Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MINNINGAR

MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 21

Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur

samúð og vinarhug við andlát og útför elsku-

legrar móður okkar, dóttur, ömmu, tengda-

móður, systur og sambýliskonu,

SVANBORGAR ELINBERGSDÓTTUR

frá Ólafsvík,

Bólstaðarhlíð 48,

Reykjavík.

Sérstakar þakkir til alls starfsfólks Líknardeildar Landspítalans í Kópa-

vogi, fyrir góða og kærleiksríka umönnun.

Bergur Heiðar Birgisson, Guðbjörg Erlingsdóttir

Dagur Leó,

Birgir Örn Birgisson, Telma Garðarsdóttir,

Victor og Tekla,

Gestheiður Guðrún Stefánsdóttir, Elinbergur Sveinsson,

Sigurður Elinbergsson og fjölskylda,

Sveinn Þór Elinbergsson og fjölskylda,

Stefán Rafn Elinbergsson og fjölskylda,

Birgir Lárusson

Kæri eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir 

og afi

ÁSTRÁÐUR JÓN SIGURSTEINDÓRSSON

lést 20. júlí.

Ingibjörg Jóelsdóttir,

Valgeir Ástráðsson, Emilía B. Möller,

Sigurður Ástráðsson, Guðný Bjarnadóttir,

Herdís Ástráðsdóttir, Þorvaldur Sigurðsson,

barnabörn og barnabarnabörn.

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,

RAGNHEIÐUR BJÖRK RAGNARSDÓTTIR

Ránargötu 5,

240 Grindavík,

lést á Landspítalanum við Hringbraut 

föstudaginn 18. júlí.

Arnar Daníelsson, Eva Margrét Hjálmarsdóttir,

Karitas Una Daníelsdóttir,

Daníel Reynir Arnarsson,

Þórdís Una Arnarsdóttir.

Lundi V/Nýbýlaveg

564 4566  www.solsteinar.is

AFMÆLIS- og minningar-

greinum má skila í tölvupósti

(netfangið er minning@mbl.is,

svar er sent sjálfvirkt um leið

og grein hefur borist) eða á

disklingi. Ef greinin er á disk-

lingi þarf útprentun að fylgja.

Nauðsynlegt er að tilgreina

símanúmer höfundar og/eða

sendanda (vinnusíma og heima-

síma). Ekki er tekið við hand-

skrifuðum greinum.

Um hvern látinn einstakling

birtist ein aðalgrein af hæfi-

legri lengd á útfarardegi, en

aðrar greinar séu um 300 orð

eða 1.500 slög (með bilum) en

það eru um 50 línur í blaðinu

(17 dálksentimetrar). Tilvitn-

anir í sálma eða ljóð takmark-

ast við eitt til þrjú erindi. Einn-

ig er hægt að senda örstutta

kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5?

15 línur, og votta virðingu án

þess að það sé gert með langri

grein. Greinarhöfundar eru

beðnir að hafa skírnarnöfn sín

en ekki stuttnefni undir grein-

unum.

Frágangur

afmælis-

og minning-

argreina

?

Hörður Ólafsson

fæddist á Þurs-

stöðum í Borgar-

hreppi 20. október

1919. Hann lést á

Sjúkrahúsi Akra-

ness 10. júlí síðast-

liðinn. Foreldrar

hans voru Ólafur

Guðmundsson, f. 8.

febrúar 1876, d. 27.

ágúst 1961, og Ás-

gerður Helgadóttir,

f. 3. febrúar 1896, d.

6. febrúar 1987.

Bróðir Harðar er

Helgi Jónas, f. 29.

apríl 1930, maki Eyrún Ósk Krist-

jánsdóttir.

Hörður kvæntist hinn 4. júlí

1946 Þórdísi Ásmundsdóttur, f. 4.

janúar 1923, d. 4. janúar 2002.

Foreldrar hennar voru Ásmundur

Jónsson, f. 27. apríl 1892, d. 4.

desember 1967, og Jónína Kristín

september 1975, maki Hrefna Ás-

geirsdóttir, f. 2. apríl 1976, dóttir

þeirra er Ása Katrín.

