Morgunblaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 27
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2003 27 ÞESS var minnst um helgina að 100 ár eru liðin frá því að Vopna- fjarðarkirkja var tekin í notkun. Kirkjan var byggð samkvæmt landshöfðingjaleyfi frá 7. nóv- ember árið 1899 en umræður um nauðsyn þess að byggja kirkju í Vopnafjarðarkauptúni höfðu stað- ið yfir frá 1890. Kirkjan var reist á skika sem gamla selstöðu- stórveldið Örum og Wulf gaf úr lóð verslunarinnar. Forsmiður var Björgólfur Brynjólfsson, sem einnig smíðaði Hofskirkju í Vopnafirði. Vopnafjarðarkirkja kostaði ný tæpar 10.000 krónur og þótti þetta mikið grettistak fyrir fátækan söfnuð. Margt merkra gripa er í kirkjunni. Til dæmis altaristafla sem Jóhannes Kjarval málaði, ein þriggja alt- aristaflna meistarans, hinar eru í heimabyggð hans í Bakkagerð- iskirkju á Borgarfirði eystra og í Innra-Hólmskirkju í Borgarfjarð- arprófastsdæmi. Altaristaflan í Innra-Hólmskirkju er þó ekki merkt honum en að sögn Björns Jónssonar, fyrrverandi prófasts á Akranesi, er staðfest að taflan er máluð af meistaranum. Þá eru í kirkjunni veggljós og ljósakróna sem komu úr Dómkirkjunni í Reykjavík en það voru ljósfæri sem brenndu olíu fram til 1953 en var þá breytt í rafmagnsljós. En ýmislegt þurfti í kirkju fyrir einni öld sem ekki er talin þörf á núna eins og bókun sóknar- nefndar frá 7. júní 1908 gefur til kynna en þar var samþykkt að kaup tólf hrákadalla í kirkjuna og virðist ekki hafa veitt af þá. Síðasta árið hefur verið unnið að endurbótum á Vopnafjarð- arkirkju og hún færð í upp- runalegt horf að ytra útliti. Jón Andrésson, smiður á Vopnafirði, sá um það verk. Til dæmis var gamall kross sem verið hafði á kirkjunni settur upp aftur en hann hafði vikið fyrir ljósakrossi. Afmælishátíðin á Vopnafirði hófst með hátíðarguðsþjónustu klukkan 14 og við það tækifæri voru tvær nýjar kirkjuklukkur teknar í notkun. Frumflutt var nýtt lag eftir Zbigniew Zuchowicz, skóla- stjóra Tónlistarskóla Vopna- fjarðar, við texta eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttur frá Teigi í Vopnafirði, sem orti undir skálda- heitinu Erla. Sigurður Sigurð- arson, vígslubiskup í Skálholti, predikaði en sóknarpresturinn, séra Sigfús Jón Árnason, þjónaði fyrir altari. Kirkjukórar Hofs- og Vopnafjarðarsókna sungu. Að lokinni guðsþjónustu var kirkju- kaffi að fornum sið í félagsheim- ilinu Miklagarði og þar var flutt rúmlega klukkustundar dagskrá. Haldið upp á 100 ára afmæli kirkjunnar Vopnafjörður Morgunblaðið/Jón Sigurðarson Fermingarbörn með presti sínum í Vopnafjarðarkirkju í vor. NÍU nemendur á umhverfisskipu- lagsbraut Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri unnu verkefni í samvinnu við Borgarbyggð um framtíðarnýt- ingu og fyrirkomulag Einkunna, sem er útivistarsvæði í Hamarslandi við Borgarnes. Hugmyndirnar voru kynntar á degi umhverfisins og af- hentar við það tækifæri bæjarstjóra Borgarbyggðar, Páli S. Brynjarssyni. Í máli hans kom fram að hugmyndin að samstarfi sveitarfélagsins og Landbúnaðarháskólans um skipulag svæðisins hefðu kviknað í tengslum við aðkomu íbúa að Staðardagskrá 21, þar sem rík áhersla var lögð á að efla útivistarsvæðið í Einkunnum og leita nýrra skipulagshugmynda. Páll þakk- aði nemendunum þeirra framlag og sagði að hugmyndir þeirra myndu nýtast vel í framtíðinni. Við afhendinguna hélt Auður Sveinsdóttir dósent á Hvanneyri tölu og lagði áherslu á mikilvægi þess að vera í samstarfi við sveitarfélög og at- vinnulíf í landinu. Í raun væri það há- skólum ómetanlegt tækifæri að fá slík viðfangsefni. Verkefni nemendanna