Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						FRÉTTIR

MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 23

SAUTJÁN laxar veiddust í Laxá í

Kjós fyrir hádegi á sunnudag og

sagði Ásgeir Heiðar, umsjón-

armaður árinnar, að morgunveiðin

að undanförnu væri iðulega milli 10

og 20 laxar, en síðan nokkuð minna á

seinni vöktunum. ?Þetta er gríð-

arlega góð veiði miðað við að áin er

afar vatnslítil. Það er bara svo mikill

lax að þetta togast merkilega,? bætti

Ásgeir við.

Í gærdag voru komnir um 540 lax-

ar á land úr ánni, meira en á sama

tíma í fyrra þótt skilyrðin séu nú lak-

ari en þá. Það er einfaldlega meira af

laxi og þannig ástand hefur skapast

að það er t.d. bannað að veiða með

öðru en flotlínu í Kvíslafossi vegna

laxakraðaks í hylnum.

Sá stóri á ?veiðibjöllu?

Mest er nú að veiðast af fjögurra

til sex punda smálaxi og stóru fisk-

arnir sem gengu fyrr liggja fyrir í

dýpstu pyttum. Sá stærsti í sumar

náðist með heldur óvenjulegum

hætti. Veiðimaður einn sá veiðibjöllu

hrekja vænan lax upp á grynningar

og vinna þar á honum í Strengjunum

neðan við Fossbreiðu. Stökk veiði-

maður til og rændi fuglinn feng sín-

um, en hér reyndist vera 18 punda

lax á ferðinni.

25 pundarinn skráður 20 punda

Bandaríkjamaður veiddi rígvæn-

an lax í Laxfossi í Grímsá fyrir fáum

dögum. Sá orðrómur fór eins og eld-

ur í sinu þess efnis að hann hefði

verið 25 pund, en hann var á end-

anum skráður 20 pund. Veiðimað-

urinn og félagi hans töldu í fyrstu að

skepnan hefði varla getað verið und-

ir 25 pundum, að sögn Egils Krist-

jánssonar, umsjónarmanns við

Grímsá, en þegar menn báru saman

bækur sínar í lok vaktar, og í ljós

kom að laxinn var 97 cm, var hann

snarlega lækkaður í tign, en látinn

standa í 20 pundum þar sem hann

var grálúsugur og afspyrnufeitur.

Annars hefur veiði verið alveg

hreint viðunandi í Grímsá og benti

Egill á að áin verður aldrei jafnilla

vatnslaus og flestar árnar í nágrenn-

inu í langvarandi þurrkum eins og

nú hafa staðið. ?Það komu 17 á land í

morgun og menn eru að setja í miklu

fleiri. Þeir eru hins vegar með svo

smáar flugur að þeir missa marga

laxa, sérstaklega í löndun,? sagði

Egill í gærdag. Hann sagði þá 290

laxa vera komna á land, sem er

meira en á sama tíma í fyrra, en

hann sagði bæði meira af laxi í ánni

nú og hann væri dreifðari.

Rangárnar á uppleið

Góð stígandi hefur verið í Rang-

ánum síðustu viku ? tíu dagana og

nú eru báðar árnar komnar með á

þriðja hundrað laxa á land og mjög

góður veiðitími í ánum er að fara í

hönd. Slatti af stórfiski er í aflanum í

bland við vaxandi fjölda smálaxa.

Göngur í vatnsleysi

Það er eitthvað að glæðast í ánum

á vestanverðu Norðurlandi, en

þurrkarnir hafa komið þar einna

harðast niður. Í Miðfjarðará hafa

menn t.d. orðið varir við umtals-

verðar smálaxagöngur síðustu daga,

þrátt fyrir að enn hafi ekki rignt.

Vesturá og Núpsá eru afar vatns-

litlar, en Austurá heldur vatnasvæð-

inu gangandi með jöfnu rennsli sínu.

Víða í Vesturá er mikið sjónarspil

þar sem laxinn hefur hlaðist upp, t.d.

í Hlíðarfossi, Hlíðarfossbreiðu og

Túnhyl. Á annað hundrað laxar eru

komnir úr Miðfjarðará og þverám

hennar.

