Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						FRÉTTIR

2 MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ

SKOÐA RÉTTARSTÖÐU

Talsmenn fyrirtækja, sem stóðu

fyrir útboðum þar sem Samkeppn-

isstofnun telur að olíufélögin hafi

haft með sér ólögmætt samráð um

gerð tilboða, segjast munu fylgjast

grannt með rannsókn stofnunar-

innar og skoða réttarstöðu fyr-

irtækjanna.

Gott eftirlit á Blönduósi

Lögreglan á Blönduósi fékk á

laugardag viðurkenningu frá nokkr-

um tryggingafélögum fyrir að sýna

ósérhlífni í starfi við að fylgjast með

þjóðveginum og stöðva þá sem keyra

of hratt. 

Brenndist á iljum

Ellefu ára drengur hlaut annars

stigs bruna á iljum þegar hann gekk

í hver í flæðarmáli Laugarvatns á

laugardag. Að sögn starfsmanns

gufubaðsins á staðnum hafa nokkrar

hræringar orðið við hverina að und-

anförnu og nýr hver opnast þar sem

drengurinn brannst. 

Hvönn í hálstöflur og krem

Í Mýrdal hefur verið safnað um

fimm tonnum af ætihvannarlaufum.

Til stendur að nýta laufin í ný nátt-

úrulyf; krem og hálstöflur, sem

koma á markað á næstunni. 

Upplýsti um heimildarmann

Breska ríkisútvarpið, BBC, stað-

festi í gær að helsti heimildarmað-

urinn fyrir frétt stöðvarinnar um að

ríkisstjórnin hefði ýkt hættuna af

Írak til að réttlæta stríðið þar, væri

dr. David Kelly, sá sami og fannst

látinn á föstudag eftir að hafa stytt

sér aldur. Blair stendur í ströngu

vegna hneysklisins og vilja sumir að

hann segi af sér. BBC liggur líka

undir ámæli fyrir vinnubrögð sín.

Ólga eykst í Írak

Óttast er að ókyrrð og árásir fari

vaxandi í Írak en í gær var m.a. ráð-

ist á bílalest þar sem var kirfilega

merkt Sameinuðu þjóðunum. Um

10.000 manns mótmæltu veru

bandaríska hersins í hinni helgu

borg Najaf í gær. 

Fituneysla og brjóstakrabbi

Niðurstöður nýrrar breskrar

rannsóknar benda til þess að helm-

ingi meiri líkur séu á brjósta-

krabbameini hjá konum sem neyta

fituríkrar fæðu. Líklegt er að nið-

urstaðan verði umdeild því fyrri

rannsóknir hafa ekki sýnt fram á

tengsl þarna á milli.

mánudagur 21. júlí 2003 mbl.is

Kjörhiti

í hverju herbergi

Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu

Fasteignablaðið

// Úlfarsfell

Á Úlfarsfelli í Mosfellsbæ hefur sama ættin

búið í heila öld. Freyja Jónsdóttir segir ágrip

sögu húss, jarðar og íbúa sl. 100 ár.

L5077626

// Íbúðalán

Lán Íbúðalánasjóðs eru markaðsvædd og hafa

verið frá stofnun sjóðsins árið 1999. Hallur

Magnússon fjallar um þetta efni í pistli sínum

um sjóðinn.L5077626

// Karlaþvagskál 

Þvagskálar fyrir karla er umfjöllunarefni

Sigurðar Grétars Guðmundssonar í pistli

hans, en þýskt fyrirtæki m.a. framleiðir slík-

ar skálar.L5077646

// Múrklæðning

Klæðning húsa er mikið mál fyrir húseig-

endur. Rætt er við Gísla Kr. Björnsson um

Sto-múrkerfi sem verið hefur á markaðinum

frá 1978.L5077647

  MT72MT101MT105MT109MT105MT108MT100MT58     MT72MT101MT105MT109MT105MT108MT100MT58MT32MT70MT97MT115MT116MT101MT105MT103MT110MT97MT109MT97MT116MT32MT114MT237MT107MT105MT115MT105MT110MT115    MT70MT106MT246MT108MT100MT105MT32MT254MT105MT110MT103MT108MT46MT115MT97MT109MT110MT105MT110MT103MT97         MT193MT83 MT68MT65MT77MT74MT74 MT79MT78 MT74MT70MT77  MT193MT74MT83MT79MT78 MT77MT68MT74MT70                                                       MT49MT46MT51MT48MT53         FRAMKVÆMDIR eru nú í fullum gangi við gerð9 holu golfvallar í Leirdal í Kópavogi.

