VEÐUR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 31 MT50MT50MT176 MT50MT49MT176 MT50MT48MT176 MT49MT57MT176 MT49MT56MT176 MT49MT55MT176 MT49MT54MT176 MT49MT53MT176 MT49MT52MT176 MT83MT106MT225MT118MT97MT114MT104MT230MT240MT32MT109MT105MT240MT97MT115MT116MT32MT118MT105MT240MT32MT109MT101MT240MT97MT108MT115MT116MT243MT114MT115MT116MT114MT97MT117MT109MT115MT102MT106MT246MT114MT117 MT50MT49MT46MT32MT106MT250MT108MT237 MT109 MT109 MT70MT106MT97MT114MT97 MT176MT67 MT86MT101MT240MT117MT114 MT176MT67 MT86MT101MT240MT117MT114 MT176MT67 RIDDARAMYNDIR hafa löngum sagt heillandi sögur af glæsilegum riddurum í skröltandi brynjum sem bjarga fögrum snótum frá leiðinleg- um og ljótum skúrkum. Riddara- saga (A Knight?s Tale) er að miklu leyti hliðholl þeirri hefð, nema hvað í stað þess að festast um of í miðöld- unum er handritið ?rokkað upp? með tónlist, dansi og söng úr sam- tímanum sem hetjur myndarinnar eru ófeimnar að grípa til. Þannig er snemma í myndinni atriði þar sem burtreiðar fara fram og áhorfendur syngja hástöfum Queen-smellinn ?We Will Rock You?. Þetta er ekki ósvipað því sem gert var í Rauðu Myllunni (Moulin Rouge) nema hvað það er vitaskuld miklu langsóttara að syngja lög sem eru 700 árum á undan sinni samtíð. Útkoman er hins vegar ekki jafn- afleit og vænta mætti í fyrstu en til að njóta myndarinnar er vissara að hafa ekki væntingar um að fá að sjá klassíska riddaramynd á borð við Robin Hood frá 1991 þar sem Kevin Costner túlkaði hetjuna frá Skír- isskógi. Þó er Riddarasaga ekki al- veg jafnsnargeggjuð og Black Knight með Martin Lawrence þar sem geiflugrínistinn Martinn leikur nútímamann, ýkta getthó-týpu, sem rankar við sér á miðöldum. Það er ástralski sjarmörinn Heath Ledger sem fer með hlutverk skjaldsveinsins William Thatcher sem ákveður að gerast burtreiðar- riddari, þvert á öll boð og bönn stéttakerfis miðaldanna. Hann reynist prýðisgóður í burtreiðum (og tekst að dylja ástralska hreim- inn sæmilega) enda með harðan skráp eftir mótbyr æskuáranna og sigrar hvern snobbaða hertogason- inn á fætur öðrum. Vitaskuld kemur síðan við sögu fögur snót, hefðar- daman Jocelyn, leikin af Shannyn Sossamon sem kiknar í hnjánum yf- ir hinum gullinhærða og strákslega óheflaða riddara. Meðal annarra leikara má nefna Rufus Sewell, sem leikur vonda riddarann, Paul Bettany, sem leikur seinheppið hirðskáld, og Mark Addy og Alan Tudyk sem leika skjald- sveina. Leikstjórn og handrit voru í höndum Brian Helgeland. Með gullið hár og glansandi brynju: Heath Ledger tekst ágæt- lega að dylja ástralska hreiminn í Riddarasögu. Rokkaður riddari Riddarasaga (A Knight?s Tale) er á dagskrá Bíórásarinnar í kvöld kl. 20. ÚTVARP/SJÓNVARP EINN meðlimur Osbourne- fjölskyldunnar varð fyrir árás sléttuúlfa og lést af sárum sínum. Það var þó hvorki Ozzy, Sharon, Jack né Kelly heldur chihuahua- hundur fjölskyldunnar hún Lúlú. Í samtali við bandaríska tímaritið US Weekly segir Sharon frá því að sléttuúlfar hafi komist inn fyrir girðinguna í kringum óðal Osbourne-fjölskyldunnar í Kali- forníu og hafi Ozzy heyrt ýlfur og læti úr garðinum. Hann rauk á fæt- ur og út í garð þar sem hann barð- ist við sléttuúlfana og bjargaði Lúlú úr kjafti þeirra. Það var hins vegar of seint og lifði Lúlú árásina ekki af. Fjölskylda Ozzy Osbourne, gamla Black Sabbath-melsins og leðurblökuætunnar rauk upp á stjörnuhimininn með veruleikasjón- varpsþætti MTV-stöðvarinnar um litríkt fjölskyldulíf rokkarans. Þættirnir hófu göngu sína 2002 og hafa tvær þáttaraðir þegar verið teknar upp og sýndar við miklar vinsældir. Áhorf hefur þó eitthvað dalað en engu að síður hyggja framleiðendur á þriðju þáttaröðina. Dauði Lúlú ætti ekki að hafa mik- il áhrif á þær fyrirætlanir en Os- bourne-fjölskyldan á 6 aðra hunda og einn kött. Auk Ozzy, Sharon, Jack og Kelly eru líka dóttirin Aim- ee sem vill sem minnst taka þátt í veruleikasjónvarpinu, stjúpson- urinn Rob og heimilisþernan Mel- inda. Reuters Osbourne-klíkan. Á myndina vantar hundinn Lúlú. Ozzy berst við sléttuúlfa Osbourne-fjölskyldan hefur verið á dagskrá Stöðvar 2.