í bókinni kemur ótalmargt fram sem kom mér algjörlega á óvart. Ég hafði t.d. ekki áttað mig á því þvílíkt björgunarafrek var unnið við björgun áhafnarinnar, við ótrúlega erfiðar aðstæður. Bókin er með ólíkindum spennandi, enda las ég hana í einni striklotu.“ Ingigerður Karlsdóttir, flugfreyja á Geysi: „Þegar ég les bókina upplifi ég atburðinn á ný og finnst ég vera komin aftur upp á jökul.“ M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 1 1 /0 2 2. upplag komið í verslanir Síðasta bók seldist upplöngu fyrir jól! Óttar Sveinsson metsölu- höfundur hefur einstakt lag á skrifa raunverulegar spennusögur, sem lesendur geta ekki lagt frá sér fyrr en sagan er öll. Nýjasta bók hans, Geysir er horfinn, fjallar um brotlendingu stærstu flugvélar Íslendinga á Vatnajökli og einstæða björgun áhafnarinnar, sem var gríðarlegt þrekvirki. A L M ENNT EF NI M ET SÖLULISTI M BL1AL I I I M BL Sími 554 7700
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.