Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 12
Þ ÓRÓLFUR Árnason, sem tekur við starfi borgarstjóra af Ingi- björgu Sólrúnu Gísla- dóttur, segist finna fyrir því að mikill sáttahugur ríki meðal oddvita Reykjavíkurlistans. Það sé greini- lega mikill vilji til að láta sam- starfið ganga upp. Þórólfur hitti oddvita flokkanna sem standa að R-listanum í gær. Þórólfur segir að það hafi fyrst verið nefnt við sig í hádeginu á laugardag að taka við borgar- stjórastólnum. „Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hringdi í mig í hádeg- inu á laugardag og sagði að mikið lægi við og að hún vildi tala við mig í Ráðhúsinu,“ segir Þórólfur en hans fyrstu viðbrögð voru, að vonum, að vilja vita um hvað erind- ið snerist. „Hún sagði mér að að það væri út af þeirri stöðu sem upp væri komin um framtíð Reykjavík- urlistans og samstarf þeirra flokka sem að honum stæðu. Ég svaraði því til að ég myndi koma niður í Ráðhús. Á leiðinni velti ég því fyrir mér hvað hún vildi því ég hef ekki komið nálægt starfi þessara flokka. Ég lagði síðan saman tvo og tvo og komst að þeirri niðurstöðu að hugs- anlega væri hún með eitthvað svona spil [um að hann yrði borgarstjóri] á hendi. Þannig náði ég aðeins að stilla mig af og undirbúa áð- ur en ég kom í Ráðhúsið.“ Í Ráðhúsinu, segir Þórólfur, greindi Ingi- björg Sólrún honum frá stöðu mála og óskaði eftir leyfi til að nefna hann sem mögulegan borgarstjóra. „Ég spurði hvað hún gæfi mér langan umhugsunarfrest og hún sagði að hún yrði ánægð ef ég gæti svarað fyrir lok dags á sunnudag. Það varð að samkomulagi þegar við skildum.“ Þórólfur fór síðdegis á laugardag úr bæn- um ásamt eiginkonu sinni, Margréti Bald- ursdóttur og tveimur börnum. „Á leiðinni stoppuðum við hjá bróður mínum, að Borg á Mýrum, Þorbirni Hlyni prófasti og eiginkonu hans Önnu Guðmundsdóttur. Þar fórum við yfir málið, en áður höfðum við rætt þetta við unglingana á leiðinni í bílnum. Eftir að hafa farið yfir valkostina með öllum þessum ráð- gjöfum fannst mér rangt að gefa ekki færi á þessum möguleika; mér fannst rangt að kasta þessu frá mér sem einhverju sem ekki mætti ræða.“ Fylgdist með í fjölmiðlum Þórólfur segir að hann hafi ákveðið að hringja strax sama dag til Ingibjargar Sól- rúnar og greina henni frá niðurstöðu sinni. „Hún þakkaði mér fyrir og sagðist myndi spila úr þessu,“ útskýrir hann. En hvers vegna ákvað hann að taka starfið að sér ef það sameinaðist Íslandssíma. Hann er því spurður að því hvort hann hafi verið kominn í við- ræður við einhverja aðila um önnur störf í at- vinnulífinu, þegar borgarstjórastarfið barst til tals um helgina. „Allt frá því ljóst var að ég myndi ekki lengur verða í starfi hjá Tali hef ég talað við mjög marga í þjóðfélaginu og mjög margir hafa talað við mig.“ Þórólfur segir að hann hafi síðustu vikurnar m.a. íhug- að hvort hann ætti að koma að rekstri eða stjórnun einstakra fyrirtækja. „En það hafði aldrei hvarflað að mér að koma að starfi á stjórnmálavettvangi,“ segir hann. „En tæki- færið kom og maður verður að taka ákvörð- un.“ Aðspurður kveðst Þórólfur ekki hafa haft nein afskipti af stjórnmálum. „Og ég hef aldrei verið flokksbundinn,“ segir hann. „Ég hef kos- ið gott fólk úr öllum stjórnmálaflokkum til góðra verka. Ég met sennilega oftar mann- kostina fremur en eitthvað annað og kýs oft þá sem ég þekki.“ Þórólfur kveðst þó hafa komið mikið að félagsmálum í gegnum tíðina og seg- ist hafa gaman af því að umgangast fólk. Hann hafi t.d. verið í kór, verið formaður íþrótta- félags og starfað fyrir Knattspyrnusamband Íslands, svo dæmi séu nefnd. Læri af sögunni Þegar Þórólfur er spurður að því hvernig hann sjái fyrir sér að reynsla sín úr atvinnulíf- inu nýtist í stóli borgarstjóra kveðst hann von- ast til þess að sér muni takast að starfa vel á nýjum vettvangi. „Vonandi tekst mér að vinna vel með þeim sem þarna starfa og læra af þeim. Ég hef alltaf reynt að vinna að ákvarð- anatöku með þeim hætti að þeir sem hafi með verkefnin að gera hafi töluvert um það að segja hvernig þau eru unnin.