Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ALFREÐ Þorsteinsson segir að ekki komi til greina að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri bjóði sig fram til Alþingis um leið og hún gegni embætti borgarstjóra. – Er yfirlýsingin sem þið kynntuð í gær ekki afarkostir af ykkar hálfu? „Þetta er mjög skýr yfirlýsing um hvernig við lítum á málin. Og það á ekki að fara á milli mála hvað í henni felst. Við teljum að það samrýmist ekki stöðu borgar- stjóra að fara í framboð fyrir einn af þessum þremur flokkum sem eru í þessu samstarfi.“ – Telur þú það alls ekki koma til greina? „Nei, ég tel að það komi alls ekki til greina. Hins vegar er henni frjálst að gera það sem hún vill. En helst vildi ég að hún héldi áfram sem borgarstjóri en hún hlýtur að ráða sjálf för.“ – Ef Ingibjörg Sólrún hættir ekki við að bjóða sig fram til Alþingis, munið þið fella hana sem borgarstjóra? „Það sem er framundan núna eru viðræður á milli okkar og annarra aðila í Reykjavíkur- listasamstarfinu um hvernig farið verður með þetta borgarstjóraembætti, hver muni skipa það. Málið snýst um hvort Ingibjörg Sólrún dragi til baka yfirlýsingar um að hún ætli í framboð. Mér finnst of snemmt að tala um að fella. Fyrst leitum við að því hvort ekki finnist sam- eiginleg lausn innan R- listans.“ – Ef Ingibjörg Sólrún hættir við þingframboð, mun hún áfram njóta ykkar trausts sem borgarstjóri? „Það held ég.“ – Hvað um afstöðu framsóknarmanna? „Auðvitað hefur orðið viss trúnaðarbrestur en ég hef hins vegar ekki áhyggjur af því, að ef hún dregur yfirlýsinguna til baka, að það sé ekki hægt að vinna það upp aftur.“ – Þarf að semja upp á nýtt um skipan í borgarstjórn? Hvenær þarf því að vera lokið? „Við leggjum áherslu á að þetta geti gerst sem fyrst. Að vísu fara nú í hönd jól og áramót sem er kannski ekki besti tíminn til að vinna að svona málum. En það er stefnt að því að þessu ljúki sem allra fyrst.“ – Hver væri nýtt borgarstjóraefni ef Ingi- björg Sólrún Gísladóttir lætur af störfum sem borgarstjóri? „Það er alltof snemmt að segja til um það.“ – Þyrfti borgarstjóraefnið að koma úr röðum borgarfulltrúa? „Það er allt til í því.“ – Kemur til greina að þú óskir eftir því að taka við embætti borgarstjóra? „Ég hef aldrei sýnt því neinn áhuga að verða borgarstjóri.“ – Sjáið þið möguleika á myndun nýs meiri- hluta í borgarstjórn ef ekki næst samkomulag innan Reykjavíkurlistans? „Við höfum ekki hugsað svo langt.“ – Við hverja var yfirlýsingin rædd áður en hún var kynnt í gær? „Við vorum fyrst og fremst í góðu sambandi við formann flokksins og aðila innan stjórna [framsóknar]félaganna hér í Reykjavík.“ Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins Þingframboðið kemur ekki til greina Alfreð Þorsteinsson ÁRNI Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstri- hreyfingarinnar–græns framboðs, sem var í fyrsta sæti R-listans í kosningunum í vor, sagði í samtali við Morgunblaðið að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefði brugðist trúnaði með því að lýsa því yfir að hún ætlaði að bjóða sig fram til Alþingis. Það tæki tíma að byggja slíkt traust upp aftur. – Er yfirlýsingin sem þið kynntuð í gær ekki afarkostir af ykkar hálfu? „Við höfum einfaldlega sagt að við teljum að það sé ekki samrýmanlegt að vera í framboði fyrir Samfylkinguna og vera áfram borg- arstjóri í þessu kosningabandalagi hér. Það er mjög skýr afstaða okkar. Við munum að sjálf- sögðu ræða þetta við borgarstjóra og ég vænti þess að hún verði sammála okkur þegar við höfum farið yfir málið.“ – Ef Ingibjörg Sólrún hættir ekki við að bjóða sig fram til Alþingis, munið þið fella hana sem borgarstjóra? „Það er ekki tímabært að svara slíkum spurningum.