Morgunblaðið - 02.06.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 148. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Þriðji í
Götzis
Jón Arnar krækti í bronsverðlaun
í tugþraut Íþróttir B3
Írar höfðu betur í boxkeppni í
Höllinni Fólkið 28
Húfurnar
settar upp
Háskólinn í Reykjavík útskrifar
29 MBA-nema 10
„ÉG TREYSTI mér ekki til að fullyrða að einhver
700 tonn leysi öll vandamál. Ég held að þetta sé
flóknara en svo,“ segir Aðalsteinn Þorsteinsson,
forstjóri Byggðastofnunar, um vanda Raufarhafn-
ar. Það þurfi fleira en kvótaúthlutun að koma til.
Aflamark allra skipa og báta á Raufarhöfn, um 20
talsins, er um 1.665 þorskígildistonn. Nær allur afl-
inn er leigður til annarra útgerða eða aflinn unninn
annars staðar. Heimamenn leita nú logandi ljósi að
varanlegri lausn í atvinnumálum á svæðinu eftir að
öllu starfsfólki, 50 talsins, var sagt upp störfum hjá
Jökli. Hluti þess verður endurráðinn.
„Þeir sem ráða nýtingu á veiðiheimildunum eru
þeir sem eiga þær,“ segir Aðalsteinn aðspurður um
hvort hægt sé að hvetja handhafa veiðiheimilda
skipa, sem skráð eru á Raufarhöfn, til að veiða og
vinna aflann í heimabyggð. Það sé ekki í verkahring
eða á valdsviði starfshóps, sem félagsmála- og iðn-
aðarráðherra skipuðu nýlega, að skikka menn til að
veiða aflann og vinna í byggðarlaginu. Ef til vill sé
hægt að höfða til samfélagslegrar ábyrgðar manna.
Spurður að því hvort smærri útgerðir í heima-
byggð beri ríkari skyldur en stærri sjávarútvegs-
félög gagnvart íbúum svæðisins segir Aðalsteinn
ekkert hægt að fullyrða um það.
Bjarki Jóhannesson, forstöðumaður þróunar-
sviðs hjá Byggðastofnun, fer til Raufarhafnar í dag
til að afla gagna um málið áður en starfshópurinn
mætir á fimmtudag.
Fulltrúi Byggðastofnunar
fer til Raufarhafnar í dag
Meiri kvóti
leysir ekki öll
vandamál
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hyggst flytja höfuð-
stöðvar félagsins úr Mosfellsbæ í byggingu Lands-
afls við Höfðabakka í Reykjavík. Ragnheiður Rík-
harðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, kveðst hafa
fengið tilkynningu
um þessa ákvörðun
félagsins í tölvu-
pósti síðastliðinn
föstudag og að þar
hafi jafnframt verið
sagt að ákvörðunin
yrði tilkynnt formlega með sendibréfi. Rúmlega
100 starfsmenn flytja með fyrirtækinu til Reykja-
víkur en tæknideild verður áfram í Mosfellsbæ.
„Forsvarsmenn Atlanta sóttu það stíft fyrir ára-
mót að fá lóð í Mosfellsbæ undir nýjar höfuðstöðv-
ar. Töldu þeir sig hafa fundið ákjósanlega staðsetn-
ingu á athafnasvæði í Krikahverfi sem bæjar-
yfirvöld drifu í að deiliskipuleggja í framhaldinu. Í
febrúar urðu síðan eigendaskipti hjá fyrirtækinu og
stríð í Írak var yfirvofandi. Þá fengum við bréf þar
sem sagði að ákvarðanatöku varðandi nýbyggingu
höfuðstöðvanna hefði verið frestað þar til í ágúst.
Síðan heyrum við ekkert þar til nú, að bæjaryf-
irvöldum er tilkynnt þessi niðurstaða með tölvu-
bréfi,“ segir Ragnheiður.
Tíðindi að Atlanta flytji úr Mosfellsbæ
„Það eru auðvitað stór tíðindi fyrir okkur að Atl-
anta hyggist flytja starfsemi sína úr Mosfellsbæ.
Starfsemi Atlanta hafa fylgt töluverð umsvif auk
þess sem vera fyrirtækisins hefur verið jákvæð fyr-
ir bæinn sem slíkan. Fyrirtækið verður til á þessu
svæði og nú horfum við á eftir því þegar það hefur
fullorðnast. Tengsl stofnenda félagsins hafa líka
verið sterk við Mosfellsbæ,“ segir Ragnheiður.
Forsvarsmenn Atlanta vildu ekki tjá sig um mál-
ið í gær.
Atlanta flytur
höfuðstöðvar
til Reykjavíkur
♦ ♦ ♦
ÁTÖK blossuðu upp í gær milli
óeirðalögreglu og andstæðinga
alþjóðavæðingar sem lokuðu
vegum og brúm í Frakklandi og
Sviss til að mótmæla leiðtoga-
fundi átta helstu iðnríkja heims í
franska bænum Evian.
