Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						LISTIR

MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 13

50% afslátturBOSS BÚÐIN MENN KRINGLUNNI SÍMI 533 4242

OLYMPUS C-120 DIGITAL Camedia C-730 Zoom Camedia C-50ZOOMOLYMPUS Mju 300

Camedia C-350

NÝLEGA kom út

hjá Víkingafélag-

inu í London ritið

The Folk-Stories

of Iceland eftir

Einar Ól. Sveins-

son. Hér er á

ferð Um íslenzk-

ar þjóðsögur,

verk sem upp-

haflega birtist á prenti í Reykjavík

árið 1940. 

?Eins og önnur rit Einars Ólafs

einkenndist sú bók af víðfeðmun

lærdómi höfundar, ritsnilld hans og

næmum skilningi á sérkennum og

gildi efnisins. Ritið hefur síðan ver-

ið í hávegum haft af þjóðsagna-

fræðingum og öðrum unnendum ís-

lenskra þjóðsagna, og fljótt kom

fram sú hugmynd að vert væri að

koma því á framfæri á erlendu

máli. Um 1970 tók Benedikt S.

Benedikz bókavörður að sér þýð-

inguna, og á þeim árum vann höf-

undur að nauðsynlegri endur-

skoðun vegna þess hve langt var

um liðið frá frumútgáfu. Síðar tók

dr. Einar G. Pétursson að sér að

annast það verk. Víkingafélagið í

London tók verkið til útgáfu, og

hefur Anthony Faulkes prófessor í

Birmingham endurskoðað þýð-

inguna og annast útgáfuna fyrir

hönd Víkingafélagsins,? segir í

fréttatilkynningu frá Stofnun Árna

Mangússonar á Íslandi.

Ennfremur segir: ?Ekki gerist það

á hverjum degi að íslensk fræðirit

séu þýdd og birt á erlendum

tungum, og fágætt er að nokkur

fræðirit séu talin verð þýðingar og

útgáfu þegar meira en sex áratugir

eru liðnir frá frumbirtingu þeirra. 

Íslenskar þjóðsögur eru svo fjöl-

breytilegar og auðugar að vakið

hefur undrun og aðdáun erlendra

þjóðsagnafræðinga sem hafa

kynnst þeim. Fagnaðarefni er að

nú skuli komið út á heimsmáli sí-

gilt verk um þetta efni, sem nýtur

minni frægðar en það verð-

skuldar.?

Bókin er 319 bls. Bókrakápu

prýðir verkið Valkyrjurnar eftir Jó-

hann Briem.

Þjóðsögur

VIÐAMIKIL myndlistasýning sem

nefnist Prag-tvíæringurinn var opn-

uð 26. júní sl. og mun standa fram til

24. ágúst nk. Sýningarstjóri fyrir Ís-

lands hönd var Dorothee Kirch í Gall-

erí i8 og valdi hún Ásmund Ásmunds-

son, Gabríelu Friðriksdóttur,

Gjörningaklúbbinn og Unnar Örn

Jónasson til þátttöku. Að sögn Dor-

othee eru það útgefendur myndlist-

artímaritsins Flashart sem standa að

Prag-tvíæringnum. ?Rúmlega tvö

hundruð listamenn tóku þátt í sýning-

unni og voru um tuttugu sýning-

arstjórar frá ýmsum löndum, að-

allega þó frá Evrópu. Ég var beðin

um að vera einn sýningastjóranna

eftir ábendingu frá Gabríelu Frið-

riksdóttur. Ég mátti velja þrjá til

fimm listamenn og við valið á lista-

mönnum hafði ég það að leiðarljósi að

endurspegla breiddina í listalífinu

hérlendis, þ.e. velja eins ólíka lista-

menn og ég gæti. Þannig sýndi Gabrí-

ela Friðriksdóttir teikningar sem hún

vann fyrir kápuna að geisladiski

Bjarkar Family Tree, Ásmundur var

með verk sem kallast ?Fantagott

pepsí?, en verkið samanstendur af

fantaflöskum sem fylltar hafa verið

með pepsí, auk myndbands þar sem

Ásmundur heldur fyrirlestur um

verkið, Unnar Örn sýndi afar fíngerð-

ar teikningar sem gerðar voru með

tússi á A4 blöð, en innblásturinn að

teikningunum sótti hann í krossgátur

og línurit og svo sýndi Gjörn-

ingaklúbburinn myndbandsverk.?

Að mati Dorothee er gífurlega mik-

ilvægt fyrir íslenska listamenn að

taka þátt í svona sýningu. ?Á svona

sýningu gefst kjörið tækifæri fyrir

listafólk að kynnast öðru listafólki og

ekki síst sýningar- og safnstjórum.

Gefin var út 600 síðna sýningarskrá

þar sem finna mátti ítarlegar upplýs-

ingar um alla listamennina og sýning-

arstjórana. Svona stór sýning dregur

líka að sér mikla athygli í fjölmiðlum

og marga gesti,? segir Dorothee.

?Skipuleggjendur sýningarinnar

fullyrða að þetta sé einn af merkileg-

ustu viðburðum þessa árs í nútíma-

myndlist. Sýningin var öll staðsettt í

Listasafni Tékklands í Prag, sem er

mjög stórt safn,? segir Sigrún Hrólfs-

dóttir sem ásamt Eirúnu Sigurð-

ardóttur og Jóní Jónsdóttur starf-

rækir Gjörningaklúbbinn. ?Við

sýndum myndbandsverk sem nefnist

?Thank you ? eða ? Með þökk? en það

var tekið upp á síðasta ári í tengslum

við Mósaíkþátt. Meðan við vorum úti

unnum við að myndbandsverki sem

við tókum upp á hótelinu þar sem við

gistum. Við vorum með hugmynd um

að vera jafnvel með gjörning á sýn-

ingunni, en það sköpuðust ekki réttar

aðstæður til þess og því ákváðum við í

staðinn að búa til myndbandsút-

færslu af þessum gjörningi. Hugs-

anlega verður verkið sýnt á sýningu

okkar á neðri hæð Nýlistasafnsins

sem verður opnuð 9. ágúst nk.,? segir

Sigrún, en að hennar sögn verður

þetta viðamikil sýning þar sem sýnd-

ur verður afrakstur vinnu Gjörn-

ingaklúbbsins á þessu ári. Sýningin

ber yfirskriftina ?Á bak við augun?,

sem vísar til þess að það eru augun

sem sjá myndlistina en allt það mik-

ilvæga gerist í raun bak við augun.?

Íslenskt myndlistar-

fólk á Prag-tvíæringi

Teikning Gabríelu Friðriksdóttur.

Jóní Jónsdóttir, Eirún Sigurðardóttir og Sigrún Hrólfsdóttir í myndbandsverkinu ?Með þökk? eða ?Thank you?. 

Salon Reykjavík, Árósum Að-

alheiður S. Eysteinsdóttir opnar

sýningu sem er liður í verkinu ?40

sýningar á 40 dögum?. 

Í DAG

L50098 Sjá einnig Staður og stund á mbl.is

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32