Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 44
FRÉTTIR 44 SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNASALA HÁTÚNI 6a SÍMI 512 1212 FAX 512 1213 Stangarhylur - til leigu eða sölu Glæsilegt fjölnotaatvinnu- húsnæði á frábærum stað með mikið auglýsingagildi. Húsið er tvær hæðir. Á efri hæð eru fullbúnar skrif- stofur auk opins vinnu- rýmis og góðrar kaffiað- stöðu. Á neðri hæð er fundarsalur, skrifstofur og lagerrými með innkeyrslu- dyrum. Í öllu húsnæðinu eru góðar síma- og tölvulagnir. Hentar sérstaklega vel fyrir félagasam- tök, hefðbundinn skrifstofurekstur eða heildsölu með smávarning. Teikningar á skrifstofu. ATVINNUHÚSNÆÐI FJÁRFESTAR Góðar eignir með traustum leigutökum. Í Smáranum ca 200 fm vandað verslunarh. Traustur leigutaki, langtímaleigusamn. Áhv. hagst. lán. 16,8 m. Leiga á mán. 325 þús. Hagst. kaup. Laugavegur - 237 fm verslun. Traustur leigutaki. Leiga á mán. 300 þús. Áhv. hagst. lán. Bakkabraut í Kóp., 200 fm Eignin er öll í útleigu. Mjög góð staðsetning. Leiga á mán. ca 200 þús. Áhv. hagst. lán til 25 ára. Verðtilboð. Fossaleynir - ca 740 fm vandað verslunarh. Traustur leigutaki (Húsasmiðjan). Leiga á mán. ca 780 þús. Áhv. hagst. lán 46 m. Góð kaup. Stórhöfði - 347 fm vandað skrifst./lagerhúsnæði. Traustur leigu-taki, leigusamn. til 2009. Leiga á mán. 375 þús. Áhv. lán ca 20 m. Í Smáranum - 237 fm vandað þjónusturými. Er í leigu til mjög traustra aðila til 2011. Leiga á mán. 460 þús. Áhv. hagst. lán ca 23 m. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson í síma 588 4477 eða 822 8242 Grensásvegi 22 • Sími 533 1122 Þröstur Þórhallsson, sími 897 0634. Borgartúni 22, 105 Reykjavík, sími 5-900-800. Ólafur Blöndal, sími 893 9291 Til sölu við Austurstræti í Reykjavík Þessi einstaka og sögufræga eign (gamli Hressingarskálinn) KFUM og KFUK í Reykjavík er til sölu. Eignin er skráð 624 m² samkvæmt Fasteignamati ríkisins og skiptist í 466 m² á jarð- hæð og 158 m² á efri hæð. Lóðin er eignarlóð. Frábær fjárfesting. Einkasala. Höfum til sölu þetta glæsilega 1.572 fm atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum, 984 fm neðri hæð og 588 fm efri hæð. Húsnæðið stendur á mjög áberandi stað í nýju og eftir- sóttu iðnaðar- og verslunarhverfi í Garðabæ og hentar sérlega vel fyrir heildsölu, iðnað eða verslun. Hús- næðið skilast einangrað að utan og klætt með garðapanil. Gólf vélslípuð. Lofthæð frá 3,60 m upp í 6 m og stórar innkeyrsludyr. Húsið stendur á 3.172 fm lóð sem skilast malbikuð. Nánari skilalýsing á skrifstofu okkar. Húsið er upp- steypt nú þegar. Einnig möguleiki að selja húsið í núverandi ástandi. Atvinnuhúsnæði Miðhraun - Garðabæ Sími 568 5556 Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030. Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar  564 1500 20 ára EIGNABORG FASTEIGNASALA 247 fm götuhæð sem er um 140 fm er stór innkeyrsluhurð, á efri hæð eru, skrifstofa, kaffi- stofa, snyrting og geymslur. Húsnæðið er mjög vel innréttað með vönduðum innréttingum. Malbikað bílaplan, laust fljótlega. Til sölu eða leigu - Dalvegur GÍSLI Halldórsson, arkitekt, var kjörinn heiðursfélagi Arkitekta- félags Íslands á aðalfundi félagsins fyrir skömmu, en hann er fimmti heiðursfélagi félagsins. „Það er gaman að fá viðurkenn- ingu fyrir ævistarfið,“ segir Gísli en hann hefur verið mjög afkastamikill arkitekt. Auk þess hefur Gísli látið mikið að sér kveða á sviði stjórn- mála og íþróttamála, en hann hefur meðal annars verið forseti borgar- stjórnar Reykjavíkur, formaður Ólympíunefndar Íslands og forseti Íþróttasambands Íslands. