Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 49 og Ísafjarðar. En við spjölluðum sam- an í síma og það var svo gaman að setjast niður og pára nokkrar línur til að senda til „ömmu löngu“ ásamt myndum af barnabarnabörnunum. Yngstu afkomendurnir hennar ömmu fengu ekki að hitta hana í þess- ari jarðvist. En Daníel Gunnar og Ás- dís Soffía og Helgi stóri bróðir munu um ókomin ár heyra sögur af sum- ardvölinni hennar mömmu hjá ömmu á Flateyri og borða vínarbrauð og snúða í „drekkutíma“ eftir uppskrift- unum hennar. Núna er amma langa komin til Guðs og englanna og Ár- manns og ömmu löngulöngu Guðrún- ar. Ég veit að saman munu þau vaka yfir öllum litlu englunum hennar ömmu hér á jörðu niðri þessi jól. Íris Erlingsdóttir. Elskuleg móðursystir mín, Magga frænka, er fallin frá, ég held að hún hafi verið farin að bíða eftir að „Lykla Pétur“ kæmi og opnaði fyrir henni, þreytt og lúin var hún orðin að und- anförnu. Þegar við fluttumst til Flat- eyrar úr sveitinni okkar, í næsta hús við Möggu frænku og Gumma frænda, var ég sjö ára gömul, ferðir mínar yfir garðana okkar til þeirra voru nokkuð margar. Á þessum árs- tíma var sérstaklega líflegt, börnin þeirra komin heim í jólafrí og þá beið ég ekki með mínar heimsóknir því auðvitað mátti ekkert framhjá mér fara. Um leið og ég kom í dyrnar á bakvið var vel tekið á móti mér, Gummi fór í kjallarann að sækja app- elsín, hann vissi að mér þótti það best, Magga kom með smákökur og síðan var spilað, mikið talað og hlegið. Magga frænka var yndisleg kona sem vissi um hvað lífið snerist, minningar og myndir um hana koma upp í huga minn núna, hún með garðhanskana og fötu að vinna í garðinum eða skúr- ingagræjur að þrífa skólann eða frystihúshúfu á höfðinu á leið í vinnu. Það reykir enginn eins og hún gerði, það var alveg sérstök athöfn. Fyrir nokkrum árum sagði mamma mér að hún hefði gefið Möggu sígarettupakka í einhverja tækifærisgjöf og ég varð mjög hissa en ákvað að segja ekkert um það en mamma sá svipinn á mér og var fljót að segja: „Hún notar þetta,“ enda gef- ur mamma alltaf nytsamar gjafir. Umhyggja mömmu fyrir systrum sínum hefur verið einstök, stundum hefur mér fundist hún vera ein af hjúkrunarkonunum á Hlíf en ekki einn af íbúum Hlífar. Ég vil þakka kærri frænku minni þá góðvild og gæsku sem hún sýndi mér og orð hennar: „Ó, hvað þetta er fínt hjá þér,“ eru á við heila bók af þakkarorð- um, bara af því hvernig hún sagði þau. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki er gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnasta þér. (Ingibj. Sig.) Elsku Villa mín, þú varst mömmu þinni yndisleg í hennar veikindum og óeigingjörn á tímann þinn sem þú gafst henni, heimsóttir hana daglega. Fyrir það vill mamma mín þakka þér. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég til föðurbróður míns Gumma, barna þeirra og fjölskyldna. Blessuð sé minning hennar. Álfhildur Jónsdóttir og fjölskylda. Elsku amma. Þegar við fæðumst á þessa jörð nakin og hjálparlaus, er að- eins eitt sem er víst, að einn daginn verðum við tekin aftur. Guð sækir alltaf englana sína. Aðfaranótt mið- vikudags þann 11. desember kom hann og sótti þig. Þetta er löng för og langt þangað til við sjáumst aftur sem gerir það svo erfitt að kveðja. Það er af mörgu að taka þegar við hugsum til þín, enda hefur þú verið hluti af lífi okkar svo lengi sem við munum. Okkar fyrstu minningar um þig er- um við ekki eldri en 3-4 ára, þegar þú og afi komuð í heimsókn á Eyrar- bakka, þá voru nú lætin og ekki minnst þegar dregið var upp eitthvert góðgæti, það vantaði aldrei. Svo flutt- umst við til Ísafjarðar og þá urðu fundirnir ekki eins tíðir. Gleðin var ekki minni þegar við systur fengum að fara í heimsókn til ömmu og afa í Hveragerði, þær eru óteljandi minn- ingarnar sem við eigum þaðan, það væri efni í heila bók. Þau voru mörg prakkarastrikin og þegar við komum heim eftir erfiðan dag þá beiðst þú alltaf eftir okkur með opna arma og eitthvert heimabakað góðgæti, sem var að sjálfsögðu vel þegið enda í miklu uppáhaldi. Svo líða árin og maður verður eldri og vitrari og einn daginn ert þú ekki bara amma sem bakar góðar kökur og kyssir á bágtið, heldur