Sonur Harðar og Kristínar

Eide Eyjólfsdóttur, f. 26. desem-

ber 1918, d. 20. apríl 1986, er

Hilmar, f. 6. október 1945, maki

Kristín Pétursdóttir, f. 23. nóv-

ember 1951. Börn þeirra eru: 1)

Halla Rannveig, f. 16. mars 1969,

maki Pálmi Haraldsson, f. 22. jan-

úar 1960, synir þeirra eru Ragnar

Gabríel, Markús Pálmi og Finnur

Tómas. 2) Almar Örn, f. 21. apríl

1973, sambýliskona hans er Bryn-

hildur Stefánsdóttir, f. 26. apríl

1979. 3) Hilmar Pétur, f. 23. apríl

1981. Börn Hilmars með Sigríði

Valgerði Jóhannesdóttur eru a)

Jóhannes Þór, f. 21. apríl 1964, b)

Kristín Björk, f. 8. júní 1965, börn

hennar og Carsten Munk Peder-

sen eru Kristján, Matthías og

Sara Kristín, c) Eyjólfur Ingi, f.

28. ágúst 1967, maki Guðrún Kol-

brún Otterstedt, f. 26. ágúst 1967,

börn þeirra eru Eyrún Kristín,

María Eva og Kolbrún Tinna.

Útför Harðar fer fram frá

Borgarneskirkju í dag og hefst

athöfnin klukkan 14.

Eyvindsdóttir, f. 26.

janúar 1901, d. 13.

september 1982. Dótt-

ir Harðar og Þórdísar

er Guðrún María, f.

28. maí 1946, maki

Sigmundur Halldórs-

son, f. 30. nóvember

1943. Börn þeirra

eru: 1) Hörður Ólaf-

ur, f. 12. maí 1965,

maki Alda Alberta

Guðjónsdóttir, f. 12.

mars 1963, börn

þeirra eru Sigmar

Örn, Bjartmar Egill

og Ingimar Guðjón. 2)

Sigurbjörg, f. 27. ágúst 1966,

maki Arnar Már Gíslason, f. 26.

mars 1963, börn þeirra eru Gísli

Már og Þórdís Sif. 3) Kristinn

Óskar, f. 1. september 1972, maki

Kristín Gísladóttir, f. 19. mars

1973, börn þeirra eru Agnar Daði

og Klara Ósk. 4) Jón Þór, f. 12.

Allt eins og blómstrið eina

upp vex á sléttri grund

fagurt með frjóvgun hreina

fyrst um dags morgunstund,

á snöggu augabragði

af skorið verður fljótt

lit og blöð niður lagði

líf mannlegt endar skjótt.

Ég lifi? í Jesú nafni,

í Jesú nafni? eg dey,

þó heilsa? og líf mér hafni,

hræðist ég dauðann ei.

Dauði, ég óttast eigi

afl þitt né valdið gilt,

í Kristí krafti? eg segi.

Kom þú sæll, þá þú vilt.

(Hallgrímur Pétursson.)

Elsku afi, margs er að minnast,

margs er að sakna, nú þegar þú hef-

ur kvatt þennan heim. Þú varst svo

tilbúinn að fara. Oft höfðum við rætt

þessa hluti, því eftir að amma Dísa

dó varstu sem von er ekki alveg sátt-

ur með lífið. Það verður skrítið að

koma ekki til þín á Kveldúlfsgötu 6

og við fáum okkur kaffisopa og

spjöllum saman, nei við vorum nú

ekki alltaf sammála en þá hefði nú

heldur ekki verið gaman því við

nærðumst á að stríða hvort öðru og

svo hlógum við að öllu saman og þú

settir upp glottið þitt, þannig ætla ég

að muna þig.

