Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 29
Í LISTASAFNI Reykjavíkur –
Hafnarhúsi – stendur yfir sýning á
verkum norska myndlistarmanns-
ins Patricks Huses. Sýningin nefn-
ist „Penetration“ og er þriðja stóra
einkasýning listamannsins hér á
landi og lokasýning á þríleiknum
„Rethinking landscape“ (Landslag
endurhugsað). Sú fyrsta var í
Hafnarborg árið 1995 og önnur á
Kjarvalsstöðum árið 1999.
Patrick Huse er einn af mörgum
erlendum listamönnum sem hafa
orðið hugfangnir af íslenskri nátt-
úru og sækja hingað til lands til að
örva skapandi hugann. Huse er
þekktur fyrir tilfinningarlega þung
og jarðbundin landslagsmálverk,
Þetta eru þó ekki dæmigerðar
landslagsmyndir heldur flæmis-
málverk máluð sem nærmyndir af
eyðilegu landslagi, án fjarvíddar
eða fjallgarða. Auk málverkanna
sýnir hann nokkrar ljósmyndir,
textaverk og myndbandsinnsetn-
ingar. Textaverkin
þykja mér síst á sýn-
ingunni. Alls 21 spak-
mæli ritað í stál. Kann
ég vel að meta ástríð-
una að baki spakmæl-
anna, en á heildina eru
þau fullfrasakennd til
að hitta í mark.
Myndbandsinnsetn-
ingarnar eru sá hluti
sýningarinnar sem
kom mér mest á óvart,
sérstaklega þar sem
listamaðurinn hefur
jafnan verið kenndur
við málverk umfram
aðra tjáningarmiðla. Í
lítilli innsetningu, „Ár-
farvegur/Rennandi
vatn“, spilar hann
þessum tveimur tján-
ingarmiðlunum saman
með árangursríkum
hætti. Varpar hann
myndbandsupptöku af
rennandi vatni á vegg
til móts við málverk af
árfarvegi. Við áhorfun
dettur maður inn í
stöðuga hreyfinguna í
myndbandinu en í mál-
verkinu er það kyrr-
myndin sem lokkar. Í
báðum tilfellum má skynja þá hug-
arró sem er að finna í ósnortinni
náttúru. Í myndbandsverkinu „Sí-
felld hreyfing“ er aftur á móti ólg-
andi órói þrátt fyrir að mynd-
bandsupptakan á veggnum sýni
hreyfingarlausa mynd af landslagi.
Úr hljóðkerfi heyrast þær hrær-
ingar sem eiga sér stað undir jarð-
skorpunni og til hliðar við hreyf-
ingarlaust myndbandið er
hljóðbylgjuteikning sem iðar í takt
við hljóðupptökuna. Listamaðurinn
beinir þannig athygli áhorfandans
inn fyrir yfirborð landslagsins og
þá að eigin tilfinningum, því að
manneskjan er jú eins og náttúran,
ólgandi undir yfirborðinu.
Íslandsvinir í listasafninu
Varðandi framlag Listasafns
Reykjavíkur til sýningarflóru höf-
uðborgarinnar með sýningu Pat-
ricks Huses kastast ég á milli
tveggja hugleiðinga. Framlagið er
að mörgu leyti í takti við um-
ræðuna um hlutverk myndlistar og
myndlistarmanna sem hefur verið
áberandi undanfarið, bæði á list-
þingum og í fjölmiðlum. Íslenskir
myndlistarmenn hafa verið iðnir
við að mótmæla áformum um virkj-
anir á hálendinu og verið umdeildir
fyrir það. Margir álíta að myndlist
snúist um upplífgandi fagurfræði
og að listamenn ættu ekki að
sverta hana með því að blanda
henni inn í pólitísk málefni. En
listamenn eru auðvitað pólitískt
virkir og ber þeim að taka afstöðu í
samfélagslegri umræðu þótt það sé
ekki endilega inngangur þeirra að
listsköpuninni. Patrick Huse er
náttúruverndarsinni og situr ekki
á skoðunum sínum í þeim efnum,
hvorki í máli né myndum. Hefur
hann m.a. lýst því yfir að lands-
lagsmálverk sín miðli siðferðisleg-
um og pólitískum skilaboðum. Það
er því ágætt innlegg af hálfu safns-
ins að sýna verk nokkuð þekkts er-
lends listamanns sem hefur aug-
ljósa afstöðu sem varðar þetta
staðbundna umræðu.