einnig góð- ur vinur og alveg frábær hlustandi. Það var svo gaman að segja þér frá. Þú hlustaðir með miklum áhuga og svo var hlegið innilega eftir á. Ekki voru þínar sögur leiðinlegri. Það var ekki erfitt að vinna upp kynslóðam- uninn þegar við systur sátum með þér við eldhúsborðið í Stórholtinu þar sem þú sast ósjaldan og lagðir kapal, enda voru spilin þín alltaf slitin, jafn- vel þó að þú fengir alltaf ný spil í jóla- gjöf frá afa á hverju ári. Eitt var þó alltaf víst, þegar farið var í heimsókn til þín að við fórum aldrei svangar heim. Það tókst þú ekki í mál. Það er einnig þér að þakka að okkur systrum var sjaldan kalt á tánum yfir veturinn því þú sást alltaf til þess að prjónað væri nóg af ull- arsokkum í öllum regnbogans litum. Ekki var heldur sparað á hrósið þegar þú varst annars vegar. Það skipti ekki máli hversu oft á dag við hittum þig, þú gafst okkur alltaf koss og lést okkur vita hversu stolt þú vær- ir af okkur. Elsku amma, við vitum að þú hefur það gott þar sem þú ert núna, dans- andi á skýjunum með öllum hinum englunum. Þó að þú sért ekki meðal okkar lengur munt þú alltaf lifa í hjörtum okkar. Einn daginn munum við sjá þig aftur. Við munum alltaf elska þig. Ástarkveðja. Alda og Brynja. Elsku amma, margar góðar minn- ingar koma upp í huga okkar þegar við hugsum til baka. Allar næturnar sem við systurnar gistum hjá ykkur afa, þá varstu alltaf svo góð við okkur. Þér fannst gaman að snúast í kring- um okkur, varst alltaf tilbúin með smákökur og mjólk fyrir okkur þegar við vöknuðum og þá var gott að sitja hjá þér við eldhúsborðið og hlusta á allar sögurnar sem þú hafðir að segja frá því þegar þú varst ung. Alltaf áttir þú líka eitthvað gott í skápnum fyrir ömmubörnin þín þegar eitthvað bját- aði á. Það verða tómleg jól án þín, við vorum vön að borða saman á Þorláks- messu og jóladag á meðan heilsa þín leyfði. Þó að sorglegt sé að kveðja þig vit- um við að þú ert komin í betri heim þar sem þú getur stigið dans með Ár- manni frænda eins og þú hafðir talað um þegar við heimsóttum þig á sjúkrahúsið. Núna færðu hvíldina góðu sem þú varst svo lengi búin að þrá. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, augun spyrja eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil. Hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, Hann vill fá að hjúfra sig að hennar brjósti sætt og rótt. Amma er dáin – amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann, lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir – amma kyssir undurblítt á kollinn hans. Breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum.) Við þökkum þér, elsku amma, fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og biðjum guð að geyma þig. Þínar dótturdætur Edda Rún og Drífa Hrund. Það eru rúmlega tuttugu og fimm ár síðan að ég dvaldi sumarlangt hjá ömmu og afa á Flateyri. Þessi tími kemur fyrst upp í huga mér þegar ég fer að minnast þín, elsku amma. Þetta var dýrmætur og lærdómsríkur tími, sem hefur skilið eftir sig spor sem hafa fylgt mér alla tíð síðan. Ég lærði af þér að virkja þann mikla kraft og eldmóð sem býr innra með okkur öll- um. Þessi kraftur sem þú hafðir var alveg ótrúlegur og mér verður oft hugsað til þess hvort klukkan hafi gengið á öðrum hraða hjá þér. Við vorum þrír karlmenn á heim- ilinu. Venjulegur dagur gekk þannig fyrir sig að meðan á morgunverði stóð gekkst þú frá nesti fyrir allan hópinn, auk þess að útbúa morgunmat og hafa þig til í vinnu sjálf. Unnið var fram að hádegi og þá komum við öll í hádegismat. Karlarnir settust við borðið og ræddu heimsmálin, þú sem varst líka að koma úr vinnu eldaðir heita máltíð, lagðir á borð, hrærðir í eina köku eða tvær, útbjóst nýtt nesti fyrir allan hópinn og náðir oft að halla þér í fimm mínútur áður en haldið var til vinnu á ný. Á hverju kvöldi var síð- an sest að kaffiborði sem svignaði undan kökum og kræsingum sem þú hafði af útbúið af svo einstakri lagni. Ég horfði oft á þig, án þess þó að detta í hug að rétta þér hjálparhönd og undraðist hvernig í ósköpunum þú næðir að afkasta svona miklu á þess- um stutta tíma. Það sem margir eyða heilmiklum tíma og peningum í að finna, hafðir þú