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín að félagsmálum, þar á meðal stórriddarakross fálkaorð- unnar. Gísli varð 88 ára 12. ágúst síðast- liðinn. Hann lauk prófi úr Iðnskól- anum í Reykjavík 1933 og tók sveinspróf í húsasmíði. Hann stund- aði arkitektanám í Danmörku, starf- rækti teiknistofu með Sigvalda Thordarson í Reykjavík á stríðsár- unum en hélt síðan aftur til Kaup- mannahafnar og tók lokapróf frá arkitektúrdeild Det Kongelige Aka- demi for de Skönne Kunster 1947. Hann rak einn teiknistofu í Reykja- vík til 1957 og síðan í félagi við aðra. Ásamt félögum sínum rak hann eina stærstu arkitektastofu landsins, Teiknistofuna Ármúla 6, og hélt uppi fyrsta raunverulega fyrirtæk- inu í arkitektaþjónustu um áratuga- skeið. Í lögum Arkitektafélagsins segir m.a. að heimilt sé að kjósa heið- ursfélaga hvern þann sem stuðlað hafi að framgangi og þekkingu á byggingarlist eða unnið ötullega fyrir félagið. Gísli hefur unnið marg- vísleg trúnaðarstörf fyrir arkitekta. Hann gekk í Húsameistarafélag Ís- lands 1947, var m.a. formaður þess, og var nafni félagsins breytt í Arki- tektafélag Íslands í formannstíð hans. Gísli sat í fjölda nefna félags- ins og þar á meðal í gjaldskrárnefnd í meira en áratug. Hann var einn af frumkvöðlum að stofnun Bygginga- þjónustu félagsins og í fyrra lagði hann fyrir stjórn þróaða hugmynd sína um Höfundarsjóð arkitekta. Á verkefnalista stofu Gísla má nefna margvísleg íþróttamannvirki í Laugardal, Hótel Loftleiðir, Hótel Esju, flugstöðvar á Akureyri og Eg- ilsstöðum, fjölbýlishús við Birkimel og eigið hús við Tómasarhaga. Gísli Halldórsson heiðursfélagi Valdís Bjarnadóttir, formaður Arkitektafélags Íslands, afhenti Gísla Hall- dórssyni, arkitekt FAÍ, heiðursskjal og blómvönd við athöfnina. Aðalfundur Arkitektafélags Íslands AÐALBÚÐIN á Siglufirði hefur nú hafið starfsemi að nýju, en verslunin hefur lengi verið rótgróin bóka- og gjafavöruverslun. Á liðnu sumri lagði fyrri eigandi versl- unarinnar starf- semina niður. Eig- endur Blóma- og Föndurstöðv- arinnar, þær Hrafnhildur Hreinsdóttir og Guðrún Hauks- dóttir keyptu reksturinn skömmu síðar og fluttu allan rekstur sinn í húsnæðið sem hefur hýst Aðalbúðina um áratuga skeið. Þær stöllur hafa rekið Fönd- urstöðina þar sem þær hafa versl- að með blóm, gjafa- og fönd- urvörur í rúm tvö ár, en hafa nú stækkað reksturinn með því að gera samning við Brynjar Pálsson bóksala á Sauðárkróki varðandi sölu á bókum og ritföngum. Áfram verður lögð áhersla á framboð á gjafa- og föndurvörum, auk blóma og skreytinga auk bók- anna. Þá verður einnig boðið upp á ýmiskonar námskeið í tengslum við þann áhuga sem orðið hefur á handgerðum munum og föndri. Föndursmiðjan Komman verð- ur, þegar fram líða stundir einnig til húsa á sama stað, en Komman var rekin sem föndursmiðja í nokkur ár, en reksturinn lagður niður fyrir tæpu ári. Myndlist- arkonan Brynja Baldursdóttir hannaði og skipulagði innrétt- ingar í samstarfi við rekstr- araðila. Aðalbúðin á Siglu- firði aftur í rekstur Frá vinstri: Hrafnhildur Hreinsdóttir, Brynjar Páls- son bóksali og Guðrún Hauksdóttir. Morgunblaðið/Halldór Halldórsson Siglufirði. Morgunblaðið. FYRIRTÆKIÐ iPnet ehf.. hyggst á næstu dögum setja á markað lág- gjalda símaþjónustu með fyrirfram- greiddum alþjóða símakortum undir vörumerkinu „Heimsfrelsi“. Með kortinu mun korthafi geta hringt til útlanda í allt að 200 mínútur fyrir 1.000 kr. Á kortinu er aðgangsnúmer sem hringt er í og er kortanúmerið síðan slegið inn. Í tilkynningu frá iPnet segir að það kosti rúmar 5 kr. á mínútu að hringja til landa á borð við Bandarík- in, Bretland, Þýskaland og Svíþjóð. Stefnt er að því að þjónustan verði komin í gagnið 16. desember nk. og verða fyrstu kortin fáanleg á öllum bensín- og afgreiðslustöðvum Esso. Nánari upplýsingar um kortið má finna á www.simakort.is. Hringt til út- landa fyrir 5 kr. á mín. SÍMINN hefur ákveðið að lækka verð á símtölum í Iridium-kerfinu. Mínútuverð á Iridium-símtölum frá sjó í land lækka um 11% og kosta framvegis 127 kr og símtöl milli Irid- ium-síma lækka um 14% og kosta 73 kr. Verð á samtali þegar hringt er úr almenna símkerfinu í Iridium lækkar um 32%, úr 225 kr. í 153 kr. Í tilkynningu frá Símanum segir að viðskiptavinir hans hafi aðgang að tveimur gervihnattakerfum, Inmars- at og Iridium, Iridium sé fyrsta hnattræna fjarskiptakerfið sem bjóði upp á samband um allan heim. Iridium-símtöl lækka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.