?Gert er ráð fyrir að unnt verði að taka völlinn ínotkun árið 2005?2006, þetta er lokaáfangi við

gerð 27 holu golfvallar í landi Vífilsstaða og Leir-dals í samvinnu beggja sveitarfélaganna, Garða-

bæjar og Kópavogs,? sagði Birgir Sigurðsson,skipulagsstjóri Kópavogsbæjar.

?Framkvæmdir þessar eru í náinni samvinnuvið Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar, GKG,

sem stofnaður var árið 1994 er Golfklúbbur Garða-bæjar og Golfklúbbur Kópavogs sameinuðust. Að

framkvæmdum loknum mun GKG fá þessa sein-ustu stækkun vallarins afhenta og mun sjá um all-

an rekstur.Reynslan sýnir að mikil þörf er á þessari stækk-

un en fjöldi félaga GKG er um 1.100 manns en meðtilkomu stækkunarinnar í Leirdal verður unnt að

fjölga félögum um 400.

Gefur möguleika á að leika 18 holur áþrjá mismunandi vegu

Við stofnun GKG var völlurinn 9 holu en straxárið 1996 voru leiknar 18 holur á vellinum. Það var

þó ekki fyrr en á seinasta ári sem núverandi 18holu völlur í Vífilsstaðalandi var kominn í end-

anlegt horf samkvæmt upphaflegum teikningum.Frá upphafi samstarfs sveitarfélaganna var gert

ráð fyrir að stækka núverandi 18 holu völl í aust-urátt með því að gera 9 holur til viðbótar í Leirdal

þannig að GKG yrði með 27 holu golfvöll. Það gef-ur möguleika á að leika 18 holur á þrjá mismun-

andi vegu, en samtímis verður möguleiki á 9 holuhring á ?alvöru? golfvelli.

Golfvallarsvæðið í Vílfilsstaðalandi og Leirdalliggur afskaplega vel við byggð á svæðinu.

Nýr 9 holu golfvöllur í Kópavogi

Unnið við hinn nýja golfvöll í Leirdal.

Morgunblaðið/Árni Sæberg 

Yfirlit

NORRÆNAR rannsóknir sem miða

að því að greina geðklofa snemma á

lífsleiðinni og finna til hvaða meðferð-

ar hægt sé að grípa eru á meðal þess

sem fjallað verður um á norrænu geð-

læknaþingi sem haldið verður hér á

landi um miðjan næsta mánuð. 

Sigurður Páll Pálsson, geðlæknir

og einn af skipuleggjendum þingsins,

segir rannsóknir þær sem kynntar

verða á þinginu og umfjöllunarefni af

mjög fjölbreyttum toga og snerta

flest svið geðlæknisfræðinnar. Um

rannsóknir á geðklofa segir hann:

?Geðklofi er greindur tiltölulega

seint og þá eru ýmsar afleiðingar

hans orðnar staðreynd eins og skert

námsgeta, félagsleg hnignun, ein-

angrun og persónuleikabreytingar

hjá ungu fólki sem enn er að þroskast

þegar sjúkdómurinn byrjar að þróast.

Geðklofi hefur ákveðin einkenni sem

ekki koma öll nægilega vel fram

snemma. Það sem er verið að gera í

þessum rannsóknum er að menn eru

farnir að gefa sér ákveðin forstigsein-

kenni, menn tala þá um að fólk breyt-

ist í hegðun, dragi sig til baka og verði

óvirkara og ófélagslyndara og detti úr

skóla.? Sigurður Páll segir rannsókn-

irnar miða að því að nota þessi for-

stigseinkenni til að greina þennan hóp

sjúklinga og reyna að ná til hans fyrr

en ella. 

Á þinginu fer fram málþing um

horfur í geðhvarfasjúkdómi og geð-

klofasjúkdómi sem eru taldir alvar-

legustu geðsjúkdómarnir. ?Það er

nokkuð ljóst að sjúkdómarnir sem

slíkir eru alltaf til staðar en ef með-

ferð er hafin á réttum tíma, í réttu

magni með réttum aðferðum er hægt

að halda niðri einkennum miklu betur

en áður og fólk verður viljugra að

taka inn lyf,? segir Sigurður Páll.