“ Þórólfur bætir því við að hann hafi umgengist margt fólk á mismunandi stöðum; hann hafi t.d. kennt og þjálfað íþróttahópa. „Þetta er sá reynslu- brunnur sem ég hef í að sækja og getur nýst í þessu starfi ef af verður.“ Þegar Þórólfur er spurður að því hvernig hann sjái fyrir sér starf sitt sem borgarstjóra, undir stjórn þriggja flokka R-listans, segir hann ekki tímabært að tjá sig um það. Hann hafi í raun ekki haft neinn tíma til að mynda sér skoðanir á því, auk þess eigi hann eftir að ræða betur við væntanlega vinnuveitendur. Hefur þú engar áhyggjur af fordæminu frá 1978–1982 þegar ópólitískur borgarstjóri sat í skjóli þriggja flokka meirihluta og hver höndin var upp á móti annarri í meirihlutanum? „Ég hef engar áhyggjur af þessu. Þegar maður gengur til leiks á velli hefur maður ekki miklar áhyggur af því hvernig síðasti leikur einhverra annarra fór.“ Þórólfur bætir því við að sagan kenni okkur þó alltaf eitthvað, en hún hafi á hinn bóginn ekkert að segja um manns eigin hæfni og manns eigin dómgreind. En lítur þú á þig sem stjórnanda, tímabund- ið fram að næstu kosningum eða telur þú koma til greina að fara í framboð í næstu borgarstjórnarkosningum? „Það er alltof snemmt að segja til um þetta.“ Þórólfur átti í gær fund með oddvitum Reykjavíkurlistans. Að sögn Þórólfs gekk fundurinn mjög vel, en stefnt er að því að gengið verði formlega frá ráðningu hans í embætti borgarstjóra fljótlega á nýju ári. „Það var mikill sáttahugur meðal fulltrúa Reykja- víkurlistans á fundinum. Það var greinilega mikill vilji hjá þeim um að samstarfið yrði gott,“ segir Þórólfur. Þórólfur segir að á fundinum í gær hafi m.a. verið rætt um starfssvið borgarstjóra, borg- arráðs og borgarstjórnar. „Þá fræddist ég um borgarmálefnin og stjórnkerfið. Þetta var mjög góður fundur.“ Að lokum segir Þórólfur að næstu dagar fari í andlegan undirbúning fyrir starfið; hann muni nota þá til að setja sig inn í þau erfiðu verkefni sem framundan eru. FRÉTTIR 12 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „MÉR finnst alveg augljóst af þeim ummælum sem fallið hafa í dag [gær] hjá forystumönnum vinstri- flokkanna, að R-listinn er ekki annað en yf- irbreiðsla yfir gíf- urlegan ágrein- ing þeirra sem að honum standa og eins konar minn- isvarði um skort á pólitískri dóm- greind og um pólitísk illindi,“ sagði Björn Bjarnason, oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Í þessu ljósi er með ólíkindum að menn hafi skuldbundið sig til þess að standa saman um þetta samstarf út kjörtímabilið við stjórn Reykjavík- urborgar og lofar ekki góðu um stjórnarhætti í borgarstjórn.“ Um það hvort þreifingar á meiri- hlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafi verið langt komnar segir Björn: „Menn voru að tala saman eins og gengur í óvissu sem þessari og skiptast á skoðunum en engar viðræður voru komnar af stað. Þess vegna kemur mér á óvart, að dregin sé upp sú mynd, að óttinn við okkur sjálfstæðismenn hafi ráðið úrslitum um afsögn borgarstjóra. Hins vegar er sagt, að besta her- stjórnarlistin sé að ná árangri án þess að grípa þurfi til vopna. Mér sýnist, að það hafi gerst í þessu til- viki.