Morgunblaðið - 04.03.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.03.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ „Kynntu mig sem þeirra mann“ JÓN Gerald Sullenberger sagði við Sjónvarpið í gærkvöld að það væri rangt hjá Hreini Loftssyni að hann hafi ekki vitað af sér, því ár- ið 2000 hafi Tryggvi Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson kynnt Hrein Loftsson fyrir sér. „Ég tók í höndina á honum inni í höfuð- stöðvum Baugs fyrir utan fund- arherbergið þannig að það er al- rangt og þeir kynntu mig sem þeirra mann hérna í Bandaríkj- unum.“ Í samtalinu við Jón Gerald kom jafnframt fram að menn frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, hafi í sumar boðið sér há- ar greiðslur til að falla frá mála- ferlum og lýsa því yfir að deilur hafi verið byggðar á misskilningi. Því komi frásögn forsætisráð- herra sér ekki á óvart. „Mér voru boðnar himinháar upphæðir til að draga mitt mál til baka og koma með tilkynningu opinberlega um að þetta hafi allt verið á misskilningi byggt.“ Spurður hvort hann telji að um einskonar mútur hafi verið að ræða sagði Jón: „Já. Það má eig- inlega segja það ... Meiningin á bak við þau ummæli að borga mér fé var náttúrulega til þess að þagga niður í mér.“ DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að á fundi þeirra Hreins Loftssonar, fyrrv. aðstoðarmanns hans og stjórnarformanns Baugs, í Lundúnum í janúar í fyrra hafi Hreinn haft eftir Jóni Ásgeiri Jó- hannessyni, forstjóra Baugs, að greiða þyrfti Davíð 300 milljónir króna gegn því að hann léti af and- stöðu við fyrirtækið. Davíð upplýsti þetta fyrst í viðtali í morgunþættinum Morgunvaktinni í Ríkisútvarpinu í gærmorgun en þar var hann m.a. spurður álits á Baugsfeðgum, þeim Jóni Ásgeiri og Jóhannesi Jónssyni. Sagðist Davíð ekki hafa mikið álit á þeim og greindi síðan frá samtali sínu og Hreins Loftssonar. Var mjög brugðið Í viðtali við Morgunblaðið í gær var forsætisráðherra beðinn að lýsa því hvað farið hefði á milli hans og Hreins Loftssonar á fundi þeirra í London 26. janúar á síðasta ári. „Hreinn Loftsson sagði við mig, að Jón Ásgeir hefði sagt við sig að það þyrfti að bjóða mér 300 millj- ónir króna gegn því að ég léti af þessari, sem ég vil kalla, ímynduðu andstöðu við Baug. Ég bað Hrein að segja mér þetta tvisvar og hann gerði það. Þegar hann sá minn mikla undrunarsvip, því mér var mjög brugðið, þá sagði hann: Ég sagði nú reyndar við Jón Ásgeir að hann þekkti ekki forsætisráð- herrann, það þýddi ekkert að bera á hann peninga. Þá svaraði Jón Ás- geir: Það er enginn maður sem stenst það að vera boðnar 300 millj- ónir króna inn á hvaða reikning sem er, sporlausa peninga. Ég sagði eftir smáumhugsun: Ef maðurinn er tilbúinn að bjóða for- sætisráðherra þjóðar slíkar fjár- hæðir, hvað er hann þá þegar búinn að gera gagnvart þeim sem eru ístöðulausari og kynnu að þurfa minna fé en þetta? Þá svaraði Hreinn: Mér ofbauð þetta svo ég ákvað á því augnabliki að segja af mér sem stjórnarformaður Baugs. Nú heitir það reyndar að þetta hafi verið sagt í hálfkæringi, en þetta samtal átti sér stað nákvæm- lega svona og í því fólst enginn hálf- kæringur,“ segir Davíð. Nefndi ekki afsögn úr einkavæðingarnefnd Forsætisráðherra segir að sér hafi verið verulega brugðið við þessi orð Hreins en hafi hins vegar verið ánægður með hvernig Hreinn hefði sagst hafa brugðist við ummælum Jóns Ásgeirs og sagst hafa ákveðið að segja af sér stjórnarformennsk- unni. „Hins vegar kom mér á óvart að þremur dögum seinna sagði hann af sér sem formaður einkavæðingar- nefndar, sem hann hafði ekki nefnt við mig á þessum fundi að hann myndi gera, en það er önnur saga,“ segir Davíð. „Við töluðum síðan ekkert saman eftir þennan fund vegna þess að ég ákvað að tala ekkert við hann á meðan hann væri ennþá stjórnar- formaður Baugs. Við töluðumst ekkert við í marga mánuði eftir þetta.