Já, þú varst nú svolítið mikið stríð-

inn og hafðir húmor. Það klikkaði

ekki 1. apríl til margra ára eða frá

því ég var lítil stelpa og þar til fyrir

nokkrum árum að ég varaði mig ekki

á þér og þú gast látið mig hlaupa 1.

aprílgabb, mikið lifandi skelfing

hafðir þú gaman af þessu og ætlaðir

aldrei að geta hætt að hlæja. En svo

fór ég að sjá við þér, kallinn minn,

sem betur fer. En við vorum alltaf

góðir vinir. Allt þurfti að vera á

hreinu og í föstum skorðum hjá þér

sem sannaðist best þegar þú lást

banaleguna á Sjúkrahúsi Akraness,

að þú minntir okkur mömmu á að

loka öllum gluggum og dyrum og

greiða reikningana um leið og þeir

bærust inn um lúguna.

Þú fylgdist alltaf vel með fréttum

og öllu því sem var að gerast og hafð-

ir að sjálfsögðu skoðanir á hlutunum.

Það var nú oft hægt að taka mark

á þér þegar þú varst að spá fram í

tímann með veðrið, en við skulum sjá

til í ágúst, þá á að vera gott, sagðir

þú, því þá færi ég í sumarfrí. Þú

sagðir líka að næsti vetur yrði góður.

Það á bara eftir að koma í ljós, afi

minn. Sjáum til, eins og þú sagðir.

Þú varst alltaf yndislega góður við

mig og ég hefði ekki viljað missa af

heimsóknunum til þín á daginn. En

nú ertu kominn til hennar Dísu þinn-

ar.

Guð geymi ykkur, elskurnar mín-

ar, takk fyrir allt og allt.

Kveðja, 

Sigurbjörg.

Elsku afi Hörður. Nú hefur þú

kvatt okkur. Þessi þarna uppi hefur

kallað eins og þú orðaðir það stund-

um.

Þegar við sáumst síðast í lok júní á

sjúkrahúsinu minntist þú á það að

það væri ekki langt þar til kallið

kæmi.

Þegar við kvöddumst þá fékk ég

þá tilfinningu að þetta væri kveðju-

stundin okkar. Ég veit að þú áttir

erfiðar stundir eftir að amma var

kölluð á brott. Það verður tómlegt að

koma heim á Kveldúlfsgötuna nú

þegar ykkur vantar. Elsku afi, marg-

ar yndislegar minningar vakna nú,

svo sem allar veiðiferðirnar sem ég

fór í með þér. Og að ógleymdu þegar

við fórum að sækja bílinn í Akra-

borgina sem þú hafðir keypt óséðan.

Þú kenndir mér það snemma að

stundvísi og reglusemi borgaði sig.

Og það hef ég sagt mínum drengj-

um.

Það verður skrýtið að fá ekki sím-

hringingu frá þér á hverju sunnu-

dagskvöldi eins og verið hefur um

langt skeið, alltaf strax eftir fréttir.

Elsku afi, þakka þér fyrir allar góðu

stundirnar. 

Ég sendi þér kæra kveðju,

nú komin er lífsins nótt.

Þig umvefji blessun og bænir,

ég bið að þú sofir rótt.

Þó svíði sorg mitt hjarta

þá sælt er að vita af því

þú laus ert úr veikinda viðjum,

þín veröld er björt á ný.

Ég þakka þau ár sem ég átti, 

þá auðnu að hafa þig hér.

Og það er svo margs að minnast,

svo margt sem um hug minn fer.

Þó þú sért horfinn úr heimi,

ég hitti þig ekki um hríð.

Þín minning er ljós sem lifir

og lýsir um ókomna tíð.

(Þórunn Sigurðardóttir.)

Blessuð sé minning þín 

Hörður Ólafur, Alberta, Sig-

mar, Bjartmar og Ingimar.

Vertu yfir og allt um kring

með eilífri blessun þinni,

sitji Guðs englar saman í hring

sænginni yfir minni.

(Sig. Jónsson frá Presthólum.)

Elsku afi Hörður.

Ég sakna þín svo mikið að það er

erfitt að setja það á blað. Ég á marg-

ar góðar minningar um þig og ætla

sko að varðveita þær vel. Mig langar

að þakka þér fyrir allt sem þú hefur

kennt mér t.d. að búa til báta úr blöð-

um, spila Rússa á spil, ef þú hefðir

ekki kennt mér það hver hefði þá gert

það? Mér fannst gaman að fá að vera

hjá ykkur ömmu Dísu í pössun þegar

ég var lítil. Ég á eftir að sakna þess

að koma ekki til þín í kakó og með því,

eins og ég gerði stundum.

