Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						ERLENT

12 MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ

TVEIR bandarískir hermenn féllu í

árás í gær skammt frá borginni

Mosul í norðurhluta Íraks en þar

hefur verið fremur kyrrt hingað til.

Hafa Bandaríkjamenn nú misst

rúmlega 150 menn frá því innrásin

hófst og hátt í þriðjung þeirra eftir

að lýst var yfir sigri í stríðinu 1. maí

síðastliðinn.

Óttast er, að átökin í Írak séu að

færast á nýtt stig en í gær var einnig

ráðist á bílalest, sem var kirfilega

merkt Sameinuðu þjóðunum. Var

íraskur ökumaður drepinn og hjálp-

arstarfsmaður særður. Nokkru áður

hafði einn starfsmaður SÞ verið

særður í árás fyrir sunnan Bagdad.

Vekja þessar árásir miklar áhyggjur

og benda auk annars til, að ókyrrðin

í Írak fari vaxandi.

Fjöldi manns mótmælti 

Bandaríkjaher

Um 10.000 manns efndu í gær til

mótmæla gegn Bandaríkjamönnum í

hinni helgu borg Najaf og lýstu yfir

fullum stuðningi við sjítaklerkinn

Moqtada Sadr en hann hefur snúist

hart gegn hernámi Bandaríkja-

manna. Kom til stimpinga við banda-

ríska hermenn en þeim lauk með því,

að klerkarnir kröfðust þess, að

bandarískt herlið yrði flutt burt frá

Najaf og yfirráð yfir sjónvarpsstöð í

bænum fengin í hendur heimamönn-

um. Áður hafi yfirmaður bandarísku

hermannanna hótað að beita valdi ef

fólkið hyrfi ekki á braut.

John Abizaid hershöfðingi og yf-

irmaður bandaríska herliðsins í Írak

sagði í gær að ætlunin væri að þjálfa

um 3.500 manna íraskt herlið, sem

ætlað væri að berjast við hlið banda-

rískra og breskra hermanna ef þess

gerðist þörf. 

Írösk ríkisstjórn hugsanlega

komin innan árs

Sagði Abizaid, að þetta lið gæti

orðið vísirinn að nýjum stjórnarher í

Írak. Sagði hann ljóst, að ekki yrði

fækkað í bandaríska herliðinu næstu

þrjá mánuði en í því eru nú 148.000

menn.

Paul Bremer, sem annast upp-

byggingarstarfið í Írak fyrir hönd

Bandaríkjastjórnar, sagði í gær, að

hugsanlega yrði búið að skipa eig-

inlega ríkisstjórn í landinu innan árs

en það færi þó eftir því hvernig

gengi að semja nýja stjórnarskrá.

Vonaðist hann til, að til stjórnar-

skrárráðstefnu yrði boðað í septem-

ber.

Tveir bandarískir hermenn voru felldir í fyrirsát í Norður-Írak í gær

Ókyrrð og 

árásir virðast

fara vaxandi

AP

Meira en tíu þúsund sjía-múslimar söfnuðust saman í hinni helgu borg 

Najaf í Írak í gær til að mótmæla veru bandaríska hersins þar. 

Bagdad. AFP.

KÍNVERSKIR gestir á alþjóðlegri

gæludýrasýningu í borginni

Shanghai virða hér fyrir sér hvolpa

af ýmsum gerðum sem þar voru

boðnir til sölu í gær. 

Gæludýraeign er nú að verða 

afar vinsæl í Kína en til skamms

tíma var hún bönnuð af stjórnvöld-

um þar sem það þótti of borgara-

legt fyrir fólk í landi alþýðunnar að

eiga einhvers konar gæludýr. 

Þökk sé vaxandi velmegun og

meira frjálsræði á undanförnum

áratug sækjast Kínverjar nú í æ

meiri mæli eftir því að eignast slíka

félaga eins og áhugi gesta á sýning-

unni í Shanghai ber glöggt vitni

um. 

Reuters

Gæludýr verða sífellt 

vinsælli í Kína

NIÐURSTÖÐUR nýrrar

rannsóknar benda til þess að

konur sem neyta fituríkrar

fæðu auki um helming líkurnar

á að fá brjóstakrabbamein ein-

hvern tíma á ævinni. Rann-

sókn, sem unnin var í Cam-

bridge University á Englandi,

gefur til kynna að konum sem

neyta meira en 90 gr af fitu á

dag sé helmingi hættara við

brjóstakrabbameini en þeim

sem neyta aðeins 40 gr af fitu. 

Talið er að rannsóknin verði

umdeild því niðurstöðurnar

ganga þvert á niðurstöður

margra umfangsmikilla rann-

sókna sem hafa engin tengsl

fundið milli fæðu kvenna og

brjóstakrabbameins. Aðstand-

endur rannsóknarinnar segja

hins vegar að fylgst hafi verið

með matarræði nánar en áður. 

13.000 enskar konur héldu

nákvæmar dagbækur frá 1993?

1997 um hvaða fæðu þær

neyttu dag. ?Tengsl á milli fitu-

neyslu og brjóstakrabbameins

komu helst fram við neyslu

mettaðrar fitu, sem einna helst

er að finna í fituríkri mjólk,

smjöri, kjöti og kexi,? segir

Sheila Bingham sem stýrði

rannsókninni. Samkvæmt Al-

þjóðaheilbrigðismálastofnun-

inni (WHO) eru 8?11% líkur á

að konur fái brjóstakrabba-

mein einhvern tíma á ævinni. 

Feitmeti

tengt

brjósta-

krabba

London. AP.

