Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR 46 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT ALLAR þær þjóðir sem Morg- unblaðið spáði að kæmust í milli- riðil, nema ein, komust áfram. Morgunblaðið spáði Grænlend- ingum fjórða sætinu í B-riðli, en það voru Katarbúar sem höfnuðu í því sæti og komust áfram. Af þeim 16 þjóðum sem kom- ust áfram eru 10 Evrópuþjóðir og Katar (Asía) og Egyptaland (Afríka). Morgunblaðið spáði Rússum sigri í C-riðli og Króatíu þriðja sæti, þannig að þjóðirnar myndu leika saman í milliriðli. Króatar tryggði sér fyrsta sætið, Rússar það þriðja. Þjóðirnar fóru saman í milliriðil 3. Morgunblaðið spái Egyptum þriðja sætinu í D-riðli og Slóven- um því fjórða. Þjóðirnar höfðu sætaskipti og Slóvenar leika því í milliriðli 4, en Egyptar í milliriðli 3. Fátt á óvart á HM ÍSLENSKA landsliðið í handknatt- leik kom upp úr hádegi í gær til bæjarins Caminha, eftir rúmlega þriggja tíma ferð í langferðabifreið frá Viseu. Landslið Katar var með í för og voru landsliðin í fylgd lög- reglumanna, sem sáu um að lands- liðsrúturnar ættu greiða leið. Caminha er lítill vinalegur strandbær, þar sem sautján þúsund íbúar búa. Miðbærinn er byggður upp á veitingahúsum í litlum þröng- um götum, en íbúar lifa á þjónustu við ferðamenn. Öll hótel bæjarins eru bókuð, enda ekki á hverjum degi sem fjög- ur landslið í flokkaíþróttum gera innrás í bæinn. Íþróttahúsið í Caminha tekur 2.900 áhorfendur og má reikna með að færri áhorfendur verði á leikjum þar en í Viseu, sem var mun stærri bær og heimamenn léku þar í riðli. Ísland mætir Pólverjum annað kvöld kl. 18.30. Leikmenn íslenska liðsins þekkja vel til Pólverja, en þeir léku gegn þeim í Farum í Kaupmannahöfn 10. janúar og fögnuðu þá öruggum sigri, 29:22. Á milli jóla og nýárs 2001 fóru Ís- lendingar til Póllands, án margra bestu leikmanna sinna, og léku þrjá leiki. Einn vanns, tveir töpuðust. Í lögreglufylgd til Caminha Mér líst vel á andstæðinga okkarí milliriðlum, Rússa og Kró- ata,“ sagði hornamaðurinn Christ- ian Hjermind í viðtali við BT í gær. „Við erum að minnsta kosti lausir við Frakka. Þetta þýðir þó ekki að við eigum létta leiki fram undan, Rússarnir eru jú alltaf Rússar, en við þekkjum þá vel og vitum hvers vænta má gegn þeim. Króata vitum við ekki eins mikið um, en ef marka má leik þeirra við Argentínu á dög- unum þá er ljóst að Króatar eru ekki óvinnandi vígi,“ sagði Hjermind sem leikur með Rúnari Sigtryggssyni hjá spænska stórliðinu Ciudad Real. „Sextán marka tap Rússa fyrir Frökkum í riðlakeppninni bendir til þess að veikleikar séu í rússneska liðinu um þessar mundir. Síðan er aldrei að vita nema Egyptar geti eitthvað aðstoðað okkur með því að gera annaðhvort Rússum eða Króöt- um skráveifu.“ Torben Winther, landsliðsþjálfari Dana, telur af og frá að Rússar hafi tapað viljandi með 16 marka mun fyrir Frökkum. „Að sjálfsögðu töp- uðu þeir ekki viljandi því að með sigri hefðu Rússar tekið með sér tvö stig í milliriðilinn, það var því eftir talsverðu að slægjast hjá þeim í leiknum við Frakka,“ segir Winther. „Íslandsvinurinn“ Anders Dahl Nielsen, fyrrverandi landsliðsþjálf- ari Dana, segist í samtali við BT vera alveg í skýjunum yfir því að danska landsliðið mæti Rússum og Króötum í milliriðlum. „Þetta er al- veg fullkomið fyrir okkur. Við erum sterkari en báðar þessar þjóðir á öll- um sviðum,“ segir Nielsen og þykir mörgum sem hann taki fulldjúpt í árina. Hann telur svo ekki vera. Datt Winther í lukkupottinn? „Eftir á að hyggja er ég