Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						ÁLFABAKKI

Sýnd kl. 5, 8 og 10.

AKUREYRI

Sýnd kl. 5, 8 og 10.40.

EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5 OG 8.

?Líklegast best heppnasta

ofurhetjumynd allra tíma!

Sá græni rokkar.?

B.Ö.S. Fréttablaðið

allra tíma!

KVIKMYNDIR.IS

starstarstar

SG. DV

KEFLAVÍK

Sýnd kl. 8 og 10.30.

AKUREYRI

Sýnd kl. 6, 8 og 10.

KRINGLAN

Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.

ÁLFABAKKI

Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.

Það er erfitt að falla inn í hópinn þegar 

þú skerð þig svona hrikalega úr

Rómantísk gamanmynd með Amanda Bynes og ColinFirth (Bridget Jones´s Diary)

KEFLAVÍK

Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 ára.

KRINGLAN

Sýnd kl.  6,8og10.

KVIKMYNDIR.COM

ÓHT Rás 2

starstarstar

GH

KVIKMYNDIR.COM

"Besta hasarmynd

sumarsins það

sem af er"af er

KVIKMYNDIR.COM

Frábær rómantísk

gamanmynd.

Þegar tveir ólíkir

einstaklingar verða

strandaglópar á

flugvelli, getur allt gerst.

MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 29

T

INNA Guðrún Lúðvíksdóttir

er ung mær úr Vogum á

Vatnsleysuströnd. Þrátt

fyrir að vera rétt orðin 16 ára er

hún rísandi stjarna í íslenska

hnefaleikaheiminum og háði sinn

fyrsta bardaga fyrir framan vel á

þriðja þúsund áhorfendur í Laug-

ardalshöll fyrr í sumar þegar Írar

sóttu Íslendinga heim.

Sá bardagi fékk snöggan endi

þegar Tinna fékk miklar blóðnasir

en hún bar sig vel og hafði áhorf-

endur á bandi sínu. ?Ég hef aldrei

áður fengið blóðnasir á boxæfingu

? ekki einu sinni fengið glóðarauga

? og svo þurfti það einmitt að ger-

ast þarna,? segir Tinna sem hefur

æft hnefaleika í hálft annað ár.

?Þetta er ekkert hrottaleg

íþrótt,? segir hún þegar blaðamað-

ur spyr hana um hvort blóðnas-

irnar hafi verið jafnslæmar og þær

litu út fyrir að vera. ?Maður er

með hlífðargrímu og munngóm,

vafninga og hanska svo fólk getur

aldrei slasað sig neitt afskaplega

mikið. Svo er alltaf dómari til stað-

ar sem skerst í leikinn ef eitthvað

bjátar á.? Höggin valda samt

eymslum: ?Jú, þetta er náttúrulega

erfitt og að láta berja sig er auðvit-

að aldrei gaman, en það er alveg

þess virði þegar maður nær góðum

höggum á móti.?

Á að vera heima að mála sig

Tinna segir fólk oft hissa þegar

hún segist æfa box og að bæði

strákar og stelpur eigi oft erfitt

með að kyngja því: ?Ég verð

stundum vör við þennan hugs-

unarhátt: ?Hún á ekki að vera að

gera svona! Hún er stelpa, og á að

vera heima hjá sér að greiða sér og

mála sig.?? Hún tekur hins vegar

ekkert mark á slíkum röddum og

æfir hnefaleikana af kappi auk þess

sem hún hefur unun af að aka tor-

færumótorhjólinu sínu og keypti

sér nýlega bíl, þótt hún sé ekki

komin með bílprof, en hún hefur

verið dugleg að safna fyrir honum

alveg síðan hún var smástelpa.

?Ég held ég hafi verið tiltölulega

rólegt barn,? segir hún, þegar hún

er spurð um hvort hún hafi ef til

vill verið ódæl sem stúlka. ?En ég

þarf að hafa líf og fjör í kringum

mig.? Hún segist lítið hafa slegist

sem barn, en hlær og bætir við að

það hafi þá helst verið við yngri

bróður sinn.

Tinna verður lítið vör við aðrar

stelpur í boxíþróttinni: ?Besta vin-

kona mín hefur æft, en gerir það

þó ekki í miklum mæli. Það eru

nokkrar sem æfa, en flestar detta

bara inn við og við.? Hún verður

því að æfa á móti strákunum og

kvartar ekki yfir því, þótt þeir séu

stærri, þyngri og sterkari en hún:

?Ég myndi ekki kunna neitt ef

strákarnir væru ekki svona dugleg-

ir að hjálpa mér að þjálfa. Þjálf-

ararnir eru auðvitað frábærir og

Guðjón Vilhelm, forsprakki hnefa-

leikaklúbbsins, hefur staðið sig eins

og hetja.?

Mamma hefur 

áhyggjur af flötu nefi

Hnefaleikaíþróttin krefst mikillar

þjálfunar af Tinnu: ?Þetta er búið

að koma mér í rosalega gott form.

Það eru æfingar 2?3 sinnum í viku

en fyrir mót þá æfum við 1?2 sinn-

um á dag. Þá hefst dagurinn til

dæmis á því að hlaupa nokkra kíló-

metra og um kvöldið er tekin æfing

þar sem ég boxa við strákana.?

Blaðamaður segist sjálfur hafa

áhuga á að æfa box, en óttast að

nefið á honum verði flatt eins og á

Gutta. Tinna er samt ekkert með

áhyggjur af að fá boxaranef: ?Ég

held að mamma hafi mestar

áhyggjur af því. En þetta er ekki

þannig í rauninni. Þetta er ekki

eins og í götuslagsmálum þar sem

menn berjast með berum hnef-

unum og bein mætir beini. Við not-

um hlífar og púða og svo verður

maður bara að verja. Ef maður er

góður að verja þá verður í fínu lagi

með nefið.?

Tinna er að fara til Svíþjóðar í

æfingabúðir ásamt hópi annarra

hnefaleikaiðkenda frá Íslandi. Verið

er að undirbúa keppni við Dani

sem haldin verður seinna á árinu. Í

haust hefur Tinna nám við Versl-

unarskólann og segist ætla að

halda áfram að æfa hnefaleikana af

kappi.

?Ég var einu sinni að boxa við

Palla, félaga minn,? segir Tinna

þegar hún er spurð um minn-

isstæðasta atburðinn sem hún hef-

ur upplifað í hnefaleikum. ?Hann

er fjórum árum eldri og mikið

stærri en ég og sagði: ?Hva, svona

litlar ljóskur geta ekki boxað!? Það

hefði hann ekki átt að segja því að

ég varð alveg brjáluð og á end-

anum sprengdi ég á honum vörina

með bleiku boxhönskunum mínum.

Það var alveg frábært og þá vissi

ég að þetta var eitthvað fyrir mig.?

Tinna Guðrún Lúðvíksdóttir er upprennandi hnefaleikakappi

Morgunblaðið/Reynir Sveinsson

Á í engum vandræðum með að æfa með strákunum: Tinna Guðrún með bleiku boxhanskana góðu.

Lemur strákana með

bleikum boxhönskum

asgeiri@mbl.is

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32