ARIEL Sharon, forsætisráðherra

Ísraels, gaf engin loforð um að leysa

fleiri palestínska fanga úr haldi á

fundi sem hann

átti með Mahmud

Abbas, forsætis-

ráðherra Palest-

ínu, í Jerúsalem í

gær. Á fundinum

var aftur á móti

ákveðið að sett

yrði á stofn sam-

eiginleg nefnd

með fulltrúum

beggja þjóða sem

ákvæði hversu margir palestínskir

fangar yrðu leystir úr haldi Ísraela,

að sögn palestínska upplýsingaráð-

herrans, Nabil Amr. ?Þetta var ár-

angursríkur fundur og ég vona að

hann leiði til góðs á næstunni.? 

Öskruðu hvor á annan

Annar palestínskur heimildar-

maður, náinn samstarfsmaður Abb-

as, sagði hins vegar að viðræðurnar

hefðu verið stormasamar og umsát-

ur um höfuðstöðvar Yassers Arafats

í Ramallah á Vesturbakkanum síð-

astliðna 19 mánuði hefði skyggt á

aðrar umræður. ?Þetta var erfiður

fundur. Þeir öskruðu oft á hvor ann-

an,? sagði hann og bætti við að Abb-

as hefði sagt Sharon að friðarviðræð-

ur væru til einskis á meðan setið

væri um Arafat. Ísraelar hefðu sam-

þykkt að ?skoða af alvöru? að binda

enda á umsátrið. Margir höfðu talið

að Sharon myndi reyna að greiða

fyrir friðarviðræðunum með því að

tilkynna lausn fleiri palestínskra

fanga úr haldi Ísraela. 

Ísraelar hafa þar til nú neitað að

fallast á að láta lausa fleiri en 350 af

þeim 6.000 Palestínumönnum sem

eru í ísraelskum fangelsum. 

Stormasamur fundur

Abbas og Sharon

Lofar ekki

lausn fleiri

fanga 

Jerúsalem. AFP.

Mahmud Abbas

HARÐAR ásakanir hafa dunið á

Breska ríkisútvarpinu, BBC, þar

sem því er kennt um að hafa átt þátt í

dauða Davids Kellys, efnavopnasér-

fræðings og ráðgjafa bresku stjórn-

arinnar, sem fannst látinn á föstudag

eftir að hafa svipt sig lífi. Þingmenn

Verkamannaflokksins gagnrýndu

harkalega í gær hvernig BBC kom

fram í deilum um þær fréttir stöðv-

arinnar að ríkisstjórnin hefði ýkt

hættuna af vopnaeign Íraka. BBC,

sem hafði áður neitað að nefna heim-

ildarmanninn á nafn en hefur nú til-

kynnt að það sé Kelly, sagðist

?harma innilega? að þátttaka Kellys

hefði leitt til dauða hans. Samt sem

áður sagðist stöðin telja þá ákvörðun

að birta fréttina hafa verið rétta.

?Við teljum að það hafi verið rétt af

okkur að upplýsa almenning um

skoðanir dr. Kellys,? sagði í yfirlýs-

ingu frá BBC. 

Fyrr í vikunni hafði Kelly þurft að

bera vitni fyrir þingnefnd sem rann-

sakaði málið. Þar viðurkenndi hann

að hafa rætt við Andrew Gilligan,

blaðamann BBC og höfund fréttar-

innar, en neitaði að vera hans helsti

heimildarmaður. BBC upplýsti hins

vegar í gær að svo hefði verið. BBC

sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi

fyrir hönd Gilligans þar sem hann

kvaðst ekki hafa á nokkurn hátt vitn-

að rangt til Kellys eða sett orð hans

fram á rangan hátt. 

Vill að stjórnendur 

BBC segi af sér

Formaður utanríkismálanefndar

þingsins, Donald Anderson, segir

vitnisburð Kellys og Gilligans hafa

stangast mjög á og að BBC yrði að

hefja langa og stranga sjálfskoðun.

Harðasta gagnrýnin kom frá Ro-

bert Jackson, þingmanni Íhalds-

flokksins, sem sakar stöðina um að

hafa valdið dauða Kellys. Hann telur

að Gilligan hafi skáldað margt af því

sem kom fram í fréttinni og hann,

fréttastjóri BBC og stjórn stöðvar-

innar eigi að segja af sér, að því er

fram kemur á fréttavef, BBC. ?Ef

þau [BBC] hefðu birt tilkynninguna

þegar dr. Kelly var á lífi, væri hann

enn lifandi og ég tel að stjórn BBC

eigi að segja af sér vegna þessa.? 

Beinir athyglinni 

nokkuð frá Blair

Gerald Kaufman, formaður menn-

ingar-, fjölmiðla- og íþróttanefndar

þingsins sagði, að framganga BBC í

málinu hefði orðið til þess að skoða

þyrfti frekar hvernig stöðinni væri

stjórnað og hvernig fréttamennska

væri stunduð þar. Spurningar hefðu

vaknað um hvort BBC ætti að fá leyfi

til að starfa áfram sem ríkisfjölmið-

ill. Það hefði stundað fréttamennsku

sem æsifréttablað myndi ?hugsa sig

tvisvar um? að gera.

Sú ákvörðun BBC að láta uppi að

Kelly hafi verið helsta heimildin hef-

ur beint kastljósinu nokkuð frá Tony

Blair en hann hefur verið hvattur til

að segja af sér vegna hneykslisins,

einnig af eigin flokksmönnum. 

BBC sakað um

að eiga þátt í

dauða Kellys

Lundúnum. AFP.

David KellyAndrew Gilligan

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32