“ Erfitt að koma við sönnunum Hann segist strax hafa áttað sig á því að þó að þarna hafi augljóslega verið ákveðinn vilji fyrir hendi hafi orðum ekki verið hagað með þeim hætti að grundvöllur væri fyrir því að kæra málið til lögreglu, þar sem erfitt yrði að koma við sönnunum. „Ég sef yfirleitt eins og steinn hvað sem á gengur en ég svaf illa þessa nótt og var miður mín yfir því að svona hlutir gætu verið að gerast í mínu góða landi. En ég er mennt- aður lögfræðingur og sá að það væri ekki mikið hald í að kæra þetta, vegna þess að það yrði enginn vegur um sönnun í þeim efn- um. Ég ráðfærði mig síð- ar við reyndan lög- reglumann og hann hafði sama mat á þessu og ég, að ekki væri hægt að færa þetta fram til lögformlegrar sönnunar. Maður sér svo líka núna hvernig menn bregðast við. Jón Ásgeir segir í Dagblaðinu í dag að Hreinn ljúgi þessu öllu sem hann hafi sagt, og Hreinn segir að þetta hafi verið sagt í hálfkæringi,“ segir Davíð. Illugi varð vitni að samtalinu Eftir að Davíð kom heim frá London kveðst hann einnig hafa sagt tveimur eða þremur vinum sín- um og trúnaðarmönnum frá málinu, nánast orðrétt, eins og hann hefur nú greint frá því opinberlega. Að sögn Davíðs varð Illugi Gunn- arsson, aðstoðarmaður hans, vitni að samtalinu sem fram fór á milli hans og Hreins í London. Það hefði ekki verið með þeim hætti að þetta væri sett fram í hálfkæringi. „Ég hefði ekki trúað því að óreyndu að viðbrögðin yrðu með þessum hætti, en látum það nú vera, það er kannski skiljanlegt,“ segir Davíð. Davíð var spurður um þau um- mæli Hreins í gær að hann hefði verið að lýsa sögusögnum sem gengju í þjóðfélaginu um samband hans og Kára Stefánssonar og að Jón Ásgeir hefði spurt hvort ekki væri rétt að láta hann fá 300 millj- ónir króna inn á reikning í útlönd- um eins og sagt væri að Kári hefði gert. „Reyndar hef ég aldrei heyrt neinar sögusagnir um slíkt og eng- inn sem ég þekki hefur heyrt slíkar sögusagnir. Ég held reyndar að ég skuldi Kára 25-kall fyrir kókómjólk frá því í menntaskóla, það er sjálf- sagt að gera það upp einhvern tíma, en þetta var ekki sett fram í því samhengi. Það getur vel verið að hann hafi verið að rökstyðja það að Jón Ásgeir teldi að það væri hægt að múta mér með því að svona sögur gengju, en þessa sögu hef ég aldrei heyrt og hef aldrei hitt neinn sem hefur heyrt slíka sögu,“ svarar Dav- íð. Rekur í rogastans Aðspurður af hverju hann hafi ekki talið ástæðu til að upplýsa þetta mál strax sagði Davíð ekki hafa verið nein efni til þess. „Þótt við værum þarna þrír leit ég á þetta sem tveggja manna tal. Þetta var trúnaðarmaður minn sem kom til mín, ekki sem formaður stjórn- ar Baugs, heldur bað hann um að fá að hitta mig þarna. Það hefði enginn fengið að koma til mín með þessum hætti þessa fáu daga sem ég var í London og borða með mér um kvöldið nema sem trúnaðarmaður minn og fyrrverandi aðstoðarmaður og á þeim nótum var hann. Þess vegna rekur mig í rogastans ef hann hefur síðan verið að blaðra ein- hverjum hlutum við aðra menn í framhaldi af fundi sem svona er til kominn og á þessum grundvelli. Þess vegna get ég ekki annað en svarað þessu svona þegar ég er spurður um þessa menn sérstak- lega og hvort ég hafi álit á þeim, eins og spurt var í morgun [í morg- unútvarpsþætti RÚV),“ segir Dav- íð. Jón Ásgeir sagðist í gær ætla að höfða meiðyrðamál gegn Davíð vegna ummæla hans. Spurður um þetta sagði Davíð það vera alveg sjálfsagt að Jón Ásgeir höfðaði þau mál sem hann vildi en viðbrögð Hreins hefðu hins vegar vakið sér meiri furðu. Að sögn Davíðs töluðust hann og Hreinn við í síma fyrir útvarpsþátt- inn í gærmorgun þar sem samtölin á fundinum í London voru rifjuð upp. „Ég tel að hann hafi ekki mót- mælt í því samtali þessari lýsingu minni á samtalinu en hann hefur hins vegar haldið því fram núna, að Jón Ásgeir hafi sagt þetta í hálf- kæringi. En allt þetta samtal átti sér stað svona og hann hefur reynd- ar ekki mótmælt því,“ sagði Davíð. Ekki sá Hreinn sem ég þekkti Davíð segir einnig að sér sé það hulin ráðgáta af hverju Hreinn hafi látið hafa sig út í að halda því fram að Davíð hafi á fundinum í London nefnt nafn Jóns Geralds Sullen- bergers og fyrirtækisins Nordica, sem sé alrangt. Hann hafi aldrei heyrt nafn hans nefnt fyrr en í tengslum við húsleit ríkislögreglu- stjóra hjá Baugi. „Það þarf mjög mikið til að maður geri það og segi frá því, hverfi svo til útlanda og láti ekki ná í sig í marga daga. Það þarf mjög mikið til. Þetta er ekki sá Hreinn sem ég þekkti,“ segir Davíð. Forsætisráðherra gagnrýnir einnig frétt Fréttablaðsins sl. laug- ardag um að Hreinn hafi upplýst stjórnarmenn í Baugi um það fyrir ári að forsætisráðherra hefði greint honum frá Nordica og Jóni Gerald Sullenberger á fundinum í London, þvert á það sem Davíð hefði sjálfur sagt. „Tilgangurinn er bara einn og þetta er grundvallaratriði þessarar svokölluðu fréttar sem Fréttablaðið bjó til. Tilgangurinn virðist vera sá einn að sanna það og taka undir með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt- ur um gróusögur sem hún lét af stað í Borgarfirði, að ég hafi skrökvað þessu. Hún hefur þegar komið fram og sagt að það sé augljóst að ég hafi logið, hvernig sem hún veit það nú. Þetta kom í Fréttablaðinu, sem er afskaplega alvarlegt, en látum það nú vera. Það kemur svo margt orðið úr þeirri átt sem er óskiljanlegt. En mér er það hulin ráðgáta hvernig mönnum datt í hug að koma þessu á framfæri vegna þess að þetta nafn [Jóns Geralds Sullenbergers] get ég ekki hafa nefnt,“ segir Davíð. Hann kveðst hafa rætt þetta við Hrein í símtalinu í gærmorgun og Hreinn kannast við að Davíð væri þeirrar gerðar að ef hann hefði nefnt nafn Jóns Geralds, þá hefði hann ekkert verið að fara í felur með það. „Ég er bara þannig gerður en þarna er þetta búið til, til þess að hægt sé að koma höggi á mig, og ég ímynda mér að þetta sé vegna þess að þessir menn eru undir lögreglu- rannsókn og þeir eru að reyna að gera þá rannsókn tortryggilega með öllum tiltækum ráðum og koma höggi á mig í leiðinni,“ segir Davíð. Sagt var frá Nordica í árs- skýrslu Baugs fyrir árið 2000 Í viðtali á Stöð 2 í gærkvöldi sagði Davíð að Hreinn héldi því sjálfur fram að hann hefði aldrei heyrt Jón Gerald Sullenberger og fyrirtækið Nordica nefnt fyrr en á fundi þeirra Davíðs. Hins vegar kæmi fram í ársskýrslu Baugs fyrir árið 2000, sem Hreinn hefði væntanlega lesið upp á aðalfundi, að fyrirtækið ætti í samstarfi við Nordica, bandarískt pökkunarfyrirtæki sem keypti vörur beint frá framleiðendum og vöruhúsum eins og Wal-Mart og Fleming. Þá vísaði Davíð einnig til ummæla Jóns Geralds í sjónvarpinu um að hann hefði hitt Hrein og þekkt til hans fyrir þennan tíma. Ingibjörg Sólrún opnaði þetta mál Í samtalinu við Morgunblaðið í gær var Davíð spurður hvaða áhrif þetta mál kynni að hafa á