Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						FRÉTTIR

4 MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ

SIGLINGADAGAR 2003 standa

nú yfir við Ísafjarðardjúp og kem-

ur þar saman áhugafólk um hvers

konar siglingar jafnt hér á landi

sem erlendis. Í dag verður m.a.

lagt upp í þriggja daga kajakferð í

Jökulfirði og boðið upp á útsýn-

isferðir um Hornstrandir og fleiri

staði.

Á siglingadögum, sem settir

voru á Ísafirði sl. föstudag og

standa í tíu daga er boðið upp á

námskeið í kajakróðri, bátsferðir,

námskeið og keppni á bátum og í

ýmsum þrautum sem tengjast

sjónum. 

Á laugardagskvöld voru um 250

manns samankomnir á ?bátaballi?

í Ögri og er myndin tekin þegar

þrír gestanna komu siglandi á kaj-

ak frá Ísafirði og lögðust að

bryggju í Ögri við Ísafjarðardjúp.

Segja heimanenn að dansleikurinn

sé víðfrægur orðinn fyrir sinn frá-

bæra ?rabarbaragraut með rjóma?

sem öllum dansgestum er færður.

Þá stendur yfir sýningin ?Ljós-

myndir sjómanns? í Tjöruhúsinu á

Ísafirði þar sem sýndar eru mynd-

ir Sigurgeirs Bjarna Halldórs-

sonar. Að sögn Úlfars Ágústs-

sonar, sem sér um skipulagningu

siglingadaga, hefur hátíðin gengið

vel í alla staði. Keppt verður í

siglingum um næstu helgi og hefst

keppnin á laugardag.

Ljósmynd/Þorsteinn J. Tómasson

Kajakferð um Jökulfirði

á siglingadögum

dóttir, verkefnisstjóri Magnaðrar

miðborgar. ?Þegar veðrið er gott

er alveg frábært að vera niðri í

bæ. Götuleikhúsið gerir líka svo

skemmtilegt að ganga eftir göt-

unum. Ég hitti nokkra krakka úr

götuleikhúsinu í lok dagsins og

þau sögðu að það hefði verið afar

góðmennt í miðbænum.? 

Edda segir verslunarfólk við

Laugaveginn mjög spennt fyrir

þessari skemmtilegu tilbreytingu.

?Fólk var mjög ánægt með þetta

framtak og það er afar gott að fá

svona jákvæð viðbrögð. Kaup-

mennirnir taka mjög vel í þetta,

það er náttúrlega þeirra vinna að

skapa þetta andrúmsloft og við

vonum að okkur takist að halda

áfram að vinna að litríkari mið-

borg.?

FJÖLMENNI var í miðbæ höfuð-

borgarinnar og tók þátt í dagskrá

Magnaðrar miðborgar á laugar-

dag. Verslunarfólk í miðbænum

tók sig saman og skapaði

skemmtilega miðbæjarmarkaðs-

stemmningu.

Tónlistarmenn, götuleikarar og

skáld sáu vegfarendum fyrir

skemmtun og upplífgandi sumar-

gleði. Thor Vilhjálmsson las upp

úr verkum sínum við götutaflið

við Lækjargötu og ungar stúlkur

léku á dragspil í kjölfarið.

?Það var yndislegt veður í gær

og margt fólk í bænum, svo það

jók enn meira á götustemmn-

inguna. Listmálari málaði andlits-

myndir af fólki á Austurvelli og

fólk var almennt mjög hresst með

stemmninguna,? segir Edda Jóns-

Morgunblaðið/Ómar Óskarsson

Margs konar tómstundaiðja var iðkuð í miðborginni um helgina og þessir gripu í tennisleik á Austurvelli.

Morgunblaðið/Sverrir

Götuleikhúsið sprellaði fyrir gesti og gangandi.

Markaðsstemmning í miðborginni

UM 4.000 manns komu til Blöndu-

óss um helgina til að taka þátt í

fjölskylduhátíðinni Mat og menn-

ingu sem var ein stór matarveisla í

boði matvælafyrirækja á Blönduósi.