Merkilegt hvað togast upp

Sjóbirtingur er farinn að sýna sig í

skaftfellsku ánum. Jón Jónsson

fékk þennan 9 punda fisk á Segl-

búðasvæðinu í Grenlæk.

ERU 

ÞEIR AÐ

FÁ?ANN?

Í SAUTJÁN sumur hafa nú

verið haldnir sumartónleikar í

kirkjunum við Mývatn. Alla

tíð að frumkvæði Margrétar

Bóasdóttur.

Tónleikaröð verður í júlí og

ágúst þar sem hæfir flytjend-

ur, innlendir og erlendir,

gleðja heimamenn og ferða-

fólk með list sinni. Í sumar

eru á dagskrá samtals tíu

tónleikar. Um þessa helgi

fluttu Berglind María Tóm-

asdóttir flautuleikari og

Kristinn Árnason gítarleikari

fjölbreytta dagskrá. Þau léku

í Reykjahlíðarkirkju á laug-

ardagskvöldið og var þeim

ákaflega vel fagnað af þakk-

látum áheyrendum.

Morgunblaðið/BFH

Berglind María Tómasdóttir

og Kristinn Árnason á tón-

leikum sínum í Reykjahlíðar-

kirkju á laugardagskvöld.

Sumartón-

leikar við

Mývatn

Mývatnssveit. Morgunblaðið.

HÓPUR íslenskra þátttakenda fór

á Alþjóðaleika þroskaheftra og

seinfærra (Special Olympics) á Ír-

landi í lok júnímánaðar. Fram-

kvæmd leikanna tókst mjög vel, en

nú voru leikarnir haldnir í fyrsta

sinn utan Bandaríkjanna, segir í

fréttatilkynningu.

Sá háttur var hafður á að skipa

sérstakan vinabæ hverrar þátt-

tökuþjóðar, og var borgin Newry

á Norður-Írlandi valin fyrir ís-

lensku þátttakendurna. Dvöldu

þeir þar í góðu yfirlæti og nutu

mikillar gestrisni. Borgarstjóri

Newry afhenti meðal annars ís-

lenska hópnum sérstaka gjöf af

þessu tilefni.

Leikarnir sjálfir fóru fram í 

Dublin, og var borgin öll í hátíð-

arbúningi af þeim sökum. Eldur

var fluttur af lögreglumönnum

alla leið frá Aþenu til Írlands, um

15 þúsund kílómetra leið. Ýmis

dagskrá var í tengslum við leik-

ana, bæði fyrir aðstandendur og

keppendur sjálfa. Má þar nefna

þjónustu ýmissa lækna og sérfræð-

inga, sem gáfu góð ráð og úrlausn-

ir. Magnús Kristinsson tannlæknir

var í þeim hópi fyrir Íslands hönd.

Keppni á jafnréttisgrundvelli er

megintilgangur leikanna og tóku

Íslendingar þátt í tíu greinum, þar

af í fyrsta sinn í handbolta og

golfi. Handboltaliðið var skipað fé-

lögum úr íþróttafélaginu Ösp.

Keppendur voru á ýmsum aldri og

átti sá elsti, Héðinn Ólafsson frá

Ísafirði, sextugsafmæli í ferðinni.

Íslensku forsetahjónin voru við-

stödd fyrstu keppnisdagana og

menntamálaráðherra heimsótti

leikana einnig.

Nemendur sérdeildar í Newry kvöddu íslenska hópinn með viðhöfn þegar

hann hélt til Dublin á leikana.

Vel heppnuð Írlandsför

NÝR veitingastaður, ?Zanzibar?,

hefur verið opnaður í Reykjahlíð við

Mývatn. Þar verður hægt að fá hvers

kyns veitingar, smárétti og drykki

frá morgni til kvölds alla daga, sum-

ar sem vetur.

Staðurinn er í nýuppgerðu vist-

legu húsnæði þar sem áður var versl-

un KÞ. Þar geta setið við borð 80?

100 gestir, auk þess sem aðstaða er

til að sitja utandyra í sólinni. Eigandi

er Ingibjörg Þorleifsdóttir sem einn-

ig rekur nú Hótel Reykjahlíð. Fram-

kvæmdastjóri er sonur hennar,

Garðar Finnsson. Hann er þriðji ætt-

liður í karllegg frá Sigurði Einars-

syni sem hóf hótelrekstur í Reykja-

hlíð snemma á síðastliðinni öld. 

