Morgunblaðið - 29.12.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.12.2002, Blaðsíða 47
HUGVEKJA MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 2002 47 Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662 Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 847 5572 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123 Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222 Hellissandur/Rif Lára Hallveig Lárusdóttir 436 6889/436 1291/848 1022 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 892683 Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Jakop Antonsson 486 8983 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936 Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676 Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649 Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475 Þingeyri Þór Lini Sævarsson 456 8353 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinniVIÐ ÁRAMÓT erhverfulleikinn áleit-inn. Ég er að breyt-ast og þú líka. Allter á hreyfingu, og óljóst hvað framtíðin hefur að geyma. Þá koma ósjálfrátt upp í hug- ann orðin í 90. Davíðssálmi: „Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta.“ Þau eru gjarnan notuð á kveðju- stundum, sem einn af ritning- artextum útfararathafnar, þegar ástvinur er kvaddur hinsta sinni, en eiga ekki síður við í lok árs, eins og núna, þegar litið er yfir farinn veg og rýnt í sporin. Matthías Jochumsson leitaði einnig fanga í þeim sálmi, er hann orti þjóðsönginn, Ó, Guð vors lands. Þar er enda mikinn lærdóm að finna. Kennimaður nokkur sagði í ræðu árið 1971: Það verður sjálfsagt aldrei kannað til fulls hversu ríkan þátt traustið á Guði á í því að íslenska þjóðin hefur hjarað fram á þennan dag þrátt fyrir allt harðréttið sem hún hefur orðið að þola. Það virðist svo sem stundum hefði verið ærin ástæða til að hún missti móðinn og legði árar í bát og þurrkaðist úr tölu þjóðanna á þessari jörð. En svo varð ekki. Hún þraukaði áfram í þolgæði og bæn. Og það er víst að hlutur bænarinnar og guðstraustsins á ríkan þátt í því að bjarga. Manni dettur í hug það sem einhver vitur maður hefur sagt: Einn með Guði – það er meiri hlut- inn. Ef Guð er með oss hvað er þá á móti oss? Og það verður heldur aldrei skynjað eða rakið til fullnustu hvílíka birtu og blessun hver einstaklingur hefur átt í hljóðu samfélagi sínu við Guð allt frá því er fyrstu bænirnar voru beðnar við móð- urkné og fram til þeirrar stundar er aug- un lokuðust í síðasta sinn. Hér er líka spaklega mælt. Og nú heilsum við senn nýju ári með óþekktar stundir og daga. Guð einn veit hvað þar kann að búa. En í nafni hans stígum við fyrsta skrefið inn á braut hins nýja árs og felum miskunnsemd hans öll ógengin spor okkar, miskunnsemd hans, sem – eins og segir á einum stað – „birtist og reynist sem blessunarlind á blíðunnar sólfagra degi, hún birtist sem lækning við böli og synd, hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd, er lýsir oss lífsins á vegi.“ En eftir þrjá daga er ekki bara nýársdagur, heldur einnig áttundi dagur jóla, eða „áttidag- ur“ eins og forfeður okkar og -mæður kölluðu hann. Í guð- spjalli þess dags greinir frá því, að drengnum, sem fæddist í Betlehem, hlotnaðist nafn. Síðar á ævinni kynnti hann sig á ýmsa vegu. Skýrust eru þó orð hans í Jóhannesarguðspjalli, er hann segir: „Áður en Abraham fædd- ist, er ég.“ Jesús Kristur hefur aldrei lot- ið fjötrum hverfulleikans. Hann er ljósið holdi klætt á jörðu, ei- lífðin í tímanum, í gervi manns. Vilji fólk lifandi sameiningarafl í þessum heimi, vil ég meina að best og öruggast sé að taka upp þráð kristinnar trúar. Með ný- tískulegu orðfæri mætti orða það svo, að þar væri um að ræða „skynsamlega fjárfestingu“. Við tímamótin, sem nú verða innan skamms, þegar nýtt ár hefur göngu sína, verða margir til að bjóða gleðilegt nýár, og þakka fyrir hið gamla. Við há- skóla einn í Vesturheimi er sagt að hafi verið gyðingur, kennari í hebresku, og þótti sérvitur. Þeg- ar hann kom í fyrstu kennslu- stundina á nýju ári, ávarpaði hann nemendur sína jafnan með þessum orðum: „Fjölmargir munu þessa dagana óska ykkur gleðilegs nýs árs; en, herrar mínir og dömur, ég óska ykkur gleðilegrar eilífðar.