sáttur við að hafa tapað fyrir Svíum,“ segir Winther, landsliðsþjálfari Dana. „Rússa eigum við að vinna, þeir leika eins og gamalmenni um þessar mundir. Ég er afar ánægður með að þurfa ekki að leika við Frakka,“ sagði Winther og er greinilega bú- inn að jafna sig eftir vonbrigðin á sunnudaginn þegar „gamlingjarnir“ í sænska landsliðinu tóku hans sveit í kennslustund. „Ég þekki vissulega vel til króat- íska liðsins þótt við höfum ekki mætt því síðan ég tók við þjálfun danska landsliðsins,“ segir Winther sem telur danska landsliðið eiga góða möguleika á að vinna það kró- atíska þótt það hafi lagt heimsmeist- ara Frakka. „Það er alveg ljóst að hefði ég fengið að velja mér mót- herja af þeim fjórum liðum sem við gátum lent á móti þá er alveg öruggt að ég hefði valið Rússa og Króata,“ segir Winther sem telur engan vafa leika á að hans menn hafi dottið í lukkupottinn. Danir mæta Rússum á morgun í Rio Maior og Króötum á sama stað á fimmtudagskvöldið. Danir prísa sig sæla fyrir að hafa tapað fyrir Svíum á HM Erum að minnsta kosti lausir við Frakka EINS og svo oft áður þá kjósa Danir að líta á björtu hliðarnar. Vissu- lega svíður þeim að hafa tapað fyrir Svíum í riðlakeppni heims- meistaramótsins í handknattleik, en því verður ekki breytt og í stað þess að velta sér upp úr tapinu líta þeir á björtu hliðarnar, úrslitin hafi engu breytt á leið þeirra að gullverðlaunum á HM. Þeir komust áfram í milliriðil með tvö stig, það var jú markmiðið, og það sem betra er; tapið gerði það að verkum að þeir losna við að mæta heimsmeisturum Frakka í milliriðli keppninnar í Portúgal. Það kem- ur í hlut Svíanna að leika við heimsmeistarana þar sem þeim er nauðugur sá kostur að vinna þá til að eiga möguleika á að komast á Ólympíuleikana í Aþenu á næsta ári. AP Jackson Richardson leikstjórnandi Frakka á HM. HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Essodeild: Vestmannaeyjar: ÍBV - Víkingur .............20 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Kennaraháskóli: ÍS - Selfoss ................19.30 Í KVÖLD BLAK 1. deild kvenna Fylkir – KA............................................... 0:3 (5:25, 15:25, 15:25) Staðan: KA 12 10 2 23:10 31 Þróttur N. 8 8 0 24:4 24 HK 10 5 5 18:15 18 Nato 10 2 8 11:26 11 Fylkir 11 2 9 8:27 8 Þróttur R. 7 2 5 7:17 7 1. deild karla Stjarnan – Þróttur R. .............................. 3:1 (25:18, 23:25, 25:12, 25:23) Hamar – ÍS ............................................... 0:3 (20:25, 14:25, 21:25) Staðan: Stjarnan 8 7 1 21:5 21 ÍS 8 6 2 19:8 19 HK 8 5 3 18:10 18 Þróttur R. 9 3 6 12:20 12 Hamar 9 0 9 0:27 0 ÍSHOKKÍ Skautafélag Akureyrar varð Íslandsmeist- ari í íshokkí kvenna er liðið vann stórsigur á Skautafélagi Reykjavíkur í Skautahöll- inni á Akureyri um helgina, 18:0. Karlaflokkur: SA – SR ......................................................7:4 Kenny Corp setti þrjú mörk fyrir SA. KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Toronto – Sacramento ....................... 101:97 Chicago – Houston ............................. 100:98 New York – Phoenix .......................... 106:98 Boston – Orlando.................................. 91:83 Indiana – LA Clippers ..................... 108:101 Dallas – Portland................................ 