Þar fengu gestir að kynnast því

besta sem Húnvetningar höfðu upp

á að bjóða matarkyns.

Á matseðli hátíðarinnar var að

finna ýmiss konar sjávarfang,

lambaket, alls kyns mjólkurafurðir

og kökur, sem hátíðargestir nutu af

bestu lyst. Leiktæki voru í boði fyr-

ir börn, og skemmtu trúður og

harmonikkuleikarar gestum með

leik, söng og sprelli. 

Hátíðin komin til að vera

Að sögn aðstandenda fór þátt-

taka í hátíðinni fram úr björtustu

vonum og lýsti Valgarður Hilmars-

son, forseti bæjarstjórnar Blöndu-

óss, því yfir að hátíðin væri komin

til þess að vera. Bauð hann svo

gesti velkomna á hátíðina á sama

tíma að ári.

Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæj-

arstjóri Blönduóss, segir hátíðina

hafa heppnast einstaklega vel. ?Við

gáfum yfir þrjú þúsund manns að

borða og það heppnaðist vel.? Jóna

segir starfsfólk hátíðarinnar hafa

brugðist mjög fagmannlega við

fjöldanum, sem var langt umfram

það sem búist var við. ?Sérstaklega

ber að hrósa Íþróttafélaginu Hvöt,

sem tók að sér ýmis störf á hátíð-

inni og leysti þau af hendi með

miklum sóma. Hátíðin hefði aldrei

gengið upp án þessara krakka sem

lögðu mikið á sig til þess að hjálpa

okkur og allra þeirra fjölmörgu

dugmiklu einstaklinga sem að henni

komu. Veðrið lék við okkur og það

fyndnasta var að fimm mínútum

eftir að hátíðinni var slitið fór að

rigna.?

Margt um manninn á

matarhátíð á Blönduósi

Morgunblaðið/Jón Sigurðsson

Húnvetnskir matreiðslumenn mettu tæplega fjögur þúsund manns með

brauði, fiski, lambi og mjólkurafurðum um helgina.

BÍLL valt í lausamöl í Miðfirði við

Litlu-Bakka um fjögurleytið í gær-

dag. Þrír voru í bílnum en engin slys

urðu á fólki. Eiginkona ökumanns og

ársgamalt barn þeirra voru flutt af

vegfaranda á sjúkrahús til nánari

skoðunar. Allir í bílnum voru í beltum. 

Bíll valt í lausamöl

LÖGREGLAN á Blönduósi fékk á

laugardag viðurkenningu fyrir ?að

stuðla að bættu mannlífi? á Blöndu-

ósi. Var viðurkenningin veitt á hátíð-

inni Matur og menning 2003 sem

fram fór í bænum um helgina.

Á viðurkenningunni stendur:

?Lögreglan á Blönduósi hefur sýnt

ósérhlífni í starfi við að fylgjast með

þjóðveginum og hafa vakandi auga

og stöðva þá sem keyra of hratt.?

Viðurkenningin var veitt af trygg-

ingafélögunum VÍS, Sjóvá-Almenn-

um og Tryggingamiðstöðinni.

Yfirlögregluþjónninn á Blönduósi,

Kristján Þorbjörnsson, veitti viður-

kenningunni móttöku fyrir hönd lög-

reglunnar. Aðrir lögreglumenn sáu

sér því miður ekki fært að fylgjast

með athöfninni enda ?uppteknir við

að vinna á veginum?, eins og einn

lögreglumaður komst að orði. 

?Hefur sýnt

ósérhlífni

í starfi?

Lögreglan á Blönduósi

fær viðurkenningu

???

BÍLL ók á kind í Grímsnesi skömmu

upp úr miðnætti aðfaranótt sunnu-

dags. Ökumaður og farþegi í bílnum

sluppu ómeidd en aflífa þurfti

kindina. Töluverðar skemmdir urðu

á bílnum. Að sögn lögreglunnar á

Selfossi er töluvert um að kindur

álpist upp á akbrautir og full ástæða

til þess að brýna fyrir ökumönnum

að fylgjast grannt með búfénaði í

grennd við vegi.

???

Ók á kind í

Grímsnesi

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32