Morgunblaðið/Birkir Fanndal Haraldsson

Garðar Finnsson, í hvítum jakka, ásamt starfsfólki staðarins.

Nýr veitingastað-

ur við Mývatn

Mývatnssveit. Morgunblaðið.

FYRIR nokkru voru á ferð hér á

landi nemendur og kennarar frá 

Berea-lýðháskólanum í Banda-

ríkjunum. Þessi lýðháskóli var stofn-

aður árið 1855 af John G. Fee sem

var ákveðinn fylgismaður þess að

þrælahald yrði afnumið í Bandaríkj-

unum og stofnaði skólann á þeim

andlega grunni að ?Guð hefði skapað

af sama blóði allt mannkyn jarðar?.

Skólinn skyldi byggður á jafnrétti

karla og kvenna og lagði hann

áherslu á að mennta fólk sem bjó í

hlíðum Appalachiafjallanna og

Bandaríkjamenn af afrískum upp-

runa sem öðluðust frelsi eftir þræla-

stríðið.

Stefna skólans hefur í helstu atrið-

um verið sú sama frá upphafi, að

gefa þeim sem koma úr efnaminni

stéttum samfélagsins kost á að læra.

Því eru engin skólagjöld í Berea-

lýðháskólanum, en nemendur vinna

með námi. Þeir fara milli hinna ýmsu

deilda skólans og þrífa, elda, vinna í

leirvinnslu skólans, þvo þvotta,

starfa í gróðurhúsi skólans og ann-

ars staðar innan deilda hans. Grunn-

urinn í náminu er sú hugsun að menn

geti þjónað öðrum með þekkingu

sinni.

Skólinn hefur þróað starfsemi sína

á undanförnum árum inn á

umhverfisvænar brautir og nú

stendur fyrir dyrum að byggja nýtt

hverfi á skólalóðinni með íbúðum

fyrir kennara og nemendur. Hverfið

verður vistvænt með stefnu á orku-

sparnað, endurvinnslu og annað það

sem miðar að sjálfbærni innan skóla-

svæðisins. Þegar fréttist af opnun

fyrstu vetnisstöðvar í heimi hér á

landi tók skólinn ákvörðun um að

senda hingað nemendur til þess að

kynna sér umhverfismál. Nemendur

þurftu að sækja um að komast í

námsferðina þar sem þeir gerðu

skriflega grein fyrir þeim ábata sem

þeir teldu sig fá af ferðinni og voru

fjórir valdir úr hópi umsækjenda.

Hinir heppnu voru Shelly Slocum, af

listabraut, Erick McAdam, af líf-

fræðibraut, David Coffman, af um-

hverfisfræðibraut og Andrew Jones,

af viðskipta- og tónlistarbraut, en

þess ber að geta að sá ungi maður

stefnir á að verða stjórnmálamaður.

Kennarar og fararstjórar voru

Cheyenne Oldham frá þróunardeild

skólans og Richard Olson, sem er yf-

irmaður náms í umhverfismálum og

sjálfbærri þróun.

Sjálfbær þróun á Íslandi

Til að kynna sér strauma og stefn-

ur hér á landi heimsóttu nemendur

m.a. umhverfisráðuneytið, Nesja-

velli, vetnisstöðina á Ártúnshöfða,

gróðurhús að Laugarási í Biskups-

tungum, Sólheima í Grímsnesi og

Gistiheimilið Brekkubæ á Hellnum

og þann umhverfisvæna kjarna sem

þar er. Í umræðum á Brekkubæ kom

í ljós að þeim þótti heldur lítið bera á

sjálfbærri þróun innan samfélagsins

í heild á Íslandi þótt unnið væri öt-

ullega að henni á ýmsum minni stöð-

um. Þau voru samt afar ánægð með

heimsóknina og stefndu á að enda

hana í Bláa lóninu, áður en haldið

yrði heim á leið með þá þekkingu

sem aflast hafði. 

Bandarískir nemar með áhuga

á umhverfismálum á Íslandi

Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann

Frá vinstri, standandi: Andrew Jones, Erick McAdam, Richard Olson og

David Coffman. Sitjandi: Shelly Slocum og Cheyenne Oldham.

Hellnum. Morgunblaðið.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32