svo sterkt í þér, eld- móð og kraft til að koma hlutunum í verk. Það var sá lærdómur sem ég tók með mér eftir þessa dvöl hjá þér og hef átt alla tíð síðan. Elsku amma, þú skilaðir þínu lífs- starfi með miklum sóma og skilur eft- ir þig góðar minningar og mikinn lær- dóm, sem er okkar hlutverk að miðla áfram til næstu kynslóðar. Nú hefur þú öðlast hvíld frá þessari vist, en ég veit að borðin munu svigna af kræs- ingum á hverju kvöldi þarna uppi. Sigurður Kristinn Erlingsson. Elsku amma. Komið er að kveðju- stund. Í huga mínum hrannast minn- ingarnar upp. Minnisstæð eru sum- arferðalögin með foreldrum mínum og systkinum vestur á Flateyri. Í huga barnsins voru þetta miklar æv- intýraferðir og alltaf mikil tilhlökkun að hitta ömmu og Gumma afa. Það var ekki komið að tómum kofanum hjá henni ömmu. Hlaðborð af mat, kökum og kaffi upp á hvern dag. Amma var mikil félagsvera og hafði því gaman af að fá gesti í heimsókn eða heimsækja aðra. Amma var lífs- glöð og falleg kona. Alltaf var stutt í brosið og hláturinn. Lífið fór samt ekki alltaf mjúkum höndum um þessa góðu konu, en alltaf stóð hún eins og klettur í hafinu. Í hennar huga var ekki til neitt sem hét vol og væl. Amma var af þeirri kynslóð sem kynntist ekki mikið ýmsum lúxus sem okkur yngra fólkinu þykir sjálfsagður hlutur í dag. Mér er minnisstætt þeg- ar amma átti erindi suður til Reykja- víkur fyrir nokkrum árum, að við Lilja eiginkona mín ákváðum að bjóða henni út að borða á Grillið ásamt börnum okkar og foreldrum mínum. Í byrjun borðhaldsins var amma hálf- feimin við alla þessa þjóna á þönum í kringum sig, en þegar leið á kvöldið var hún orðin hrókur alls fagnaðar. Var mikið hlegið þegar amma sagði að flottasti veitingastaður sem hún hefði farið á fram að þessu væri Stað- arskáli. Amma var alla tíð heilsuhraust en síðustu misserin átti hún við van- heilsu að stríða. Amma hefur kvatt okkur úr þessu jarðlífi og ég veit að góður Guð og englar hans hafa tekið henni opnum örmum í himnaríki þar sem eilíf sæla ríkir. Við Lilja og börn okkar, Kolbrún Fríður og Andri Örn vottum Gumma afa, börnum þeirra og öllum afkom- endum okkar dýpstu samúð. Elsku amma mín. Hafðu þökk fyrir allt. Þinn dóttursonur, Gunnar Magnús Erlingsson. Magga mín. Mig langar til að kveðja þig með nokkrum orðum. Þú varst systir hans pabba og jafnframt gift bróður hennar mömmu, honum Gumma. Þannig var mikill samgang- ur milli foreldra minna og okkar systkinanna og ykkar fjölskyldu á Flateyri enda við frændsystkinin á sama reki. Ég á margar minningar um þig og allar góðar. Mér er efst í huga hve þú varst létt í spori alla tíð, kvik í hreyf- ingum og alltaf stutt í hláturinn. Þér féll aldrei verk úr hendi enda með stórt heimili auk mikilla annarra starfa utan heimilis. Lífið hefur ekki alltaf farið um þig blíðum örmum en það var fjarri þér að kvarta eða bera tilfinningar þínar á torg. Það var alltaf jafnnotalegt að sækja ykkur Gumma heim, bæði á Flateyri og síðar á Ísafirði. Ég geymi minninguna um stór- brotna konu og elskulega frænku. Í hafi speglast himinn blár. Sinn himin á hvert daggartár. Í hverju blómi sefur sál, hvert sandkorn á sitt leyndarmál. Nú dreymir allt um dýrð og frið við dagsins þögla sálarhlið, og allt er kyrrt um fjöll og fjörð og friður drottins yfir jörð. (Davíð Stef.) Hvíl þú í friði, Magga mín. Borghildur. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför BRAGA ÁSGEIRSSONAR AUSTFJÖRÐ, Aðalstræti 21, Akureyri. Ólöf Halblaub, Ásgeir Vilhelm Bragason, Sólveig Bragadóttir, Kristín Ásgeirsdóttir, Kolbeinn Pétursson, tengdabörn, barnabörn og frændsystkini. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát elskulegrar eigin- konu minnar, AUÐAR VILHJÁLMSDÓTTUR innanhússarkitekts, Kjartansgötu 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 11E á Landspítala Hringbraut og hjúkrunar- þjónustunnar Karítasar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Einarsson. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ARTHURS V. O'BRIEN, Klapparstíg 1, Reykjavík. Sigríður O'Brien, Richard O'Brien, Guðrún Ottósdóttir, Theresa A. O'Brien, Sigfús Jóhannesson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.