Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 54
TÓNLEIKAR Sigur Rósar geta
verið mikið ævintýri; þegar allt smell-
ur saman, hljómur góður, ljós lifandi
og sviðsmynd sýnileg, tekur tónlistin,
sem vissulega er heillandi og sérstök
ein síns liðs, á sig nýja mynd, lita-
spjald tilfinninganna stækkar og hin-
ar naumhyggjulegu ægifögru laglínur
ná að teygja sig inn til hjartaróta
áheyrenda. Iðulega er því öðruvísi
farið, tónlistin vissulega ævinlega jafn
sterk og tilfinningarík, en stundum er
eitthvað að hljómnum, glasaglaumur
og skvaldur truflar, ekki sést al-
mennilega á myndtjaldið, ljósagangur
í uppnámi og svo má segja. Stundum
ganga hlutirnir aftur á móti og þá
verður ógleymanleg stund, trúnaðar-
samband milli hljómsveitar og áheyr-
enda.
Því er þetta nefnt hér að á tónleik-
um Sigur Rósar í Háskólabíói sl.
fimmtudag og föstudag fóru aðrir
tónleikarnir nálægt þessari full-
komnu upplifun og hinir náðu henni,
voru hreint út sagt ógleymanlegir.
Fyrri tónleikarnir voru sl. fimmtu-
dag fyrir nærfellt fullu húsi. Lagalist-
inn var áþekkur því sem hljómsveitin
hefur leikið a ferð sinni um heiminn
undanfarnar vikur, lög af plötunni
nýju ( ), í bland við eldri lög, eitt nýtt
lag og eitt glænýtt. Í ferðinni hafa
sum laganna breyst lítillega, stundum
meira skraut eða breytt, annars
breyttar áherslur í söng og svo má
telja; yfirleitt litlar breytingar en æv-
inlega til bóta – svo ná lögin að taka út
þroska og vaxa, ekki í stökkum heldur
hægfara rökrétt þróun.
Upphaf tónleikanna var lagaþrenn-
an sem er einmitt fremst á plötunni
nýju, heita þar Lag 1, Lag 2 og Lag 3,
en ef við notum vinnuheiti hljómsveit-
arinnar: Vaka, Fyrsta og Samskeyti.
Flutningur þeirra var með besta móti
þetta kvöld, hljómur óaðfinnanlegur,
lýsing smekkleg og hnitmiðuð og bak-
grunnurinn kom óhemju vel út, sér-
staklega í Vöku og Samskeytum.
Áheyrendur voru líka heillaðir frá
fyrstu hljómum, bærðu ekki á sér til
að spilla ekki galdrinum, svei mér þá
ef salurinn hélt ekki niðri í sér and-
anum þegar Jónsi sigldi upp í brot-
hætta falsettuna í Fyrsta.
Eftir þessa makalausu lagaþrennu,
sem fékk að flæða saman sem eitt
verk, ekkert klappað fyrr en þau voru
öll búin, var lítillega skipt um gír í lag-
inu Sölku, nýtt lag á tónleikadagskrá
Sigur Rósar. Það er reyndar forvitni-
legt að það lag er samið í gömlum
anda, ef svo má segja, handbragðið
minnir meira á Ágætis byrjun en ( ) –
vísbending um næstu plötu?
Hafi fólk verið heillað eftir upp-
hafskafla tónleikanna voru allir dol-
fallnir yfir laginu sem nú kom, gamalt
og gott, Ný batterí af Ágætis byrjun.
Flutningur á því var í meira lagi
glæsilegur – röddin ótrúlega heillandi
svo framarlega og taktskiptingar
meitlaðar, frábært lag og er því lauk
hefði mátt heyra samnál detta í saln-
um áður en fagnaðarlæti brutust út.
Njósnavélin var næst, en undir lok
þess mátti heyra að röddin í Jónsa var
farin að láta á sjá, sem átti eftir að
ágerast þegar á leið tónleikana. Það
mátti og heyra í næsta lagi, Svefn-
g-englar af Ágætis byrjun, að tónsvið
raddarinnar lækkaði lítillega og hún
var orðin býsna brothætt.