“ Björn segir sjálfstæðismenn alltaf hafa verið á móti því að ópólitískur aðili gegni stöðu borgarstjóra. „Við höfum alltaf talið að það sé ekki til farsældar að sá sem leiðir starfið í borgarstjórn hafi ekki skýrt póli- tískt umboð og sé með ótvíræðan stuðning kjósenda á bak við sig. Þannig að það er ekki auðvelt fyrir Þórólf Árnason að koma inn í þetta umhverfi núna þegar í rauninni eru fjórir ósamstæðir flokkar á bak við hann, þrír stjórnmálaflokkar og hlutlaus flokkur sem Ingibjörg Sól- rún hefur verið í til þessa. Úr því að borgarstjóri valdi eftirmann sinn með þessum sögulega hætti kemur mér á óvart að Ingibjörg Sólrún skuli ekki hafa valið konu. Hefði það verið í samræmi við áherslur R-list- ans síðastliðið vor, en öll loforð, sem þá voru gefin, eru að vísu fokin út í veður og vind eins og við sjáum,“ sagði Björn. Breitt yfir ágreining Björn Bjarnason, oddviti D-listans Björn Bjarnason ÞÓRÓLFUR Árnason, tilvonandi borg- arstjóri, er fæddur í Reykjavík árið 1957. Foreldrar hans eru séra Árni Pálsson, fyrrverandi sóknarprestur í Kópavogi, og Rósa Björk Þorbjarnar- dóttir, fyrrverandi endurmenntunar- stjóri Kennaraháskóla Íslands. Þórólfur er kvæntur Margréti Baldursdóttur, sérfræðingi hjá Samlífi, Sameinaða líf- tryggingarfélaginu hf. Þau eiga tvö börn, 17 ára son og 14 ára dóttur. Þórólfur á þrjú systkini: elstur er Þorbjörn Hlynur, prófastur á Borg á Mýrum, þá Anna Katrín, sem sér um fiskeldi Samherja í Mjóafirði ásamt eig- inmanni sínum Guðmundi Val Stef- ánssyni. Yngstur í systkinahópnum er Árni Páll, lögmaður í Reykjavík. Þórólfur varð stúdent frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð árið 1975 og lauk B.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1979. Þá lauk hann M.Sc. í iðnaðar- og rekstrarverkfræði árið 1981 frá Danmarks Tekniske Højskole (DTU). Þórólfur var forstjóri Tals hf. á ár- unum 1998 til októbers 2002. Þar áður var hann framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Olíufélagsins hf. ESSO, eða á árunum 1993 til 1998. Þar áður, eða frá 1987 til 1993, var hann m.a. framkvæmdastjóri sölu- og markaðs- sviðs hjá Marel hf. Þórólfur hefur setið í stjórnum ým- issa fyrirtækja og samtaka, m.a. hjá Verslunarráði Íslands, Aflvaka hf., Am- erísk-íslenska verslunarráðinu og Ís- lenska járnblendifélaginu. Þá var hann formaður markaðsnefndar Knatt- spyrnusambands Íslands 1995 til 1998 og formaður stefnumótunar í ferða- þjónustu fyrir Reykjavíkurborg 1996 til 1997. Þórólfur hefur hlotið ýmsar viður- kenningar fyrir störf sín en á þessu ári var hann t.d. valinn markaðsmaður árs- ins af ÍMARK. Störf og ævi Þórólfs „ÉG gleðst yfir öflugum liðsmanni í baráttu Samfylkingarinnar á lands- málasviðinu en neita því ekki að ég er ósáttur við þau vinnubrögð sem leiddu til þess að Ingibjörg Sólrún, varð nauðug viljug, að standa upp af stóli borgarstjóra,“ segir Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingarinnar. Hann segir að um mikinn þrýsting hafi verið að ræða og sú skelfing sem hafi gripið um sig í hópi framsókn- armanna og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs undirstriki þann styrk sem Ingibjörg Sólrún búi yfir. „Eftir hin hörðu viðbrögð Fram- sóknarflokksins í upphafi, kom mér á óvart hversu þétt forysta VG límdi sig upp að Framsóknarflokknum í þessu máli. Mér fannst á köflum eins og formaður VG væri eins konar botnlangi úr forystu Framsókn- arflokksins,“ segir Össur. Hann segir einnig að Ingibjörg Sólrún hafi í krafti þessarar atburða- rásar þotið eins og sprengikúla inn í landsmálin. „Ég er hræddur um að afl hennar eigi eftir að koma mönnum á óvart, þegar hún fer að berjast af fullum krafti í landsmálunum,“ segir hann. „Borgarstjóri sagði sjálf í fjöl- miðlum í dag [mánudag] að hún myndi há grimmilega baráttu á landsmálasviðinu úr 5. sætinu. Þegar þessi atburðarás hófst vildi svo til að búið var