“ Þeirri sömu ósk beini ég nú til þín, lesandi minn. Mætti þér, og mér sjálfum, takast að haga líf- inu þannig, að sérhvert ár héðan í frá beri arð fyrir hinn komandi tíma, í ríki himnanna. Mætti okkur lærast að meta allt hið stundlega á þann mælikvarða. Þá, og fyrst þá, teljum við daga okkar með þeim hætti, sem er tákn um viturt hjarta. Fararblessun, ættuð úr aust- urkirkjunni, verður svo loka- kveðja mín hér á gömlu ári, um leið og ég þakka samfylgdina: Drottinn gangi undan þér og vísi þér rétta leið. Drottinn gangi við hlið þér svo hann geti tekið þig sér í fang og verndað gegn hætt- um til hægri og vinstri. Drottinn gangi eftir þér og varðveiti þig fyrir falsi vondra manna. Drottinn veri undir þér og lyfti þér er þú hrasar. Drottinn veri í þér til að hughreysta þig er þú missir kjarkinn. Drottinn veri umhverfis þig til að vernda þig gegn árásum. Drottinn veri yfir þér og blessi þig, já, náðugur Guð blessi þig í dag og á morgun. Konungi eilífðar, ódauðlegum, ósýnilegum, einum Guði, sé heið- ur og dýrð um aldir alda. Morgunblaðið/RAX sigurdur.aegisson@kirkjan.is Allt fram streym- ir. Dagar ársins hafa liðið hjá einn af öðrum og hinn síðasti er brátt á förum. Sigurður Ægisson íhugar af því tilefni stund- ina hraðfleygu og komandi tíma, sem enginn veit þó hverju kann að búa yfir. Nema Guð. Viturt hjarta FRÉTTIR Á UNDANFÖRNUM árum hafa Ellimálaráð Reykjavíkur- prófastsdæma og kirkjurnar í prófastsdæmunum staðið fyrir sameiginlegri áramótaguðs- þjónustu sem er sérstaklega ætl- uð eldri borgurum. Að þessu sinni verður áramóta- guðsþjónustan í Digraneskirkju föstudaginn 3. janúar kl. 14. Sr. Guðmundur Þorsteinsson fv. dómprófastur predikar og þjónar fyrir altari og sr. Miyako Þórðarson túlkar á táknmáli. Söngvinir syngja og leiða al- mennan söng undir stjórn Kjart- ans Sigurjónssonar organista. Eftir guðsþjónustuna eru kaffi- veitingar í boði sóknarnefndar Digraneskirkju. Allir eru velkomnir og eru eldri borgarar sérstaklega hvatt- ir til að taka þátt í guðsþjónust- unni þennan dag. Áramótaguðsþjónusta eldri borgara KIRKJUSTARF NÝLEGA afhenti bílaumboðið Kraftur hf. flutningafyrirtækinu Alla Geira hf. þrjá nýja flutningabíla á Húsavík. Af því tilefni var efnt til hópaksturs bílaflota fyrirtækisins um bæinn sem allir bílar þess sem tiltækir voru, 11 talsins, tóku þátt í. Að akstrinum loknum var opið hús hjá fyrirtækinu þar sem boðið var upp á léttar veitingar, hljóðfæraleik og söng auk þess sem jólasveinar sem leið áttu hjá ráku inn nefið. Þeir tóku einnig lagið fyrir þá fjölmörgu bæjarbúa og nærsveitamenn sem komu í fyrirtækið þennan dag til að samgleðjast þeim Alla Geira-mönn- um. Þá gáfu sveinarnir yngstu kyn- slóðinni mæru í poka til að gæða sér á meðan þeir eldri fengu sér kaffi og tertu. Bílarnir þrír sem keyptir voru nú eru af gerðinni MAN í þremur mis- munandi útgáfum. Allir bílarnir upp- fylla ströngustu kröfur sem gerðar eru til flutningabíla í dag, bæði hvað varðar öryggisbúnað og þægindi fyr- ir bílstjóra. Þar má m.a. nefna EURO 3 vélar sem er Evrópustaðall hvað varðar mengunarbúnað, olíu- miðstöð fyrir vél og hús, svefnöku- mannshús sérlega vel einangrað með sléttu gólfi og flutningakassarnir eru með frystivélum, sérstaklega vel ein- angraðir fyrir frysti- og kælivörur. Alli Geira h.f. hefur verið að end- urskipuleggja tækjakost sinn og hef- ur nú á að skipa þrettán bílum auk vagna og lyftara. Flotinn saman- stendur af sex bílum með frysti- og kælikössum, fjórum skífubílum fyrir eftirvagna, þrem bílum í útkeyrslu og löndun, fjórum frysti- og kæli- vögnum, fjórum vögnum og kerru, þrem trailervögnum, einni gáma- lyftu og fjórum lyfturum. Á þessu má sjá að Alli Geira h.f. hefur upp á að bjóða allar gerðir og stærðir af tækjum sem þarf til flutningastarf- semi, og til að uppfylla óskir og þarf- ir viðskiptavinarins. Nú um þessar mundir er fyrirtækið að fá GÁMESS vottun, sem er staðall um gæðamat. Nokkur tæki þess hafa þegar fengið þessa vottun sem tryggir viðskipta- vininum bestu meðferð vörunnar sem völ er á. Stofnandi fyrirtækisins, Aðalgeir Sigurgeirsson, hóf reglubundna vöruflutninga á milli Húsavíkur og Reykjavíkur árið 1956, þá á einum bíl. Það er því ljóst að fyrirtæki Alla Geira hefur vaxið og dafnað eftir því sem árin hafa liðið. Fyrirtækið hefur í gegnum árin reynt að uppfylla allar þarfir viðskiptavinarins og hafa bíla- og tækjakost sinn sem yngstan og best búinn á hverjum tíma. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Hann var glæsilegur, bílaflotinn hjá Alla Geira hf., þegar hann keyrði um götur Húsavíkur. Alli Geira hf. fékk afhenta þrjá nýja MAN-flutn- ingabíla Húsavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.