Mílanó var enn nýtt lag, eða nýlegt
réttara sagt, lag sem komst á dagskrá
sveitarinnar síðasta sumar en rataði
ekki á ( ). Þegar ég heyrði það á tón-
leikum í Sviss síðasta sumar var það
mjög laust í reipunum, hugmynda-
grind, en með tímanum hefur það
batnað og er býsna glæsilegt í núver-
andi mynd, mjög gott lag með
skemmtilegri tvítekinni stígandi.
Hafsól er lag af Von, fyrstu plötu
Sigur Rósar sem kom út 1997. Lagið
hefur nokkuð breyst frá því það kom
út á Von og reyndar frá því það var
lokalag útgáfutónleika Ágætis byrj-
unar í Óperunni á sínum tíma, milli-
kaflinn lengdur og með meiri söng og
svo þegar allt ætlar um koll að keyra í
lokin eru tilbrigðin líka meiri, ekki
bara skruggur heldur líka dynur og
dynkir.
Þegar hér er komið á tónleikum
Sigur Rósar hefur hljómsveitin yfir-
leitt horfið af vettvangi um, en Að
þessu sinni fór sveitin ekki af sviði
heldur renndi sér beint í „uppklapps-
lögin“ ef svo má segja, því Ólsen Ól-
sen var næstur, enn lag af Ágætis
byrjun – frábær syngjandi bassalína
og söngur án orða. Lokalagið var svo
lokalag disksins ( ) og það lag sem
hljómsveitin leikur jafnan síðasta
allra, enda ekkert hægt að segja eftir
það tilfinningagos sem það felur í sér.
Sama var líka hvað fólk klappaði, það
var ekki meira að fá, hljómsveitin bú-
in að spila í ríflega hálfan annan
klukkutíma.
Seinni tónleikarnir voru síðan á
föstudagskvöld og meiri ókyrrð í
fólki, meira drukkið og meira skvaldr-
að, enda föstudagskvöld og fjölmargir
á leið út á lífið. Ný batterí stöðvuðu þó
skvaldur og ókyrrð, eftir það sátu allir
sem dáleiddir næsta hálftímann, en
eftir Hafsól var nokkuð rennerí fram
að kaupa meiri bjór. Jónsi söng vel
framan af en undir lokin var röddin
tekin að gefa sig líkt og kvöldið áður,
en Kjartan raddaði vel með og því
kom það ekki að sök. Þessir tónleikar
voru ekki eins vel heppnaðir og kvöld-
ið áður en frábærir engu að síður.
Líkt og kvöldið áður vildi fólk meira,
en Orri Páll ruddi trommusettinu um
koll er hljómsveitin lauk við Popplag-
ið sem sagði sína sögu, allt búið í bili.
Litaspjald tilfinninganna
Sigur Rós
Tónleikar
Háskólabíó
Tónleikar Sigur Rósar og strengjakvart-
ettsins Animu í Háskólabíói 12. og 13.
desember sl. Siggi Ármann hitaði upp.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Jón Þór Birgisson syngur í upphafslagi tónleika Sigur Rósar í Háskólabíói á fimmtudagskvöld.
Árni Matthíasson
FÓLK Í FRÉTTUM
54 SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Restaurant
Pizzeria
Gallerí - Café
Hádegistilboð alla daga
og gott kaffi
Cappuccino,
Caffe latte og Espresso
Hafnarstræti 15, sími 551 3340
Sérstakar jólasýningar!
26. des. kl. 14 laus sæti
29. des. kl. 14. laus sæti
5. jan. kl. 14 laus sæti
12. jan. kl. 14. laus sæti
19. jan. kl. 14. laus sæti
Stóra svið
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Frumsýning lau 11/1kl. 20 UPPSELT
2. sýn su 12/1 kl 20 gul kort,
3. sýn fö 17/1 kl. 20 rauð kort 4.sýn lau 18/1 græn kort
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Lau 28/12 kl 20, Su 29/12 kl. 20
Sýningum fer fækkandi
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 29/12 kl 14
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
HERPINGUR e. Auði Haralds og
HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Má 30/12 kl 20, UPPSELT,
Fö 3/1 kl. 20
SÓL & MÁNI eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR - GJAFAKORT Á TILBOÐSVERÐI TIL JÓLA
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Su 29/12 kl 20
GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF
JÓLAGAMAN
Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl.
