Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 22
ERLENT 22 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                                                                                                  Jólaþjónusta starfsfólks Jól í görðunum Á jólum kemur fjöldi fólks í Fossvogskirkjugarð, Gufuneskirkjugarð og Suðurgötugarð til þess að huga að leiðum ástvina sinna. Við munum leitast við að leiðbeina ykkur eftir bestu getu. Hægt er að nálgast upplýsingar um staðsetningu leiða á vefnum gardur.is Þjónustusímar 585 2700 og 585 2770 Aðalskrifstofan í Fossvogi, sími 585 2700 og skrifstofan í Gufunesi, sími 585 2770, eru opnar alla virka daga frá kl. 8.30 til 16.00. Skrifstofurnar eru opnar á Þorláksmessu og aðfangadag frá kl. 9.00 til 15.00. Þar veitum við upplýsingar, gefum leiðbeiningar um aðhlynningu leiða og afhendum ratkort ef þörf krefur. Þjónusta á Þorláksmessu og aðfangadag Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli kl. 10:00 og 15:00, verða Fossvogskirkja og þjónustuhús í Gufuneskirkjugarði opin fyrir þá sem vilja staldra við í dagsins önn. Á aðfangadag munu prestar verða til staðar í Fossvogskirkju. Starfsmenn Kirkjugarðanna verða á vettvangi í görðunum báða þessa daga og taka á móti ykkur og leiðbeina frá kl. 9:00 til 15:00. Tilkynning frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma Gleðilega jólahátíð Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma www.kirkjugardar.is                    DÓMSTÓLL í Bandaríkjunum lækkaði á mið- vikudaginn 28 milljarða dollara refsigreiðslu sem tóbaksfyrirtækið Philip Morris hafði verið dæmt til að greiða fyrrverandi reykingamanni í 28 millj- ónir dollara. Dómstóllinn, hæstiréttur Kaliforníu- ríkis, taldi 28 milljarða vera óhóflega mikið, en það er hæsta refsigreiðsla sem tóbaksfyrirtæki hefur nokkurn tíma verið dæmt til að greiða. Í úrskurði dómstólsins segir að refsigreiðslan, sem kviðdómur ákvarðaði í byrjun október, sé „lagaleg óhófleg“ þar sem hún leiði til of mikils ójafnvægis milli refsigreiðslu og skaðabóta- greiðslu. Eftir að hafa vegið málið og metið komst rétturinn að því að 28 milljónir séu nær lagi sem refsigreiðslur. Það var Betty Bullock, 64 ára lungnakrabba- meinssjúklingur, sem höfðaði málið á þeim for- sendum að hún hefði látið blekkjast af glæsimynd- um í auglýsingum tóbaksfyrirtækjanna. Bullock byrjaði að reykja er hún var 17 ára. Kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að Philip Morris hefði logið og ekki veitt nægar upplýsingar um skað- semi reykinga. Þótt hæstirétturinn hafi komist að þeirri nið- urstöðu að refsigreiðslan væri of há samsinnti rétturinn því að Philip Morris hefði komið illa fram. „Kviðdómurinn komst að þeirri niðurstöðu, á grundvelli gildra sönnunargagna, að framferði Philip Morris hefði verið svívirðilegt og að nauð- synlegt væri að krefjast umtalsverðrar refsi- greiðslu til að hafa áhrif á sakborninginn.“ Kveðst rétturinn að þessu leyti sammála kviðdómnum. Málshöfðandi hefði „fært sönnur á“ að Philip Morris hefði „statt og stöðugt logið að viðskipta- vinum sínum“ er fyrirtækið hefði fullyrt að „engin vissa væri fyrir því að vörur þess væru skaðvaldur eða ávanabindandi“. Ætla að áfrýja Verjendur Philip Morris kváðust ósáttir við nið- urstöðu hæstaréttar og boðuðu áfrýjun. Fyrirtæk- ið hafði krafist þess að hæstiréttur ógilti með öllu úrskurð kviðdómsins og segði að ný réttarhöld skyldu fara fram. Lögmaður Bullocks, Michael Piuze, lýsti einnig vonbrigðum sínum og sagði að 28 milljónir dollara samsvöruðu einungis tveggja daga sígarettusölu hjá Philip Morris. „Þetta er ekki raunveruleg refsing fyrir Philip Morris.