Á hinn bóginn velti ég því fyrir
mér hvort Listasafn Reykjavíkur
ætti að vera að púkka undir tvær
sýningar með Patrick Huse, eða
tvo hluta af þríleik, þegar mikill
fjöldi er af framúrskarandi mynd-
listarmönnum úti í heimi sem vel
mætti kynna á Íslandi. Það eru
ekki margir erlendir myndlistar-
menn kynntir hérlendis með svo
umfangsmiklum hætti og stór
einkasýning í Listasafni Reykja-
víkur er. Ég er þá ekki að tala um
ganginn á Kjarvalsstöðum eða
smærri sýningarrými í Hafnarhús-
inu heldur þegar vestursalur Kjar-
valsstaða, tveir salir eða portið í
Hafnarhúsinu er helgað einum
listamanni. Alls hafa sjö slíkar
einkasýningar verið í listasafninu
síðan Huse sýndi þar árið 1999.
Rax Rinnekangas, Robert Dell,
John Baldessari, Odd Nerdrum,
Bernd Koberling, Martin Bigum
og Patrick Huse nú í annað sinn.
Fjórir af þessum sjö listamönnum
sýndu eða sýna verk sem hafa með
íslenska náttúru að gera. Þykir
mér það heldur takmörkuð kynn-
ing á erlendri samtímalist, eins
konar „How do you like Iceland?“-
sýningarstefna sem er afar smá-
borgaraleg ef hugað er að hinni
miklu breidd sem finna má í al-
þjóðlegri samtímalist í dag. Þá er
einnig það eftirtektarvert að engar
konur eru í hópi þessara erlendu
myndlistarmanna.
Ryksuga með sál
Hjá galleríum er sagan önnur og
aðrar kröfur gerðar til þeirra en
listasafna, enda ekki verið að
brúka fé hins opinbera nema þá fá-
einar krónur sem úthlutað er sem
styrk upp í rekstrarkostnað. Gall-
erí i8 er sölugallerí fyrir samtíma-
listir og það eina sinnar tegundar á
landinu. Lítið er af ögrandi, kæru-
leysislegri eða óvæntri nýlist í i8.
Frekar öguð myndlist viður-
kenndra listamanna. En ungum og
óþekktum listamönnum er þó boðið
að sýna þar í smáu rými undir stig-
anum. Rýmið er hálfvesældarlegt á
að líta en gaman er að fylgjast með
því hvernig ungir og framsæknir
listamenn takast á við það. Þessa
dagana hangir gömul ryksuga und-
ir stiganum. Hefur listakonan
Stella Sigurgeirsdóttir léð henni
vængi til minningar um þau tæki
og tól sem við hættum að nota,
hendum frá okkur og hafna að lok-
um handan gullna hliðsins á Sorpu.
Nokkuð skoplegt verk með fallega
hugmynd að baki. Hentugleiki sýn-
ingarrýmisins undir verkið er þó
spursmál. Þrengslin virka sem búr,
sem kann vel að vera listakonunni
að skapi, en fyrir vikið missir hug-
myndin um flug ryksugunnar allan
mátt.
