Fjölmenni á frumsýningu Ussss Morgunblaðið/Jón Svavarsson Aðstandendur myndarinnar stilltu sér upp á sviðinu og voru hylltir af áhorfendum. Leikstjórinn Eiríkur Leifsson er lengst til vinstri. Davíð Guðbrandsson og Jón Marínó sem fara með aðal- hlutverkin í Ussss voru glettnir á frumsýningarkvöldi. Bibbi og Beta létu sig ekki vanta enda er það ekki á hverjum degi sem íslensk kvikmynd er frumsýnd. NÝ íslensk kvikmynd, Ussss ? ekkert sérstaklega rómantísk gamanmynd, var frumsýnd í Háskólabíói á fimmtu- dagskvöld. Margt góðra gesta var við frumsýninguna og fékk myndin ágætar móttökur áhorfenda sem skemmtu sér vel yfir ?skelfilega fyndnum? slysaskotum og misviturlegu ráðabruggi sögupersónanna sem enda á blóðugan máta. Það er Eiríkur Leifsson sem leikstýrir myndinni og er þetta fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd. Aðalhlutverkin eru í höndum Davíðs Guðbrandssonar og Jóns Marinós en einnig láta til sín taka í myndinni þau Sirrý Jónsdóttir, Felix Eyjólfsson, Þorsteinn Viðarsson, Baldur Bragason og Venus. Nýtt blóð í íslenska kvikmyndaflóru 26 MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. B.i. 14 ára. Stríðið er hafið! Sýnd kl. 8 og 10. HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 500 kr. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 starstarstar X-IÐ 97.7 starstarstar SV MBL starstarstar ÓHT RÁS 2 starstarstar HK DV Sýnd kl. 4, 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára. kl. 6, 8.30 og 11. Stríðið er hafið! Sýnd kl. 6. YFIR 28.000 GESTIR! HINN írski Pierce Brosnan, sem túlkað hefur njósnara hennar hátignar, James Bond, í fjórum kvikmyndum til þessa, hlaut á dögunum konunglega orðu fyrir störf sín. Brosnan segist vera mjög snortinn að fá þessa viðurkenningu fyrir túlkun sína á þessum frægasta spæjara Breta en honum var veitt heiðursorða breska heimsveldisins (Order of the British Empire). Orðan er þó aðeins heiðursorða en ekki full- gild orða því Pierce er ekki breskur þegn. Það var sendiherra Bretlands á Írlandi, Stewart Eldon, sem af- henti Pierce orðuna að við- stöddum ættingjum hans. Pierce segist aðeins hafa í hyggju að leika í einni Bond- mynd til viðbótar og tók fálega undir spurningar um að slá met Rogers Moores sem lék njósn- arann í sjö myndum. Nýjasta Bond-myndin hefur fengið titilinn Allt eða ekkert (Everything or Nothing) og samkvæmt áætlun er hún væntanleg seinna á árinu og verður þá væntanlega jólamyndin í ár ásamt þriðja hluta Hringa- dróttinssögu og lokahluta Matrix- þríleiksins. Brosnan sem Bond, alltaf óaðfinnanlegur í klæðaburði og hárið glæsilegt, jafnvel þegar hann er holdvotur. Bond fær orðu Englandsdrottning heiðrar Pierce Brosnan