kosninga- baráttuna framundan og hvort það ætti að hans mati rætur í kosninga- baráttunni. Segist Davíð ekki vita það, „en sjálfsagt er það, því Ingi- björg Sólrún opnaði þetta mál með því að draga þrjú, fjögur fyrirtæki í dilka með sér og taldi að þau lægju undir einhverjum árásum frá mér, þ.e.a.s. Jón Ólafsson og Norðurljós, Kaupþing og Baugsfeðga. Ég dró enga slíka hringi. Hún dró þessi fyrirtæki inn í sinn dilk og er síðan með höfuðstöðvar í húsakynn- um Baugs við Lækjargötu, og er ekkert við því að segja. En hún dró þessi fyrirtæki í dilk og sagðist vera að varpa út orðrómi og sögum, sem er náttúrlega alveg með ólíkindum. Þannig hóf hún sína kosningabar- áttu. Ég vona svo sannarlega að þó að þessir flokkar hafi ekki talið sig geta rætt málefnastöðuna vegna þess að hún er svo sterk fyrir stjórnarflokkana, þá láti þeir nú af vinnubrögðum af þessu tagi. Það var augljóst að þessi frétt Frétta- blaðsins var að hluta til dæmi af þessu tagi,“ segir Davíð. Davíð Oddssyni forsætisráðherra var brugðið vegna frásagnar Hreins Loftssonar af ummælum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Í þessu samtali fólst enginn hálfkæringur omfr@mbl.is Davíð Oddsson Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, hafi greint sér frá því í samtali þeirra í Lond- on 26. janúar 2002, að Jón Ásgeir Jóhann- esson, forstjóri Baugs, hafi viðhaft þau um- mæli að greiða þyrfti Davíð 300 milljónir gegn því að hann léti af andstöðu við fyrirtækið. Ómar Friðriksson ræddi við Davíð í gær. Málið rætt í tvígang í London DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í samtali við Sjónvarpið, í Íslandi í dag á Stöð tvö og í Kast- ljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi að tal forstjóra Baugs um að bera á sig fé hefði tvívegis borið á góma í samtölum sínum og Hreins Loftssonar í London í janúar í fyrra og sér hefði verið mjög brugðið. „Í því samtali kemur fram að Hreinn Loftsson segir mér að for- stjóri fyrirtækis þess sem hann er stjórnarformaður fyrir hafi sagt að það þyrfti að gera mér tilboð um 300 milljónir króna til þess að ég léti af ímyndaðri andstöðu minni við Baug,“ sagði Davíð við Sjónvarpið. Í Íslandi í dag sagði Davíð að hann hefði tekið þessi ummæli Hreins mjög alvarlega og svo hefði virst sem Hreinn gerði það líka. Hann hefði beðið Hrein að segja sér þetta aftur og hann hefði endurtekið frásögnina. Þeg- ar hann hefði séð furðusvipinn á sér hefði hann sagst hafa sagt for- stjóranum að hann þekkti ekki forsætisráðherrann því ekki væri hægt að bera á hann fé. Þá hefði hann sagt að forstjórinn hefði sagt að enginn maður á Íslandi stæðist það að vera boðnar 300 milljónir sporlaust inn á hvaða reikning sem væri og ekki væri hægt að rekja það. Davíð sagði að þeir hefðu verið þrír saman inni á hótelherbergi og talað lengi saman auk þess sem þeir hefðu rætt aftur saman yfir kvöldverði. Illugi Gunnarsson, að- stoðarmaður sinn, hefði reyndar komið seinna inn í viðræðurnar, „en hann var viðstaddur þegar þetta samtal átti sér stað“. Davíð sagðist hafa verið með hugann við málið yfir kvöldverði þeirra seinna um kvöldið og því hefði hann tekið það upp aftur. Davíð endurtók þetta í Kastljós- inu og áréttaði að hann hefði aldrei sagt að Hreinn hefði verið aðili að því að bera á sig mútufé og það myndi hann aldrei ætla honum. Hins vegar væri lýsing sín á samtalinu rétt. Hann hefði skráð hana niður strax eftir fund- inn og tjáð trúnaðarmönnum sín- um þetta eftir að hann kom heim tveimur dögum síðar. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.