lúta að því að skapa svæðinu sérstöðu og auknar vinsældir og voru hug- myndir þeirra athyglisverðar. Skógur hefur verið ræktaður í Einkunnum frá 1951 þegar hreppnefnd þáverandi Borgarhrepps girti þar af blett og af- henti skógræktarfélaginu Ösp. Sveit- arfélagið hefur hin síðari ár séð um rekstur og framkvæmdir á svæðinu og gert það að ákjósanlegu útivistar- svæði. Hið sérkennilega nafn er gam- alt og kemur fyrir í Egilssögu. Morgunblaðið/Guðrún Vala Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri með hugmyndir um framtíðarskipulag Einkunna ásamt fulltrúa nemenda, Kristínu Pétursdóttur. Nýjar hug- myndir um Einkunnir kynntar Borgarnes MIKIÐ líf og fjör var í Fjarðabyggð fyrir helgi en þá fór fram öld- ungamót Blaksambands Íslands. Þátttakendur á mótinu voru á milli sex og átta hundruð og hafði mótið mikil áhrif á samfélagið. Til að mynda er eitthvað um að bæj- arbúar leigi blökurum hús sín með- an á mótinu stendur. Þá fékk hluti grunnskólabarna frí í skólanum á föstudag, enda skólinn nýttur sem gistirými. Það er við hæfi að halda þetta líflega og fjöruga mót í blak- bænum Neskaupstað en þetta er í annað sinn á fjórum árum sem mót- ið er haldið hér. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Öldungarnir fjöl- menntu á blakmótið Neskaupstaður BÆJARSTJÓRN Ólafsfjarðar hefur samþykkt að slíta viðræðum um sam- einingu Siglufjarðar, Ólafsfjarðar, Dalvíkurbyggðar og Akureyrar, en samráðshópur sem fjallað hefur um slíka sameiningu óskaði eftir því að sveitarfélögin tækju afstöðu til slíkrar sameiningar áður en viðræðum yrði haldið áfram. Að mati bæjarstjórnar Ólafsfjarðar eru að skapast þær aðstæður við ut- anverðan Eyjafjörð sem gera samein- ingu Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Dalvíkurbyggðar að raunverulegum valkosti. Með sameiningu þessara sveitarfélaga geti skapast allt að 5.000 manna byggð sem geti staðið undir kröftugu og heildstæðu atvinnu- og þjónustusvæði sem geti veitt íbúum svæðisins þá lögbundnu þjónustu sem þeir eigi rétt á. Hugur bæjarstjórnar standi því fyrst og fremst til slíkrar sameiningar. Bókun þessa efnis var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn. Vilja ekki samein- ingu við Akureyri Ólafsfjörður Mynd af bæjarstjórunum fjórum, Guðmundi Guðlaugsson Siglufirði, Stef- aníu Traustadóttur Ólafsfirði, Valdimar Bragasyni Dalvíkurbyggð og Kristjáni Þór Júlíussyni Akureyri, var tekin á sameiginlegum fundi. Morgunblaðið/Helgi Jónsson ÞEIR áttu sér draum þessir hrossa- gaukar að lifa og njótast á Íslandi eitt sumar. Nýkomnir að Mývatni og byrjaðir ástaleiki á þjóðveginum, svo sem gaukum er tamt, urðu þeir fórn- arlömb miskunnarleysis mannanna. Einhver var að flýta sér mikið á þjóð- veginum við Stekkjarnes. Sá hefur ekki áttað sig á að fuglar eiga sitt til- hugalíf og gleyma þá alveg stund og stað. Það leyndi sér ekki að þannig hefur þetta borið að. Þessir fuglar flugu ekki á bíl. Það var ekið yfir þá óviðbúna. Lífsins leikur á miðjum vegi. Búið spil. Það mætti gera meira af því að minna ökumenn á að sýna fugli í um- ferðinni tillitssemi. Sá tími sem nú fer í hönd er sá tími þegar fuglar eru upp- teknir af öllu öðru en því að vara sig á ökuóðum Íslendingum. Stundum er það svo þegar kemur fram í maí og júní að ekki duga fingur til að telja dauða fugla á veginum umhverfis Mý- vatn. Mætti ekki biðja Vegagerðina og umferðarráð að setja upp bæna- skilti við þjóðveginn um miskunn þessum sumargestum til handa? Miskunnar- leysi umferð- arinnar Mývatnssveit Þannig fór sumarið þeirra. Morgunblaðið/BFH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.