En nú á ég tvo verndarengla.

?Lokaðu augunum, sjáðu himna-

ríki fyrir þér, sjáðu hvað fólkið er

ánægt.

Ef ég loka augunum sé ég brosandi

fólk í göngutúr, fólk að syngja, dansa,

hlæja, skúra, sópa og þvo, og allt er

svo æðislegt ég hugsa: ekki er svo

slæmt að deyja. Uppi í himnaríki er

svo gott og æðislegt held ég.? Guð

geymi þig, afi minn.

Þitt langafabarn, 

Þórdís Sif.

Vertu, Guð faðir, faðir minn,

í frelsarans Jesú nafni,

hönd þín leiði mig út og inn,

svo allri synd ég hafni.

(Hallgr. Pétursson.)

Elsku afi Hörður, ég var svo hepp-

inn að fá að vera í pössun hjá ykkur

ömmu Dísu á morgnana fyrstu árin

mín og hafði það mjög gott hjá ykkur,

allt gert fyrir litla kútinn.

Eftir að ég byrjaði í leikskóla kom

ég yfirleitt til ykkar á hverjum degi

eða því sem næst, því það var gott og

gaman að koma til ykkar.

Þú kenndir mér að gera báta úr

blöðum. Nokkrum sinnum fór ég með

þér í póstferðir þegar þú varst að

keyra póstinn út í sveitirnar. Einnig

fórum við að veiða saman.

Þið amma spiluðuð mikið við mig

og ég lærði mörg spil hjá ykkur þar á

meðal Rússa sem þú og amma spil-

uðuð oft, og ég fylgdist vel með og

lærði, og gat þá spilað við ykkur síð-

ar. Þegar þú varst orðinn einn kom

ég líka oft til þín og þú sagðir: ?Gísli,

eigum við að taka einn? (þ.e Rússa),

við tókum náttúrlega fleiri því ekki

var hægt að hætta fyrr en staðan var

þokkalega jöfn. Þú varst ansi lunkinn

spilamaður, og við höfðum báðir gam-

an af.

Allar minningarnar um þig varð-

veiti ég vel.

Þakka þér fyrir allt, langafi minn,

Guð geymi þig.

Gísli Már.

HÖRÐUR 

ÓLAFSSON 

Elsku, elsku afi.

Sofðu vel eftir þessa

undanförnu erfiðu

daga. Það styrkir mann

að vita að kvöl þín er á enda og bjart

himnaríki býður þig velkominn. Þó

það sé vont að þurfa að kveðja var

það huggun að hafa fengið að vera

með þér síðustu stundirnar.

?Eftir bjartan daginn kemur nótt?

og þannig má lýsa ævi þinni, elsku

afi. Þú skilur eftir þig svo margt til

að minnast, og þá helst stolt þitt;

GEIR 

JÓELSSON

?

Erlendur Geir

Jóelsson fæddist

í Hafnarfirði 17. des-

ember 1920 og bjó

þar allt sitt líf. Hann

lést á Hrafnistu í

Hafnarfirði sunnu-

daginn 13. júlí síðast-

liðinn og var útför

hans gerð frá Hafn-

arfjarðarkirkju 18.

júlí.

skóbúðina sem þú og

amma rákuð öll þessi

ár með prýði. Það var

nú ekki sjaldan sem við

systkinin komum í

heimsókn í búðina og

fengum þá oft gajol eða

annað slikkirí hjá þér á

meðan við lékum okkur

í búðarleik með gamla

búðarkassann þar sem

við þóttumst vera jafn-

miklir kaupmenn og þú

og amma. Svo þegar

haldið var heim á leið

vorum við oftar en ekki

nýskóuð.

Elsku afi, megir þú hvíla í friði.

Við vitum að þú vakir yfir okkur.

Þegar ævigöngu lokið er

og dauðinn blítt um vanga strýkur,

þá óttumst ei ? þótt lífið endi hér

því drottinn aftur upp því lýkur.

(Höf. ók.)

Einar Geir, Lóa og Berglind.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32