Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 35 KAMMERKÓR Langholts- kirkju fagnar nýrri geisla- plötu sinni með útgáfutónleik- um í Lang- holtskirkju í kvöld, fimmtu- dagskvöld, kl. 20.30. Kammerkór Langholts- kirkju er hóp- ur söngvara úr Kór Lang- holtskirkju, sem allir hafa stundað söng- nám og hafa langa kórreynslu. Í janúar 1995 söng Kammer- kór Langholtskirkju með kammersveit, í viðamikilli sýningu í Þjóðleikhúsinu í samvinnu við Þjóðdansafélag- ið, verkið Íslenska söngdansa eftir Jón Ásgeirsson. Kórinn var sérstakur gestur á fyrsta baltísk/skandinavíska kóra- mótinu í Riga í Lettlandi árið 1995, þá kynnti kórinn ís- lenska kórtónlist á norrænu kórstjóramóti (Nordklang), sem haldið var í Skálholti sumarið 1996. Kórinn tók þátt í Norræna tónlistarmótinu í Gautaborg 1997 og kynnti þá íslenska kirkjutónlist. Árið 1998 hélt kórinn ásamt Grad- ualekór Langholtskirkju sér- staka afmælistónleika til heið- urs Jóni Ásgeirssyni tónskáldi. Í júlí sl. tók Kammerkór Langholtskirkju þátt í alþjóð- legri kórakeppni í Randers í Danmörku og sigraði í flokki kammerkóra. Á nýja geisla- diskinum eru m.a. verk þau er kórinn flutti í keppninni í Danmörku s.s. keppnisverkin tvö eftir danska tónskáldið Michael Bojesen, Ave Maria eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Ég vil lofa eina þá eftir Báru Grímsdóttur. Einnig kórverk eftir Jón Ásgeirsson sem ekki hafa komið út áður á plötu, Faðir vor og Vor hinsti dagur er hniginn. Fyrir tónleikana mun Laug- aráskvartettinn „hita upp“ en í honum eru Egill Árni Páls- son, Hreiðar Ingi Þorsteins- son, Þorvaldur Skúli Pálsson og Þröstur Freyr Gylfason. Stjórnandi Kammerkórs Langholtskirkju er Jón Stef- ánsson. Aðgangur að tónleik- unum er ókeypis. Kammer- kór Lang- holtskirkju fagnar nýrri geislaplötu Jón Stefánsson KARLAKÓR Reykjavíkur heldur fimm aðventutónleika fyrir kom- andi jól í tónlistarhúsinu Ými við Skógarhlíð. Fyrstu tónleikarnir verða annað kvöld, föstudags- kvöld, kl. 21, tvennir tónleikar verða á laugardag og sunnudag, kl. 19 og kl. 22 á laugardag og kl. 17 og 20 á sunnudag. Á söngskránni eru margar feg- urstu perlur tónbókmenntanna sem tengjast jólum. Einsöngvari að þessu sinni er Jóhanna G. Linnet sópran. Friðrik S. Krist- insson stjórnar kórnum og undir- leikari er sem fyrr Anna Guðný Guðmundsdóttir. Það er orðin hefð fyrir þessum tónleikum kórsins á aðventu en þetta er í fyrsta sinn sem kórinn heldur jólatónleika í Ými. Aðgöngumiðar eru seldir í for- sölu í Ými og Pennanum– Eymundssyni, Austurstræti, Kringlunni og Smáralind og við innganginn og kosta 1.500 kr. Morgunblaðið/KristinnKarlakór Reykjavíkur heldur fimm aðventutónleika í Ými fyrir þessi jól. Fagrar jólatón- perlur sungnar Hjálp að handan – Sex lækna- miðlar segja frá er skráð af Svövu Jóns- dóttur. Í fréttatilkynn- ingu segir m.a.: „Þau eru lækna- miðlar, heilarar sem sækja kraft til annars heims til að ráða bót á meinum skjól- stæðinga sinna. Þau eru Bíbí Ólafs- dóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson, Jón Eiríksson, Jórunn Oddsdóttir og Kristján Einarsson. Ennfremur er sagt frá Steindóri heitnum Mar- teinssyni. Þau segja frá lífi sínu, störfum og sambandinu við þau öfl sem styðja þau til góðra verka. Einnig eru í bókinni frásagnir fólks sem hefur leitað til miðlanna og fengið bót meina sinna. Svava Jónsdóttir bókmenntafræð- ingur og blaðamaður hefur fært í letur. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 219 bls. Verð: 3.980 kr. Frásögn Gestir utan úr geimnum er eftir Preston Dennett í þýðingu Helga Grímssonar. Í þessari bók segir frá því sem efst er á baugi í rannsóknum á fljúgandi furðu- hlutum. Hér eru tíu nýjar frásagnir af kynnum af fljúgandi furðuhlutum og framandi verum, sagðar af þeim sem fyrir reynslunni urðu. Í meirihluta frásagnanna rifja menn upp reynslu sína af eigin rammleik en ekki í dáleiðslu. Preston Dennett stundar rann- sóknir á fljúgandi furðuhlutum. Hann hefur annast sjónvarpsþætti um þetta efni og skrifað fjölda bóka og greina um það. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 220 bls. Verð: 3.980 kr. Geimverur Á Jakobsvegi – hugsað upphátt á pílagrímaleiðinni til Santiago de Compostela er frá- sögn Jóns Björns- sonar af leiðinni og sögunni sem tengist henni en hann fór árið 2001 í pílagrímsferð til Santiago de Comp- ostela. Jakobsvegurinn á sér mikla og merkilega sögu og liggur um fjölmarga sögustaði og merkar menningarminjar. Á 9. öld var álitið að líkamsleifar Jak- obs Zebedeussonar hefðu fundist þar sem nú er borgin Santiago de Comp- ostela á Norðvestur-Spáni. Hann var gerður þjóðardýrlingur Spánar og naut mikillar hylli. Því var trúað að þessi dýr- lingur hefði gegnt stóru hlutverki við að endurheimta Spán frá Márum. Á 12. öld var orðinn til vegur frá Pýr- eneafjöllum til Santiago með brúuðum ám og sæluhúsum og pílagrímar hvað- anæva úr Evrópu hittast við upphaf þessa vegar. Borgin, sem heitir eftir honum, varð þriðji mikilvægasti áfangastaður kristinna pílagríma á eft- ir Jerúsalem og Róm. Fjöldi mynda prýðir bókina. Jón Benedikt Björnsson er fæddur 1947 norður í Húnavatnssýslu. Eftir hann liggur bókin Af örlögum mann- anna 1991 og fjöldi greina og erinda. Útgefandi er Ormstunga. Bókin er 352 bls., prentuð í Litlaprenti. Verð:4.380 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.