Sætt, létt og
óstjórnað
Aðalsýningin í Gallerí
i8 er á vatnslitamyndum
eftir þýska málarann
Bernd Koberling, þann
hinn sama og sýndi í
Hafnarhúsinu í fyrravet-
ur. Bernd Koberling er
vel þekktur í alþjóðleg-
um myndlistarheimi og
mjög virtur í heimalandi
sínu. Hann kom fyrst til
Íslands með samlanda
sínum og kollega, Dieter
Roth, snemma á áttunda
áratug síðustu aldar og
hefur sótt hingað til
lands síðan. Vatnslita-
myndirnar í i8 eru af
sama toga og hann sýndi
í Hafnarhúsinu. Þar
voru vatnslitamyndir
málaðar í Loðmundar-
firði með hliðsjón af ljóð-
um eftir Gyrði Elíasson.
Sýndi hann einnig olíu-
málverk á ál sem var á
meðal þess besta sem
sást í málverki í Reykja-
vík það árið.
Vatnslitamyndir eru
mjög takmarkað listform og vissu-
lega erfitt að vinna það með áhuga-
verðum hætti í dag. En Koberling
er hæfur í sínu fagi. Létt og bjart
er yfir myndunum, aðferðin
óstjórnuð en framin af mikilli
þekkingu á efni og miðli. Verkin
sýna ekki eftirmyndir af náttúru
heldur er náttúran inngangur lista-
mannsins að myndsköpuninni.
Margt minnir þó á berjalyng eða
blóm án þess að hægt sé að festa
þá merkingu á myndirnar.
Íslensk náttúran birtist mjög
ólíkt í verkum Bernds Koberlings
og Patricks Huses. Sá fyrrnefndi
sækir í gróðursælt og líflegt um-
hverfi á Austfjörðum á meðan sá
síðarnefndi heldur sig við tóma
auðnina. Sætleikinn í verkum Ko-
berlings er sem andhverfa við
grófleikannn hjá Huse, eins og
léttleikinn er andhverfa þyngdar-
innar. Má segja að hér séu á ferð-
inni tveir Íslandsvinir upptendrað-
ir af gagnstæðri fegurð í íslenskri
náttúru.
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur
Opið alla daga frá kl. 10–17.
Sýningu lýkur 27. apríl.
ÝMSIR MIÐLAR
PATRICK HUSE
Gagnstæð fegurð
„Hinn fullkomni áfangastaður“
nefnist þetta olíumálverk eftir
Patrick Huse.
Ein af vatnslitamyndunum eftir Bernd Koberling í i8.
Gallerí i8
Opið fimmtudaga og föstudaga frá
kl. 11–18 og laugardaga frá kl. 13–17.
Sýningum lýkur 26. apríl.
VATNSLITAMYNDIR
BERND KOBERLING
BLÖNDUÐ TÆKNI
STELLA SIGURGEIRSDÓTTIR
Jón B.K. Ransu
HLJÓMSVEITARSTJÓRINN og fræðimaðurinn Joshua Rifkin heldur
fyrirlestur í tónlistardeild Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu 13 (flygla-
sal) á morgun, föstudag, kl. 16. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Perform-
ing Bach Today“. Auk þess heldur Rifkin meistaranámskeið í barrokk-
tónlist á vegum Listaháskólans laugardaginn 12. apríl frá kl. 12 til 16. Á
námskeiðinu leika nemendur tónlistardeildar kammerverk eftir Bach,
Biber og Benda. Bæði námskeiðið og fyrirlesturinn eru opin almenningi.
Joshua Rifkin með fyrir-
lestur um Bach í LHÍ
FIMMTUDAGS-
TILBOÐ
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
BARNASKÓR - LEÐUR
FRÁ
MARGAR GERÐIR
LITIR OG STÆRÐIR
VERÐ ÁÐUR 4.495
VERÐ NÚ 2.995
Ný búð
Nýjar vörur
Opnunartími:
11-18 mánudag-föstudag
11-18 og 20-22 fimmtudag
12-16 laugardag
Hverafold 1-3 Torgið - Grafarvogi Sími: 577 4949
Glæsilegar dragtir í
stærðum 38-52