“ Refsigreiðsla lækkuð Los Angeles. AFP. SJÖTÍU og tvö prósent Pól- verja styðja inngöngu í Evr- ópusambandið á forsendum þeirra samninga sem gerðir voru á leiðtogafundi ESB í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. Þetta kemur fram í nið- urstöðum skoðanakönnunar sem kynnt var í gær. 14% Pól- verja eru andsnúnir skilmálum samkomulagsins. 53% aðspurðra í könnuninni sögðust ætla að taka þátt í þjóð- aratkvæðagreiðslu vegna aðild- ar Póllands að ESB en at- kvæðagreiðslan er áætluð 8. júní á næsta ári. Af þeim sögð- ust 82% ætla að segja já, 8% ætla að segja nei og 10% voru óákveðnir. Niðurstaða at- kvæðagreiðslunnar verður þá aðeins bindandi ef meira en helmingur atkvæðisbærra manna tekur þátt. 120 m hár turn rís í Dublin HAFIST var handa við það í Dublin, höfuðborg Írlands, í gær að reisa risavaxinn turn í miðborginni en upphaflega átti hann að vera risinn fyrir árþús- undaskiptin fyrir tveimur ár- um. Turnspíran, sem um ræðir, verður um 120 metrar að hæð, gerð úr ryðfríu stáli, ein hæsta höggmynd í heimi hér. Turninn rís við enda O’Connell-strætis og er vonast til að búið verði að reisa meginhluta hans fyrir jól. Handtökur í Bretlandi og Frakklandi SJÖ menn af norður-afrískum uppruna voru handteknir í Ed- inborg og London í fyrradag og færðir til yfirheyrslu. Er þeim haldið í samræmi við tveggja ára gömul lög um baráttu gegn hryðjuverkum. Þrír mannanna voru handteknir í Edinborg og fjórir í London. Eru þeir allir á þrítugsaldri. Hefur ekkert ver- ið gefið upp um það, sem þeim er gefið að sök, en allir verða þeir hafðir í gæslu á leyndum stað í Skotlandi. Franska lögreglan handtók á þriðjudag fjóra múslima í París og fundust ýmis efni í fórum þeirra, sem unnt er að nota sem sprengiefni. Grunur leikur líka á, að þau hafi átt að nota í efna- vopnaárás og ekki síst vegna þess, að mennirnir voru einnig með sérstakan búning til að verjast efna- og sýklavopna- árás. STUTT 72% Pól- verja hlynnt ESB-aðild COLIN Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kvaðst á miðviku- daginn vonsvikinn vegna orða sem Trent Lott, leiðtogi repúblikana í öldungadeild þingsins, lét falla um aðskilnað hvítra og svarta. „Ég harma þær skoðanir sem búa að baki þessum orðum [Lotts],“ sagði Powell, sem er hæst setti blökku- maðurinn í bandaríska stjórnkerf- inu í sögu landsins. Powell, líkt og George W. Bush forseti, vildi ekki krefjast þess op- inberlega að Lott segði af sér. Bush hefur skammað Lott fyrir það sem hann sagði. Lincoln Chafee varð á miðvikudaginn fyrstur öld- ungadeildarþingmanna repúblik- ana til að lýsa því yfir að hann vildi að Lott segði af sér. Bróðir Bush forseta, Jeb Bush, ríkisstjóri í Flór- ída, hefur einnig sagt að tími sé kominn til breytinga. Það sem varð til þess að Lott berst nú fyrir pólitískri tilveru sinni voru þau orð, sem hann lét falla í Mississippi, að hann væri „hreyk- inn“ af forsetaframboði Stroms Thurmonds öldungadeildarþing- manns 1948, sem lagði áherslu á að- skilnað svartra og hvítra. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði nú í vikunni töldu 47% aðspurðra að Lott ætti að segja af sér og aðeins 30% studdu hann. Fjörtíu og fimm prósent sögðust telja að hann væri haldinn hleypi- dómum í garð svartra og 30% kváð- ust ekki telja svo vera. En ekki lítur út fyrir að málið hafi haft slæm áhrif fyrir Bush forseta. Aðeins 16% kváðust telja Bush haldinn hleypidómum og 22% töldu að flest- um repúblikönum á þinginu væri uppsigað við svarta. Powell harmar orð Trents Lotts Washington. AFP. Reuters Trent Lott ræðir við fréttamenn í Mississippi. Hann hefur beðist afsökunar á orðum sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.