að halda prófkjör í Reykja- vík um átta efstu sætin og þau eru þar með skipuð. Eins og hefur komið fram hjá Páli Halldórssyni, formanni uppstill- inganefndar, þá er nær ógerlegt að hreyfa þeirri nið- urstöðu. Ég sé litlar líkur til þess,“ segir Össur en bætir við að öll þessi mál verði skoðuð og að sjálfsögðu beri Samfylkingunni siðferðileg skylda til að taka Ingibjörgu opnum örmum. Hann var spurður hvort Ingibjörg Sólrún kæmi inn á vettvang Samfylk- ingarinnar sem ráðherraefni. „Þegar efnt var til þessa ferðalags voru engin loforð gefin og engar kröfur settar fram. Það er hins vegar alveg ljóst að forystumaður sem kemur með þess- um hætti inn í landsmálin og færir þær fórnir sem hún hefur gert fyrir það eitt að vilja ljá sínum eigin flokki, Samfylkingunni, styrk sinn, hún fær auðvitað verðugan sess. Það er alveg ljóst að hún kemur sterklega til álita ef ég geng til þess að tilnefna ráð- herra í ríkisstjórn og kannski framar mörgum öðrum.“ Hann var að lokum spurður álits á framtíð Reykjavíkurlistans. „Mér er auðvitað þungt í skapi í dag eins og vafalaust mörgum öðrum í mínum flokki, en endataflið var teflt fyrst og fremst til þess að tryggja líf R-list- ans. Á þessum tólf dögum hékk það mörgum stundum á bláþráðum, en þeir héldu. Í stjórnmálum gerist það stundum að harðar og erfiðar deilur verða á milli samstarfsmanna. Að þessu sinni báru menn gæfu til þess að setja þær niður. Ekki neita ég því að það eru mar- blettir eftir og sumir eru lemstraðir, en marið hverfur og menn ná sér. Ég held að Þórólfur Árnason [verðandi borgarstjóri] hafi alla burði til að verða það smyrsl sem græðir nokkuð fljótt þær undir sem liggja eftir þessi átök,“ segir Össur. Í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær- kvöldi sagði Össur að Ingibjörg yrði ekki forsætisráðherraefni Samfylk- ingarinnar og ekki kæmi til greina að flýta landsfundi flokksins til þess að leggja til að hún yrði formaður hans. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar Ingibjörg Sólrún fær verðugan sess Össur Skarphéðinsson Finn fyrir sáttahug byðist? „Þetta er stærsta fyrirtæki landsins og mörg tækifæri til að láta gott af sér leiða.“ Að sögn Þórólfs ræddi hann ekki aftur við Ingibjörgu Sólrúnu fyrr en snemma á sunnu- dag, en síðdegið fór í fundarhöld hjá henni, eins og kunnugt er. „Á meðan fórum við fjöl- skyldan í yndislega fjallgöngu í góðu veðri.“ Þórólfur segist síðan hafa fylgst með atburða- rásinni þann daginn í fjölmiðlum eins og aðrir landsmenn. Þegar Þórólfur er spurður að því hvort hann telji að atburðarásin síðustu daga hafi verið hröð segir hann að stærstu ákvarðanir í lífinu séu oft teknar með skömmum fyrirvara. „Hjónabönd verða til með einu bliki í auga, íbúðakaup gerast snöggt og ákvörðun um nám er tekin á skömmum tíma. Ég held að hver og einn þurfi að vera búinn undir ákvarðanatöku þegar að henni kemur.“ Þórólfur tekur fram aðspurður að hann hefði ekki tekið umrædda ákvörðun á laug- ardaginn nema vegna þess að hann var tilbú- inn til þess. „Mér leið því ágætlega á sunnu- daginn; málið var afgreitt frá minni hendi. Ef þessi niðurstaða hefði ekki verið talin lausn í máli Reykjavíkurlistans, hefði það verið í lagi mín vegna. Ég hefði verið sáttur við það.“ Þórólfur segist einnig sáttur við niðurstöðuna, eins og hún blasir við núna. „Það sem skiptir máli er að lausnin er fundin. Það þarf að vinna úr þessari stöðu og þar treysti ég á góð ráð þeirra sem þekkja betur til í stjórnmálalíf- inu.“ Engin afskipti af stjórnmálum Eins og kunnugt er lét Þórólfur af starfi forstjóra Tals í október sl. þegar fyrirtækið Þórólfur Árnason Morgunblaðið/Kristinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.