Hann bendir á að áður hafi geðklofa-

sjúklingar tekið inn mjög þung lyf við

sjúkdómnum. Lífsgæði og vitsmuna-

hæfni sjúklinga séu hins vegar betri

með nýrri tegundum geðklofalyfja. 

Um miðbik síðasta árs urðu vatna-

skil í leit að meingenum geðklofa þeg-

ar þrír rannsóknarhópar birtu grein-

ar um tengsl fjögurra gena við

sjúkdóminn. Sigurður Páll bendir á

að þótt fundist hafi gen sem geti út-

skýrt einhvern hluta af orsökum geð-

klofa sé enn langur vegur framundan

í rannsóknum á sjúkdómnum. ?Það á

eftir að leita nánar að samspili og ná-

kvæmari staðsetningu þessara gena,?

segir Sigurður Páll. 

Hann bendir á að Ísland sé mik-

ilvægur hlekkur í þessu sambandi.

Þjóðin sé tiltölulega einsleit og hægt

að skoða fjölskyldur mjög náið hér á

landi. Vandinn við allar genarann-

sóknir sé hins vegar að erfðir séu ekki

nema einn hlekkur í orsakakeðjunni.

Stóra spurningin sé hvort genarann-

sóknir geti valdið byltingu við gerð

nýrra og enn betri lyfja. 

Þá verður farið yfir stöðu öldrunar-

geðlækninga á Norðurlöndunum.

Meðal annars verður greint frá

norskri rannsókn sem virðist stað-

festa að þunglyndi virðist aukast með

hækkandi aldri en sú fullyrðing hefur

verið mjög umdeild og sumir læknar

talið að þunglyndi minnkaði í elstu

aldursflokkunum. 

Kristinn Tómasson geðlæknir mun

fjalla um könnun sem gerð var á

starfsánægju lækna á Landspítala ?

háskólasjúkrahúsi. Í könnuninni

kemur fram að læknar eru almennt

mjög ánægðir með starf sitt og virð-

ast hafa miklar væntingar til þess. 

Rannsóknir á geðklofa ræddar á norrænu geðlæknaþingi í ágúst 

Reynt að greina geð-

klofa fyrr en ella 

NORRÆNT geðlæknaþing verður haldið hér á landi um miðjan næsta

mánuð. Um 6?700 þátttakendur hafa skráð sig en þingið var síðast hald-

ið hér á landi árið 1988. 

Engilbert Sigurðsson, geðlæknir og annar skipuleggjenda þingsins,

segir styrk þess fyrst og fremst fólginn í þeirri miklu breidd sem þar

skapast í tengslum við umfjöllun um jafnólík viðfangsefni og grunnvís-

indi á sviði erfðafræðigeðsjúkdóma og árangursrannsóknir á langtíma-

innsæismeðferð geðraskana (langtímasamtalsmeðferð). ?Til viðbótar

má nefna að það er víða komið við, þannig að sálfræðingar, félagsráð-

gjafar, iðjuþjálfar og aðrar lykilstoðstéttir sem við vinnum mikið með

hafa einnig sent inn efni á þetta þing, einkum innlendir aðilar.? 

Auk kunnra prófessora frá Norðurlöndunum mun prófessor Robin

Murray frá Lundúnum flytja yfirlitsfyrirlestur um geðklofa, prófessor

John Livesley frá Kanada flytur yfirlitsfyrirlestur um meðferð persónu-

leikaraskana og Gísli Guðjónsson, prófessor í réttarsálfræði í Lund-

únum, flytur fyrirlestur um falskar játningar. Heimasíða þingsins er:

www.icemed.is/npc2003.

6?700 þátttakendur skráðir á

norræna geðlæknaþingið

Í dag

Viðskipti 11 Bréf 22

Erlent 12 Dagbók 24/25

Listir 13 Leikhús 26

Umræðan 14/18 Fólk 26/29

Forystugrein 16 Bíó 27/29

Hestar 19 Ljósvakar 30

Minningar 20/21 Veður 31

** *

HVAÐ er betra þegar golan kyssir kinn á sólríkum

sumardegi en að fara í góðan útreiðartúr? 