Tugir þúsunda manna tóku
þátt í mótmælagöngu að landa-
mærum Frakklands og Sviss og
fór hún friðsamlega fram að
mestu. Lögreglumenn beittu
hins vegar táragasi og skutu
gúmmíkúlum að hundruðum
mótmælenda í svissnesku borg-
unum Genf og Lausanne eftir að
þeir höfðu grýtt lögreglumenn
og skemmt bensínstöðvar og
bíla. Franskir lögreglumenn
beittu einnig táragasi gegn
1.500 mótmælendum sem mót-
mæltu stríðinu í Írak og reyndu
að loka vegi nálægt bænum
Thonon.
Trufluðu ekki fundinn
Nokkrir mótmælendur
gengu einnig berserksgang í
Genf í fyrrinótt, brutu rúður í
verslunum og köstuðu bensín-
sprengjum á opinberar bygg-
ingar.
Mótmælendunum tókst þó
ekki að trufla leiðtogafund iðn-
veldanna. Leiðtogarnir voru
fluttir með þyrlum frá flugvell-
inum í Genf til Evian.
Öryggisviðbúnaðurinn vegna
leiðtogafundarins var svo mikill
að mótmælendurnir þurftu að
safnast saman í grennd við
Genf og franska landamæra-
bæinn Annemasse þar sem þeir
settu upp miklar tjaldbúðir.
Um 25.000 her- og lögreglu-
menn tóku þátt í öryggisvið-
búnaðinum, hinum mesta í
Sviss og Frakklandi frá síðari
heimsstyrjöldinni.
Mótmælendurnir gengu frá
Annemasse og Genf að landa-
mærunum. Skipuleggjendur
göngunnar sögðu að 60.000
manns hefðu tekið þátt í henni.
Hörð átök milli mót-
mælenda og lögreglu
Mesti öryggis-
viðbúnaður í Sviss
og Frakklandi frá
síðari heimsstyrjöld
Genf. AFP.
LEIÐTOGAR átta helstu iðn-
ríkja heims kappkostuðu að
sneiða hjá deilunum um Írak
þegar þriggja daga fundur þeirra
hófst í franska bænum Evian í
gær. Þeir lögðu áherslu á nauð-
syn samstöðu í baráttunni gegn
alnæmi og hungri í þróunarlönd-
unum.
Fjölmiðlamenn fylgdust
grannt með því þegar Jacques
Chirac Frakklandsforseti tók á
móti George W. Bush Banda-
ríkjaforseta vegna deilna þeirra
síðustu mánuði um stríðið í Írak.
Þeir heilsuðust með kurteislegu
brosi, stuttu handabandi og
spjalli áður en þeir snæddu há-
degisverð með öðrum forsetum
og forsætisráðherrum.
Chirac hélt blaðamannafund
síðar um daginn og fór þá lofsam-
legum orðum um Bush fyrir að fá
Bandaríkjaþing til að samþykkja
að auka framlögin til baráttunn-
ar gegn alnæmi í þróunarlöndun-
um um 15 milljarða dala, andvirði
rúmra 1.000 milljarða króna.
„Bush tók ákvörðun á þessu sviði
sem ég myndi ekki hika við að
kalla sögulega,“ sagði Chirac.
Hann skýrði einnig frá því að
Frakkar hygðust þrefalda fram-
lög sín til baráttunnar gegn al-
næmi.
Leiðtogarnir virtust leggja sig
í framkróka við að láta ekki deil-
urnar um Írak skyggja á fund-
inn. „Allir töluðu á jákvæðum
nótum. Enginn talaði um það
sem er liðið,“ sagði Jean Chreti-
en, forsætisráðherra Kanada.
„Allir einbeittu sér að því að
skapa andrúmsloft samstöðu.“
Leiðtogar iðnveldanna reyna að sneiða hjá deilunum um Írak
Áhersla lögð á samstöðu
í baráttunni gegn alnæmi
Evian. AP.
Reuters
Pútín og Bush/12
LÖGREGLUMENN handtaka mótmælanda í
borginni Lausanne í Sviss þar sem hundruð and-
stæðinga alþjóðavæðingar gengu um göturnar í
gær, brutu rúður í verslunum, reistu vegartálma
og létu greipar sópa á tveimur bensínstöðvum.
Um 400 manns voru handtekin í borginni en
flestir voru látnir lausir eftir yfirheyrslu.
Einn mótmælendanna í Lausanne slasaðist al-
varlega þegar hann féll af brú eftir að lög-
reglumenn skáru á reipi sem hann hékk á, að
sögn svissnesks dómara sem rannsakaði at-
burðinn.
Um 2.000 manns hunsuðu síðar um daginn
fyrirmæli lögreglu um að hætta mótmælunum
og fóru í aðra göngu til að láta í ljós stuðning
við mótmælandann sem slasaðist.
Hundruð mótmælenda handtekin
Hnefarnir
á lofti