Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 31 Snorrabraut 38, sími 562 4362 Kápur stuttar og síðar Fullt af tilboðum Ullarjakkar frá kr. 7.900 Mokkakápur frá kr. 9.990 Yfirstærðir Komið og skoðið úrvalið Mikið úrval af fallegum jóla- gjöfum smáum og stórum Gleðileg jól Gjafa gallery Frakkastíg 12 sími 511 2760 Sendum í póstkröfu Jólagjöfina finnið þið í Eldavél með búsáhöldum kr. 4.985 Laugavegi 25 551 1135 i Póstsendum á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050 Glæsilegt úrval af vönduðum sængurfatnaði fyrir alla fjölskylduna Laugavegi 54, sími 552 5201             ÓL Í FLASH Hálfsíðar ullarkápur áður 12.990 nú 9.990 Stærðir 36-48 Opið til kl. 22.00 alla daga Jólastemmningin er á Laugavegi og nágrenni GAMANMYNDIN The Great Dictator eða Hinn mikli einræð- isherra er sígilt meistaraverk Charl- ies Chaplin. Chaplin gerði The Great Dictator árið 1940 og leikur hann þar sjálfur aðalhlutverkin tvö, ein- ræðisherrann Adenoid Hynkel, sem er lítt dulbúin skopstæling á Hitler, og rakara einn af gyðingaættum sem missti minnið í fyrri heimsstyrjöld- inni og snýr heim sér algjörlega ómeðvitandi um veldi nasista og of- sóknirnar á hendur gyðingum. Fjör færist í leikinn þegar sá síðarnefndi er tekinn í misgripum fyrir þann fyrrnefnda. Myndin hefur að undanförnu ver- ið sýnd víða um lönd og verður nú meðal jólamynda hérlendis í nýrri útgáfu með endurbættu hljóði og auknum myndgæðum. Myndin er lofsöngur Chaplins til lýðræðisins og beitt ádeila á einræð- ið þar sem hinn þýski Hitler og hans stefna er dregin sundur og saman í háði. Sjálfur er Chaplin bæði leik- stjóri og handritshöfundur mynd- arinnar auk þess sem hann leikur aðalhlutverkið í þessu meistaraverki sínu sem var reyndar síðasta myndin sem hann lék í. Myndin hefst á atrið- um úr stríðinu þar sem einn hermaðurinn, rak- ari af gyðingaættum, bjástrar við stríðstól og sprengjur sem hann ræður ekkert við og beinast einna helst gegn honum sjálfum. Hann missir minnið og lendir í því að vera tek- inn í misgripum fyrir einræðisherr- ann Hynkel, eftir að hann hefur komið við í gettóinu og opnað gömlu rakarastofuna sína. Daglegu lífi fólksins í gettóinu er teflt á móti veruleikafirrtu lífi einræðisherrans og í lokaatriði myndarinnar flytur litli rakarinn, sem tekinn var í mis- gripum fyrir einræðisherrann, óðinn til lýðræðisins, sem á sér djúpar rætur í samtíðinni allri. Lofsöngur til lýðræðisins Háskólabíó frumsýnir The Great Dict- ator annan í jólum. Leikarar: Charles Chaplin, Jack Oakie, Henry Daniell, Reginald Gardiner, Billy Gilbert og Gracy Hayle. Hinn mikli einræðisherra er sígilt meistaraverk Charlies Chaplins. Myndin var gerð árið 1940. ÆVINTÝRAMYNDIN Treasure Planet eða Fjársjóðaplánetan, sem frumsýnd verður um hátíðarnar, er teiknuð Disney-útgáfa af Treasure Island eftir Robert Louis Steven- son. Munurinn á þessari útgáfu og öllum hinum er að Treasure Planet gerist í geimnum með tilheyrandi geimverum og geimfurðum. Sagan segir frá Jim Hawkins og ferð hans umhverfis alheiminn sem káetudrengur um borð í risastóru og