Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 164. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Finnar forviða Fall Anneli Jäättenmäki sagt áfall fyrir konur Erlent 16 Systkinin syngja saman Páll Óskar og Diddú á tónleikum með Moniku Abendroth Fólk 53 Öldungur í atvinnulífinu Ron Eyjolfson er 94 ára og býr til skyr og rúllupylsu Daglegt líf 2 BRETAR drógu í gærkvöld til baka umdeildar tillögur sem miðuðu að því að herða á reglum Evrópusambands- ins (ESB) um hælisleitendur eftir að ljóst varð að þær myndu ekki hljóta hljómgrunn á sögulegum leiðtoga- fundi ESB, sem nú er hafinn í Grikk- landi. Málefni hælisleitenda voru á dagskrá fundarins í gær en reiknað er með því að umræður um drög að stjórnarskrársáttmála fyrir sam- bandið beri hæst á fundinum. Bretar höfðu lagt til að komið yrði upp eins konar „móttökustöðvum“ fyrir hælisleitendur, nærri átaka- svæðum í öðrum heimshlutum, til að stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda til landa ESB. Yrði ör- yggi hælisleitenda tryggt á þessum móttökustöðvum á meðan lagt væri mat á beiðni þeirra um hæli í ríkjum ESB. Bresk stjórnvöld halda því fram að núgildandi kerfi sé of götótt, auk þess sem það sé einnig of kostnaðar- samt. Skapa þurfi skilyrði til að hægt sé að gera fyrr greinarmun á fólki, sem raunverulega þarfnast pólitísks hælis og hinna, sem fyrst og fremst vilja njóta ávaxta samfélagsþjónustu og betra atvinnuástands í aðildar- löndum ESB. „Breska stjórnin hefur hlustað á andmæli og efasemdir ólíkra landa og hefur í framhaldi ákveðið að draga til- lögur sínar til baka,“ sagði hins vegar Anna Lindh, utanríkisráðherra Sví- þjóðar, í gærkvöld. „Fæstar þjóðir ESB geta sætt sig við þessar tillög- ur,“ sagði Panos Beglitis, talsmaður grískra stjórnvalda. „Evrópa þarf áfram að vera lýðræðislegt svæði sem tryggir fólki pólitískt hæli, þar sem ekki eru reknar einangrunarbúðir.“ Leiðtogafundinn átti fyrst að halda í borginni Þessalóníku í Norður- Grikklandi en af öryggisástæðum var hann fluttur til Porto Carras, sem er í um 100 km fjarlægð. Mikill öryggis- viðbúnaður er af hálfu grískra stjórn- valda, sem farið hafa með forystu í Evrópusambandinu undanfarna sex mánuði. Nokkur þúsund manns mót- mæltu fundinum í Þessalóníku í gær en ekki kom til átaka. Leiðtogar ESB-ríkjanna snæddu saman kvöldverð í gær og var þar m.a. rætt um málefni Mið-Austur- landa, Íraks og Írans; auk þess sem baráttuna gegn alþjóðlegum hryðju- verkum bar á góma. EPA Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, Jacques Chirac Frakklandsforseti og Dominique de Villepin, utanríkisráðherra Frakklands, ræða við gest- gjafann, Costas Simitis, forsætisráðherra Grikklands, í gær. Sögulegur leiðtogafundur Evrópusambandsins hafinn í Grikklandi Höfnuðu til- lögum um hælisleitendur Porto Carras. AFP, AP. UNGUR piltur sleppur naumlega úr eldi sem ísr- aelskir landtökumenn höfðu kveikt til að koma í veg fyrir að ísraelskir hermenn gætu rifið niður útvarð- arstöðvar gyðinga í Mitzpeh Yithzar á Vesturbakk- anum. Samkvæmt Vegvísinum til friðar eiga Ísrael- ar að fjarlægja allar ólöglegar útvarðarstöðvar sem ísraelskir landtökumenn hafa reist síðustu tvö ár. Shimon Peres var í gærkvöldi kjörinn leiðtogi ísraelska Verkamannaflokksins. Peres, sem er 79 ára gamall, er handhafi friðarverðlauna Nóbels og hefur gegnt embættum bæði forsætis- og utanrík- isráðherra í Ísrael. Reuters Hafist handa við niðurrif  Fyrsta/16 NÆR þriðjungur Ástrala not- ar áfengi, lyf og ólögleg fíkni- efni til að takast á við streitu daglegs lífs að því er fram kem- ur í þarlendri rannsókn sem kynnt var í gær. Vísindamenn- irnir komust að þessari kvíð- vænlegu niðurstöðu eftir að hafa unnið úr gögnum sem safnað var um heilsufar Ástrala á síðasta ári. Yfirmaður rannsóknarinnar, dr. Clive Hamilton, kvað þessa þróun vera áhyggjuefni. „Við ættum að vera hamingjusöm og lifa góðu lífi, við erum auðug þjóð,“ sagði hann. „Þess í stað stríða Ástralar við faraldur þunglyndis.