93:100 Staðan: Atlantshafsriðill: New Jersey 29/14, Bost- on 26/18, Philadelphia 23/21, Orlando 23/23, Washington 21/23, New York 18/24, Miami 15/28. Miðriðill: Indiana 32/12, Detroit 28/15, New Orleans 23/21, Milwaukee 21/21 Chicago 17/27, Atlanta 16/28, Toronto 11/ 33, Cleveland 8/36. Miðvesturriðill: Dallas 34/9, San Antonio 28/15, Minnesota 26/18, Utah 25/18, Houst- on 23/19, Memphis 13/30, Denver 10/33. Kyrrahafsriðill: Sacramento 32/13, Port- land 27/15, Phoenix 26/19, Golden State 20/ 23, LA Lakers 19/23, Seattle 19/23, LA Clippers 16/27. KNATTSPYRNA Norðurlandsmót Þór – Leiftur/Dalvík............................... 1:0 Orri Freyr Hjaltalín. Staðan: KA 1 1 0 0 10:0 3 Völsungur 1 1 0 0 8:0 3 Þór 1 1 0 0 1:0 3 Leiftur/Dalvík 1 0 0 1 0:1 0 Tindastóll 1 0 0 1 0:8 0 Magni 1 0 0 1 0:10 0 BORÐTENNIS Dominos-stigamótið Meistaraflokkur karla: 1. Magnús Árnason, Víkingi 2. Matthías Stephensen, Víkingi 3.–4. Bjarni Bjarnason, Víkingi, og Óli Páll Geirsson, Víkingi. Meistaraflokkur kvenna: 1. Halldóra Ólafs, Víkingi 2. Guðrún Björnsdóttir, KR 3.–4. Hulda Pétursdóttir, Nesi, og Gyða Guðmundsdóttir, Ösp. 1. flokkur karla: 1. Emil Pálsson, Víkingi 2. Halldóra Ólafs, Víkingi 3.–4. Sigurður Herlufsen, Víkingi, og Magnús K. Magnússon, Víkingi. 1. flokkur kvenna: 1. Gyða Guðmundsdóttir, Ösp 2. Magnea Ólafs, Víkingi 3.–4. Áslaug Reynisdóttir, Ösp, og Sunna Jónsdóttir, Ösp. KATRÍN Jónsdóttir hefur gefið Jörundi Áka Sveinssyni, landsliðsþjálfara kvenna í knatt- spyrnu, afsvar um að leika með landsliðinu gegn Bandaríkjunum í Charleston hinn 16. febrúar. Hún heldur hins vegar enn þeim möguleika opn- um að leika áfram með meistaraliði Kolbotn í norsku úrvalsdeildinni í sumar, þó hún hafi til- kynnt í haust að hún ætlaði að leggja skóna á hill- una vegna anna í námi. „Það var hreinlega ekki mögulegt fyrir mig að fara til Bandaríkjanna vegna námsins. Ég hef átt í lauslegum viðræðum við Kolbotn að undanförnu og heyri væntanlega betur í forráðamönnum fé- lagsins á næstunni. Þeir eru í miklum vandræð- um, því liðið hefur misst fimm leikmenn frá síð- asta tímabili. Ég veit ekki enn hvernig þetta fer en þeir segjast vera tilbúnir til að koma mikið til móts við mig. En ég tek þessu öllu rólega, sama hvað gerist verður skólinn alltaf númer eitt hjá mér,“ sagði Katrín við Morgunblaðið í gær. Katrín ekki með í Bandaríkjunum MARGRÉT Ólafsdóttir, knatt- spyrnukona úr Breiðabliki, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í kvennalandsliðið sem mætir Bandaríkjunum í Charleston 16. febrúar. Jör- undur Áki Sveinsson valdi hana í 17 manna æfingahóp sem hóf undirbúning fyrir leik- inn síðasta laugardag. Mar- grét, sem hefur ekkert æft knattspyrnu í vetur, tilkynnti Jörundi þessa ákvörðun sína á laugardaginn. „Ég er búin að ákveða að taka mér hvíld frá knattspyrn- unni í sumar og mér fannst því ekki rétt að gefa kost á mér í þennan leik og taka þá sæti frá öðrum sem vilja fá tækifæri til að sýna sig og sanna,“ sagði Margrét við Morgunblaðið í gær. „Ég þarf á hvíldinni að halda, mig skortir sem stendur þá löngun sem þarf í fótbolt- ann og það er betra að taka sér frí og gera eitthvað annað á meðan. Ég loka hinsvegar eng- um dyrum og sé til hvað ég geri að þessu sumri loknu,“ sagði Margrét, sem er leikja- hæsta landsliðskona Íslands með 50 A-landsleiki að baki. Þar með er ljóst að Ísland fer til leiks gegn bandarísku heimsmeisturunum án þriggja burðarása landsliðsins und- anfarin ár, sem eru þrjár af fjórum leikjahæstu leik- mönnum landsliðsins. Katrín Jónsdóttir verður ekki með (sjá fréttina til vinstri) og Guð- laug Jónsdóttir er í barneign- arfríi. Margrét gefur ekki kost á sér Morgunblaðið/Jim Smart Margrét Ólafsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.