FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 7 HINN víðkunni bandaríski ljós- myndari Bob Krist var hér á ferð á dögunum með hópi 35 ferðalanga á vegum tímaritsins National Geographic. Í samtali við Morg- unblaðið sagði Krist að seint hefði orðið ljóst að hann ætti að leiða ferðina. ?Þannig var, að ég hafði komið til Íslands og tekið fjölda ljós- mynda fyrir sérblað um Ísland á vegum National Geographic. Það var árið 1986 að ég dvaldi hér við myndatökur í fimm mánuði, og kom blaðið út í febrúar 1987. Ég hef verið lausráðinn ljósmyndari við tímaritið í fjöldamörg ár, og þegar ljóst var, að þekktur jarð- fræðingur sem leiða átti ferðina til Íslands forfallaðist, var haft sam- band við mig og ég beðinn um að heimsækja landið á ný. Þá hafði ég ekki komið hingað í 17 ár,? út- skýrir Krist. Þar að auki komu tveir bandarískir fararstjórar frá tímaritinu hingað til lands. Ferðaskrifstofa samhliða tímaritinu National Geographic hefur um nokkurra ára skeið starfrækt ferðaskrifstofu sem skipuleggur sérsniðnar ferðir með leiðsögn sér- fræðinga sem unnið hafa fyrir blaðið. ?Ferðirnar eru fyrir fróð- leiksfúsa ferðamenn, sem kynnast vilja framandi slóðum með góðri leiðsögn. Ég hafði ekki margt að segja um jarðfræði eða þess hátt- ar, en við höfðum með okkur ís- lenskan leiðsögumann, sem var mjög fróður. Ég gat svo kryddað frásögnina með reynslusögum mín- um frá 1986, og lýst því hvernig landið hefði breyst í mínum huga,? segir Krist. ?Ég sagði til dæmis sögu af eiginkonu minni, sem felmtri slegin stóð vörð við barna- vagna á Laugaveginum, meðan mæður voru hvergi nærri. Í New York hefði enginn þorað að skilja barnið eitt eftir úti í vagninum!? Ánægjuleg hringferð Talið berst að ferðatilhöguninni. ?Við þræddum hringveginn, fórum suður með landinu og norðuryfir. Til þess höfðum við níu daga. Gist- um við á hótelum og fórum ekki í langar gönguferðir, enda sumir ekki til þess fallnir í hópnum vegna aldurs. Þótti öllum sem í ferðinni voru mikið til landsins koma, og voru mjög ánægðir með ferðina,? útskýrir Krist. Jökuls- árlón og Kröflusvæðið voru einna efst í huga hópsins eftir ferðina, að sögn Krist. Veðrið var hins vegar á ýmsa vegu, en Krist segir það hafa gert upplifunina ógleym- anlega, og ekki hægt að koma til Íslands án þess að upplifa al- mennilegt rok og lárétta rigningu. ?Mikla athygli vakti til dæmis að fossarnir runnu upp vegna roksins, það þótti mjög tilkomumikið,? bæt- ir Krist við. ?Það eina sem bæta þarf í næstu ferð er að eiga meiri tíma eftir í Reykjavík. Þegar við loks komum aftur til höfuðborgarinnar var nær enginn tími til að skoða sig um hér, áherslan var lögð á nátt- úruskoðunina, en ekki á borg- arlífið. Það þótti mörgum súrt í broti, en á eflaust eftir að leiða af sér fleiri Íslandsferðir viðkom- andi,? segir Krist. Hann var hér sjálfur þrjá daga til viðbótar til að kasta kveðju á gamla vini frá síð- ustu heimsókn. Næst á dagskránni hjá Krist er ferð til Suður-Afríku í haust til myndatöku. Morgunblaðið/Arnaldur Bandaríski ljósmyndarinn Bob Krist. Ferð á vegum tímaritsins National Geographic um Ísland Sjá fossa renna upp í móti VÍKINGASVEIT lögreglunn- ar afvopnaði mann á bílastæði í íbúðarhverfi í Kópavogi aðfara- nótt laugardags. Maðurinn var ölvaður og vopnaður litlum riffli en ekki var talin stafa mik- il hætta af honum. Að sögn lög- reglunnar í Kópavogi er málið til rannsóknar hjá rannsóknar- deild lögreglunnar. Vopnaður riffli á bílastæði