Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ sversplötu, eða síðan New Morning kom út 1970. Hann hafði þó ekki setið auðum höndum, gaf út ljóðabókina Tarantula, samdi tónlistina við Pat Garrett and Billy the Kid og lék í myndinni meðal annars en hann sendi einnig frá sér plötur, Dylan, sem var uppsóp eftir Self Portrait; hræðileg plata sem gefin var út að honum forspurðum, og Planet Wav- es, sem var betri en ekki miklu betri þó, tekin upp á þremur dögum. Á Planet Waves, sem kom út 1973, naut hann aðstoðar The Band og með þá sveit sér til halds og trausts hélt hann í langa tónleikaför til að kynna skífuna. Sú ferð, sem er vel skrásett á fyrirtaks tónleikaskífu, Before the Flood, var erfið og þreytandi þótt hún hafi gengið mjög vel og slegið ótal að- sóknarmet. Þegar henni var lokið lét Dylan þau orð falla að hann væri eig- inlega búinn að fá nóg af þannig ferð- um, næst þegar haldið væri upp yrði það á öðrum forsendum. Ekki síst langaði hann að leika á minni stöðum en í fyrri ferðinni, fannst lítið varið í að leika á íþróttaleikvöngum í íþrótta- höllum, en einnig sá hann fyrir sér að hljóðfæraleikarahópurinn væri sí- ÞEGAR Bob Dylan lék á tón-leikum hér á landi á sínumtíma fóru einhverjir áheyr-endur á límingunni yfir því hvaða höndum hann fór um gömlu lögin; í stað þess að flytja þau sem lík- ust upprunalegri útgáfu breytti hann laglínum og textum, söng sum lögin eins og textinn væri merkingarlaus en önnur eins og hann þýddi allt ann- að en menn höfðu hingað til talið. Fyrir þá sem voru komnir í höllina til að upplifa æsku sína og unglingsár var þetta því óþægileg stund en hinir glöddust yfir því að fá gömul lög, sem mörg voru í raun glæný, matreidd á staðnum. Nýr diskur með gömlu efni Því er þetta rifjað upp hér að í vik- unni kom út nýr diskur með gömlu efni með Bob Dylan, tónleikaupp- tökur frá 1975 þegar hann var á ferð með Rolling Thunder-flokk sinn, einskonar tónlistarsirkus sem menn hafa mært í mörg ár án þess þó að hafa heyrt nema lítilræði af tónlist með því apparati. 1975 voru fimm ár liðin síðan Dylan hafði sent frá sér almennilega hljóð- Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Tónlistarsirkus Bob Dylans Bob Dylan er ekki síst frægur fyrir að gera hlutina öðruvísi, ekki síst þegar hann er að flytja lög sín á tón- leikum. Kominn er út tvöfaldur diskur með upptökum frá 1975, en um það leyti var hann í miklu formi. breytilegur og að raðast myndi í hann eftir áhuga og stemmningu hjá hverj- um og einum fyrir hverja tónleika. Innblásin af tilfinningaróti Ári síðar, 1975, kom svo út platan Blood on the Tracks, sem telst jafnan með helstu verkum Dylans; innblásin af tilfinningarótinu sem fylgdi í kjöl- far skilnaðar hans og óvissunnar sem fylgdi í kjölfarið. Þegar kom að því að fylgja þeirri plötu eftir fór Dylan ein- mitt þá leið sem hann hafði nefnt og kallaði til liðs við sig fólk úr ýmsum áttum til að leika undir hjá sér og hita upp, þeirra á meðal fjölmarga nafn- togaða listamenn: Joan Baez, Roger McGuinn, Joni Mitchell, Arlo Guthr- ie, Mick Ronson, Ramblin’ Jack Ell- iott, T-Bone Burnett, Mick Ronson og ljóðskáldið Allen Ginsberg. Hóp- inn og ferðina kallaði hann Rolling Thunder Revue. Lagt var upp haust- ið 1975 og næsta árið fór í ferðir og tónleikahald að mestu, með smáfríi til að taka upp breiðskífu, Desire, sem kom út ári síðar og var vel tekið. Þessi tónleikaferð öll er af mörgum talin með hápunktunum á tónleika- ferli