“ – Ef hún fellst ekki á að víkja hvaða ráðum getið þið beitt? Þarf að bera fram vantraust? „Það er auðvitað þannig að borgarstjóri er kosinn af borgarstjórn til loka kjörtímabilsins og ef það á að gera breytingar á því, þá verður hann ann- aðhvort að segja af sér sjálf- ur eða borgarstjórn að ákveða eitthvað annað eða samþykkja vantraust.“ – Ef Ingibjörg Sólrún hættir við þingframboð, mun hún áfram njóta ykkar trausts sem borgarstjóri? „Við þurfum auðvitað að fara yfir þessi mál í okkar röðum og einnig í samtölum við hana. Við höfum sagt að það hafi orðið trúnaðarbrestur og menn þurfa tíma til að ræða hvort hægt sé að byggja slíkt upp á nýjan leik.“ – Þarf að semja upp á nýtt um skipan í borg- arstjórn? Hvenær þarf því að vera lokið? „Við höfum óskað eftir því við Samfylk- inguna að það fari fram viðræður um þessar breyttu forsendur sem við teljum að séu varð- andi samstarfsyfirlýsingu þessara þriggja flokka. Það þýðir að það þarf að semja um ákveðna hluti upp á nýtt. Jafnframt höfum við lagt áherslu á að málefnasamningur flokkanna stendur fyrir sínu og það er ekkert tilefni til að taka hann til endurskoðunar. Það eru engir tímafrestir settir.“ – Hver væri nýtt borgarstjórnarefni ef Ingi- björg Sólrún Gísladóttir lætur af störfum sem borgarstjóri? „Það eru engar bollaleggingar í þeim efn- um.“ – Sjáið þið möguleika á myndun nýs meiri- hluta í borgarstjórn ef ekki næst samkomulag innan Reykjavíkurlistans? „Við lítum svo á að þessi meirihluti sé ennþá við lýði. Á því hefur ekki orðið breyting. Hins vegar hefur orðið breyting á forsendum sam- starfssamnings sem kallar á endurskoðun og við höfum óskað eftir því. Fyrr en við höfum látið reyna á það er ekki tímabært að tjá sig frekar um það.“ – Við hverja var yfirlýsingin rædd áður en hún var kynnt í gær? „Í okkar röðum ræddum við þetta við stjórn félagsins í Reykjavík. Við fulltrúa VG á Reykjavíkurlistanum, þingmenn flokksins í Reykjavík, formenn og varaformann. Þetta var niðurstaðan af þeim fundi.“ Árni Þór Sigurðsson, Vinstrihreyfingunni – grænu framboði Trúnaðarbrestur með þingframboði Árni Þór Sigurðsson ÓLAFUR F. Magnússon, borgarfulltrúi F- lista frjálslyndra og óháðra, segir það furðulega stöðu að Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri hafi lýst yfir þing- framboði án þess að hafa tryggt nægilegan stuðning fyrir því meðal samstarfsflokkanna í Reykjavíkurlista. Um pólitísk mistök sé að ræða af hálfu Ingibjargar og það hafi komið sér á óvart þegar um jafnreyndan og hæfan stjórnmálamann sé að ræða. Hún hafi of- metið styrk sinn innan R-listans. „Mér virðist þetta vera óafturkræf ákvörðun hjá henni. Ef framsóknarmenn og Vinstri grænir standa við það að þeir ætli að endurskoða sam- komulagið um borg- arstjóraefni R-listans þá er það alvarlegt mál fyrir listann og í raun fyrir borgarstjórn á mjög þýð- ingarmiklum tímamótum. Mikilvæg mál brenna á borginni um þessar mund- ir, ekki síst fjárhagsáætl- unin og orkumálin, og sér- staklega ákvarðanataka um þátttökuna í Kárahnjúkavirkjun. Á slík- um tímum er mikilvægt að forystumaður borgarstjórnar haldi fast um stjórn- artaumana en sé ekki valtur í sessi, eins og Ingibjörg Sólrún er greinilega orðin nú sem borgarstjóri“ segir Ólafur. Hann telur að það komi ekki til greina fyrir Ingibjörgu að fara í þingframboð nema að gera það með meira afgerandi hætti en að vera í baráttu- eða varasæti í Reykjavík. Fyrst hún sé að fórna jafnvel borgarstjórastólnum verði hún að stíga skrefið til fulls og fara í forystusæti í lands- málum sem leiðtogi Samfylkingarinnar. Að öðrum kosti sé hún að fórna allt of miklu fyrir allt of lítið. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins Pólitísk mistök Ingibjargar Ólafur F. Magnússon STEFÁN Jón Hafstein, formaður framkvæmda- stjórnar Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi í Reykja- vík, segir að margt í und- irbúningi Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur fyrir yfirlýsingu hennar um þingframboð hefði þolað betri undirbúning. Hið sama eigi við um yfirlýs- ingu borgarfulltrúa Fram- sóknarflokksins og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. – Varst þú með í ráðum varðandi ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur? „Hún tók þessa ákvörðun án mín, ef svo má segja. Ég vissi af tilboði uppstillingarnefndar til hennar fyrir nokkrum dögum. Ég var ekki með í ráðum hvernig þetta bar að eða hvað hún sagði og gerði. Hún kynnti málið á fundi borg- armálaráðs Reykjavíkurlistans. Þar var ákvörðunin kynnt og ég hafði ekki heyrt um hana fyrr.“ – Var einhver innan Samfylkingarinnar í borgarstjórn með í ráðum? „Nei. Ekki svo ég viti til.“ – Sýnir ekki þessi yfirlýsing borgarfulltrúa Framsóknarflokksins og VG að Ingibjörg Sól- rún hefur hlaupið á sig? „Ég held að við verðum að spyrja að leiks- lokum í þeim efnum. Það er skiljanlegt að sam- starfsmenn mínir í Reykjavíkurlistanum kom- ist í uppnám út af þessu því sjálfsagt hafa margir talið að þessi umræða væri frá. En ég held að menn eigi ekki að gera neitt í uppnámi heldur leyfa öldunum að lægja. Taka síðan málið og ræða yfirvegað þegar bráir af mönn- um.“ – Var yfirlýsing borgarfulltrúa Framsókn- arflokksins og VG ótímabær að þínu mati? „Ég held að þeir hefðu átt að gefa sér aðeins meiri tíma til að ræða málin. Það er alltaf hollt. Af sömu ástæðu hef ég kosið að vera ekki með yfirlýsingar um málið.“ – Hvað finnst þér um yfirlýsingar Ingibjarg- ar Sólrúnar um að hún ætli að sitja áfram sem borgarstjóri og líka fara í framboð? „Hún getur ekki sagt að hún ætli að sitja áfram – hún gefur kost á sér áfram. Ég hef tal- ið að það sé skiljanlegt að hún vilji fara inn í landsmálin undir þeim kringumstæðum sem nú eru og stimpla inn hagsmuni höfuðborg- arinnar og tala fyrir þeim í kosningabaráttu og Alþingi. Það yrði vissulega vandasöm staða en alls ekki óviðráðanleg að mínu mati.“ – Býður Samfylkingin fram arftaka Ingi- bjargar Sólrúnar ef hún hættir sem borg- arstjóri? „Það er ekkert slíkt í umræðunni. Hún er borgarstjóri og við viljum að hún verði það áfram.“ – Ef samstarfið innan Reykjavíkurlistans brestur, hvaða möguleika sérð þú á breyttu meirihlutasamstarfi í borgarstjórninni? „Ég vek athygli á því að það er enginn mál- efnalegur ágreiningur milli þeirra sem nú starfa í borgarstjórnarmeirihlutanum. Það er enginn persónulegur ágreiningur heldur. Þannig að þetta snýst einvörðungu um hvort Ingibjörg Sólrún megi gefa kost á sér í fimmta sætið hjá Samfylkingunni í einu kjördæmi. Það er eina vandamálið sem Reykjavíkurlist- inn hefur við að glíma. Allt annað er í mjög góðu horfi. Ég tel að þeir hagsmunir séu miklu meiri að halda áfram samstarfinu, heldur en hitt.“ – Hvað finnst þér um yfirlýsingu borgarfull- trúa Framsóknar og VG? „Það má kannski segja að margt í þessu hefði þolað vandaðri undirbúning. Bæði hvern- ig það hvernig þetta bar að hjá Ingibjörgu og einnig hvernig þeir bregðast við. Það er mitt álit. Menn hefðu átt að gefa sér aðeins meiri tíma og ræða saman. Það er það sem við ætlum að gera núna. Ég tel að þeir hagsmunir að halda saman Reykjavíkurlistanum, sá trúverð- ugleiki sem okkur ber að standa vörð um fyrir kjósendur, hann sé miklu meira virði en allt annað.“ Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi og for- maður framkvæmda- stjórnar Samfylkingar Margt hefði þolað vand- aðri undir- búning Stefán Jón Hafstein Morgunblaðið/Jim Smart Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Vinstrihreyfingarinnar gerðu fjölmiðlum í gær grein fyrir afstöðu sinni til framboðs borgarstjóra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.