Þetta unga fólk var í reiðskóla í Heiðmörkinni við

Vífilsstaðavatn og lét sig ekki muna um að leyfa fákun-

um að bera sig yfir beljandi stórfljót. Ekki var annað að

sjá en að reiðskjótunum líkaði buslið vel.

Morgunblaðið/Sverrir

Sprett úr spori yfir láð og lög

VINNA við að koma Guðrúnu Gísla-

dóttur KE, sem sökk við Lófóten í N-

Noregi fyrir rúmu ári, aftur á flot

hefst að öllum líkindum ekki aftur

fyrr en upp úr miðri viku, að sögn

Hauks Guðmundssonar, fram-

kvæmdastjóra Íshúss Njarðvíkur,

eiganda skipsins. Tjón varð á björg-

unarskipinu Stakkanesi þegar flot-

tankur sem búið var að sökkva og

festa við Guðrúnu KE losnaði frá og

rakst í Stakkanesið fyrir rúmri viku.

Viðgerðir hafa staðið yfir á skipinu

og reiknar Haukur með að það geti

hafið björgunaraðgerðir að nýju á

miðvikudag.

Hann segir kafara væntanlega

með búnað sinn á morgun og þá verði

haldið áfram þar sem frá var horfið.

Flottankarnir eru komnir á sinn stað

fyrir utan þann sem losnaði frá. Þá

verður reynt að snúa skipinu á kjöl-

inn og að lokum fleyta því á yfir-

borðið. Haukur reiknar með að tvær

vikur taki að koma skipinu á flot eftir

að björgunarmenn verða komnir

þangað aftur, gangi allt að óskum.

?Þetta hefur aldrei gengið eins vel

hjá okkur og í síðustu lotu. Við vor-

um komnir með nýja aðferð við að

sökkva tönkunum og höfum algert

vald á því öllu saman.?

Björgun Guðrúnar

Gísladóttur KE

Vinna hefst

að nýju á

miðvikudag

VEIÐITÍMABIL hreindýrstarfa

hófst í gær, 20. júlí. Að sögn Karen-

ar Erlu Erlingsdóttur, starfsmanns

Umhverfisstofnunar hjá hreindýra-

ráði, höfðu þegar verið felldir þrír

tarfar í gærdag, allir vænir.

?Einn um hundrað kílóa tarfur

var felldur í Norðfirði og tveir um

90 kílóa þungir í Loðmundarfirði,?

sagði Karen í samtali við Morg-

unblaðið í gær.

Tarfarnir halda sig þessa stund-

ina mikið í litlum hópum en í ágúst

hafa þeir flestir slegist í hóp með

kúm og kálfum þó að oft sé dálítið

af törfum komið saman við hjarð-

irnar á öræfunum mun fyrr. Heim-

ilt er að veiða allt að 800 hreindýr á

tímabilinu.

Stofninn kemur 

vel undan vetri

Stofninn kemur mjög vel undan

vetri, að sögn Karenar. Veður hefur

verið gott og gripirnir vænir. Veiði-

svæðið nær alveg frá Vopnafirði til

Austur-Skaftafellssýslu, og er skipt

í 9 skika. Leiðsögumenn voru marg-

ir að undirbúa ferðir sínar eða lagð-

ir af stað með veiðimönnum í gær-

morgun.

Almenna veiðitímabilið, þegar

bæði má veiða tarfa og kýr, hefst 1.

ágúst og stendur til 15. september.

Hinn 15. ágúst verður svæðið við

Snæfell opnað til veiða. Nánari upp-

lýsingar um fyrirkomulag veiðanna

má nálgast á heimasíðunni

www.hreindyr.is.

Veiðitímabil hrein-

dýrstarfa hafið

TVEIR bílar, jeppi og fólksbifreið,

skullu saman á Vopnafjarðarheiði

rétt upp úr klukkan tvö í gærdag.

Þrennt var í fólksbílnum og fimm

manns í jeppanum og urðu engin

slys á fólki. Allir sem í bílunum voru

voru með bílbeltin spennt. 

Að sögn lögreglunnar í Vopnafirði

var svartaþoka á heiðinni þegar at-

vikið átti sér stað og skyggni ekki

nema um 20?50 metrar.

Árekstur 

á Vopna-

fjarðarheiði

???

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32