Dylans, enda má segja að á henni hafi hann sannað að hann hafði jafn mikið fram að færa og tíu árum fyrr þegar hann breytti gangi rokk- sögunnar. Eina sem til hefur verið skjalfest af þessari miklu ferð, sem var hljóðrituð og kvikmynduð í bak og fyrir, er tónleikaplatan Hard Rain, sem hljómar hreint ekki vel, og síðan myndskeið í langlokunni miklu Ren- aldo and Clara sem frumsýnd var 1978. Margar bootleg-útgáfur Til eru margar bootleg-útgáfur frá þessari tónleikaferð, með mjög mis- jöfnum hljómi, og á þeim má heyra að það var ýmislegt skemmtilegt í gangi sem ekki heyrist á Hard Rain og heyrt hef ég að það sé heldur ekki að sjá í Renaldo and Clara. Það hefur því lengi verið á óskalistanum að ein- hvern tímann myndu menn sýna þessum upptökum þann sóma að gefa út á almennilegan hátt og sjá: í vik- unni kom út fimmta bindi af Bootleg- útgáfuröð Dylans sem heitir einmitt Bob Dylan Live 1975. Á þessum disk eru 22 lög tekin upp á tónleikum í Worcester, Boston, Cambridge og Montreal. Skemmst er frá því að segja að þessi útgáfa er öll til mikillar fyrirmyndar, hljómur góð- ur og umbúnaður til fyrirmyndar, mikill bæklingur með fjölda mynda fylgir og fyrsta skammti, að minnsta kosti, DVD-diskur með flutningi á tveimur laganna í mynd og einu til í hljóm. Mest er þó um vert að disk- urinn sannar það sem menn hafa haldið fram áratugum saman; Rolling Thunder-ævintýri Bobs Dylans er með því besta sem hann hefur gert. POSSESSION GWYNETH PALTROW AARON ECHART JENNIFER EHLE JEREMY NORTHAM Sýnd kl. 8 og 10.05. Mán kl. 5.50, 8 og 10.05. Sýnd sd kl. 2 og 4. Sýnd sd kl. 2 ísl tal. 1/2MBL 1/2Roger Ebert  Roger Ebert 1/2 Kvikmyndir.is  DV Y F I R 5 0 . 0 0 0 G E S T I R Á 2 2 D Ö G U M 1/2HL MBL  RadíóX Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem kemur öllum í jólaskap Jólamyndin 2002 Sýnd kl. 1.45, 3.50, 5.55, 8 og 10.10. Mán kl. 5.55, 8 og 10.10. Sýnd kl. 2, 5 og 8. Mán kl. 5 og 8. Kvimyndir.is  HL. MBL  SK RadíóX  ÓHT Rás2  HK DV 1/2 Kvikmyndir.com TILRAUNIN Sýnd kl. 10.05. Ísl. texti. B.i. 16. Jólamynd film-undar FRUMSÝNING Sýnd kl. 6, 8 og 10. H.K. DVGH. Vikan SV. MBL GH. Kvimyndir.com B.Ö.S. Fréttablaðið Tónlist eftir Sigur Rós. 8 Eddu verðlaun Yfir 54.000 áhorfendur WITH ENGLIS H SUB - TITLES AT 5.5 0 SÝND Í STÓ RA SALN UM KL. 8 Sýnd kl. 3.45, 5.50 með enskum texta og 8. Mán kl. 5.50 og 8. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán kl. 4 og 6. Vit 461 Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 4. Ísl tal Vit 448 KRINGLA Sýnd kl. 12.40, 2.40, 4.45, 6.50, 9 og 11.10. Mán kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10.Vit 485 Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára. Vit 487 ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI Kvikmyndir.is Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem Jólamyndin 2002 Kvimyndir.is Y F I R 5 0 . 0 0 0 G E S T I R Á 2 2 E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Í ÁLFABAKKA KL. 2, 6 og 9.15. B. I. 16. VIT 469. Það voru 1200 manns um borð þegar það týndist fyrir 40 árum.. nú er það komið aftur til að hrella þig! KRINGLA Flott ... LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900 www.michelsen.biz Kíktu á úrvalið á Mörkinni 3, sími 568 7477 www.virka.is Opið til kl. 18 alla daga nema sun. til jóla, Þorláksmessu 10-20, aðfangadag 10-12. Fléttaðar handavinnukörfur frá Thimbleberries Moggabúðin Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.