Morgunblaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR 44 FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MARGIR leikmanna knattspyrnuliðs KR eru meiddir og óvíst hvort þeir verða með gegn HK í 32-liða úrslit- um bikarkeppni karla sem fram fer á Kópavogsvelli í kvöld klukkan 19.15. KR er í 3. sæti úrvalsdeild- arinnar en HK í 4. sæti fyrstu deild- ar. Sigursteinn Gíslason er frá vegna magakveisu. Sigursteinn fór í gærmorgun í magaspeglun á spítala og óvíst hversu lengi hann verður utan vallar. Einar Þór Daníelsson, Veigar Páll Gunnarsson, Gunnar Einarsson, Sigurvin Ólafsson, Arnar Gunnlaugsson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson, allt fyrrverandi atvinnu- menn, eru allir tæpir fyrir leik kvöldsins. Þá er sóknarmaðurinn ungi Kjartan Henry Finnbogason tá- brotinn. Willum Þór Þórsson, þjálf- ari KR, vildi gera sem minnst úr meiðslavandræðum KR-liðsins í samtali við Morgunblaðið. „Ég hef nú ekki miklar áhyggjur af þessu. Meiðsli hafa alltaf fylgt fótboltanum en þó verður að segjast að við höfum verið óvenju óheppnir í ár,“ sagði Willum Þór. Níu bikarleikir fara fram í kvöld og í sjö þeirra sækja lið úr úrvals- deildinni heim lið úr neðri deildum. Reyndar spila Valsmenn „útileik“ sinn gegn 3. deildarliði Núma á heimavelli að Hlíðarenda.  ANTON Pálsson og Hlynur Leifsson, milliríkjadómarar í hand- knattleik, hafa verið valdir til að dæma í Evrópumóti unglingalands- liða kvenna, sem fer fram í Rúss- landi 22. til 31. ágúst. Þá verður Helga Magnúsdóttir einn af um- sjónarmönnum mótsins á vegum Handknattleikssambands Evrópu, EHF.  GUNNAR Gunnarsson verður aft- ur á móti eftirlitsmaður á Evrópu- móti drengjalandsliða, sem fer fram í Slóvakíu 8. til 17. ágúst, en Ísland er á meðal keppnisliða á mótinu.  ATLI Knútsson, fyrrum mark- vörður Grindavíkur, Breiðabliks og fleiri liða, verður í marki 3.-deild- arliðs Deiglunnar þegar það tekur á móti Víkingi í 32-liða úrslitum bik- arkeppninnar í kvöld. Atli lék sinn fyrsta A-landsleik í byrjun síðasta árs, spilaði síðan nokkra leiki með Grindavík en lagði svo skóna á hill- una vegna atvinnu sinnar.  ANDRI Karlsson úr Breiðabliki náði besta árangrinum á stigamóti Breiðabliks sem haldið var á Kópa- vogsvelli í fyrrakvöld. Hann hljóp 100 metra á 10,91 sekúndu. Sigur- karl Gústafsson, UMSB, varð annar á 11,12 sekúndum og Magnús V. Gíslason, Breiðabliki, þriðji á 11,17 sekúndum.  DAVID O’Leary, knattspyrnu- stjóri Aston Villa, hefur leyst þjálf- arana John Deehan og Stuart Gray frá störfum. O’Leary ætlar að ráða tvo menn sem störfuðu með honum hjá Leeds á Elland Road – Roy Aitken og Ian Broomfield.  O’LEARY er nú að kanna leik- mannahóp sinn og hvort hann þurfi að styrkja hann fyrir komandi keppnistímabil. Enn er óljóst með framhald Jóhannesar Karls Guð- jónssonar hjá Aston Villa. FÓLK Eins og svo oft áður er íslensklandslið leika á erlendum vett- fangi þar sem dómarar frá Evrópu dæma leikina eru mjög oft dæmd skref þegar íslenskir leik- menn reyna að fara framhjá varnar- manni sínum og að sama skapi fá andstæðingar liðsins að „vafra“ um með boltann í höndunum á leið sinni upp að körfunni og taka að því virðist þrjú skref. Svokallað „Evrópuskref“. Dómarar á Smáþjóðaleikunum á Möltu dæmdu mikið á íslensku leik- mennina í karla- og kvennaliðinu hvað skrefin varðar og oft á tíðum gátu vissir leikmenn vart sett knött- inn í gólfið án þess að dæmd væru skref. Friðrik Ingi Rúnarsson lands- liðsþjálfari karlaliðsins segir að löngu tímabært sé að íslenskir dóm- arar færi sig nær túlkun dómara frá meginlandi Evrópu hvað skrefadóma varði – því í raun sé um allt aðra íþrótt að ræða hjá íslenskum leik- mönnum. „Ég hef verið viðloðandi körfuknattleik á alþjóðlegum vett- fangi s.l. tólf ár og þetta er ekki að koma okkur á óvart. Menn hafa rætt þetta sín á milli án árangurs heima á Íslandi en nú er svo komið að einhver frá Íslandi þarf að fara til forráða- manna Alþjóðakörfuknattleikssam- bandsins, FIBA, og fá þá til að aðlaga meginland Evrópu að Íslandi – eða það sem er einfaldara, að íslenskir dómarar fari að nota sömu áherslur og tíðkast á meginlandi Evrópu. Þetta mun verða okkar akkillesar- hæll áfram ef ekkert breytist,“ sagði Friðrik og vildi meina að íslenskir dómarar sem dæmdu á Alþjóðavett- vangi færu inná sömu brautir og koll- egar þeirra þegar íslenskir dómarr fengju verkefni á erlendri grundu. „Þessu þarf að breyta og ég held að þessi umræða komi alltaf upp í hvert einasta skipti sem íslensk landslið eða félagslið leika gegn erlendum lið- um. Það er alltaf verið að dæma skref á okkar leikmenn og allir vita hvert vandamálið er en enginn gerir neitt í því,“ sagði Friðrik Ingi. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar tap Spurs var staðreynd þrátt fyrir að Tim Duncan hefði náð frákast- inu og sett boltann í körfuna. Það var fyrst og fremst leikgleði New Jersey sem gerði gæfumun- inn í leiknum. Liðið skoraði ekki körfu úr opnum leik síðustu fjórar mínúturnar, en átta stig af vítalín- unni innsigluðu sigurinn. Nets skoraði alls 53 stig úr skotum inni í vítateignum, en þar er vörn Spurs venjulega sterkust. Nets náði einn- ig að spila mun betri vörn á Toni Parker, leikstjórnanda Spurs. By- ron Scott þjálfari var ánægður með sína menn í leikslok. „Ég var nokk- uð vonsvikinn þegar við misstum forystu okkar í þriðja leikhluta, en baráttugleðin gerði gæfumuninn fyrir okkur í lokin og leikmenn mínir neituðu hreinlega að tapa þessum leik.“ Atkvæðamestir hjá Nets voru Kenyon Martin með 20 stig, Richard Jefferson 20 og Jason Kidd 16. San Antonio tapaði þessum leik fyrst og fremst á lélegri skotnýt- ingu. Spurs skoraði aðeins úr tæp- lega 29% af skotum sínum, sem er þriðja versta skotnýting liðs í sögu lokaúrslitanna. Þeir Malik Rose, Parker og Steven Jackson hittu að- eins samtals úr tveimur af þrjátíu skotum sínum og það gerði gæfu- muninn í leiknum. Tim Duncan setti 23 stig og David Robinson 14, en aðrir voru miður sín í sókninni í þetta sinn. Ef Spurs ætlar sér sig- ur í sjötta leiknum í nótt er eins gott að leikmenn fari að hitta úr meira en rúmlega fjórðungi af skotum sínum. Nets verður að halda áfram í næstu leikjum að gera atlögu að körfu Spurs og halda áfram að berjast eins og ljón. Meistararnir úr Austurdeildinni eiga nú loks möguleika á að gera þessi loka- úrslit spennandi, eins og við spáð- um í upphafi. Sigur í fimmta leikn- um í nótt er nauðsynlegur því Spurs mun ekki tapa tveimur leikj- um í röð á heimavelli. Leikurinn í New Jersey var jafnlengst af í fyrri hálfleik, en Nets náði ellefu stiga forystu í hálfleik með góðum leikkafla. San Ant- onio svaraði með góðum leikkafla í þriðja leikhlutanum og virtist vera að ná taki á leiknum, en heimamenn neituðu að gefast upp og allt var í járnum í lokin. Nets náði 77:74 forystu þegar fimm sekúndur voru eftir. Argent- ínumaðurinn Manu Ginobili fékk opið skot eftir leikhlé fyrir Spurs. Skot hans geigaði hins vegar og AP Richard Jefferson og samherjar hjá New Jersey Nets fögnuðu sigri á San Antonio Spurs. Lok, lok og læs! NEW Jersey Nets jafnaði metin í lokaúrslitum NBA gegn San Anton- io Spurs með góðum sigri, 77:76, í fjórða leik liðanna á miðvikudag og er nú heldur betur komið fjör í leikjaseríuna. Leikurinn ein- kenndist af slakri hittni leikmanna, en frábærri baráttu beggja liða. „Það er eins gott að þið venjist þessu, því allir leikirnir eiga eftir að vera svona,“ sagði Byron Scott, þjálfari Nets í leikslok. Gunnar Valgeirsson skrifar frá Bandaríkjunum Óvissa með marga KR-inga ÍSLENSKA drengjalandsliðið í handknattleik, skipað leik- mönnum 19 ára og yngri, tryggði sér rétt til að leika úrslitakeppni í Evrópu- keppni drengjaliða, sem fer fram í Slóvakíu 8.-17. ágúst. Mótherjar Íslendinga í A- riðli eru Ungverjaland, Sló- vakía, Slóvenía, Þýskaland og Rússland. Í B-riðli leika Portúgal, Króatía, Svíþjóð, Frakkland, Júgóslavía og Danmörk. Ísland í sterkum riðli á EM OPNA BÚNAÐARBANKAMÓTIÐ! Golfklúbbur Selfoss stendur fyrir OPNA BÚNAÐARBANKAMÓTINU laugardaginn 14. júní. Leikform er TEXAS-SCRAMBLE. Tveir leika saman og fá samanlagða vallarforgjöf deilt með fimm. Uppl. og skráning í s. 482 3335, virka daga milli kl. 13.00 og 16.00 Glæsileg verðlaun fyrir 4 efstu pörin í formi gjafabréfa frá Golfbúðinni Strandgötu, Hafnarfirði. Einnig tvenn mælingaverðlaun. Rástímar frá 08.00 - 10.30 og frá 13.20 - 15.00 Styrktaraðili: Búnaðarbankinn. „Körfuknattleiksdómarar á Íslandi þurfa að breyta sínum áherslum“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.