Í dag kl 15:00 - UPPSELT
15:15 TÓNLEIKAR
George Crumb. Benda
Lau 21/12 kl 21 - ath. breytan tíma
Vesturgötu 3 Í HLAÐVARPANUM
Klundurjól
Jólaskemmtun Hugleiks
í kvöld sun. 15. des. kl. 20.00
Ljúffengur málsverður
fyrir alla kvöldviðburði
MIÐASALA: 551 9030 kl. 10-16
má.-fö. Símsvari á öðrum tímum.
JÓLARÓSIR
SNUÐRU OG TUÐRU
eftir Iðunni Steinsdóttur
Sun. 15. des. kl. 14 laus sæti
Þri. 17. des. kl. 10 uppselt
Mið. 18. des. kl. 10 uppselt
Fim. 19. des. kl. 9 og 12 uppselt
HVAR ER STEKKJARSTAUR?
eftir Pétur Eggerz
Mán. 16. des. kl. 14 uppselt
Þri. 17. des. kl. 14 uppselt
Mið. 18. des. kl. 8.30 uppselt
Fim. 19. des. kl. 10.45 uppselt
Miðaverð kr. 1.100.
Netfang: ml@islandia.is
ww.islandia.is/ml
Grettissaga
saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt
á Grettissögu
Þri 17. des. UPPSELT,
sun 29. des kl. 20,
HÁTÍÐARSÝNING, nokkur sæti
föst 3. jan, kl 20, laus sæti
Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is
Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00.
Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni
fyrir sýningu á www.hhh.is
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Lau 28/12. kl. 21 Jólasýning
Föst 3/1 kl. 21 Uppselt
Föst 10/1 kl 21
Munið gjafakortin
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
SÖGUSVIÐIÐ er írska hverfið í
New York borg, Hell’s Kitchen, árið
1983. Hvissast hefur út að Sean
Sullivan (Wood) hafi sést á barnum,
en allir vita að hann dó fyrir þremur
árum. Bróðir hans, bareigandinn
Francis Sullivan (Burns), þarf að
sverja fyrir að þetta hafi bara verið
einhver líkur honum. En þremur ár-
um áður drap Sean þrjá gaura úr
ítölsku mafíunni, þar sem þeir ráð-
gerðu að stúta Francis vegna spila-
skulda. Sean var síðan drepinn, en
mafían kemur samt að þjarma að
Francis.
Edward Burns hefur tekið að sér
að vera fulltrúa hins írska banda-
ríkjamanns á austurströndinni, líkt
og Scorsese stendur fyrir Ítalina og
Woody Allen gyðinga og gáfumenn.
Verst er bara að Burns er enginn
listamaður og hefur ósköp lítið fram
að færa. Honum tekst þó upp að
vissu marki að koma á framfæri sið-
um og gildum sem ríkja í samfélagi
síns fólks. Verst að hann sýnir þau
ekki í áhugaverðu ljósi eða með
góðri sögu. Það á einnig við hér.
Sagan er reyndar ekkert slæm, en
heldur ekki frumleg eða áhrifarík á
neinn hátt.
Einnig er leikurinn verri en hefði
geta orðið. Burns leikur sjálfur að-
alhlutverkið og er hálfóþolandi í
sjálfumgleði sinni. Rosario Dawson,
sem leikur eiginkonu Sean heitins,
er reyndar mun líflegri en í MIB 2,
en svo gefa fínir leikararar eins og
Elijah Wood og Oliver Platt alls
ekki helminginn af því sem þeir búa
yfir. Wood hefði geta sýnt miklu
meiri tilfinningar og Platt hefði get-
að gert ferskan ítalskan mafíósa úr
sinni persónu, en leikstjórnin var
greinilega ekki nógu góð.
Átök í eldhúsi helvítis
KVIKMYNDIR
Regnboginn – 101 Bíófélag
ASH WEDNESDAY/ÖSKUDAGUR Leikstjórn og handrit: Edward Burns.
Kvikmyndataka: Russell Lee Fine. Aðal-
hlutverk: Edward Burns, Elijah Wood,
Rosario Dawson, Oliver Platt, Pat
McNamara, James Hardy og Michael
Mulheren. 98 mín. USA. Marlboro Road
Gang 2002.
Hildur Loftsdóttir