“ Að sögn Hamiltons nota ástralskir karlar helst áfengi sér til hugarhægðar en konur nota fremur lyf. Þá sagði hann eldra fólk nota lögleg efni svo sem kvíða- eða þunglyndislyf og áfengi til að draga úr streit- unni en unga fólkið er mun lík- legra til að nota ólögleg efni á borð við maríjúana, kókaín, heróín og amfetamín. Þriðjung- ur Ástr- ala háður lyfjum Sydney. AFP. RÁÐIST var á bandaríska hermenn nærri Bagdad, höfuðborg Íraks, í gærmorgun og beið einn bana og tveir særðust. Þá særðust nokkrir Bandaríkjamenn til viðbótar í tveim- ur árásum nærri bænum Fallujah, vestur af Bagdad, seint í gærkvöld. Talsmaður Bandaríkjahers sagði um árásina, sem gerð var í gær- morgun, að skotið hefði verið eld- flaug á sjúkrabifreið hersins í bæn- um Iskandariya, suður af Bagdad, með þeim afleiðingum að sjúkraliði lést. Þetta er þriðja árásin í Bagdad og nágrenni í þessari viku sem kost- ar bandarískan hermann lífið. Árásir íraskra harðlínumanna eru nú tíðari þrátt fyrir áframhaldandi tilraunir Bandaríkjahers til að handsama helstu stuðningsmenn Saddams Husseins, fyrrv. forseta landsins. Alls hafa 13 bandarískir hermenn fallið í árásum sem þessum síðan þær hófust í maí. Á miðvikudag biðu tveir Írakar bana þegar Bandaríkjamenn skutu á hóp fyrrverandi liðsmanna Íraks- hers sem söfnuðust saman til að mót- mæla því að fá ekki greidd laun. Paul Bremer, bandaríski landstjórinn í Írak, leysti Íraksher upp og eru fyrr- verandi liðsmenn óánægðir með að vera sviptir lífsviðurværinu. Enn ráðist á banda- ríska hermenn Bagdad. AFP. GUÐMUNDUR Árni Stefánsson, þingmað- ur Samfylkingarinnar, sagði í ræðu á flokks- stjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær að flokkurinn ætti að bjóða sér fram í öllum sveitarfélögum í næstu sveitarstjórnarkosn- ingum. Í samtali við Morgunblaðið staðfesti Guðmundur Árni þetta og sagði að það tæki einnig til Reykjavíkur. „Ég vil vera reiðubú- inn til þess,“ sagði Guðmundur Árni. „Mér heyrist tónninn í ýmsum samstarfsaðilum innan R-listans vera þannig að það sé rétt fyrir Samfylkinguna að vera í stakk búin fyrir sérframboð.“ Hann kvaðst þó ekki vita annað en að borgarstjórnarfulltrúar R-listans væru í samstarfinu af heilum hug. „Ég veit ekki til þess að það sé nein breyt- ing á leiðinni. Hins vegar hef ég heyrt í um- liðinni kosningabaráttu frá ýmsum í Fram- sóknarflokki og Vinstri-grænum sem hafa verið að gefa annað til kynna, þannig að ég tel að Samfylkingin sé reiðubúin í framboð þarna eins og annars staðar. Ég tel að Sam- fylkingin, 31% flokkur, eigi að bjóða fram sem víðast á landinu undir eigin merkjum. Hún hefur til þess burði og stærð og á að gera það,“ sagði Guðmundur Árni. Guðmundur Árni Stefánsson Samfylkingin bjóði sér fram í öllum sveit- arfélögum  Uppgjör/11 VALERY Gisc- ard d’Estaing, fyrrverandi for- seti Frakklands, kom til fundarins í Porto Carras í Grikklandi í gær. Hann kynnir leið- togum ESB- ríkjanna í dag drög að stjórn- arskrársáttmála fyrir sambandið. D’Estaing hafði veg og vanda að gerð sáttmálans. Hann sat í forsæti eins konar stjórnlagaþings ESB, sem í um sextán mánuði vann að því að skrifa stjórnarskrárdrögin. Kynnir stjórnar- skrárdrögin í dag  Viðkvæmt/18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.