tignarlegu geimskipi. Hann hef- ur vingast við kokk skipsins, John Silver, sem er vélmenni, gæddur miklum persónutöfrum. Jim og hin- ir í áhöfninni þurfa að berjast við margar af hættunum í geimnum, svo sem sprengistjörnur, svarthol og grimma geimstorma. En einn daginn kemst Jim að því að vinur hans John Silver er í raun og veru slóttugur geimræningi með upp- reisn í huga. Höfundur handrits- ins er Barry Johnson, en um leikstjórnina sáu Ron Clements og John Musker. Aðal- hlutverkin eru í hönd- um Austin Majors, Joseph Gordon-Levitt, David Hyde Pierce, Mone Marshall, Brian Murray, Johnny Rzeznik, Martin Short og Emma Thompson. Íslenskar leikraddir eiga m.a. Atli Rafn Sigurðsson, Róbert Gísla- son, Pétur Einarsson, Þórunn Lár- usdóttir, Þór Tulinius, Þórhallur Sigurðsson, Nanna Kristín Magn- úsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Pálmi Gestsson, Rúrik Haraldsson, Arnar Jónsson og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Þýðing var í hönd- um Harald G. Haralds, leikstjórn annaðist Júlíus Agnarsson og Páll Rósinkrans sá um söng. Í grimmri geimveröld Teiknimyndin Treasure Planet gerist í geimnum með tilheyrandi geimverum og geimfurðum. Sambíóin í Reykjavík, Keflavík og Akureyri, Háskólabíó og Laugarásbíó frumsýna Treasure Planet annan í jólum. Hanna Dóra Sturludóttir – Sönglög – Lieder nefnist ný geisla- plata sem hefur að geyma 20 ís- lensk og erlend lög í flutningi samnefndrar sópr- ansöngkonu. Undirleikari á píanó er Steinunn Birna Ragnarsdóttir. Meðal laga er Þú eina hjartans yndið mitt og Erla eftir Sigvalda Kaldalóns, Lindin og Myndin þín, eftir Eyþór Stef- ánsson, Draumalandið og Gígjan eftir Sigfús Einarsson, Hanna, eftir Guð- bjart Björgvinsson, Ég vaki eftir Hall- dór Þórðaron, Þú ert eftir Þórarin Guð- mundsson, Það kom söngfugl að sunnan eftir Atla Heimi Sveinsson. Meðal erlenda höfunda eru Grieg, Richard Strauss og Brahms. Hanna Dóra hefur sungið mörg af helstu hlutverkum óperubók- menntanna víðs vegar í Þýskalandi. Útgefandi er Hanna Dóra Sturlu- dóttir. Upptökur fóru fram í Hásölum árið 2000 og 2002. Hljóðritun: tækni- rekstrardeild Ríkisútvarpsins. Sönglög Sálmar í gleði nefnist nýr geisla- diskur þar sem Schola cantorum syngur sálma úr sálmabók ís- lensku þjóðkirkj- unnar. Stjórnandi er Hörður Áskels- son. Hörður og Kári Þormar leika einnig á orgel, Martial Nardeau á þverflautu og Ásgeir Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson á trompet. Sálmarnir eru 27 að tölu, allir þekktir og teljast til ástsælustu sálma í sálmaarfi okkar Íslendinga. Schola cantorum var stofnaður árið 1996 af stjórnanda sínum Herði Ás- kelssyni. Í kórnum eru 18 söngvarar, allir með mikla söngreynslu og tónlist- arnám að baki. Kórinn hefur með reglubundnum hætti haldið tónleika í Hallgrímskirkju. Kórinn hefur áður gef- ið út tvo geisladiska. Útgefandi er Skálholtsútgáfan. Upptökur fóru fram í Digraneskirkju í október sl. Upptöku annaðist Staf- ræna hljóðupptökufélagið – Sveinn Kjartansson. Verð: 2.400 kr. Sálmar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.